Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 46
34 20. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ? LÁRÉTT 2. grastegund, 6. í röð, 8. vafi, 9. keyra, 11. ryk, 12. ríki í Vestur-Afríku, 14. akstursíþrótt, 16. guð, 17. að, 18. hylli, 20. til dæmis, 21. málmur. LÓÐRÉTT 1. málmur, 3. tveir eins, 4. yfirsýn, 5. pili, 7. bjartast, 10. temja, 13. veitt eftirför, 15. rotnunarlykt, 16. farvegur, 19. á fæti. LAUSN LÁRÉTT: 2. reyr, 6. rs, 8. efi, 9. aka, 11. im, 12. níger, 14. rallý, 16. ra, 17. til, 18. ást, 20. td, 21. stál. LÓÐRÉTT: 1. úran, 3. ee, 4. yfirlit, 5. rim, 7. skírast, 10. aga, 13. elt, 15. ýlda, 16. rás, 19. tá. „Ég er ekki algóð. Ég er til dæmis svo rosaleg í kjaft- inum að vinir mínir halda að ég sé með tourette-syndromið. Það er þegar ósjálfráð dónaleg orð velta út úr manni þegar minnst varir. Ég vildi helst fá vottorð upp á þetta og einhverjar bætur því ekki getur maður verið blaðamaður þegar maður er alger dóni.“ Gerður Kristný rithöfundur í Helgarpóstin- um í október 1996. „Svona var ég nú hress þegar fyrsta skáldsagan mín kom út sem var kveikjan að viðtalinu. Ég fékk mér tattú af tilefni af bókinni, sverð Skírnis á annan kálfann, og hef farið allra minna ferða vopnuð síðan.“ „Mér fannst þetta bara rosalega sniðug hugmynd og langaði að sjá hvort hún virkaði,“ segir Anita Hafdís Björnsdóttir sem heldur rýmingarsölu heima hjá sér í næstu viku þar sem hún selur allt frá smáhlut- um upp í raftæki, föt og fylgihluti á vægu verði. „Ég bý í pínulítilli íbúð og á allt of mikið af dóti. Ég nenni ekki að fara í Kolaportið og það er allt að gerast á Facebook svo ég auglýsti þetta þar fyrir vini og vandamenn. Maður er með svo mikið inni í skápum og ég kemst ekki yfir að nota öll fötin sem ég á. Það er því skemmtilegra ef einhverjir aðrir geta notið þeirra og fá smá pening í leiðinni,“ útskýrir Anita. „Það verður gaman að fá fólk heim til sín og ég ætla að spila gamlar kasettur af vasa- diskói sem ég tók upp sem unglingur og eru svona „original 80‘s mix-tapes“. Þó nokkrir hafa nú þegar staðfest komu sína, en í versta falli verður þetta bara skemmtilegt teboð ef ekkert selst,“ bætir hún við og brosir. Aðspurð segist Anita ekki vera að flytja, en lang- ar til að ferðast erlendis í framtíðinni og stunda flug á svifvæng. „Það er ekki að fara að gerast alveg strax eins og ástandið er í dag, en þessi rýmingar- sala er svona skref í áttina að fara og ferðast í ár eða meira um heiminn og fljúga á svifvæng á sem flestum stöðum. Mér finnst eitthvað heillandi við að eiga ekki neitt þegar maður fer út, nema bara svif- vænginn og það allra persónulegasta,“ segir Anita sem starfar sem grafískur hönnuður í dag. „Þegar kemur að síðustu rýmingarsölunni ætla ég að leyfa fólki að gramsa bæði í skúffum og skápum, eitthvað sem mann hefur oft langað að gera heima hjá öðru fólki.“ - ag Heldur rýmingarsölu heima hjá sér Í PÍNULÍTILLI ÍBÚÐ Anita heldur rýmingarsölu heima hjá sér fyrir vini og vandamenn til að losa sig við dót sem kemst ekki fyrir á heimili hennar. Hljómsveitin Bloodgroup hefur ákveðið að hætta við að hætta við tónleikaferð sína til Bandaríkjanna í mars eftir að hún fékk peninga- styrk úr óvæntri átt á dögunum. Sveitinni hafði verið boðið að koma fram á South By Southwest- hátíðinni í Texas 21. mars en varð að hætta við vegna peningaskorts og lágs gengis krónunnar. Eftir að hafa lesið blaðagrein um málið hafði ónefndur aðili samband við hljóm- sveitina samdægurs og bauðst til að styrkja hana vegna ferðarinnar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins er þessi aðili enginn yfirlýstur aðdáandi Bloodgroup en fannst engu að síður synd að hljómsveitin kæmist ekki á hátíðina. Talið er að styrkurinn nemi um hálfri milljón króna en sveitin mun dvelja í viku í Bandaríkjunum og þarf meðal ann- ars að standa straum af uppihaldi og dýru innanlandsflugi þar í landi. Sveitin fær aftur á móti styrk frá Reykjavík Loftbrú til að fljúga út til Bandaríkjanna. Það er því ljóst að Bloodgroup spilar á South By Southwest eins og upphaflega stóð til. Einnig eru fyrirhugaðir tónleikar í New York ásamt Sprengjuhöllinni og Benny Crespo ś Gang 24. mars. Þetta verð- ur í annað sinn sem sveitin spilar í New York því síðast spilaði hún þar haustið 2007 við góðar undir- tektir. Meðlimir Bloodgroup vildu ekk- ert tjá sig um málið þegar Frétta- blaðið hafði samband við þá. - fb Hljómsveit fékk styrk úr óvæntri átt BLOODGROUP Hljómsveitin Bloodgroup fékk peninga úr óvæntri átt vegna tónleika- ferðar sinnar til Bandaríkjanna. Fljótlega eftir að fréttir tóku að berast í fyrradag af hremmingum Björns Jörundar í tengslum við fíkniefnakaup munu bæði Bubbi Morthens og Einar Bárðarson hafa sett sig í samband við Stöð 2 og boðið fram krafta sína, að hlaupa í skarðið ef Björn þyrfti frá að hverfa. Blaðamaður Vísis hafði eftir Bubba að Björn hlyti að þurfa að fara til að minnka skað- ann en Bubbi hefur beðist afsökunar á þeim ummæl- um sínum. Annar maður sem tengist þessu óbeint er svo Jón Ólafsson félagi Björns Jörundar í hljómsveitinni Ný dönsk. Á sínum tíma, þegar eftir því var leitað að hann yrði dómari í Idol-stjörnuleit, stóð til að hann héldi áfram með þátt sinn Úr plötuskápnum á Rás 2. Ekki kom til greina af hálfu Ríkisútvarps- ins að Jón héldi áfram með útvarpsþátt sinn ef hann tæki að sér það verkefni að vera í Idol-þáttunum. Bubbi virðist því hafa verið tilbúinn að fórna Færi- bandinu, þætti sínum á Rás 2, fyrir stjörnuleitina. Annað sem menn velta fyrir sér í tengslum við þetta mál eru tíma- setningar. Um þær mundir sem Fíknó var að hlera samtöl fíkniefna- salans og Björns Jörundar var Björn einmitt að syngja „Ég er kominn heim” með Bubba og sjónvarps- þættinum Bandið hans Bubba var að ljúka. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI AAAAAAAAA BBBBBBBBBBB Stór humar frá Hornafi rði Óbarinn harðfi skur, ýsa og steinbítur frá Ísafi rði ...Strákar: Konudagurinn er á sunnudag !!! Fiskikóngurinn er... Fiskverslun sem gaman er að koma í :) „Það er gott að geta lagt sitt af mörkum til að draga heim smá gjaldeyri,“ segir brellumeistarinn Haukur Karlsson. Hann er á leið- inni til Grænlands 1. mars ásamt kollega sínum, Jóhannesi Sverris- syni, þar sem þeir munu starfa við nýjustu kvikmynd M. Night Shy- amalan, The Last Airbender. Shyamalan er þekktastur fyrir draugamyndina The Sixth Sense. „Mér fannst The Sixth Sense góð en ég verð að viðurkenna að ég hef ekki horft svo mikið á mynd- irnar hans enda er það ekki aðal- atriðið fyrir okkur heldur er það gaman að gera eitthvað skemmti- legt,“ segir Haukur og er feginn að sleppa frá krepputalinu hér heima í smástund. „Ég held að það verði ekkert talað mikið um gjald- þrot fyrirtækjanna í útvarpinu á Grænlandi.“ The Last Airbender er byggð á vinsælum bandarískum teikni- myndum í japönskum Manga-stíl. Á meðal leikara verða Dev Patel, aðalleikarinn í Slumdog Milli- onaire, og Robert Pattinson úr vampírumyndinni Twilight. Haukur og Jóhannes munu dvelja í fimm til sex vikur á Græn- landi þar sem hluti myndarinnar verður tekinn upp. „Við verðum í pínulitlu fimm þúsund manna þorpi innan um tíu þúsund sleðahunda í tuttugu stiga gaddi,“ segir Haukur og greinilegt að það er strax kom- inn smá hrollur í hann. Tökurn- ar fara fram við Diskóflóa sem er Kanadamegin við Grænland. Haukur og Jóhannes verða einu Íslendingarnir sem starfa við myndina. Fengu þeir verkefnið í gegnum bandaríska vini sína sem störfuðu með þeim við tökur á Flags of Our Fathers hér á landi í leikstjórn Clints Eastwood. „Þarna fer mikið af vinnunni fram úti á jöklum og úti í snjó. Við vorum teknir inn fyrst og fremst af því að við förum ekki að grenja þegar það hvessir,“ segir Haukur og hlær. Fjölmennt tökulið verður með þeim á Grænlandi, þar á meðal fleiri brellumeistarar frá Hollywood. Haukur viðurkennir að það yrði gaman að hitta hinn heims- fræga Shyamalan en ekki síður kvikmyndatökumanninn Andrew Lesnie sem fékk Óskarinn fyrir fyrstu Lord of the Rings-myndina. „Það verður heiður að fá að vinna í kringum hann en við gerum bara það sem okkur er sagt,“ segir Hauk- ur, sem hefur einnig gert brellur fyrir Bond-myndina Die Anoth- er Day og Tomb Raider sem voru báðar teknar upp hér á landi. Einn- ig starfaði hann ásamt Jóhannesi við hina íslensku Reykjavik Whale Watching Massacre sem verður tekin til sýninga í haust. The Last Airbender verður frum- sýnd vestanhafs sumarið 2010 og verður spennandi að sjá hvernig Shyamalan reiðir af. Síðasta mynd hans, The Happening, hlaut slæm- ar viðtökur og þarf hann því á öllum sínum kröftum að halda til að efla tiltrú Hollywood á hæfi- leikum sínum. Þar munu Haukur og Jóhannes væntanlega reynast honum sannkallaðir haukar í horni. freyr@frettabladid.is HAUKUR KARLSSON: BRELLUMEISTARI FYRIR M. NIGHT SHYAMALAN Með Hollywood-stjörnum í kuldahrolli á Grænlandi M. NIGHT SHYAMALAN Bandaríski leik- stjórinn er þekktastur fyrir draugamynd- ina The Sixth Sense. BRELLUMEISTARAR Jóhannes Sverrisson og Haukur Karlsson starfa við næstu kvik- mynd hins bandaríska M. Night Shyamalan, The Last Airbender. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.