Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.02.2009, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 20.02.2009, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðssonar Í dag er föstudagurinn 20. febrú- ar, 51. dagur ársins. 9.06 13.41 18.18 8.57 13.26 17.56 Sparaðu meira í leiðinni SÍMI 440 1000 WWW.N1.IS Meiri í leiðinni sparn aður l 1 punktur = 1 króna Safnkortspunktar eru jafngildur gjaldmiðill og krónur í öllum viðskiptum hjá N1. Með mánaðarlegum tilboðum er hægt að margfalda gildi punktanna. Kostnaður 1.322.500 kr. Afsláttur 72.732 kr. Punktar 25.683 Sparnaður 98.415 kr. Kostnaður 866.400 kr. Afsláttur 18.000 kr. Punktar 12.000 Kostnaður 190.000 kr. Afsláttur 22.800 kr. Punktar 5.700 Kostnaður 33.000 kr. Afsláttur 3.960 kr. Punktar 990 Kostnaður 16.100 kr. Afsláttur 1.932 kr. Punktar 483 Kostnaður 61.000 kr. Afsláttur 7.320 kr. Punktar 1.830 Kostnaður 12.000 kr. Afsláttur 1.440 kr. Punktar 360 Kostnaður 23.000 kr. Afsláttur 2.760 kr. Punktar 690 Kostnaður 24.000 kr. Afsláttur 2.880 kr. Punktar 720 Kostnaður 20.000 kr. Afsláttur 2.400 kr. Punktar 600 Kostnaður 14.000 kr. Afsláttur 1.680 kr. Punktar 420 Eldsneyti -5kr. pr.l. Dekk Dekkjaskipti Dekkjahótel Smurþjónusta Bón og þrifavörur Kostnaður 27.000 kr. Afsláttur 3.240 kr. Punktar 810 Bílaþvottur Rúðuþurrkur og rúðuvökvi Smávarahlutir Verkfæri Rekstrarvörur, fatnaður ofl. Kostnaður 22.000 kr. Afsláttur 2.640 kr. Punktar 660 Kostnaður 14.000 kr. Afsláttur 1.680 kr. Punktar 420 Ferða- og útivistarvörur Ýmislegt Sparnaður miðað við árlega eldsneytisnotkun fyrir jeppa og meðalstóran fólksbíl og annan algengan rekstrarkostnað. F í t o n / S Í A F I 0 2 8 3 4 1 Þú sparar bæði meira og víðar með N1 Þú færð betri kjör í 12 mánuði Sæktu um núna á n1.is -5 kr. af eldsneyti -15% af viðgerðum, smur- og hjólbarðaþjónustu -15% af vörum, m.a. af stærsta varahlutalager landsins Betri kjör á meira en 100 stöðum á landinu Safnkortspunktar jafngilda krónum hjá N1 Byrjum á játningu: Ég er ekki veraldarvanur í hörðum heimi fíkniefna. Þegar ég var á þeim aldri að teljast í áhættuhópi fyrir freistingum af þeim toga var stundum boðið upp á fréttaskýr- ingaþætti sem áttu að halda ungl- ingum á beinu brautinni. Oftar en ekki innihéldu þeir viðtöl við forherta eiturlyfjasala með and- lit í móðu og brenglaða rödd, sem sögðu hróðugir frá að það væri fljótlegra að verða sér úti um dóp en að panta pitsu. Það var ekki fyrr en talsvert síðar sem ég áttaði mig á að boðskapurinn var ekki hugs- aður sem áfellisdómur yfir pitsu- stöðum á Íslandi. MEÐ sömu bláu augunum las ég frétt um poppara sem hafði misst fótanna og reynt að verða sér úti um „ás“. Það fyrsta sem flaug um hrekklausan hugann var að þetta væri kreppufrétt af manni sem væri að reyna að kaupa sér spila- stokk, en hefði ekki efni á nema einu spili í einu. Fréttastofurnar voru hins vegar fljótar að kippa mér á jörðina og niður í undir- heima, þar sem orð á borð við „ás“ og „tvíburabróðir“ eru dulmál fyrir fíkniefni. Til að ráða í slangr- ið var kóngurinn í þessum „efnum“ kvaddur til. Hann var ekki lengi að svipta hulunni af merkingu ássins og tvíburabróðurins og áhrifum þeirra á getu manna til að dæma söngvakeppnir. ÉG man þegar Bubbi talaði yfir hausamótunum á okkur í Flens- borg og það voru engar smásög- ur; hafi einhver fengið sér ás var Bubbi með fullt hús. Auk þess að vara okkur við dópinu lagði hann ríka áherslu á hvað það væri auð- velt að leiðast út á refilstigu fíkni- efnanna. Ég hef aldrei skilið þá áherslu. Ég var tiltölulega venju- legur unglingur og man ekki betur en ég hafi verið latur og áhrifa- gjarn nautnaseggur; það er mögu- lega versti markhópurinn til að predika yfir um hvað það er auð- velt að komast í vímu. EKKI svo að skilja að ég haldi að frammistaða Bubba í framhalds- skólum hafi orðið til þess að ber- skjölduð ungmenni leiddust út í fíkniefnaneyslu. Öðru nær. Ég held að fyrirlestrar Bubba um áhrif fíkniefnaneyslu hafi haft til- tölulega lítil áhrif á afstöðu þeirra sem hlustuðu til fíkniefnaneyslu, en þeim mun meiri áhrif á Bubba sjálfan. Það er líka bara eðlilegt. Við eigum nefnilega að leita að fyrirmyndum í þeim sem standa okkur nær en ekki í afdönkuðum poppurum. En sem betur fer finnst ekki öllum poppurum að aðrir eigi að taka sér þá til fyrirmyndar. Ás-björn

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.