Fréttablaðið - 17.02.2009, Side 8

Fréttablaðið - 17.02.2009, Side 8
8 17. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1 Hverjir urðu bikarmeistarar í körfuknattleik á sunnudag? 2 Hvað er Orator, félag laga- nema, gamalt? 3 Hvað eru margir kettir skráð- ir á sýninguna Kynjakettir? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26 VENESÚELA, AP Hugo Chavez, forseti Venesúela, segir sigur sinn í þjóð- aratkvæðagreiðslu um helgina vera sigur sósíalisma og byltingar. Nú fái hann nægan tíma til að koma á víðtækum þjóðfélagsbreytingum í landinu. Íbúar landsins samþykktu breyt- ingu á stjórnarskrá, sem afnemur öll takmörk á því hve oft forseti landsins og aðrir kjörnir fulltrúar þjóðarinnar mega bjóða sig fram í kosningum. Þúsundir ákafra stuðningsmanna forsetans komu saman til að fagna úrslitunum fyrir utan forsetahöll- ina í höfuðborginni Caracas. Flug- eldum var skotið á loft og einn maður gekk um með málverk af forsetanum sem á var skrifað: „Að eilífu“. Ekki voru þó allir jafn hrifnir. Margir óttast að Chavez vilji ekki bara lengri valdatíma heldur einnig meiri völd, og áratuga langt ein- ræðistímabil hans sé að hefjast. „Þetta fólk gerir sér enga grein fyrir því hvað það hefur gert,“ sagði Josefa Dugartes, kona sem horfði á mannfjöldann út um glugg- ann á blokkaríbúð sinni. Þegar 94 prósent atkvæða höfðu verið talin, hafði stjórnarskrár- breytingin verið samþykkt með 54 prósentum atkvæða gegn 46 pró- sentum. Munurinn var of mikill til að framhald talningarinnar gæti breytt þar nokkru. Kosningaþátt- takan nam 67 prósentum. „Árið 2012 verða forsetakosn- ingar, og taki guð ekki aðra ákvörð- un, og taki fólkið ekki aðra ákvörð- un, þá er þessi hermaður strax kominn í framboð,“ sagði Chavez þegar úrslitin voru orðin ljós. Hann var fyrst kosinn forseti árið 1998 og hefur sjálfur sagt að hugsanlega verði hann við völd allt til ársins 2049, þegar hann verður 95 ára. Ekki er þó víst að Chavez geti treyst því að fá atkvæði almenn- ings alla tíð. Alþjóðlega kreppan og verðfall á olíu, sem gjaldeyris- tekjur Venesúela eru nánast alfarið byggðar á, gerir það að verkum að Chavez á erfitt með að ausa áfram úr ríkissjóði til að skapa sér vin- sældir. Komi kreppan harkalega niður á landsmönnum gætu vinsældir for- setans verið fljótar að fjúka. Hann hefur engu að síður tryggt sér töluverð áhrif á dómstóla lands- ins, löggjafarþingið og kjörstjórn, þannig að ekki er víst að kjósend- ur ættu svo auðvelt með að koma honum frá völdum, ef á reynir. gudsteinn@frettabladid.is Chavez fær að bjóða sig fram til æviloka Venesúelabúar samþykktu stjórnarskrárbreytingu í kosningum á sunnudag. Chavez boðar frekari þjóðfélagsbreytingar í átt til sósíalisma. Almenningur fagnar en gagnrýnendur óttast að áratugalangur einræðistími sé að hefjast. AÐDÁENDUR FORSETANS FAGNA Í hópi mannfjöldans sem fagnaði á sunnudagskvöld var þessi maður, sem hélt á lofti mynd af sjálfstæðishetjunni Simon Bolivar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL „Við erum nú svo bless- unarleg í Sjálfstæðisflokknum að við eigum nóg af góðu fólki til að leiða flokkinn. Ég treysti öðru fólki vel til þess og mun því ekki bjóða mig fram til formanns flokksins,“ segir Elliði Vignis- son, bæjar stjóri í Vestmanna- eyjum. Elliði segir marga hafa komið að máli við sig í slíkum hugleiðing- um. „Það er greinilegt að mikill hugur er í sjálfstæðismönnum og þegar svo er fer síminn af stað hjá mér og mörgum öðrum. Þessi nöfn sem nefnd hafa verið falla mér svo vel í geð að mér sýnist að jafn- vel verði erfitt fyrir mig að gera upp hug minn um hvern ég muni styðja,“ segir Elliði. - kg Bæjarstjóri Vestmannaeyja: Elliði ætlar ekki í formanninn ELLIÐI VIGNISSON Skókastara fyrirgefið Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, hefur beðið yfirvöld í Cambridge- háskóla á Englandi um að náða nema úr skólanum, sem kastaði skó að honum er hann flutti fyrirlestur við skólann fyrr í mánuðinum. Atvikið olli mikilli reiði meðal stjórnvalda og almennings í Kína, sem álitu það aðför að þjóðarvirðingu Kínverja. BRETLAND-KÍNA VINSTRI GRÆN Auður Lilja Erlings- dóttir sækist eftir öðru til þriðja sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavíkur- kjördæmunum tveimur. FRAMSÓKNARFLOKKUR Björg Reehaug Jensdóttir gefur kost á sér í 2. til 3. sæti á lista Framsóknarflokks- ins í Norðvestur- kjördæmi. SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR Vilhjálmur Árnason gefur kost á sér í 3. til 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. VINSTRI GRÆN Davíð Stefánsson ækist eftir 2. til 3. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykja- víkurkjördæmunum tveimur. ERLENTP ÓFKJÖR ÍSRAEL, AP Ísraelsk stjórnvöld hafa lagt undir sig stórt landsvæði skammt frá Efrat, einu af stærstu land- tökusvæðum gyðinga á Vesturbakkanum. Allt að 2.500 íbúðir gætu risið á þessu svæði. Með þessu leggja Ísraelar enn einn stein í götu hinna erfiðu friðarviðræðna við Palestínumenn. Ísraelsk stjórnvöld hafa hvað eftir annað lofað því að stöðva útþenslu landtökusvæða á herteknu svæð- unum, en hver ríkisstjórn landsins á fætur annarri hefur svikið þau loforð. Benjamin Netanyahu, leiðtogi Likudflokksins sem líkur eru á að verði næsti forsætisráðherra Ísraels, hefur lengi verið fylgjandi frekara landnámi á svæð- um Palestínumanna. Nærri 290 þúsund Ísraelar búa á landtökusvæðum á Vesturbakkanum, og hefur þeim fjölgað um 95 þús- und síðan 2001 þegar Bandaríkjamenn kröfðust þess fyrst að fjölgun á þessum svæðum yrði stöðvuð. Í Efrat, sem er fyrir sunnan Jerúsalem, búa 1.600 fjölskyldur, en stefnt er að því að fjölga íbúum þar í þrjátíu þúsund, að því er Oded Revivi, bæjarstjóri í Efrat, heldur fram. - gb Friðarviðræður torveldaðar með stækkun landtökusvæðis á Vesturbakkanum: Ísraelar sýna litinn friðarvilja BENJAMIN NETANYAHU Líklegur arftaki Ehuds Olmert forsætis- ráðherra hefur lengi verið fylgjandi frekar landtöku. ALÞINGI „Það skiptir miklu máli að greiðsluaðlögun nái til veð- lána líka,“ segir Árni Páll Árna- son, formaður allsherjarnefndar sem hefur nú til meðferðar þrjú frumvörp um greiðsluaðlögun og breytingar á lögum um gjaldþrot einstaklinga. Árni Páll segir að unnið verði áfram í málinu á næsta fundi nefndarinnar á morgun. Þá muni skýrast hvernig málið kemur úr nefnd. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir að efasemdir hafi borist nefndinni, sérstaklega frá bönkum og lífeyr- issjóðum. „Við höfum ekki sagt að við leggjumst gegn frumvarpinu, við viljum bara vanda til verka. Ef stigið er af sporinu getur það reynst dýrt fyrir bankana og líf- eyrissjóðina.“ Meðal þeirra sem lagt hafa fram athugasemdir um breytingar á lögum um gjaldþrot og greiðslu- aðlögun eru Neytendasamtök- in. „Við erum að sjálfsögðu mjög ánægð með að þetta frumvarp er komið á þetta stig,“ segir Hildi- gunnur Hafsteinsdóttir, lögmað- ur Neytendasamtakanna. Sam- tökin hafi þó viljað sjá sérlög um greiðsluaðlögun. Einnig bendir Hildigunnur á að sum efnis ákvæði komi einungis fram í greinargerð með frumvarpinu, en ættu að vera skýr í lagatextanum. „Lögin þurfa að vera vel gerð því þau verða mikið nýtt,“ segir Hildigunnur. - ss Frumvarp um breytingar á lögum um gjaldþrot: Mikilvægt að vanda til verka ÁRNI PÁLL ÁRNASON Vill að greiðslu- aðlögun nái einnig til veðlána. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P LÖGREGLUMÁL Til átaka kom í heimahúsi á Ísafirði um helgina, þar sem eggvopni var beitt. Það var aðfaranótt sunnudagsins sem maður var handtekinn þar sem hann var gestkomandi í heima- húsi á Ísafirði. Lögregla mætti á staðinn eftir að tilkynning barst fjarskipta- miðstöð um að átök með eggvopni hefðu átt sér stað. Árásarmað- urinn meinti var í haldi lögregl- unnar til sunnudagskvölds en var sleppt að loknum yfirheyrsl- um yfir honum og vitnum. Ekki munu hafa orðið alvarleg meiðsl í átökunum en menn voru með ein- hverja áverka eftir þau. - jss Handtaka á Ísafirði: Eggvopn á lofti í samkvæmi VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.