Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.02.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 17.02.2009, Qupperneq 2
2 17. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR SKÓLAR Hjallastefnan hefur hafið skólastarf í 103 ára gömlu timb- urhúsi á Suðurgötu þrátt fyrir að hafa hvorki útgefið byggingar- leyfi fyrir nauðsynlegum breyt- ingum né lokaúttekt vegna bruna- varna. „Það verður að skoða þetta í hendingskasti ef það er byrjað að kenna þarna,“ segir Bjarni Kjart- ansson, forstöðumaður forvarna- sviðs Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins, um skólastarfið á Suðurgötu 14. Bjarni segist hafa vitað af því að óskað væri eftir að reka skóla í húsinu en hafa talið að málinu væri ólokið hjá bygg- ingarfulltrúa. Margrét Pála Ólafsdóttir, skóla- stjóri Hjallastefnunnar, segir að þótt formleg leyfi séu enn ekki fengin vegna húsnæðisins hafi verið leitað upplýsinga hjá bygg- ingarfulltrúa, Brunavarnaeftir- liti, Heilbrigðiseftirliti og Vinnu- eftirliti til að tryggja að allar kröfur séu uppfylltar. Nú þegar hafi miðhæð hússins verið búin þannig úr garði að hún standist kröfur um brunavarnir, meðal annars með því að gipsklæða veggi og tryggja flóttaleiðir. Verið sé að útbúa þriðju hæðina á sama hátt. Þar séu börnin hins vegar ekki enn sem komið er enda séu aðeins 35 börn í skólanum sem fullbúnum sé ætlað að taka við allt að 80 börnum. „Miðhæðin, þar sem við erum að vinna með börnunum, er algjörlega lögleg og við myndum ekki vilja starfa með öðru móti. Það er ekki búið að stimpla hæð- ina endanlega en það er búið að yfirfara hana algjörlega,“ segir Margrét Pála. Hjallastefnan hefur rekið grunnskóla í húsnæði leikskóla síns, Laufásborgar á Laufásvegi, frá 1. október. Ætlunin var að grunnskólastigið flyttist í sér- stakt húsnæði næsta haust en Margrét Pála segir forsendur hafa breyst með lækkuðu leiguverði og því hafi Suðurgata 14 verið tekin á leigu í vetur. Hún ítrekar að á meðan húsnæðið á Suðurgötu 14 sé ekki fullfrágengið sé litið á það sem bækistöð þar sem starfsemin hafi inngrip jafnframt aðstöðunni á Laufásborg. „Við erum mest í því að nýta okkur spennandi staði í nálægð við Suðurgötuna og erum oft í vettvangsferðum og ekki á staðnum af því að það er ekki búið að stimpla öll leyfi,“ segir skólastjórinn. Bjarni ítrekar að öll leyfi þurfi að vera í lagi áður en starfsemi hefjist. Byggingarfulltrúa beri að efna til lokaúttektar og kalla þá til fulltrúa forvarnasviðsins. „Þótt fólk fái einhverjar leiðbein- ingar á ekki að hefja svona starf- semi fyrr en byggingarleyfi er komið.“ gar@frettabladid.is Hjallastefnan rekur nýjan skóla án leyfa Skóli Hjallastefnunnar er starfræktur fyrir fimm og sex ára börn í íbúðarhúsi á Suðurgötu 14 þrátt fyrir að tilskilin leyfi vanti. Engin lokaúttekt hefur verið gerð á brunamálum í húsinu sem er úr timbri og yfir hundrað ára gamalt. SUÐURGATA 14 Börnin í skóla Hjallastefnunnar á Suðurgötu 14 una sér vel þótt húsnæðið uppfylli ekki formleg skilyrði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Miðhæðin, þar sem við erum að vinna með börnunum, er algjörlega lögleg og við myndum ekki vilja starfa með öðru móti. MARGRÉT PÁLA ÓLAFSDÓTTIR SKÓLASTJÓRI HJALLASTEFNUNNAR Teitur, áttu allir Stjörnuleik? „Já, enda Stjörnuleikmenn.“ Stjarnan vann bikarmeistaratitilinn í körfubolta karla um helgina í fyrsta sinn. Teitur Örlygsson er þjálfari Stjörnunnar. Sigbjörn Gunnarsson, fyrr- verandi alþingismaður, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri á sunnudag. Hann var 57 ára. Sigbjörn lauk stúd- entsprófi frá MA 1972 og stund- aði nám við Háskóla Íslands 1974-1975. Hann starf- aði sem kennari og kaupmað- ur á Akureyri frá 1972 til 1991. Hann sat á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn í Norðurlands- kjördæmi eystra frá 1991 til 1995. Hann var sveitarstjóri Skútustaðahrepps í Mývatns- sveit árin 1997 til 2005 og sveitarstjóri Þingeyjarsveitar frá 2006 fram á mitt ár 2008. Sigbjörn kvæntist Guð- björgu Þorvaldsdóttur versl- unarmanni árið 1972. Þau eiga, þrjár dætur og einn son, en fyrir átti hann einn son. Sigbjörn Gunn- arsson látinn FJÁRMÁL Nýtt frumvarp ríkis- stjórnarinnar um skyldusparnað tekur tillit til óska lífeyrissjóðanna um greiðslu úr séreignarsjóð- um. Mun skemmra er gengið við greiðslu úr sjóðunum en upphaf- lega var lagt upp með. Eigendum séreignar sparnaðar gefst kostur á að fá eina milljón króna greidda út, til að bregðast við fjárhagsvanda. Ekki verður um eingreiðslu að ræða heldur fær fólk sparnað sinn greiddan á sex til níu mánuðum, samkvæmt frumvarpinu, sem til stóð að kynna í þingflokkum í gær. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, varaformaður þingflokks Samfylk- ingarinnar, segir ljóst að niðurstað- an sé önnur en lagt var upp með í byrjun. „Þorri landsmanna á ekki háar upphæðir í séreignarsparnaði en þetta ætti að nýtast fólki engu að síður.“ Steinunn segist hafa von- ast eftir að eigendur sparnaðar- ins gætu fengið eingreiðslu en það hafi ekki gengið eftir þar sem sjóð- irnir treystu sér ekki til að greiða sparnaðinn út með þeim hætti. Hún vonast til að fólk nái að greiða upp óhagstæð lán eins og yfirdrátt og greiðslukortaskuldir, sem ætti að koma sér vel hjá mörgum. Ólöf Nordal, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, starfaði í vinnu- hópi fyrri ríkisstjórnar sem fjallaði um útgreiðslu séreignarsparnað- ar. „Mér sýnist þetta vera með allt öðrum hætti en fyrst var áætlað. Það er skammt gengið svo ekki sé meira sagt. Ég held að þetta muni ekki breyta mjög miklu hjá fólki.“ - shá Útgreiðsla séreignarsparnaðar með allt öðrum hætti en upphaflega var áætlað: Leið lífeyrissjóðanna var valin ÓLÖF NORDAL STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR PAKISTAN, AP Ríkisstjórn Pakistans samþykkti að íslömsk sharía-lög verði látin gilda í stórum hluta norðvestanverðs landsins við landamæri Afganist- ans. Einnig samþykkti stjórnin að hætta árásum á uppreisnarmenn á svæðinu. Í staðinn samþykktu talibanaleiðtogar í Swat- dalnum vopnahlé, en þar hafa hörð átök geisað undanfarið. Búist er við að Bandaríkjastjórn gagnrýni samkomulagið á þeim forsendum, að þar með gefist talibönum tóm til að efla herstyrk sinn og beina honum til árása á erlenda herliðið í Afganistan. Í samkomulaginu segir ekkert um að uppreisnarsveitir þurfi að afvopnast. Amir Haider Khan Hoti, ráðherra Norðvestur- landamærahéraðsins, segir að stjórnvöld muni nú framfylgja íslömskum lögum á Malakand-svæðinu, þar sem Swat-dalurinn er. Dalurinn var áður fyrr sannkölluð ferðamanna- paradís, en herskáir strangtrúarmenn hafa hreiðrað þar um sig með því að beita íbúana mikilli hörku. Meðal annars hefur fólk verið hálshöggvið, stúlkna- skólar hafa verið brenndir og árásir hafa verið gerð- ar á öryggissveitir á vegum stjórnvalda. Muslim Khan, talsmaður talibana, segir að vopna- hlé gangi nú í gildi næstu tíu dagana. „Ef það skilar okkur í raun því að sharía-lögum verður að fullu framfylgt, þá munum við framfylgja vopnahléinu í einu og öllu.“ - gb Stjórnvöld í Pakistan láta undan kröfum herskárra talibana í Swat-dalnum: Íslömskum lögum framfylgt SAMNINGAFUNDUR Í PESHAWAR Herskáir uppreisnarmenn og talibanar á fundi með fulltrúum stjórnvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SKOÐANAKÖNNUN Samfylking og Vinstri græn þurfa ekki að reiða sig á stuðning Framsóknarflokks- ins hyggi flokkarnir á áframhald- andi samstarf, samkvæmt skoð- anakönnun Gallup. Samfylkingin hefur mest fylgi allra flokkanna, og rúmlega sextíu prósent þjóðar- innar styðja ríkisstjórnina. Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 27,7 prósent og Sjálf- stæðisflokksins 25,8 prósent. Vinstri græn mælast með 24 pró- sent rúm. Framsóknarflokkurinn hefur 15 prósenta fylgi en Frjáls- lyndir mælast með 2,5 prósent. Könnun Gallup var gerð dag- ana 30. janúar til 15. febrúar. - shá Skoðanakönnun Gallup: Stjórnin áfram án Framsóknar LÖGGÆSLUMÁL Fíkniefnahundur lögreglunnar á Selfossi, Bea, er dauður. Á laugardagskvöld veiktist Bea og var henni komið á dýraspítala þar sem henni hrakaði mjög. Allt var gert til að lækna hana en það bar ekki árangur og hún drapst um nóttina. Bea varð fíkniefnahundur vorið 2007. Hún var mjög efnileg og reyndist mjög vel við fíkni- efnaleit. Reynt verður að komast að því, með krufningu, hvað olli dauða hennar. Ríkislögreglustjóri og Fangels- ismálastofnun hafa heitið lögregl- unni á Selfossi öllum mögulegum stuðningi til að brúa bilið þar til annar hundur fæst en það getur tekið allt að eitt ár. - jss Mikill missir á Selfossi: Fíkniefnahund- urinn dauður LÖGREGLUMÁL Maðurinn sem ekið var á á Laugavegi í síðasta mán- uði er enn í öndunarvél. Ökumaðurinn, sem ók Hummerbíl, stakk af frá vett- vangi, án þess að hjálpa hinum slasaða. Hann náðist skömmu síðar og játaði við yfirheyrslur að hafa ekið bílnum. Lögreglan bíður nú meðal ann- ars eftir niðurstöðum sýna sem send hafa verið til rannsóknar. Þar á meðal eru sýni sem leiða eiga í ljós hvort ökumaðurinn var undir áhrifum áfengis eða ann- arra vímuefna. - jss Hummer-málið: Maðurinn enn í öndunarvél TAÍLAND, AP Heimskautahöfin eru ekki líffræðilegar eyðimerkur, eins og lengi hefur verið talið. Samkvæmt nýrri rannsókn finnast 7.500 dýrategundir í Suður-Íshafinu og 5.500 í Norður- Íshafinu. Þar á meðal eru nokkur hundruð tegundir sem ekki var vitað að væru til. „Við þurfum að endurskoða kennslubækurnar,“ segir Victoria Wadley, vísindamaður sem tók þátt í rannsóknarstarfinu. Flestar lífverurnar eru þó af einfaldari gerðinni, hryggleys- ingjar voru algengastir. - gb Lífríki heimskautahafanna: Fjölbreytnin kom á óvart 589 færri skip á fimm árum Íslenskum fiskiskipum fækkaði um 589 á fimm árum eða 43,5 pró- sent. Alls voru skráð fiskiskip 1.356 fiskveiðiárið 2003/2004 en 767 fiskveiðiárið 2007/2008. SJÁVARÚTVEGUR SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.