Tíminn - 05.01.1988, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 5. janúar 1988
Tíminn 3
Flugeldaslysin á gamlárskvöld:
Lögreglu-
rannsókn
Dómsmálaráðuneytið hefur nú
farið fram á það við Lögreglustjór-
ann í Reykjavík að hann láti rann-
saka hvað olli alvarlegum slysum á
mönnum við meðferð flugelda um
áramótin.
Rannsóknardeild lögreglunnar
annast skýrslutökuna og er búist við
að lögreglustjórinn skili af sér ítar-
legri greinargerð um málið í dag.
Það sem einkum á að kanna, að sögn
Bjarka Elíassonar yfirlögreglu-
þjóns, er með hvaða hætti slysin bar
að. Þá verður komist til botns í því
hvar flugeldarnir voru keyptir,
hvernig leiðbeiningar fylgdu, hvern-
ig leiðsögn var gefin og hvort verið
geti að flugeldarnir hafi virkað á
annan hátt en uppgefið var. Rann-
sóknin er bundin við þá fimm menn
er liggja nú til meðferðar á Landa-
kotsspítala. Þrír af þeim slösuðust
við notkun á tívolíbombunum svok-
ölluðu, sem síðustu tvö árin hafa
verið að ryðja sér verulega til rúms
á almennum markaði.
Alvarleg slys urðu á þremur
mönnum, tveimur úr Reykjavík og
einum í Borgarfirði. í alvarlegasta
tilfellinu missti maður hægra augað,
en í öllum þremur tilfellunum varð
um veruleg beinbrot að ræða. Tvö
þessara slysa urðu í Borgarfirðinum
þar sem annar Reykvíkingurinn var
staddur í sumarbústað. Hið þriðja
varð í Reykjavík.
Innflutningsaðilar þessara tívolí-
bomba voru jafn margir. Það voru
KR - Flugeldar, LHS - Flugeldar og
flugeldasala björgunarsveitar SVFÍ
íHafnarfirði, Fiskaklettur. Allirþrír
aðilarnir hafa flutt inn þessa tegund
flugelda í nokkuð mörg ár og ekki
hefur komið til slysa af þessu tagi
fyrr en nú. Fyrstu árin voru tívolí-
bombur að mestu leyti notaðar í
flugeldasýningar á vegum hjálpar-
sveita skáta, en síðustu árin hefur
salan aukist til almennings.
Fyrir þessi áramót voru fluttar inn
yfir 70 þúsund tívolíbombur og seld-
ust þær allar upp eins og árið á
undan. Stærsti hluti þessa innflutn-
ings núna var í höndum LHS -
Flugelda, eða um 50 þúsund stykki.
Hinir innflytjendurnir tveir munu
hafa flutt inn um 20 þúsund bombur
til samans fyrir þessi áramót.
Allar tívolíbombur koma frá sama
héraði í Kína, en eftir mismunandi
leiðum þó. Gerðirnar sem hafa verið
til kaups fyrir almenning eru tvær.
Sú minni er seld í pakka með sex
bombum. Þeim fylgir skothólkur úr
pappa og er þvermál hans um ein og
hálf tomma. Stærri gerðin er um
tvær tommur að þvermáli og er
hólkur hennar úr járni. Engin slys
virðast hafa hlotist af notkun stærri
bombunnar. Stærri bombur en
tveggja tommu er ekki heimilt að
selja á almennum markaði sam-
kvæmt reglugerð númer 258 frá
árinu 1964, en þær eru þó fluttar inn
til nota við flugeldasýningar.
Ekki vildu innnflytjendurnir full-
yrða neitt um það með hvaða hætti
slysin urðu. Voru þeir á sama máli
um að rétt væri að bíða með yfirlýs-
ingar og ákvarðanir þar til málið lægi
ljósar fyrir. Allir hörmuðu þeir at-
burðina og hafa þeir rætt um það sín
á milli að koma saman til að ákveða
með hvaða hætti staðið verði að
breytingum varðandi sölu á þessari
gerð flugelda fyrir næstu áramót.
Að sögn Hjalta Zóphóníassonar,
ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðu-
neytinu, er undirbúningur að nýrri
reglugerð um sölu og meðferð flug-
elda komin vel á veg. Sagði hann að
margt hafi breyst síðan gamla reglu-
gerðin var sett og því væri kominn
tími til að setja nákvæmari og ítar-
legri reglugerð um þennan mála-
flokk. Unnið hafi verið að gerð
þessarar nýju reglugerðar um nokk-
urt skeið og þá yrði m.a. kveðið
skýrar á um það hverjum sé heimilt
að selja tilteknar gerðir skotelda,
eins og það heitir í lögunum, og með
hvaða hætti skuli staðið að gerð
leiðbeininga. KB
Hann var fallegur himinninn yfir höfuðborginni þegar gamla áríð var kvatt.
Neðst til hægri má sjá hvar kviknað hefur í sinu. Tímamynd: Pjetur
Greiðslur almennings
fyrír læknishjálp og lyf
iskv. regiugerö utg. 9. desember 1987)
1. Greiðslur hjá heimilislækni og heilsugæslulækni
150 kr. — Fyri,r viðtal á stofu læknis. Innifalin er ritun lyfseðils.
280 kr. — Fyrir vitjun læknis til sjúklings.
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja sjúkling um viðbótargjald, nema
vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér.
2- Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp, rannsóknir
og röntgengreiningu
500 kr. — Fyrir hverja komu til sérfræðings.
170 kr. - E11 i- og örorkuli'feyrisþegar, fyrstu 12 skiptin hjá sérfræðingi á hverju almanaksári, síðan
ekkert. (Sjá nánar hér að neðan).
Aldrei má krefja sjúkling um nema eina greiðslu fyrir hverja komu ásamt rannsókn/röntgengreiningu
í framhaldi af henni. Til nánari skýringar er eftirfarandi tafla:
Greiðslur almennings fyrir sérfræðilæknishjálp, nokkur dæmi. c. . . T ,,
07 ’ r' Skyringar: Taflan lesist fra vinstri
til hægri og sýnir samskipti við
a m.k. tvo lækna. Dæmi 4: Sjúkl-
ingur leitar til heimilislæknis og
greiðir þar 150 kr. Heimilislæknir
vísar síðan sjúklingi til sérfræð-
ings, og þar greiðir sjúklingur500
kr Þessi sérfræðingur sendir
sjúkling í röntgengreiningu, og
þarf sjúklingur ekki að greiða sér-
staklega fyrir hana, þar sem hún
er i beinu framhaldi af komu til
sérfræðings.
TAFLA Heimilis- læknir Sérfræð- ingur Ranns./ Röntg.gr. Sérfræð- ingur Aðgerð hjá ^ Svæfing/deyfing sérfræðingi hjá sérfræðingi
Dæmi 1 150 500
Dæmi 2 150 350
Dæmi 3 150 500 500
Dæmi 4 150 500 0
Dæmi 5 150 500 0 500
Dæmi 6 150 500 0 500 0 500
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja sjúkling um viðbótargjald, nema
vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér.
Allir eiga að fá kvittanir fyrir greiðslum si'num hjá sérfræðingum.
Elli- og örorkuli'feyrisþegar, sem leggja fram hjá sjúkrasamlagi si'nu kvittun fyrir 12 greiðslum á sérfræði-
læknishjálp á sama ári, fá ski'rteini, sem veitir þeim rétt á þessari þjónustu ókeypis það sem eftir er ársins.
3. Greiðslur fyrir lyf
400 kr. — Fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi.
130 kr. — Elli- og örorkuli'feyrisþegar, fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi.
Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfjaskammt, eða brot úr honum.
Gegn framvi'sun sérstaks lyfjaski'rteinis í lyfjabúð fást ákveðin lyf,
við tiiteknum langvarandi sjúkdómum,ókeypis.
Læknar gefa vottorð til sjúkrasamlags í þeim tilvikum,
sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi.
Greiðslur þessar gilda frá og með 1. jan. 1988.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS