Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 18
18 20. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPOTTIÐ T B W A \R e yk ja ví k \ S ÍA \ 0 9 4 1 9 7 Seljan/Sigurðardóttir Í kvikmyndinni Frost/Nixon segir frá frægri viðtalsröð háðfuglsins Davids Frost við Richard Nixon, þar sem forsetinn bar af sér sakir vegna Watergate-hneykslisins og lét meðal annars þau fleygu orð falla að ef forsetinn gerði eitthvað þá væri það ekki ólöglegt. Björn Bjarnason hafði gaman af myndinni, eins og fleiri. Hann fjallar um hana á vef sínum og heimfærir atburðarásina upp á íslenskan veruleika á skemmtilegan hátt: „Orðaskipti þeirra Frosts og Nixons um virðingu fyrir lög- unum voru í svipuðum dúr og orðaskipti þeirra Helga Seljans og Jóhönnu Sigurðardóttur í Kastljósi á dögunum, þegar hún talaði eins og tilgangur sinn helgaði meðalið og engu skipti, þótt dómari teldi aðferð hennar lögbrot.“ Þetta er líkast til í fyrsta sinn sem Jóhönnu er líkt við Nixon. Heldur margir um hituna Það stefnir í mikinn slag um fyrsta sætið á listum Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Þegar hafa gefið kost á sér ráðherr- arnir Katrín Jakobsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir, auk Álfheiðar Ingadótt- ur og Svandísar Svavarsdóttur. Þá hefur Paul Nikolov lýst yfir framboði í 1. til 3. sæti og Gunnar Sig- urðsson í annað. Síðast bættust leikarinn Ari Matthíasson, Kvennalistakonan Anna Ólafs- dóttir Björnsson og hagfræðingurinn Lilja Mósesdóttir í hópinn. Það eru níu – en toppsætin aðeins tvö. Að græja eftir greifana Tryggvi Þór Herbertsson hagfræði- prófessor sækist eftir öðru sætinu á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Segir hann það vel til fallið þar sem nú séu háværar kröfur um endurnýjun og eins um að fagmenntað fólk, sem hafi reynslu úr atvinnulífinu, komi að stjórn landsins. Kannski á rótarastarfið með Greifunum eftir að reynast honum vel fái hann tækifæri til að græja málin eftir greifana sem komu efnahag landsins um koll. stigur@frettabladid.is/ jse@frettabladid.is T víþætt aðferð ríkisstjórnarinnar við að skjóta nýjum stoð- um undir peningamálastjórn landsins hefur ekki verið traustvekjandi. Fyrri þátturinn byggðist á farsakennd- um bréfasendingum forsætisráðherra til bankastjórnar Seðlabankans. Þær dugðu til að flæma einn bankastjóra úr starfi. Að öðru leyti voru þær Spaugstofufóður. Seinni þátturinn fól í sér brottrekstur bankastjóra með flutningi frumvarps um breytingar á Seðlabankalögunum. Svo var kastað höndum til lagaundirbúningsins að jafnvel Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn þurfti að gera við það athugasemdir. Þannig voru fyrstu skrefin að nýju markmiði um aukið traust á erlendum vettvangi stigin aftur á bak. Þær breytingar sem meirihluti viðskiptanefndar Alþingis leggur nú til að gerðar verði á frumvarpinu eru hins vegar til bóta. Líklega þarf þó fyrr en síðar að búa betur um lagalega umgjörð æðstu stjórnar peningamála í landinu. Fram hjá því verður þó ekki litið að barið hefur verið í alvarlegustu bresti lélegs undirbúnings af hálfu forsætisráðherrans. Fyrrverandi forsætisráðherra hafði lýst því að rétt væri að gera skipulagsbreytingar á yfirstjórn peningamálanna. Um það grund- vallaratriði ætti því ekki að vera djúpstæður ágreiningur. Stjórnar- andstaðan getur með rétti sagt þar á móti að hún hefði viljað taka á viðfangsefninu með öðrum hætti. Engum getur dulist að miklu betur hefði mátt standa að verki. Það raskar hins vegar ekki eðli málsins og því að breytinga var þörf. Vandræðagangur forsætisráðherrans með brottrekstur banka- stjóranna snýst þó ekki um það sem mestu máli skiptir varðandi stjórn peningamálanna. Vissulega voru stjórnunarbrestir í Seðla- bankanum sem lutu að trúverðugleika. Hvað sem því líður er kjarni vandans þó grundvöllur peningamálastefnunnar. Lagaákvæðin um hann eru óbreytt. Engin áform eru um að endurreisa trúnaðar- brestinn þar um. Engu er líkara en allir hafi gleymt því að krónan hrundi á undan bönkunum. Hrun hennar varð ásamt mörgum öðrum mistökum stjórnenda bankanna og annarra til þess að fjármálakerfið féll. Á erlendum mörkuðum er þetta mætavel ljóst. Það er því ekki traust- vekjandi þegar forsætisráðherra beitir sér fyrir breytingu á Seðla- bankalögunum án þess að taka á rót vandans. Hún lifir. Á Alþingi ver enginn krónuna sem varanlegan lögeyri fyrir fólkið í landinu. Enginn fæst þó til að leggja á ráðin um aðrar lausnir. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar tala út og suður í þeim efnum. Þeir eru þó sammála um að taka ekki á þessu stærsta viðfangsefni sem blasir við í íslenskum stjórnmálum. Stjórnarandstaðan hefur ekki kynnt neinar lausnir í þessu efni heldur. Framtíð þjóðarinnar ræðst af því hversu skjótt verður tekið á þessu öðru stærsta hagsmunamáli. Hitt eru ríkisfjármálin. Fram- tíðarlausnir taka tíma. Fyrir þá sök þarf að leggja línur þar um strax. Frestun lengir og dýpkar kreppuna. Komandi kosningar eiga því öðru fremur að snúast um framtíðarlausnir á þessum sviðum. Pólitíska staðan er sú að VG ræður í raun peninga- og ríkis- fjármálastefnunni. Í því ljósi og með því að rík rök standa til að samhæfa stjórn þessara þátta væri rétt að flytja peningamálin í fjármálaráðuneytið. Seðlabankinn lenti í forsætisráðuneytinu fyrir fáum árum í hrossakaupum um Byggðastofnun. Nýskipan stjórn- sýslu þessara mála væri líka til þess fallin að auka traust. Vandinn við stjórn peningamálanna: Rótin lifir ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR Íslands óhamingju verður allt að vopni. Á þessum örlagatímum eru forseti landsins og forsætis- ráðherra bersýnilega hvorug starfi sínu vaxin. Eins og til forsetaemb- ættisins var stofnað, skyldi þjóð- höfðinginn vera sameiningartákn, án ábyrgðar á stjórnarathöfnum og því jafnframt án valda. Fyrri forsetar virtu þetta. Enginn þeirra gekk gegn vilja Alþingis. Ólafur Ragnar Grímsson brá út af þeirri venju og synjaði fjölmiðlalögunum 2004 staðfestingar, en þau áttu að koma í veg fyrir, að einstak- ir auðjöfrar réðu öllum fjölmiðl- um. Ólafur Ragnar var nátengdur Baugsfeðgum, sem helst tóku lögin til sín: Dóttir hans gegndi yfir- mannsstarfi hjá Baugi, og kosn- ingastjóri hans 1996 var forstjóri Baugsmiðils. Átökin um fjölmiðlalögin 2004 mörkuðu tímamót. Eftir þetta töldu auðjöfrar sér alla vegi færa. Þeir eignuðust flesta fjölmiðla. For- setinn gerðist klappstýra þeirra og veislustjóri. Allir vita, hvernig þeirri ferð lauk. En Ólafur Ragnar Grímsson kann ekki að skammast sín, heldur talar ógætilega á erlendum vettvangi. Kunnir fram- sóknarmenn halda því síðan fram opinberlega, að hann hafi beitt sér fyrir myndun minnihlutastjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur í stað þess að leyfa stjórnmálaforingjum að reyna til þrautar myndun meiri- hlutastjórnar, eins og eðlilegt hefði verið. Sérstaklega hafi hann brýnt forystumenn Framsóknarflokksins til stuðnings við stjórnina. Ef rétt er, þá sýndi Ólafur Ragnar enn, að hann er ekki forseti þjóðarinnar allrar, heldur aðeins sumra vinstri manna að Baugsfeðgum ógleymd- um. Hinn nýi forsætisráðherra hlaut nýlega dóm fyrir valdníðslu. Hún hafði sem félagsmálaráðherra rekið mann úr trúnaðarstöðu vegna stjórnmálaskoðana hans. Sjálf gerði Jóhanna Sigurðardótt- ir að sérgrein sinni á árum áður að deila hart á ráðherra, ef fram kom einhver skýrsla eða álitsgerð um það, að þeir hefðu ekki þrætt laga- bókstaf eða gætt meðalhófs. Nú virðist hún ekki hafa á öðru meiri áhuga en hrekja Davíð Oddsson seðlabankastjóra úr starfi, en hann er eini maðurinn í ábyrgðarstöðu á Íslandi, sem varaði við ofurvaldi auðjöfra og skuldasöfnun bank- anna erlendis. Jóhanna Sigurðar- dóttir var ráðherra í hálft annað ár, áður en bankarnir hrundu. Hún bar fulla stjórnmálaábyrgð eins og aðrir ráðherrar. Hún hlustaði á við- varanir Davíðs, en hafðist ekki að. Eins og Einar K. Guðfinns- son bendir á, snýst seðlabanka- frumvarp Jóhönnu Sigurðardótt- ur ekki um stjórn peningamála, heldur brottrekstur Davíðs Odds- sonar, án þess að hann hafi neitt til saka unnið. Við afgreiðslu seðlabankalaganna 2001 var Jóhanna þeirrar skoðunar eins og flestir aðrir, að tryggja yrði sjálf- stæði bankans. Þess vegna vildi hún ekki, að forsætisráðherra réði seðlabankastjóra. Hún sagði þá: „Þetta getur varla þýtt annað á mæltu máli en að ef banka- stjórinn fer ekki í einu og öllu að því sem forsætisráðherra segir þá eigi hann það á hættu að vera látinn fjúka. Eðlilegri stjórn- sýsluhættir væri að bankaráðið réði sjálft einn bankastjóra sem ábyrgð bæri gagnvart bankaráði, sem gæti þá látið hann fara ef hann væri ekki starfinu vaxinn, frekar en að hann sé háður duttl- ungum og geðþóttaákvörðun ráð- herra á hverjum tíma.“ Aumlegt er nú að sjá til hennar. Óframbærilegir forystumenn Forseti og forsætis- ráðherra HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Í DAG | Ric

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.