Fréttablaðið - 17.02.2009, Qupperneq 10
10 17. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
SÁ MINNSTI He Ping Ping er sagður
minnsti maður í heimi, aðeins 74
sentimetrar á hæð og tvítugur að
aldri. Hann er kínverskur, en þarna
sést hann í Tókíó með skó af stærsta
manni heims. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMFÉLAGSMÁL „Vellíðanin sem hlýst af því að gera
góðverk, lítið eða stórt, er ríkulegasta umbunin,“
segir Benjamín Axel Árnason, formaður upplýs-
ingaráðs skátahreyfingarinnar, en skátahreyfing-
in efnir til góðverkadaga um land allt þessa vikuna
undir yfirskriftinni „Góðverk dagsins“.
Benjamín segir góðverk ekki þurfa að vera stór til
að skipta máli. „Ég hef í áratugi reynt að gera góð-
verk á dag eins og góðum skáta sæmir, það er ótrú-
legt hvað lítið góðverk, eins og að halda hurð opinni
fyrir gangandi vegfaranda, veitir mikla gleði og
ánægju.“
Góðverkadagarnir eru ný útfærsla á nær alda-
gamalli hefð og loforði skáta um að gera að minnsta
kosti eitt góðverk á dag. Markmið verkefnisins
er að hvetja landsmenn til athafna og umhugsun-
ar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik
og hjálpa öðrum. Þó nokkuð af stærri fyrirtækjum
hafa gengið til liðs við skátahreyfinguna og verða
með góðverkadaga í næstu viku. Góðverkadagarnir
munu einnig hafa dagskrártengingu við framhalds-
skóla, grunn- og leikskóla. - gde
Skátahreyfingin hvetur landsmenn til að láta gott af sér leiða og gera góðverk:
Góðverk geta verið lítil og stór
SKÁTAR Góðverk eru þeirrar náttúru að þau fjölga sér á ógnar-
hraða öllum til ánægju.
VINNUMARKAÐUR Atvinnulausir eru
nú í fyrsta sinn komnir yfir 15
þúsund á landinu öllu. Langflestir
eru atvinnulausir á höfuðborgar-
svæðinu eða tæp tíu þúsund.
Atvinnuleysi er næstmest á Suð-
urnesjum. Þar eru tæplega 1.800
einstaklingar atvinnulausir. Inni
í þessum tölum eru líka einstakl-
ingar sem hafa sótt vinnu á höfuð-
borgarsvæðið.
Suðurnesjamenn eru ekki að
kynnast atvinnuleysi í fyrsta
sinn en það jókst verulega eftir að
herinn fór. Þeir voru því snöggir
að opna félagsmiðstöðina Virkj-
un mannauðs á Suðurnesjum
og hafa rekið frá því um miðj-
an janúar. Páll Rúnar Pálsson,
umsjónarmaður Virkjunar, segir
að aðsóknin hafi verið stígandi
en fleiri mættu koma. Miðað við
atvinnuleysistölur vanti marga.
„Við erum með alla helstu
stoðþjónustu við einstaklinga,
til dæmis presta, lögfræðinga,
náms- og starfsráðgjafa. Þetta
fólk er með fasta viðveru hérna.
Svo erum við með námskeið, fyrir-
lestra og hópastarf. Við erum með
stutt og hnitmiðuð námskeið sem
snúa að atvinnuleit og atvinnu-
lífi, til dæmis gerð ferilskrár,
og svo höfum við frístundanám-
skeið. Hér eru til að mynda tveir
menn með jóga á morgnana,“
segir Páll.
„Við lítum á okkur sem félags-
miðstöð sem er opin fyrir alla frá
níu til fjögur alla virka daga. Hér
er frítt kaffi og gott að koma hing-
að svo að fólk komist úr húsi. Það
ræður svo sjálft hvaða farveg það
velur, hvort það vill fara á nám-
skeið fyrir framtíðina eða kynna
sér lengra nám,“ segir hann.
Páll segir að fólk sé svart-
sýnt og þungt gagnvart ástand-
inu en jákvætt og spennt gagn-
vart starfinu í Virkjun, eins og
félagsmiðstöðin er kölluð. „Það
hjálpar okkur að herinn er nýfar-
inn, reynslan eftir það kemur sér
vel,“ segir hann og telur rétt að
leyfa starfinu í félagsmiðstöðinni
að mótast í takt við óskir og þarf-
ir fólksins. ghs@frettabladid.is
Nýta reynsluna eftir
brotthvarf hersins
Atvinnulausir eru yfir 15 þúsund í landinu. Atvinnuleysið er einna mest á
Suður nesjum en þar hefur reynslan eftir brotthvarf hersins komið sér vel. Suður-
nesjamenn hafa rekið miðstöð fyrir atvinnulausa frá því um miðjan janúar.
Aneta Zanadska starf-
aði sem þjónn á Café
Duus og þar áður á
Trocadero í Reykjanes-
bæ en missti vinnuna
í júní í fyrra. Hún og
kærasti hennar, Marek
Jezierski, sem vann á
smíðastofu, eiga hús í
Reykjanesbæ og hafa
bæði verið atvinnu-
laus í marga mánuði.
Aneta segist hafa
orðið hrædd fyrst eftir
að hún missti vinnuna
og farið að hugsa um hvernig hún ætti að geta bjargað
sér, hvort hún gæti borgað reikningana en svo hafi hún
fengið atvinnuleysisbætur og uppgötvað að þetta gæti
kannski bjargast.
„Þá fór ég að hugsa að þetta væri kannski ekki svo
hrikalega slæmt,“ segir hún.
Aneta og kærastinn hennar sækja íslenskunámskeið
í Virkjun og búa sig undir það að fá vinnu aftur. Aneta
segist svo prjóna, sauma, teikna og mála heima hjá
sér, laga og gera við og jafnvel mála veggina til að hafa
eitthvað fyrir stafni.
LÆRIR ÍSLENSKU OG PRJÓNAR
ANETA ZANADSKA OG MAREK
JEZIERSKI
Ríkharður Pescia
missti um áramótin
vinnuna sem inn-
kaupastjóri erlendra
viðskipta hjá Vatns-
afli. „Þetta var mjög
slæm tilfinning. Ég
er rétt að byrja að
átta mig á þessu,“
segir hann. „Ég átti
von á að vera kom-
inn í framtíðarstarf
og það gekk ekki.“
Ríkharður keypti
íbúð fyrir nokkru og var búinn að innrétta hana en átti
eftir að klára ýmislegt og byrjaði á því þegar hann varð
atvinnulaus. Hann byrjar fljótlega á tölvunámskeiði og
veltir fyrir sér hvaða stefnu hann eigi að taka. Hann er
Bandaríkjamaður af ítölskum ættum og veltir fyrir sér
að fara í ferðaþjónustu.
Ríkharður er skuldugur en þakkar sínum sæla fyrir
að hafa tekið innlend íbúðalán. Honum finnst þó
ósanngjarnt að ekki sé boðið upp á frystingu innlendra
lána eins og erlendra og telur að verið sé að refsa þeim
sem halda peningum í landinu. Ríkharður telur ekki
nægilega gert fyrir fólk í atvinnumálum.
VANTAR AÐGERÐIR
RÍKHARÐUR PESCIA
Auglýsingasími
– Mest lesið
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200
Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop
Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending
Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár.
Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast.
Þvottavélar - Verð frá kr. 139.995
Þurrkarar - Verð frá kr. 119.995
TILBOÐ
Sparaðu
með Miele
VIÐ UPPSTEYPU Í HELGUVÍK Atvinnuleysi í landinu er einna mest á Suðurnesjum. Á Suðurnesjum eru tæplega 1.800 einstaklingar
atvinnulausir en verulega hefur hægt á framkvæmdum Norðuráls í Helguvík. Þar má þó enn sjá steypubíla og menn að störfum
við uppsteypu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Brotist var inn á
nokkrum stöðum í höfuðborg-
inni í fyrrinótt. Til dæmis var
farið inn í verslun við Laugaveg
og þaðan stolið nokkru af snyrti-
vörum og kvenklæðnaði.
Tilkynnt var um innbrot í
skrifstofuhúsnæði á Stórhöfða.
Þar hafði hurð verið spennt upp
en ekki liggur fyrir hvort nokkru
var stolið þaðan. Þá var brot-
ist inn í endurvinnslustöðina við
Knarrarvog og tókst að spenna
upp peningakassa. Hann var hins
vegar tómur. Að síðustu voru
tveir menn handteknir, sem stolið
höfðu jeppadekkjum úr kjallara-
íbúð og sett í bíl sinn. - sh
Tilkynnt um fjögur innbrot:
Kvenföt tekin
ófrjálsri hendi