Fréttablaðið - 17.02.2009, Síða 30

Fréttablaðið - 17.02.2009, Síða 30
26 17. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. skvamp, 6. kúgun, 8. mánuður, 9. eldsneyti, 11. 2000, 12. skot, 14. mjó- róma, 16. gylta, 17. púka, 18. vætla, 20. á fæti, 21. bor. LÓÐRÉTT 1. að lokum, 3. umhverfis, 4. launráð, 5. festing, 7. ræðismaður, 10. yfir- breiðsla, 13. af, 15. óvild, 16. sigti, 19. tvíhljóði. LAUSN LÁRÉTT: 2. busl, 6. ok, 8. maí, 9. kol, 11. mm, 12. snafs, 14. skræk, 16. sú, 17. ára, 18. íla, 20. il, 21. alur. LÓÐRÉTT: 1. loks, 3. um, 4. samsæri, 5. lím, 7. konsúll, 10. lak, 13. frá, 15. kala, 16. sía, 19. au. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Karlalið Stjörnunnar og kvennalið KR. 2 80 ára. 3 120 kettir. Pólska fiðlustelpan Andrea fékk svo sannarlega óvænta gjöf á dög- unum þegar íslenskir Póllandsfar- ar Jónínu Benediktsdóttur gáfu henni spánnýja fiðlu. Andrea og móðir hennar spila fyrir gesti og gangandi á götum úti en fiðlan sem Andrea notaði var orðin held- ur gömul og slitin. „Hún kom alltaf á hótel- barinn til okkar og spilaði fyrir okkur ásamt móður sinni. Við vildum ekki sjá lítið barn með lélega fiðlu og lögðum öll í púkk- ið,“ útskýrir Jónína en meðal þeirra sem lögðu sitt af mörkum voru þingmaðurinn Árni Johnsen, eldklerkurinn Gunnar Þorsteinsson og súlukóngurinn Ásgeir Davíðsson. Þeir hafa allir notið góðs af annáluðum detox- meðferðum Jónínu í Póllandi eins og Fréttablaðið hefur greint frá og sýndu mikinn rausnarskap með þessari gjöf. Jónína er nú stödd úti í Póllandi með enn einum hópnum og segir hann vera, venju samkvæmt, skemmti- legan og hressan. „Við náðum að safna saman áttatíu þús- und krónum og það nægði fyrir góðri fiðlu úti í Pól- landi.“ Og vel það því fiðlustelpan Andrea gat keypt sér gsm-síma fyrir afganginn. Andrea átti ekki orð yfir gjöfinni. „Hún sagði að þetta væri besti dagurinn í lífi henn- ar,“ segir Jónína en Andrea kom síðan við á hótelbarnum á sunnu- dagskvöldið og lék fyrir viðstadda á nýju fiðluna sína. „Hún byrjaði á því að stilla hana,“ útskýrir Jón- ína. - jma Póllandsfarar Jónínu gefa fiðlu FIÐLUSTELP- AN ER NÁTT- ÚRUTALENT Jónína segir að Andrea, sem fékk fiðluna, sé átta ára gömul en það sjáist strax að hún sé náttúr- utalent á ferð. ÁRNI JOHNSEN OG DETOX- FÉLAGAR Létu gott af sér leiða og lögðu saman í púkk fyrir fiðlunni. „Ég held að hann hafi verið hræddari en ég,“ segir Alexía Björg Jóhannesdóttir leikkona, sem varð fyrir óvenjulegu atviki í síðustu viku þegar hún hræddi innbrotsþjóf af svölunum á heim- ili sínu og Guðmundar Stein- grímssonar í Vesturbænum. Inn- brotsþjófurinn var um það bil að láta til skarar skríða þegar Alexía varð hans vör. „Ég heyrði einhver hljóð á svöl- unum á svefnherberginu okkar nokkrum mínútum eftir að við slökktum ljósið. Ég reif strax upp gardínurnar og horfði þá beint í augun á ungum manni með hettu á höfðinu. Ég varð eiginlega ekk- ert hrædd, heldur bara reið og barði í gluggann. Ég var með svo mikil læti að hann hefur eflaust orðið hræddari en ég og örugg- lega ekki búist við að mæta brjál- aðri óléttri konu,“ segir Alexía og brosir. „Ég veit ekki hvort það sé út af því að ég er komin rúmlega átta mánuði á leið, en ég var í svaka ham og ætlaði bara að hlaupa út á eftir honum og berja hann, þang- að til Guðmundur sagði mér að ég þyrfti að slaka á,“ bætir hún við. „Þetta var nú ekki vel skipu- lagt innbrot og hann hefur eflaust bara verið að leita eftir DVD spil- ara eða eitthvað álíka. Ég hringdi samt í lögregluna til að láta vita og lýsti manninum, sem var á milli 25 til 30 ára og í mjög áber- andi röndóttri hettupeysu. Mér skilst að það sé einhver innbrota- alda í Vesturbænum og hef heyrt af fólki sem hefur verið brotist inn til um miðjar nætur meðan það er sofandi, svo maður er bara feginn að hann komst ekki inn,“ segir Alexía. alma@frettabladid.is ALEXÍA BJÖRG JÓHANNESDÓTTIR: INNBROTAALDA Í VESTURBÆNUM Kasólétt leikkona hræddi innbrotsþjóf af svölunum BRÁST SKJÓTT VIÐ Alexía hræddi innbrotsþjóf af svölunum á heimili sínu í síðustu viku, en aðeins tvær vikur eru þangað til hún á að eiga barn. Guðmundur Stein- grímsson bóndi Alexíu róaði hana eftir að hún hrakti þjófinn á brott. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Í gær reit Davíð Þór Jónsson Bak- þanka blaðsins undir fyrirsögninni „These are not bankers, they are wankers“ sem mun vera tilvitnun í fyrrum bankastjóra Lloyd´s bankans í London. Ekki var það í samtali við minni mann en sjálfan Dr. Bjarna Þórarinsson sjónháttarfræðing sem bankastjórinn lét ummælin „These were not bankers, they were wankers!” falla en Bjarni mun hafa hitt þennan téða bankastjóra í jólaboði hjá systur sinni sem búsett er í London. Og ræddu þeir félagar banka hrunið þannig að eftir var tekið. Þau hjá Veröld Bjarti eru ánægð með sinn mann Sjón sem mun vera ein skærasta stjarna nýstofn- aðs bókaforlags í Danmörku. Forlagið heitir C&K Forlag og var það kynnt á forsíðu innblaðs Politiken í gær. Þar segir að forlagið sé stofnað í samvinnu við helsta spútnikk í bókaútgáfu síðasta árs, nefnilega Hr. Ferdinants, sem er í eigu Snæbjörns Arngrímssonar stofnanda Bjarts. Talar Poli- tiken um Sjón sem helstu stjörnu forlagsins og hefur C&K tryggt sér útgáfurétt á Rökkurbýsnum. Áðurnefndur Davíð Þór var veislu- stjóri á árshátíð ráðuneytanna síðastliðið föstudagskvöld. Vakti hann nokkra kátínu viðstaddra þegar hann kynnti matseðilinn með þeim orðum að í forrétt væri skuldasúpa en í aðalrétt væri réttur launþega fyrir borð borinn. Meðal gesta voru Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra sem mætti einsömul, Kristján Möller sam- gönguráðherra sem fór með gamanmál og Urður Gunnars- dóttir upplýsinga- fulltrúi sem vann sér inn Þórsmerkur- ferð í leik. - jbg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI „Ég vissi allan tímann að hún myndi vinna þannig að ég var ekkert sér- staklega stressaður,“ segir Ólafur Ólafsson, kærasti Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur sem kom, sá og sigraði í Eurovision-keppninni hér heima á laugardaginn var. Ólafur neitar því þó ekki að hafa fengið smá fiðr- ing. „Maður herptist kannski aðeins saman þegar Páll Óskar var búinn að tilkynna fyrra lagið í úrslit.“ Ólafur segist gjarnan vilja fara út með Jóhönnu en hann hefur fylgt henni í gegnum ýmislegt á hennar ferli undanfarin ár en þau hafa verið par í næstum tvö ár. „Já, já, ég er henni alltaf innan handar eins og ég get. Áður en hún fékk bílpróf var ég til dæmis alltaf að skutla henni og svo þegar hún dvaldi erlendis, oft nokkra mánuði í senn reyndi ég að heimsækja hana eins og ég gat.“ Ólafur er sjálfur nemandi í Flens- borg og segist spila á gítar og píanó í frístundum en stefni ekkert á atvinnumennsku eins og kærastan. En hvernig héldu þau svo upp á þetta? „Við fórum á Nasa og svo bara heim. Daginn eftir, á sunnu- deginum, elduðum við svo Peking- önd. Enda hafði Jóhanna Guðrún verið í strangri megrun og verið að lyfta fyrir keppnina, þannig að það var æðislegt að elda þarna saman.“ - jma Kærastinn vill til Moskvu með Jóhönnu HAFA VERIÐ SAMAN Í NÆRRI TVÖ ÁR Ólafur Ólafsson og Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hafa verið saman í tvö ár nú í júní. Þau héldu upp á Eurovison-sigur- inn með Pekingönd. „Það eru ýmsar óperuupptökur úr okkar eigin safni. Og svo alls konar skemmtileg óperubrot sem finna má á Youtube. Til dæmis Lucia di Lammermoor sem Anna Netrebko syngur í Metrópólítan-óperunni.“ Inga María Leifsdóttir, kynningarstjóri Óperunnar. Sæktu um núna á n1.is -5kr. / -15%

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.