Fréttablaðið - 17.02.2009, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 17. febrúar 2009 19
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 17. febrúar 2009
➜ Fyrirlestrar
12.05 Lára Magnúsardóttir flytur
erindið „Ótti við andóf veldur andófi og
ótta“ í fyrirlestrarsal Þjóð-
minjasafnsins við Suður-
götu. Allir velkomnir.
➜ Tónlist
20.30 Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur kvik-
myndatónlist á tónleikum
í Neskirkju við Hagatorg.
Aðgangur er ókeypis.
➜ Sýningar
Isisland Brynju Sverrisdóttur hefur
opnað sýningu í Kirsuberjatrénu við
Vesturgötu 4. Opið 11-18 virka daga um
11-15 á laugardögum.
➜ Tangókvöld
20.30 Hljómsveitin Fimm í tangó leika
finnskan og íslenskan tangó í Hlégarði
við Háholt í Mosfellsbæ. Ozgur Demir
og María Shanko sýna dans.
➜ Ljósmyndasýningar
Ráf - roaming Gréta S. Guðjónsdóttir
hefur opnað sýningu í kaffihúsinu Te
& kaffi í bókaverslun Eymundssonar í
Austurstræti 18. Opið kl. 9-22 virka daga
og 10-22 um helgar.
Reykvíkingar og nágrannar. Einar
Jónsson hefur opnað ljósmyndasýningu
á Háskólatorgi við Suðurgötu. Opið alla
daga kl. 8-22.
➜ Myndlist
Innra rými Harpa Dögg Kjartansdóttir
og Katla Guðrún Jónasdóttir hafa opnað
sýningu í Listasal Iðuhússins við Lækj-
argötu. Sýningin er opin alla daga frá
kl. 9-22.
auður/hlutfall Birta Guðjónsdóttir
hefur opnað sýningu í Listasal Mosfells-
bæjar, Þverholti 2 í Kjarna. Opið virka
daga kl. 12-19 og laugardaga kl. 12-15.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Lúðrasveit Reykjavíkur held-
ur stórtónleika í kvöld í Nes-
kirkju við Hagatorg, klukkan
20.30. Aðgangur á tónleikana er
ókeypis. Dagskráin er einstak-
lega glæsileg. Flutt verður tón-
list eftir frægustu og rómuðustu
tónskáld síðustu aldar, sem sér-
hæfðu sig í kvikmyndatónlist.
Þessir höfundar eru Ennio Morri-
cone, Nino Rota, John Williams,
Jerry Goldsmith og Charles
Chaplin. Sérstök áhersla verður
þó lögð á tónlist eftir Ennio Morri-
cone og einnig tónlist Charles
Chaplin úr hans þekktustu kvik-
myndum, en Chaplin samdi alla
tónlist við sínar myndir. Stjórn-
andi á tónleikum Lúðrasveit-
ar Reykjavíkur verður Lárus
Halldór Grímsson.
Lúðrasveit í
Neskirkju
Sölku Völku, dansverki eftir Auði Bjarnadótt-
ur, hefur verið boðið á danshátíðina Tanzwelt í
Braunshweig í Þýskalandi 8. mars næstkomandi.
Verkið var frumsýnt á Listahátíð 2002 með
Íslenska dansflokknum en að þessu sinni er það
Svöluleikhúsið, dansleikhús Auðar Bjarnadóttur, sem
þiggur boðið.
Af því tilefni verða sýningar á verkinu í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu í febrúar og mars. Fyrsta sýn-
ingin verður hér á landi 20. febrúar í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu og næstu sýningar 28. febrúar og 1.
mars. Einungis er um þessar þrjár sýningar að ræða.
Nánari upplýsingar fást í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
http://www.hhh.is
Salka Valka er gerð eftir samnefndri sögu Hall-
dórs Laxness og fjallar um kreppuhetjuna Sölku.
Helstu hlutverk eru í höndum Unnar Elísabetar
Gunnarsdóttur, Láru Stefánsdóttur, Johanns Lind-
ell og Pontus Petterson. Leikmynd hannaði Sigurjón
Jóhannsson og tónlist er eftir Úlfar Inga Haraldsson.
Salka Valka til Þýskalands
Íslenskir tónlistarmenn hafa um
langt skeið átt innhlaup í Róm í
sali Sagrestia del Borromini og
haldið þar tónleika. Að þeim standa
íslenska sendiráðið og Sigurður
Bragason í samstarfi við við list-
rænan stjórnanda tónleikaraðar-
innar, Sebastiano Brusco. Föstu-
daginn 27. febrúar heldur Nína
Margrét Grímsdóttir tónleika þar
og verða á efnisskránni verk eftir
íslenska og erlenda höfunda: Svein-
björn Sveinbjörnsson, Pál Ísólfsson,
Chopin, Mendelssohn og Mozart.
Áður en Nína heldur í suðurveg
verður hún með tónleika hér á landi
með sömu efnisskrá og verða þeir
í Salnum þriðjudaginn 24. febrú-
ar kl. 20.00. Verkefnið er styrkt af
Menntasjóði Listaháskóla Íslands.
- pbb
Nína í Róm og Kópavogi
TÓNLIST Nína Margret Grímsdóttir
heldur tónleika í Róm og Kópavogi í lok
mánaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/ LISTDANS Auður Bjarnadóttir.