Fréttablaðið - 17.02.2009, Síða 12
12 17. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 170 Velta: 659 milljóni
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
310 +0,35% 939 -0,12%
MESTA HÆKKUN
ATLANTIC PET. +8,05%
STRAUMUR-B. +4,12%
BAKKAVÖR +0,54%
MESTA LÆKKUN
MAREL -5,44%
ÖSSUR -1,47%
CENTURY AL. -0,44%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,80 +0,00% ... Atlantic
Airways 161,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 470,00 +8,05% ...
Bakkavör 1,88 +0,54% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 111,00 +0,00% ... Icelandair Group
13,40 +0,00% ... Marel Food Systems 48,70 -5,44% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 2,53 +4,12% ... Össur 93,60 -1,47%
Míla og Flugfjarskipti hafa gert
með sér samning um að Míla veiti
Flugfjarskiptum áframhaldandi
fjarskiptaþjónustu á kerfi sínu. Að
auki hafa tengingar verið endur-
hannaðar.
Flugfjarskipti sinna tal- og
gagnaviðskiptum við alþjóðaflug
á íslenska flugstjórnarsvæðinu,
ásamt því að reka íslenska hlut-
ann af alþjóðlegu skeytadreifi-
kerfi fyrir flugrekendur.
Brandur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfjarskipta,
segir grundvallaratriði að fjar-
skiptasambönd séu vel varin.
Míla er í eigu Skipta sem einnig
á Símann og byggir á starfsemi
fjarskiptanets Símans. - óká
Framlengdu
samninginn
Álandsbanki hefur keypt Kaup-
þing í Svíþjóð fyrir 414 milljón-
ir sænskra króna, eða sem nemur
rúmum 5,5 milljörðum króna.
Kaupverðið var greitt út í hönd,
að því er fram kemur í tilkynn-
ingu bankans.
Álandseyjar eru sjálfsstjórnar-
svæði undir finnskum yfirráðum
á Eystrasalti, mitt á milli Finn-
lands og Svíþjóðar. Peter Wiklöf,
forstjóri bankans, segir það lengi
hafa verið á stefnuskrá bankans
að hasla sér völl í Svíþjóð. Með
kaupunum á Kaupþingi fjölgi við-
skiptavinum bankans þegar um
20 þúsund og heildarviðskipti um
fimmtung.
Fyrirtækjalán og fleiri eignir
færast við kaupin til skilanefndar
Kaupþings hér á landi, sem og
mögulegt tap af af hruni Lehman
Brothers í fyrrahaust. Málaferli á
hendur Kaupþingi í Svíþjóð munu
ekki heldur hafa áhrif á starfsemi
Álandsbanka og
neyðarlán sem
sænska ríkið
veit t i Kaup-
þingi verður
endurgreitt að
fullu.
A ð s ö g n
Steinars Þórs
Guðgeirssonar,
formanns skila-
nefndar Kaup-
þings, er lána-
pakkinn sem yfirtekinn var við
söluna í ágætu lagi. „Þetta eru
hvorki verri né betri lán en geng-
ur og gerist,“ hefur Vísir eftir
honum í gær. Yfirtekin fyrir-
tækjalán og eignir nema um 53,6
milljörðum króna. Óvissa mun
helst um heimtur á lánum vegna
hlutabréfakaupa Svía í Lehman
Brothers, en þau lán munu nema
nokkur hundruð milljónum
sænskra króna. - óká
STEINAR ÞÓR
GUÐGEIRSSON
Álandsbanki kaupir Kaupþing í Svíþjóð
VIÐ ÚTIBÚ KAUPÞINGS Í STOKKHÓLMI Álandsbanki, sem er með starfsemi á Álands-
eyjum og í Finnlandi, hefur keypt starfsemi Kaupþings í Svíþjóð og segir þar kominn
rétta stökkpallinn inn á sænska markaðinn. Hjá Kaupþingi starfi hæft starfsfólk og
þar sé samband við viðskiptavini gott. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
Snörp verðlækkun á hráolíuverði
á heimsmörkuðum hefur valdið
hremmingum hjá olíuútflutnings-
ríkinu Dúbaí.
Skuldatryggingarálag á fimm
ára skuldabréf ríkisins rauk upp
um 50 punkta á föstudag og stend-
ur nú í 960 til 1025 punktum. Það
hefur aldrei verið hærra og tvö-
falt hærra en í nágrannaríkjun-
um, líkt og breska viðskiptablaðið
Financial Times benti á í gær.
Skuldatryggingarálagið hér
stendur í 915 til 1015 punktum.
Skuldtryggingarálag hefur
verið notað sem vísbending um
styrk fyrirtækja, sérstaklega
fjármálafyrirtækja: Því hærra
sem álagið er, því meiri líkur eru
taldar á að fyrirtæki verði gjald-
þrota.
Financial Times segir
hagræðingu eina og sér duga
ekki til að bæta trú manna
á stöðu landsins og vísa til
þess að skuldir þjóðarbús-
ins nemi jafnvirði 80 millj-
arða Bandaríkjadala. Það
jafnast á við 9.148 milljarða
íslenskra króna. Þar af nema
skuldir fyrirtækja 70 millj-
örðum dala.
Arabíski netmiðillinn Gulf
Times hefur eftir heimildar-
manni í Dúbaí að þrátt fyrir
erfiðleikana nú sé staða rík-
isins snöggtum skárri en
Íslands. Landið þurfi ekki
á viðamiklum björgunar-
aðgerðum að halda heldur
fjármálastjóra sem kunni
til verka. - jab
MOSKA Í DUBAÍ Í olíuríkinu
Dubaí segja menn stöðuna
snöggtum skárri en hér.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Olíuríkinu Dúbaí líkt við Ísland
„Ört minnkandi kortavelta að raun-
virði er til marks um hríðversn-
andi stöðu íslenskra heimila,“ segir
í umfjöllun Greiningar Glitnis, en
þar er vísað til nýbirtra talna Seðla-
bankans.
Í janúar nam heildarvelta inn-
lendra kreditkorta 24,5 milljörð-
um króna, en í tölunni er megnið af
jólaverslun landsmanna að finna. Í
krónum talið er veltan 15 prósent-
um minni en í fyrra.
„Erlend velta hefur skroppið
mun meira saman en innlend, enda
leggjast veik króna og erfiðari fjár-
hagur margra heimila á eitt um að
draga úr ferðagleði landans,“ bend-
ir Greining Glitnis jafnframt á, en á
erlendri veltu hefur orðið rúmlega
helmings samdráttur milli ára.
Raunvirt kreditkortavelta að við-
bættri debetkortaveltu í innlendum
verslunum síðustu þrá mánuði er
svo 28 prósentum minni en á sama
tímabili í fyrra, segir Glitnir. - óká
Bág staða veld-
ur minni veltu