Tíminn - 31.12.1987, Page 8

Tíminn - 31.12.1987, Page 8
8 Tíminn Tíimnn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aöstoðarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriöi G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guömundsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síöumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Auglýsingaverö kr. 400 prdálk- sentimetri. Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 600.- Að vinna saman Áramót eru tími uppgjörs og reikningsskila, tími til að meta stöðuna. Um áramót gera menn hvort tveggja, að líta um öxl og horfa fram. Ekki er því að leyna að horfur í íslenskum innanlandsmálum, efnahags- og fjármálum, eru miklu dekkri í lok ársins en var í upphafi þess. í byrjun þess árs sem nú er að líða ríkti bjartsýni að því leyti, að ríkisstjórninni hafði tekist að ná árangri í efnahagsstjórn sem gaf vonir um að væri upphaf að varanlegu jafnvægi í efnahagsmálum. Allir voru á einu máli um það, að þessi árangur hefði ekki síst náðst fyrir þá staðreynd að vitræn samvinna tókst milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar um efnahagsmarkmiðin, fyrst og fremst það að vinna að verðbólguhjöðnun. Mátti með réttu halda því fram, að samskipti ríkisstjórnar , hagsmunasamtaka launþega og forystuafla atvinnulífsins væri að komast á það pólitíska menningarstig, sem viðgengst í norræn- um og vestrænum lýðræðisþjóðfélögum, þar sem hvert áhrifaaflið heldur að vísu sínu fram og ver valdastöðu sína, en gengur þó ekki lengra í kröfum eða valdbeitingu en samrýmist heildar- hagsmunum þjóðarbúsins. M.ö.o.: Efnahags- og kjaramál eru talin vera samstarfsverkefni ríkisstjórnar og hinna frjálsu hagsmunasamtaka, um slíkt verði að vera samráð. Hvað sem Iíður ágreiningi um ástæður þess að sigið hefur á ógæfuhlið í efnahagsmálum að undanförnu, er skylt að leggja ríka áherslu á það á þessum tímamótum, að því aðeins er hægt að rétta við það sem á hefur hallast, að samráðsstefn- an milli ríkisvalds og aðila vinnumarkaðarins sé virt í verki af öllum sem hlut eiga að máli. Hitt skal þó ekki undan dregið að uppivaðsla peningafrjálshyggjunnar, sem sótt hefur í sig veðrið á líðandi ári, er ógnvaldur skynsamlegrar efnahagsstjórnar. Það sem aflaga hefur farið á efnahagssviðinu á árinu 1987, mót bjartsýnisvonum manna í upphafi ársins, er að miklu leyti að kenna hvers kyns aðhaldsleysi í peninga- og Iánsfjármálum og offjárfestingu fyrir erlendar lántökur fram hjá bankakerfinu, þar sem ekkert virðist spurt að því hverjir vextir og annar fjármagnskostnaður sé. Sýnilegt er að ekki verður komist hjá opinberum efnahagsaðgerðum strax upp úr áramótum. Þar hlýtur ríkisstjórnin að hafa allt frumkvæði, en slíkt er einnig mál hagsmunaaðila vinnumarkaðarins. Það er félagsleg og pólitísk skylda hagsmunasam- takanna að greiða fyrir nauðsynlegum efnahags- ráðstöfunum af raunsæi og ábyrgðartilfinningu. Áhrifaöfl þjóðarinnar eiga að vinna saman þegar hætta steðjar að þjóðarbúinu. Gleðilegt nýár Fimmtudagur 31. desember 1987 'MWWWIlllllllllll u/Anni ilmlllllllllllmlllllllllllllllllllllllllmllllllllmlllllmlmllllllllmlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllm Af eplum, appelsínum og atvinnuöryggi „Borgin sem við áltum heima i er ákaflega falleg. Heimili okkar var upp við hæðirnar þar sem mikið er um ávaxtaekrur, epli, appelsínur og vínvið. Þaðan er aðeins 20 mínútna akstur niður að baðströndinni. “ Þannig hljóðar lýsing íslenskra hjóna á borginni Perth í Ástralíu. l’ar áttu þessi hjón, Kristín Helgadóttir og Magnús Jónsson, heima með börnum sínum í 19 ár. Fluttust þangað frá Sauðárkróki snemma árs 1968, en sneru heim á Krók síðastliðið vor til að setjast að í sínum gamla heimabæ. Þau kunna frá mörgu að segja. Viðtal við þau í jólablaði Dagblaðsins Dags á Akureyri lýsir ekki aðeins grcindum og skemmtilegum mann- eskjum, heldur er það lærdómsríkt og umhugsunarvert frá almennu þjóðfélagslegu sjónarmiði. Samkvæmt lýsingunni á loftslagi og gróðurfari er Perth í Ástralíu eins og himnaríki á jörð með ávöxtum sem tínd eru af trjánum og sólarströnd í næsta nágrenni. Þar halda menn jól í suðrænu sumarveðri, og fullvel telst búandi árið um kring í einföldum múr- steinshúsum án einangrunar frá kuida og dragsúg, sem allt ætlar að drepa á ístandi og þess háttar rokrössum og hclgrindum á norðurhjara veraldar. Þrátt fýrir þetta sér fólk með lífsreynslu og góða dómgreind að á margt er að líta áður en kveðnir eru upp algildir dómar um ágæti ianda og þjóðfélaga. Þá geturkom- ið í Ijós að í náttúrusæld sólskins- landanna þrífst ekki endilega sæluríkara mannlíf, eða skulum við segja meiri mannúð, réttlæti og atvinnuöryggi. Það er a.m.k. sá lærdómur sem Garri þykist mega draga af viðtal- inu við Kristínu Helgadóttur og Magnús Jónsson. Uppgjöf unga fólksins Blaðamaður Dags spyr Ástrah'u- faranna: Hvernig erafkoma Ástræ- líubúa? Svarið er: Þeir sem hafa atvinnu lifa ágætu lífí. En atvinnu- leysi er talsvert þarna, sérstaklega meðal yngra fólks og maður verður var við mikið vonleysi í ungu fólki. Þegar ungir krakkar sem hættir eru í skóla eru spurðir af hverju þau halda ekki áfram að læra, er svarið: Til hvers! Enn segir blaðamaður og beinir máli sínu að Magnúsi: Þegar ég bað um þetta viðtal, sagðist þú alltént vita að fslendingar hefðu það gott, en þeir kynnu bara ekki að meta það. Þessu svaraði Magn- ús Jónsson: Já, þeir (fslendingar) eiga gott að hafa atvinnuöryggið. Það held ég sé það sem . mest skortir í Ástralíu. Menn vita ekkert með vissu hvað þeir halda vinnunni lengi. Það eru mörg dæmi þess að menn missi vinnuna 45-50 ára og cftir það er nær ógjömingur fyrir þá að fá vinnu annars staðar. Þeir era þá taldir of gamlir fyrir vinnu- markaðinn. Vinnumórall í Ástralíu Um viðmót atvinnurekenda og verkstjórnarmanna gagnvart starfsfólki hefur Magnús sögur að segja sem koma íslendingum spánskt fyrir sjónir, eða réttara sagt: vekur hjá okkur óhug. Verka- menn og iðnaðarmenn eru reknir fyrirvaralaust úr vinnu, ef þeir leyfa sér að koma fram eins og frjálsir menn en ckki þrælar eða segja í hópi vinnufélaga sinna álit sitt á starfsumhverfi sínu og vinnu- tilhögun verkstjórnarmanna. Aðferð stjóraenda í mörgum fyrirtækjum í Ástralíu til þess að halda uppi vinnuaga er því sú að banna verkafólki að hugsa og tala, skipa því að halda kjafti. Þá vantar ekkert annað en hnútasvipuna, scm forverar þeirra fyrir 150 árum létu dynja á enskum smáþjófum og aumingjum, sem þrælkaðir voru í Ástralíuvist á þeim árum og m.a. má lesa um ■ ævi Jörundar, þess fræga landhlaupara og stórlygara, sem gerðist konungur yfir Islend- ingum sumarpart árið 1809. Jörund- ur komst að ýmsu leyti vel frá því, þótt Dönum þætti hann landráða- maður og Englendingum fyndist hann einum of lyginn og at- kvæðamikill i prakkaraskap, svo að hann væri best geymdur í Ástr- alíu, þar sem hann reyndar naut sín ágætlega þegar til kom. Jafnvel heilbrigðisþjónustan í þessu sólarlandi og krataveldi er ckki eins góð og á Islandi og er þó ágæt, segja þau Kristín og Magnús. Meira að segja læknamir eru betri á íslandi en í Ástralíu samkvæmt reynslu skynsamra íslendinga sem þar hafa átt heima í 19 ár. Mannúð og atvinnu- öryggi Það er ekki ætlun Garra að gera Ástralíu verra land en hún er, hvað þá að leggja meira í orð Kristínar og Magnúsar en þau ætlast til. Hins vegar vill Garri vekja athygli ís- lendinga sjálfra á því að það er ekki allt sem sýnist í öðrum löndum, þótt fögur séu og sólrík. ísland er líka gott land og íslenskt þjóðfélag hefur sína kosti. íslend- ingar eiga að halda því áfram að byggja upp þjóðfélag sem grund- vallast á mannúð og atvinnuöryggi. Ef það tekst sem verið hefur mun íslenskt þjóðfélag standast saman- burð við hvaða land scm er. En um það eiga íslendingar allt undir sjálfum sér, en ekki öðrum. Að svo mæltu óskar Garri les- cndum sínum farsæls nýárs og þakkar þeim allt hið liðna. Garri. VÍTT OG BREITT Innantómt verðmætamat Oft er á orði haft að börnin séu dýrmætasta eign hverrar þjóðar og á hátíðarstundum hér á landi er farið fögrum orðum um þann mikla auð sem felst í ungviðinu. En kjaftæðið um barnaauðinn er auð- vitað ekki annað en innantómt glamur því reyndin er sú að ungir Islendingar vilja eiga flest annað en börn. Það sama á við um margar aðrar velmegunarþjóðir. Tíminn birti í gær samanburðar- tölur um mannauð og annan auð upp úr nýútkominni Árbók Reykjavíkur. Þar gefur að líta þróun sem sýnir glöggt að verð- mætamat nútímans er vægast sagt barnfjandsamlegt. Þaðerekki rúm fyrir börn í því mannlífi sem dregur dám af lífsgæðakapphlaupi í upp- spenntu neysluþjóðfélagi. Þótt samanburðartölurnar eigi við um Reykjavík er engin ástæða til að ætla annað en að þær gætu í flestum megindráttum allt eins átt við um þróun í flestum öðrum þéttbýlum byggðarlögum landsins. íbúðum fjölgar, börnum fækkar Samanburðurinn er byggður á tölum sem ná yfir árabilið 1972-86. Borgarbúum fjölgaði þá um 9%, íbúðum um 38% og fólksbílum um 110%. Miðað við aldursflokka var íbúafjölgunin langmest á aldrinum 25-66 ára, en íbúum á þeim aldri fjölgaði um 8 þúsund. En í grunn- skólum voru 2.200 færri börn í lok tímabilsins en í byrjun þess. Á barnaheimilisaldri voru börnin 500 færri. En það er ekki nóg með að íbúðum fjölgi mun meira en mann- fólkinu. Ibúðastærðin eykst hröð- um skrefum með hverju ári. í nýjasta hverfi borgarinnar, í Grafarvogi, var meðalstærð íbúða 176 fermetrar um síðustu áramót. Að meðaltali eru 2.6 fbúar um hverja íbúð og því 68 fermetrar á hvern íbúa. Þetta eru að sjálfsögðu meðaltalstölur en sýna vel hve mikið er í íbúðahúsnæði lagt í góðærinu og að vel rúmt er um hvern íbúa. Á greindu árabili hefur giftu fólki ekki fjölgað og kjarnafjöl- skyldur, hjón eða sambýlisfólk með börn, eru í aðeins um helmingi íbúða. Svona samsetning búskapar- hátta sýnir náttúrlega hvernig stendur á því að mikil eftirspurn er eftir litlum íbúðum til kaups eða leigu. En samt sem áður er þeim fíflaskap að byggja stórar íbúðir haldið áfram með síauknum þunga. Dýrkeyptur frami og auður Óhóflegt íbúðarhúsnæði og bílar eru meðal þeirra lífsgæða sem upparnir og uppumar meta öðru fremur. Ferðalög til útlanda oft á ári er hluti af lífsmynstri fjölda fólks. Einhverjir halda líka uppi allri þeirri verslun með hégóma, sem sýnist þrífast þeim mun betur sem fjölskyldulífi hrakar. Mikið er dáðst að góðæri og kaupmætti, mikilli atvinnu og góðri menntun og öllum þeim tækifæmm sem ungu fólki bjóðast til fjár og frama. Allt er þetta gott og blessað og nýtur atvinnulífið og þjóðfélag- ið sjálfsagt góðs af. En ef þetta á allt að verða til þess að einn góðan veðurdag standa geldkerlingar uppi afkvæmalausar í húsagámum sem bylja af tómahljóði og lífsþreyttir og einmana karl- sauðir hafa sér ekki annað til dundurs en að telja bílana sína og leggja saman vaxtavaxtavaxtavext- ina af skuldabréfunum, getur það sama fólk spurt sjálft sig hvaða erindi það átti í samfélag spendýr- ategundarinnar sem með stolti kallar sig hinn viti borna mann. Börn eru aðeins til trafala í þjóðfélagi þar sem þegnamir eiga að vera frjálsir, óháðir og eyðslus- amir og hugsa aðeins um eigin stundarþarfir. Þar eru fóstureyð- ingar lögbundnar og tryggðabönd einstaklinga úrelt. Stöðutáknin eru dýrmætari en afkomendur. /Lifandi íslendingar eru að verða asfeldri og yngstu árgangarnir sífellt famennari. Að því kemur að þeir ^tanda ekki undir eftirlaunum eldra fólksins, en það á þá heldur ekki skilið að yngra fólk ali önn fyrir því, þar sem ekki hefur verið safnað í þann eina eftirlauna- og lífeyrissjóð sem staðið getur undir greiðslunum. Einu sinni var það sagt um börnin að þeirra væri guðs ríki. Svo er enn, og þangað er þeim vísað, því í það ríki sem við lifum í eru börn ekki velkomin. Frami og eignamyndun einhleypra geldinga af báðum kynjum hefur allan forgang. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.