Tíminn - 31.12.1987, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 31. desember 1987
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
íþróttamaöur ársins 1987:
Úrslit verða I jós á mánudag
Kjöri íþróttamanns ársins verður
lýst á mánudaginn, 4. janúar. Það
eru samtök íþróttafréttamanna sem
standa að kjörinu.
Samtök íþróttafréttamanna kusu
fyrst íþróttamann ársins fyrir árið
1956 og voru samtökin raunar stofn-
uð í kringum það kjör. Síðan hefur
árlega verið útnefndur íþróttamaður
ársins og er árið í ár því 32. í röðinni.
Vilhjálmur Einarsson hefur oftast
verið kjörinn, 5 sinnum, Hreinn
Halldórsson þrisvar og Ásgeir Sigur-
vinsson, Einar Vilhjálmsson og Skúli
Óskarsson tvisvar hver. f fyrra varð
Eðvarð Þór Eðvarðsson sundmaður
úr Njarðvík fyrir valinu.
íslenskir íþróttamenn hafa náð
mjög góðum árangri á þessu ári, eins
og reyndar undanfarin ár. Rætt var
um eftir kjörið í fyrra að á venjulegu
ári hefði hver og einn þeirra sem
höfnuðu í 10 efstu sætunum getað
orðið íþróttamaður ársins á „venju-
legu" ári og það þarf ekki lengi að
rifja upp afrek ársins 1987 til að sjá
að staðan verður svipuð í ár. Er í því
sambandi bent á íþróttaannálinn
sem fylgir blaðinu í dag. Þar sést að
fjölmargir íslenskir íþróttamenn
hafa náð árangri á heimsmælikvarða
jafnt hér heima sem á erlendri
grund. íþróttafréttamenn eiga því
úr vöndu að ráða þegar valinn er
einn úr sterkum hópi. í ár eru því
margir kallaðir en aðeins einn
íþróttamaður útvalinn. Hver það
verður, fæst ekki skorið fyrr en á
mánudaginn. - HÁ
Eðvarð Þór Eðvarðsson sundmaður
úr Njarðvík var kjörinn íþróttamað-
ur ársins 1986. Hér gæðir hann sér á
sneið úr tertunni sem jafnan er
skreytt í samræmi við úrslit í kjörinu
og því ekki sýnd gestum í hófínu fyrr
en eftir að íþróttamaður ársins hefur
tekið við viðurkenningu sinni.
IÞRÓTTAMENN ÁRSINS
1956 Vilhjúlniur Einarsson
1957 VUIijálmur Einursson
1958 Vilhjúlniur Einarsson
1959 Valbjörn Þorlúksson
1960 Vilhjúlmur Einarsson
1961 Vilhjúlmur Einarsson
1962 Guömundur Gíslason
1963 Jón Þ. Ólafsson
1964 Sigríöur Sigurðardóttir
1965 Valbjörn Þorlúksson
1966 Kolbeinn Þúlsson
1967 Guðmundur Hermunnsson
1968 Geir Hallsteinsson
1969 Guðmundur Gíslason
1970 Erlcndur Valdimarsson
1971 lljalti Einarsson
1972 Guðjón Guðntundsson
1973 Guðni Kjartansson
1974 Ásgcir Sigurvinssou
1975 Jóhannes Eðvaldsson
1976 Hrcinn Halldórsson
1977 Hreinn liaildórsson
1978 Skúli Óskarsson
1979 Hreinn Halldórsson
1980 Skúli Óskarsson
1981 Jón l’úll Sigmarsson
1982 Óskar Jukobsson
1983 Einar Vilhjalmsson
1984 Ásgeir Sigurvinsson
1985 Einar Vilhjálmsson
1986 Eðvarð Þór Eðvarðsson
1987 ?
25 milljónir
átromp!
45 milljónir
á númeríð allt!
Rík ástæða fyrir þig
til að taka þátt!
Happdrætti Háskólans hefur hæsta vinnings-
hlutfall í heimi! 70% af veltunni fara til vinnings-
hafa! Allir vinningar eru greiddir út í beinhörð-
um peningum sem vinningshafar ráðstafa að
eigin viid. Vinningamir eru undanþegnir skatti!
Vinningamir 1988: 9 á 5.000.000 kr/ 108 á 1.000.000 kr./
108 á 500.000 kr/ 324 á 100.000 kr./ 1.908 á 25.000 kr./
10.071 á 15.000 kr. / 122.238 á 7.500 kr/ 234 aukavinningar
á 25.000 kr./ SamtaU 135.000 vinningar á 1.360.800.000 kr.
' s/ -■1 v* - -n
■ .: ■
'
■
HAFPÐRÆTTl
HÁ5KÖLA I