Fréttablaðið - 20.02.2009, Síða 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Þetta er baunasúpa fyrir græn-
metisætur og reyndar alla sem
langar í nýtt upplifelsi á sprengi-
dag,“ segir Örlygur Ólafsson mat-
reiðslumeistari á Súpubarnum í
Hafnarhúsinu, sem opnaði með
pompi og prakt um síðustu mán-
aðamót. „Baunasúpa þarf ekki að
vera alltaf eins matreidd og þar
sem við teljum okkur geta fundið
svör við öllum góðum kjötsúpum
með því að nota grænmeti í stað-
inn, mundi ég sennilega aldrei
bera á borð hefðbundnu útgáfuna
með saltkjöti,“ segir Örlygur um
unaðslega baunasúpu sem samein-
ar það að vera bráðholl, bragðmikil
og hreint syndsamlega góð.
Örlygs hefur verið sárt sakn-
að síðan hann bauð upp á sælkera-
súpur í nafni Súpubarsins á bensín-
stöð N1 í Borgartúni. „Það gengur
alveg stórkostlega vel, enda Súpu-
barinn kominn á forréttinda-
stað með flottasta útsýnisglugga
Reykjavíkur. Ég er enn með þrjár
vinsælustu súpurnar þaðan á boð-
stólum og svo eina breytilega í
viku hverri ásamt síbreytilegum
rétti dagsins, æðislegum, grill-
uðum samlokum, góðu kaffi og
heimabökuðum kökum; súkku-
laðisprengjum og speltvöfflum
sem gerast ekki hollari. Hér finnst
mér ég kominn heim og virkilega
yndislegt að sjá kunnugleg and-
lit úr Borgartúninu mæta í súpu-
spón.“ thordis@frettabladid.is
Baunir og grasker, túkall!
Fátt er íslenskara en saltkjöt og baunir á sprengidag og þótt hefðbundna útgáfan sé sívinsæl og í miklu
uppáhaldi eru möguleikarnir óþrjótandi þegar kemur að hráefninu, eins og eftirfarandi uppskrift sýnir.
Örlygur Ólafsson er matreiðslumeistari á Súpubarnum í Hafnarhúsinu, þar sem hægt er að njóta dýrindis veitinga með útsýni yfir
höfnina alla daga vikunnar frá klukkan 10 til 17, en til 22 á fimmtudagskvöldum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
3 laukar
1 blaðlaukur
2 gulrætur
2 skallotlaukar
2 hvítlauksgeirar
6 lauf af ferskri salvíu
1-2 l vatn
500 g baunir
1-2 kg rófur
Leggið baunir í bleyti
í klukkustund. Saxið
smátt einn lauk ásamt
blaðlauk, hvítlauk,
gulrótum og skallot-
lauk og steikið í olíu í
örfáar mínútur. Bætið
smátt saxaðri salvíu
út í, ásamt baunum
og einum og hálfum
lítra af vatni. Þynnið
síðar með vatni ef
súpan á að vera
þynnri. Sjóðið í tvo
tíma á vægum hita.
Saxið tvo lauka í báta
og rófur í grófa bita.
Sjóðið saman í hálf-
tíma í mildum græn-
metiskrafti. Setjið út
í baunirnar þegar
þær eru tilbúnar.
Saltið og piprið eftir
smekk. Skrælið um 30
þunnar sneiðar af litlu
„butternut“-graskeri
og djúpsteikið í örfáar
mínútur á pönnu,
ásamt afgangi af sal-
víulaufum, en gætið
að hvort tveggja haldi
sínum fallega lit. Þerr-
ið á pappír og setjið á
súpuna til skrauts.
HNAUSÞYKK, BRÁÐHOLL OG GÓMSÆT BAUNASÚPA
Örlygs súpumeistara FYRIR 6
LAMBAKJOT.IS er uppskriftavefur helgaður lamba-
kjöti. Á vefnum má finna gómsætar uppskriftir að
lambakjöti í forrétti og aðalrétti og grænmeti sem með-
læti. Einnig eru þar góð ráð við grillið.
H
ri
n
g
b
ro
t
framlengt til 29. mars
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
Hinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður
bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem
unna góðum mat á góðu verði.
Tilvalið fyrirárshátíðina!
HRÁSKINKA „PROSCIUTTO“
með fíkjum, salati og ferskum parmesanosti
RJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPA
með humarfrauði
MARINERAÐUR KÁLFAHRYGGUR Á BEINI
með ristuðu grænmeti, kartöflumauki
og hunangskryddsósu (4.590 kr.)
ÖND
með appelsínusósu og kartöfluköku (5.590 kr.)
NAUTALUND
Béarnaise með grilluðu hvítlauksristuðu spínati
og sperglum (6.590 kr.)
LOGANDI CRÈME BRÛLÉE
með súkkulaði ís
1
2
3
4
VELDU MILLI ÞRIGGJA AÐALRÉTTA
Nýr A la Carte hefst 30. mars!