Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 8
8 20. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR Mikilvægt skref í átt að þínum frama Marketing Management Möguleg störf: Markaðsstjórnun, auglýsingaráðgjöf, viðskipta- stjórnun, innkaupastjórnun og m.fl. Námsstaður: Esbjerg eða Sønderborg – Tungumál: Enska eða danska. Computer Science Möguleg störf: Kerfishönnun, forritun, hugbúnaðarráðgjöf, verkefnastjórnun, kerfisstjórnun Námsstaður: Esbjerg eða Sønderborg – Tungumál: Enska Multimedia Design & Communication Möguleg störf: Vefsíðuhönnun, vefþróun, margmiðlunarráðgjöf, skipulagning auglýsingamála, ráðstefnustjórnun Námsstaður: Esbjerg – Tungumál: Enska. Fashion Design Möguleg störf: Skipulagning og eftirfylgni verkferla og verkefna í fata og tauefnaiðnaði, með hönnun, framleiðslu og kaup & sölu. Námsstaður: Sønderborg – Tungumál: Enska. Technical Manager Offshore Vertu með til að byggja upp íslenskan olíuiðnað. 3ja ára bachelornám sem gerir þig hæfan til að vinna með Stjórnun og hönnun, ásamt daglegri starfsemi og viðhaldi tækni og tækjamála. Námsstaður: Esbjerg – Tungumál: Danska STUDY IN DENMARK ESBJERG SØNDERBORG ESBJERG Sp. Kirkevej 103 DK-6700 Esbjerg Tel + 45 7613 3200 SØNDERBORG Grundtvigs Alle 88 DK-6400 Sønderborg Tel + 45 7412 4141 Nánari uppl. www.easv.dk BUSINESS ACADEMY SOUTHWEST AP Degree & Bachelor Programme - we offer you the following programmes: challenge & innovation Komið og hittið okkur í Norræna húsinu á Háskóladaginn. Kynning á hótel Hilton - Nordica þriðjudaginn 24/02 kl. 18.00 Auglýsingasími – Mest lesið FRAMKVÆMDIR „Þetta var ekki auð- veld ákvörðun, enda miklir hags- munir í húfi. En við þurfum að horfa á langtímakostnaðinn sem gæti allt að tvöfaldast ef framkvæmdum yrði hætt núna. Einnig verður að hafa í huga langtímamarkmið eins og uppbyggingu ferðaþjónustu og fjölbreytni í atvinnugreinum. Með slíkt í huga verðum við hreinlega að gæta okkar á því að miðborgin sé fýsilegur kostur,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, sem ásamt Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur borgarstjóra undirritaði í gær viljayfirlýsingu um áfram- haldandi framkvæmdir við Tón- listarhús og ráðstefnumiðstöð við Austurhöfnina í Reykjavík. Austurhöfn-TR, félag sem er að 54 prósentum í eigu íslenska ríkis- ins og 46 prósentum í eigu Reykja- víkurborgar, mun taka við verkefn- inu af Íslenskum aðalverktökum. Miðað er við að kostnaður við að ljúka framkvæmdum verði 13,3 milljarðar króna auk vaxta á bygg- ingartímanum. Samkvæmt áætl- un er stefnt að verklokum í jan- úar 2011 og opnun hússins um vor sama ár. Áætlanir miðast við að hvorki verði aukið við né dregið úr fram- lögum ríkis og borgar miðað við samþykkt útboð frá árinu 2004. Gert er ráð fyrir að samningar við verktaka heimili sparnaðaraðgerð- ir, frestun og niðurskurð ef þörf krefur. Katrín Jakobsdóttir segir allt að 600 störf hanga á spýtunni vegna framkvæmdanna. Leitast verði eftir því að ráða innlent vinnuafl þar sem hægt er. „Framkvæmdinni verða að fylgja innlend störf. Það og kostnaðurinn við að leggja niður framkvæmdir höfðu mest áhrif á þessa ákvörðun,“ segir Katrín Jakobsdóttir. kjartan@frettabladid.is Áfram Tónlistarhús Austurhöfn-TR tekur yfir framkvæmdir við Tónlistarhús við Austurhöfnina. Framlag ríkis og borgar helst óbreytt samkvæmt áætlun. Menntamálaráðherra segir 600 störf hanga á spýtunni, auk fleiri langtímamarkmiða. RÍKI OG BORG Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjáns- dóttir borgarstjóri tilkynntu um áframhaldandi framkvæmdir við Tónlistarhús í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR STJÓRNMÁL Aðstoðarbankastjóri, sem verður staðgengill bankastjóra, verður ráðinn í Seðlabankann nái endurskoðað frumvarp forsætis- ráðherra um breytingar á yfirstjórn hans fram að ganga. Þetta er meðal breytinga sem viðskiptanefnd hefur gert á frumvarpinu, sem var afgreitt úr nefndinni í gær þrátt fyrir mót- bárur sjálfstæðismanna. Aðrar breytingar sem gerðar voru á frumvarpinu lutu að hæfnis- kröfum bankastjóra og ráðningar- ferlinu. Áður var kveðið á um að umsækjandi þyrfti að hafa meist- aragráðu í hagfræði en kröfurnar hafa verið víkkaðar út í endurbættu frumvarpi. Þá hefur verið ákveðið að aug- lýsa skuli stöðu bankastjóra áður en skipað er í hana og að skipa skuli þriggja manna nefnd sem metur hæfi umsækjenda. Sjálfstæðismenn í nefndinni sátu hjá við afgreiðslu málsins og boðuðu sérálit. Birgir Ármannsson segir sjálfstæðismenn hafa verið í megin- atriðum sátta við breytingarnar, en hafi þó viljað gera fleiri breytingar, meðal annars hvað varðaði skipu- lag fyrirhugaðrar peningastefnu- nefndar. Frumvarpið verður tekið til ann- arrar umræðu á Alþingi í dag. Lík- legt er að það geti orðið að lögum í næstu viku. - sh Seðlabankafrumvarpið afgreitt úr nefnd með léttvægum breytingum: Aðstoðarbankastjóra bætt við MÓTMÆLT Núverandi bankastjórar munu víkja úr stjórninni þegar ný lög taka gildi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VINSTRI GRÆN Ari Matthíasson gefur kost á sér í 2. sæti á lista Vinstri grænna í Reykjavík. Kolbrún Halldórs- dóttir gefur kost á sér í forystu Vinstri grænna í Reykjavík. Anna Ólafsdóttir Björnsson gefur kost á sér í 1. til 3. sæti í prófkjöri Vinstri grænna í Reykjavík. Kristján Ketill Stefánsson sækist eftir 3.-5. sæti í prófkjöri Vinstri grænna í Reykjavík. SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR Ragnheiður Elín Árnadóttir sækist eftir 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Jórunn Frímannsdóttir Jensen gefur kost á sér í 2. sæti á lista Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík. SAMFYLKING Hjörtur Guðbjartsson býður sig fram í 5. sæti á lista Samfylkingar- innar í Suðurkjördæmi. Logi Már Einarsson býður sig fram í þriðja sætið í prófkjöri Samfylking- arinnar í Norðausturkjördæmi. ERLENTP ÓFKJÖR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.