Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
36,95%
72,75%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Allt sem þú þarft...
Fréttablaðið er með 97%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18-49 ára. Könnun Capacent í nóvember 2008 - janúar 2009.
FÖSTUDAGUR
20. febrúar 2009 — 45. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Þetta er baunasúpa fyrir græn-metisætur og reyndar alla sem
langar í nýtt upplifelsi á sprengi-dag,“ segir Örlygur Ólafsson mat-reiðslumeistari á Súpubarnum í Hafnarhúsinu, sem opnaði með pompi og prakt um síðustu mán-aðamót. „Baunasúpa þarf ekki að vera alltaf eins matreidd og þar sem við teljum okkur geta fundið svör við öllum góðum kjötsúpum með því að nota grænmeti í stað-inn, mundi ég sennilega aldrei bera á borð hefðbundnu útgáfuna með saltkjöti,“ segir Örlygur um unaðslega baunasúpu sem samein-ar það að vera bráðholl, bragðmikil og hreint syndsamlega góð. Örlygs hefur verið sárt sakn-að síðan hann bauð upp á sælkera-súpur í nafni Súpubarsins á bstöð N1
Baunir og grasker, túkall!
Fátt er íslenskara en saltkjöt og baunir á sprengidag og þótt hefðbundna útgáfan sé sívinsæl og í miklu
uppáhaldi eru möguleikarnir óþrjótandi þegar kemur að hráefninu, eins og eftirfarandi uppskrift sýnir.
Örlygur Ólafsson er matreiðslumeistari á Súpubarnum í Hafnarhúsinu, þar sem hægt er að njóta dýrindis veitinga með útsýni yfir
höfnina alla daga vikunnar frá klukkan 10 til 17, en til 22 á fimmtudagskvöldum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LAMBAKJOT.IS er uppskriftavefur helgaður lamba-
kjöti. Á vefnum má finna gómsætar uppskriftir að
lambakjöti í forrétti og aðalrétti og grænmeti sem með-
læti. Einnig eru þar góð ráð við grillið.
framlengt til 29. mars
Hinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem unna góðum mat á góðu verði.
Tilvalið fyrirárshátíðina!
HRÁSKINKA „PROSCIUTTO“með fíkjum, salati og ferskum parmesanostiRJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPAmeð humarfrauði
MARINERAÐUR KÁLFAHRYGGUR Á BEINImeð ristuðu grænmeti, kartöflumaukiog hunangskryddsósu (4.590 kr.)
ÖNDmeð appelsínusósu og kartöfluköku (5.590 kr.)
NAUTALUNDBéarnaise með grilluðu hvítlauksristuðu spínati og sperglum (6.590 kr.)
LOGAND È
1
2
3
4
VELDU MILLI ÞRIGGJA AÐALRÉTTA
VEÐRIÐ Í DAG
Meðferð fyrir karla sem beita ofbeldi á heimilum
Taktu ábyrgð – hringdu strax!
555 3020
Fyllsta trúnaðar er gætt
ÖRLYGUR ÓLAFSSON
Bráðholl og bragðmikil
súpa á sprengidaginn
• matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 20. febrúar 2009
VIL LOS
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision í Rússlandi í maí
Alþjóðlegt verkefni
GoRed er verkefni sem
á að vekja athygli
á því að konur fá
hjartasjúkdóma ekki
síður en karlar.
TÍMAMÓT 21
FÓLK Brellumeistararnir Haukur
Karlsson og Jóhannes Sverris-
son eru á leiðinni til Grænlands
1. mars þar sem þeir munu starfa
við nýjustu kvikmynd M. Night
Shyamalan, The Last Airbender.
Shyamalan er þekktastur fyrir
draugamyndina The Sixth Sense.
„Mér fannst The Sixth Sense góð
en ég verð að viðurkenna að ég
hef ekki horft svo mikið á mynd-
irnar hans enda er það ekki aðal-
atriðið fyrir okkur heldur er það
gaman að gera eitthvað skemmti-
legt,“ segir Haukur.
The Last Airbender er byggð á
vinsælum bandarískum teikni-
myndum í japönskum Manga-
stíl. Meðal leikara eru Dev Patel,
aðalleikarinn í Slumdog Milli-
onaire, og Robert Pattinson úr
vampírumyndinni Twilight.
- fb / sjá síðu 34
Íslenskir brellumeistarar:
Með stjörnum
á Grænlandi
Conan kveður
Síðasti þáttur Conans
O‘Brien er í kvöld.
Ísland hefur verið í
sviðsljósinu hjá háð-
fuglinum.
FÓLK 28
LÖGREGLUMÁL Mál tveggja ungl-
ingsstúlkna sem taldar eru hafa
selt blíðu sína fyrir fíkniefni og
áfengi eru nú til rannsóknar hjá
kynferðisbrotadeild lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu. Stúlk-
urnar eru þrettán og fjórtán ára
gamlar.
Björgvin Björgvinsson, yfir-
maður kynferðisbrotadeildar
lögreglunnar, staðfestir að slíkt
mál sé til rannsóknar. Hann
kveðst ekki vilja tjá sig um efnis-
atriði þess þar sem rannsókn sé
á algjöru frumstigi.
Eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst eru stúlkurn-
ar af höfuðborgarsvæðinu og
þekkjast.
Það munu hafa verið viðkom-
andi skólayfirvöld sem fyrst fór
að gruna að ekki væri allt með
felldu um hagi stúlknanna.
Í tilvikum sem þessum fer
málið til barnaverndarnefndar,
sem síðan sendir kynferðis-
brotadeild beiðni um rannsókn ef
ástæða þykir til. Grunur leikur á
að málið sé ekki einsdæmi og að
fleiri unglingar greiði fyrir fíkni-
efni með blíðu sinni.
Fréttablaðið greindi nýverið
frá því að í Foreldrahús hefðu
komið á síðasta ári stúlkur sem
seldu sig fyrir fíkniefni, allt
niður í þrettán ára gamlar. - jss
Kynferðisbrotadeild lögreglunnar skoðar mál tveggja stúlkna á fermingaraldri:
Rannsakar vændi unglingsstúlkna
VIÐSKIPTI Skilanefnd Kaupþings
kynnir í dag Gylfa Magnússyni,
nýjum viðskiptaráðherra, fyrir-
ætlanir og gang viðræðna við
kröfuhafa bankans um að þeir
kaupi Nýja Kaupþing. Samkvæmt
heimildum blaðsins hafði fyrri
ríkis stjórn lagt blessun sína yfir
söluna. Kröfuhöfum var á föstu-
daginn fyrir viku kynnt áætlun
um söluna sem Morgan Stanley
vann fyrir skilanefndina.
Skilanefnd Kaupþings leggur
sérstaka áherslu á góð samskipti
við kröfuhafa bankans, enda gæti
skortur á trausti truflað viðræður
um söluna. Hún hefur því staðið
fastar á því en skilanefndir hinna
bankanna að ekki verði færðar
aftur yfir í gömlu bankana eignir
sem áður hafði verið ákveðið að
ættu heima í þeim nýju.
Þá hefur blaðið heimildir fyrir
því að kröfuhafar bankanna ótt-
ist verðmat Fjármálaeftirlitsins á
eigum þeim sem færðar voru frá
gömlu bönkunum til þeirra nýju.
Gefa á út skuldabréf sem greiðslu
nýju bankanna fyrir yfirteknar
eignir, en vafi getur leikið á hvern-
ig beri að meta þær til verðs.
Skilaboð skilanefndar Kaup-
þings til kröfuhafa eru að með því
að taka yfir bæði gamla bankann
og þann nýja þurfi ekki til þessa
verðmats að koma og búið að loka á
að nýi bankinn fái eignir á „tomb-
óluverði“. Samningaferlið mun
hins vegar vera nokkuð flókið,
enda kröfuhafarnir margir og mis-
stórir, auk þess sem þeir hafi ekki
skipað formlegt ráð eða nefnd sem
hafi samningsumboð.
Heimildir blaðsins herma að
áætlun Morgan Stanley feli í sér
að eignir gamla Kaupþings gangi
inn í eignastýringarfyrirtæki, sem
jafnvel gæti orðið í eigu danska
bankans FIH, sem var dótturfélag
Kaupþings. Slík tilhögun er talin
hafa í för með sé allmikla kosti.
Hér yrði að minnsta kosti einn
stóru viðskiptabankanna í einka-
eigu, sem bæði hefði áhrif á sam-
keppni og létti um leið á skuldbind-
ingum ríkisins. Þá myndi erlent
eignarhald líklega auðvelda fjár-
mögnun bankans.
Skilanefndin ræðir hugmyndirn-
ar í framhaldinu við stjórnvöld og
kröfuhafa, sem sagðir eru áhuga-
samir. Ferlið gæti þó orðið nokk-
uð tímafrekt, enda að mörgu að
hyggja. Búa þarf til eignastýringar-
fyrirtæki og færa undir erlent
eignarhald í samstarfi við yfirvöld
fjármála í hverju landi fyrir sig.
- óká / sjá síðu 12
Kynna sölu Nýja Kaupþings
Skilanefnd Kaupþings kynnir viðskiptaráðherra í dag fyrirætlanir um sölu Nýja Kaupþings til kröfuhafa
þess gamla. Fyrri ríkisstjórn var fylgjandi sölunni. Morgan Stanley hefur gert áætlun um söluna.
ÚRKOMUSAMT Í fyrstu verður
yfirleitt hæg breytileg átt en
vaxandi vindur síðdegis. Rigning
og síðar skúrir sunnan til annars
slydda eða snjókoma. Úrkomulítið
í kvöld. Hiti 0-8 stig mildast syðst.
VEÐUR 4
0
0
0
7
5
JÓHANNA GUÐRÚN
Vill losna við barna-
stjörnustimpilinn
Föstudagur
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Súrsæt hefnd
KR-ingar komust aftur
á beinu brautina
er þeir hefndu
fyrir bikar-
tapið gegn
Stjörnunni í
gær.
ÍÞRÓTTIR 30
UTANRÍKISMÁL Utanríkisráðherra,
Össur Skarphéðinsson, segir
tilefni til að skoða hvort frið-
lýsa eigi Ísland fyrir kjarnorku í
kjölfar árekst-
urs bresks og
fransks kjarn-
orkukafbáts í
Atlantshafi í
febrúar.
Frum-
varp þess
efnis liggur
fyrir þinginu
og vill Árni
Þór Sigurðs-
son, formaður
utanríkis málanefndar, sam-
þykkja það. Össur hefur kallað
fulltrúa Breta og Frakka á sinn
fund vegna málsins. „Þessir kaf-
bátar voru í vígaleikfimi að æfa
einhvers konar einvígi. Tiltæki
af þessum toga geta skapað veru-
lega hættu.“
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍU, vill að Ísland
beiti sér fyrir að banna ferðir
kjarnorkuknúinna farartækja um
heimshöfin. - kóp / Sjá síðu 4
Árekstur kjarnorkukafbáta:
Friðlýsing
Íslands skoðuð
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
Óframbærileg forysta
Jóhanna var ráðherra í hálft
annað ár, áður en bankarnir
hrundu. Hún bar fulla stjórnmála-
ábyrgð eins og aðrir ráðherrar,
skrifar Hannes Hólmsteinn í dag.
SKOÐUN 18
VALDABARÁTTA Óeirðalögregla hindraði í gær stuðningsmenn Andry Rajoelina, leiðtoga stjórnarandstöðunnar á Madagaskar, frá
því að komast að stjórnarbyggingum í höfuðborg landsins. Fólkið vildi fylgjast með þegar stjórnarandstaðan setti fjóra menn í
embætti ráðherra á táknrænan hátt til að sýna andstöðu sína við forseta landsins. NORDIC PHOTOS/AFP