Fréttablaðið - 17.02.2009, Page 26

Fréttablaðið - 17.02.2009, Page 26
22 17. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is KÖRFUBOLTI Það hefðu fáir trúað því í desember að karlalið Stjörnunn- ar og kvennalið KR ættu tveimur mánuðum seinna eftir að standa uppi sem nýir Subway-bikarmeist- arar. Stjörnumenn voru þá í fall- sæti búnir að tapa fimm leikjum í röð og aðeins búnir að vinna tvo af tíu deildarleikjum tímabilsins. Staðan var ekki mikið betri hjá KR- konum enda var liðið búið að tapa þremur leikjum í röð með samtals 74 stigum, þar af með 27 stigum á móti Haukum sem voru mótherjar liðsins í 8 liða úrslitum bikarsins. Síðan Teitur Örlygsson tók við þjálfarastöðu Stjörnunnar og bróður dóttir hans Margrét Kara Sturludóttir hóf að leika með KR þá hafa bæði lið varla stigið feil- spor. Liðin tvö sem unnu aðeins 9 af 23 leikjum (39 prósent) fyrir komu Teits og Köru hafa unnið 18 af 20 leikjum sínum (90 prósent) og tvo bikarmeistaratitla með þau tvö innanborðs. Sáðu sigurfræjunum Forráðamenn Stjörnunnar vissu að þeir urðu að gera eitthvað og í framhaldinu ráku þeir Braga Magnússon þjálfara. Við tók leit að nýjum þjálfara en í millitíðinni tóku þeir Jón Kr. Gísla- son og Eyjólfur Örn Jónsson við lið- inu. Teitur var ráðinn daginn áður en liðið mætti FSu þar sem tveir mestu sigurvegarar íslensks körfu- bolta sátu hlið við hlið á bekknum og sáðu sigurfræjunum í Stjörnu- liðið. Í fyrsta deildarleiknum undir hans stjórn vann liðið mjög óvæntan 90-88 sigur á Grindavík og nú rétt tæpum tveimur mán- uðum síðar hefur Stjarnan unnið níu af tíu leikjum undir stjórn Teits. Eina tapið kom í deildarleik í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Margrét Kara Sturludóttir hóf tímabilið sem nemandi í Elon- háskólanum í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum en ákvað á end- anum að koma aftur heim vegna breyttra efnahagsaðstæðna. Það bjuggust kannski margir við að hún færi aftur í Keflavík þar sem hún varð Íslandsmeistari síðasta vor en Margrét Kara ákvað að ganga til liðs við KR þrátt fyrir að horfa upp á liðið steinliggja með 27 stig- um fyrir Haukum. Kara átti mjög fínan leik í fyrsta leik þegar hún var með 17 stig, 11 fráköst, 6 stoð- sendingar og 6 varin skot í 69-54 sigri á Snæfelli og nokkrum dögum síðar var komið að bikarleik á móti Haukum á útivelli. Haukaliðið var búið að vinna ellefu leiki í röð og alla heimaleiki sína en Kara og KR- konur réðu ferðinni allan tímann og unnu sannfærandi 28 stiga sigur, 93-65. Kara hefur alls leikið 9 leiki með KR og allir nema einn hafa unnist. Leikurinn sem tapaðist var deildarleikur á móti Haukum á Ásvöllum. Mikil munur á Justin og Jovan Áhrif Teits á Stjörnuliðið má sér- staklega greina í þeim Justin Shouse og Jovan Zdravevski sem hafa blómstrað eftir komu hans og voru sem dæmi saman með 45 stig, 19 fráköst og 14 stoðsendingar í bikarúrslitaleiknum. Justin Shouse hefur hækkað sig um 5,5 stig (Úr 19,7 í 25,2), 1,8 stoð- sendingar og 4,6 framlagsstig (21,5 í 26,1) í leik síðan Teitur tók við og svipaða sögu má segja af Jovan sem hefur hækkað sig um 2,9 stig (17,3 í 20,2), 1,2 stoðsendingar og 4,0 framlagsstig (16,8 í 20,8) í leik. Vörn KR tók stakkaskiptum Koma Margrétar Köru hefur hald- ist í hendur við gjörbyltingu á varn- arleik KR-liðsins sem fékk á sig 68,5 stig í deildarleikjum sínum fyrir áramót en hefur síðan aðeins fengið á sig 61,4 stig að meðaltali. Kara er mjög góð að nýta sér góða vörn til að fá auðveld stig og það á einnig við þann leikmann sem hefur blómstrað mest í liðinu síðan hún kom í Vesturbæinn. Hér er átt við Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur sem var með 13 stig, 12 frá köst og 5 stolna bolta í bikarúrslitaleiknum. Það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu hjá báðum þess- um liðum. Nú mæta þau til leiks sem bikarmeistarar og það vilja náttúrulega allir vinna meistar- ana. Fyrsta próf beggja liða er heldur ekki auðvelt, karlalið Stjörn- unnar heimsækir KR-inga heim í DHL-Höllina á fimmtudag og KR- konur taka á miðvikudag á móti nýjum deildarmeisturum í Iceland Express-deild kvenna, Haukum, sem hafa unnið fimmtán deildar- leiki í röð. ooj@frettabladid.is Örlygsættar-áhrifin leyna sér ekki Bikarmeistaralið Stjörnunnar í karlaflokki og KR í kvennaflokki eiga það sameiginlegt að hafa fengið liðs- styrk úr sömu ætt í desembermánuði og tímabilið hjá báðum liðum tók í kjölfarið algjörlega nýja stefnu. TIL HAMINGJU FRÆNKA Teitur Örlygsson óskar Margréti Köru Sturludóttur til ham- ingju með bikarmeistaratitilinn skömmu fyrir leik Stjörnunnar og KR í bikaúrslitum karla. MYND: KARFAN.IS Varnarmaðurinn sterki, Höskuldur Eiríksson, samdi um starfslok við Íslandsmeistara FH á dögunum eftir aðeins eins árs veru hjá félaginu. Höskuldur náði ekki að sýna sínar réttu hliðar með FH-ingum enda var hann meira og minna meiddur síðustu tvö ár. Höskuldur fór síðastliðinn fimmtudag í aðgerð vegna kviðslits og verður væntanlega kominn á fulla ferð eftir sex til átta vikur. „Ég er ekki viss hvort þetta sé búið að vera undirliggjandi síðan ég spilaði í Noregi því ég hef verið slæmur í náran- um síðan. Svo voru einkennin sterkari síðasta nóvember en það tók nokkurn tíma að komast að þessu,“ sagði Höskuldur sem vonast til þess að með þessari aðgerð muni hann ná fullum bata og geti loksins farið að beita sér að fullum krafti á nýjan leik. „Ég er að vona að þetta hafi verið rót vandans og ég geti komið mun sterkari til leiks þetta sumar en það síðasta. Staða mín er samt ekkert æðislega góð og kannski ekkert girni- legasti bitinn á markaðnum miðað við meiðslasöguna. Ef ég verð aftur á móti í lagi eftir þessa aðgerð þá tel ég mig klárlega hafa eitthvað fram að færa,“ sagði Höskuldur sem á aðeins í viðræðum við eitt félag sem stendur. „Ég er í viðræðum við eitt félag sem ég vil ekki nefna á þessu stigi og á von á samningstilboði þaðan á næstu dögum. Ef það geng- ur ekki upp getur allt eins verið að ég hætti bara,“ sagði Höskuldur en Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnu- deildar KR, staðfesti að þetta ónefnda félag væri KR. Kristinn staðfesti enn fremur að KR myndi gera Höskuldi tilboð á næstu dögum. Höskuldur er uppalinn KR-ingur og myndi hitta fyrir gamla félaga fari svo að hann geri samning við KR-inga. Hann lék 7 leiki fyrir KR á sínum tíma en krafta hans var ekki óskað í kjölfar- ið. Þá fór hann til Víkings og sló í gegn. Norska liðið Viking fékk hann eftir það í sínar raðir þar sem hann meiddist og hefur verið mikið frá vegna meiðsla síðan. HÖSKULDUR EIRÍKSSON KNATTSPYRNUKAPPI: NÝKOMINN ÚR KVIÐSLITSAÐGERÐ OG ÍHUGAR FRAMTÍÐINA Höskuldur fer í KR eða leggur skóna á hilluna KÖRFUBOLTI Óvænt tap KR-inga í bikarúrslitaleiknum hefur gefið ástæðu til að rifja upp þá tvo bikar úrslitaleiki þar sem stöðv- uð var löng sigurganga en það var í úrslitaleikjunum 1995 og 1999. KR var búið að vinna 27 af 28 leikjum sínum á tímabil- inu þegar félagið kom í Höllina á móti Stjörnunni sem var að leika sinn fyrsta bikarúrslitaleik. Njarðvíkingar voru búnir að vinna 18 leiki í röð og 26 af 27 leikjum tímabilsins þegar þeir mættu í bikarúrslitaleikinn á móti Grindavík 1995 en Grind- víkingar voru þá að leika sinn fyrsta bikarúrslitaleik. Njarð- víkingar höfðu meðal annars unnið Grindavík með 11 stigum á útivelli sex dögum áður, en það taldi lítið í úrslitaleiknum sem Grindavík vann 105-93. Keflvíkingar voru búnir að vinna 25 leiki í röð og 25 af 26 leikjum tímabilsins þegar þeir mættu í bikarúrslitaleikinn á móti Njarðvík 1999. Leikurinn var æsispennandi en Njarðvík endaði sigurgönguna með því að vinna 102-96 í framlengingu. Góðu fréttirnar fyrir KR- inga eru kannski þær að í báðum tilfellum urðu umrædd lið Íslandsmeistarar seinna um vorið og það sem meira er þá hefndu þau fyrir tapið í bikarúr- slitaleiknum. Njarðvík vann Grindavík 4-2 í lokaúrslitum árið 1995 og Kefla- vík vann Njarðvík 3-2 í lokaúr- slitunum 1999. - óój Óvænt tap KR-inga fyrir Stjörnunni í Subway-bikarúrslitunum á sunnudaginn: Líkt og í úrslitum 1995 og 1999 > Tap í fyrsta leik hjá Margréti Láru Margrét Lára Viðarsdóttir lék sinn fyrsta leik með Lin köping um helgina. Margrét Lára lagði þá upp eina mark Linköping fyrir Julie Rydahl Bukh í 1-2 tapi í æfingaleik gegn AIK. Mun betur gekk hjá Dóru Stefáns- dóttur (sjá mynd) og félögum í LdB Malmö í tveimur æfingaleikjum en sænska liðið vann þá báða með markatölunni 7-1. Dóra skoraði eitt markanna í 4-0 sigri á BK Skjold eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Dóra lék síðan allan leikinn þegar LdB Malmö vann 3-1 sigur á Östers. Guðbjörg Gunnarsdóttir lék einnig sinn fyrsta leik í marki Djurgården þegar liðið vann 3-1 sigur á Hammarby í æfingaleik. Engin íslensku stelpnanna í Kristianstads var á meðal markaskorara í 8-1 stórsigri á Stattena. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Ágústa Tryggvadóttir frá Selfossi og Bjarni Malmquist Jónsson úr Fjölni tryggðu sér um helgina Íslandsmeistaratitilinn í fjölþraut en keppt var í Laugardalshöll- inni. Bjarni sigraði í sjöþraut karla í fyrsta sinn á Íslandsmeistara- mótinu innanhúss en Ágústa í þriðja sinn á fjórum árum. Bjarni hlaut samtals 4.905 stig og var 74 stigum á undan Bjarka Gíslasyni UFA, sem varð í öðru sæti með 4.831 stig. Þriðji varð Guðjón Ólafsson Breiðabliki. Ágústa hlaut samtals 3.809 stig en Fjóla Signý Hann- esdóttir, liðsfélagi hennar frá Selfossi, varð önnur með 3.152 stig. - óój MÍ í fjölþrautum innanhúss: Ágústa og Bjarni meistarar í ár Ungmennafélagið Einherji leitar þjálfara Ungmennafélagið Einherji á Vopnafi rði hyggst taka þátt í keppni 3. deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu á komandi sumri og vill ráða til sín þjálfara sem fyrst. Upplýsingar allar veitir formaður félagsins, Einar Björn Kristbergsson, í síma 898-7944. Ennfremur hefur félagið áhuga á að fá til liðs við sig nokkra dugmikla leikmenn en félagið ræður yfi r hópi ungra, áhugasamra leikmanna. Stjórn Ungmennafélagsins Einherja FÓTBOLTI Arsenal komst í sextán liða úrslit ensku bikarkeppninn- ar í gær með öruggum sigri á Cardiff, 4-0. Það var mikil stemning á Emir- ates-vellinum í gær enda Króat- inn Eduardo í byrjunarliði Arsen- al í fyrsta skipti í heilt ár eftir að hafa fótbrotnað illa. Endurkoma hans var eftir- minnileg því hann skoraði tvö mörk í leiknum. Fyrst eftir aðeins 20 mínútna leik og svo aftur úr víti er hálftími lifði leiks. Í milli- tíðinni skoraði Nicklas Bendtner. Robin VanPersie skoraði svo undir lokin. - hbg Arsenal áfram í bikarnum: Eduardo sneri aftur og skoraði DRAUMADAGUR Það varð allt vitlaust á Emirates í gær þegar Eduardo skoraði. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.