Tíminn - 05.01.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 5. janúar 1988
r
í
l
flugmálastjórn
AUGLÝSIR
Námskeið fyrir verðandi flugkennara hefst á Reykja-
víkurflugvelli þriðjudaginn 19. janúar og lýkur 26. mars.
Próf verða haldin laugardaginn 9. apríl.
Kennt verður sem hér segir:
Þriðjudaga kl. 17.30-20.30
Fimmtudaga .... kl. 17.30-20.30
Laugardaga .... kl. 09.00-13.00
Rétt til þátttöku eiga þeir sem þegar hafa lokið bóklegu
námi til atvinnuflugmanns III. flokks og blindflugsrétt-
inda og þeir sem eru í slíku námi og áætla að Ijúka því
á árinu.
Áætlaður kostnaður er kr. 25.000 fyrir hvern nemanda.
Innritun og frekari upplýsingar hjá flugmálastjórn/loft-
ferðaeftirliti, flugturninum, Reykjavíkurflugvelli, sími
91-694100.
Viðskiptafræðingur/
skattendurskoðun
Skattstjóri Austurlandsumdæmis vill ráða viöskiptafræðing til
starfa við álagningu og endurskoðun framtala og ársreikninga
einstaklinga og félaga í atvinnurekstri. Til greina kemur aðili
með sambærilega þekkingu á bókhaldi og reikningsskilum.
Um er að ræða krefjandi og áhugavert starf og tækifæri til
þess að öðlast þekkingu og reynslu í skattskilum og skattarétti
í framkvæmd. Jafnframt gefst tækifæri til þess að vinna við
og eiga þátt í mótun hins nýja staögreiðslukerfis skatta.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf
sendist skattstjóra Austurlandsumdæmis, Selási 8 700 Egils-
stöðum fyrir 31. janúar nk.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. bygg-
ingadeildar, óskar eftir tilboðum í smíði og upp-
setningu á stálbrún í aðalsal Borgarleikhússins í
Reykjavík. Heildarþungi á stáli 12.700 kg.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000 skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
20. janúar 1988 kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYK]AVÍXURBORGAR '
Ffíkirlijuvgi 3 — Sími 25800______
Dalvík
Umboðsmaður
Tíminn óskar að ráða umboðsmann fyrir blaðið á
Dalvík.
Upplýsingar gefur Brynjar í síma 61214, Dalvík
eða afgreiðsla blaðsins í Reykjavík, sími 91-
686300.
Tíminn
Setjari óskast
á CRTronic setningartölvur, (innskrift)
helst vanur. Vaktavinna
Tíminn
Sími686300.
Hjalti hættir
vegna aldurs
Um áramótin lét Hjálti Pálsson af
störfum sem framkvæmdastjóri
Verslunardeildar Sambandsins, fyrir
aldurs sakir. Hjalti, er varð 65 ára
nú í haust hefur starfað hjá Sam-
bandinu frá árinu 1948 og á 40 ára
starfsferli gegndi hann fjölmörgum
ábyrgðarstöðum þar. Hann var
framkvæmdastjóri Dráttarvéla hf.,
síðan framkvæmdastjóri Véladeild-
ar, og þá Innflutningsdeildar sem
síðar varð Verslunardeild.
í síðasta tölublaði Gluggans, blaði
Verslunardeildarinnar, ritar Guðjón
B. Ólafsson forstjóri Sambandsins
kveðju til Hjalta á þessum tímamót-
um en þar segir m.a.:
„Hvar sem Hjalti fer er eftir
honum tekið. Framkoma hans er
hispurslaus og hann gengur hreint
og beint til verka. Þekking Hjalta á
fólki og málefnum er einstök og ekki
þarf að fjölyrða um ástúð hans og
þekkingu á íslenska hestinum.
Hjalti á fjölmarga vini innan Sam-
bandsins og í kaupfélögunum um
land allt. Fyrir hönd allra þeirra og
félaga Hjalta í framkvæmdastjórn
Sambandsins vil ég við þetta tækifæri
þakka honum langt og mikið ævistarf
í þágu Sambandsins og annarra sam-
vinnufélaga. Ég þakka Hjalta sér-
staklega fyrir hans einörðu og
drengilegu afstöðu til manna og
málefna. Jafnframt þakka ég
ánægjulega viðkynningu og gott
samstarf.
Ég óska Hjalta og fjölskyldu hans
alls góðs á ókomnum árum.“
Hjalti Pálsson
Reglugerð hefur nú verið sett um flug flsa. Á myndinni er „vélfis“ (þ.e. fls
með hreyfli.) (Tíminn: Pjclur)
Nýyrðasmíö í loftferðaeftirl itinu:
Fis á forgang
á önnur heiti
„Hreyfílknúin fís skulu veita forgang físum án hreyfíls“, segir í
regiugerð samgönguráðuney tisins um fís frá 3. nóvember 1987. Hér
varð að Ieita frekari skýringa sem fengust hjá flugmálastjórn. Fis er
nýyrði, sem Skúli Sigurjónsson, deildarstjóri í loftferðaeftirlitinu,
myndaði upphaflega, eftir því sem Tíminn kemst næst. Það merkir
loftfar sem stundum hefur verið nefnt svifdreki eða flugdreki, en
heitir „microlight“ og „ultralight“ á engilsaxnesku. Það er notað til
einflugs og eingöngu til skemmtunar eða íþrótta. Því er ekki krafíst
lofthæfísskírteinis eða flugliðaskírteinis til flugs físa.
Af enska heitinu má greina að
loftfar þetta er fislétt. Úr þessu
samsetta lýsingarorði er íslenska
heitið fengið og lagði Halldór Hall-
dórsson, prófessor, blessun sína yfir
þetta orð þegar hann las yfir reglu-
gerðina. Hann hefur lengi verið
flugmálastjórn innan handar við ný-
yrðasmíði og orðaði það svo, spurð-
ur um nafnorðið fis: „Ég fann ekkert
betra sjálfur.“
Menn, sem sátu fund um þessi
ioftför í tengslum við gerð reglugerð-
arinnar, rekur minni til að Skúli
Sigurjónsson hafi verið fyrstur til að
mynda orðið fis og eigi heiðurinn af
því. Reglugerðin hefur verið lengi í
smíðum, þar sem forsendur fyrir
flugi fisa hafa stöðugt breyst á
meðan. Þar segir m.a. að stjórnandi
fiss skuli gefa stöðugan gaum að
annarri flugumferð og veita ölluni
öðrunt loftförum forgang. Fis á því
aðeins forgang í málfræðinni, því að
heitið hefur verið lögfest með reglu-
gerðinni og aðrar nafngiftir eiga þess
vegna að víkja. þj
Holtavörðuheíði:
Lést eftir
umferðarslys
Ung kona lést eftir umferðar-
slys á Holtavörðuheiði, skammt
frá Brú í Hrútafirði, hinn 30.
desember. Mikil hálka var á veg-
um og myrkur, en slysið átti sér
stað um hálfsjöleytið að kvöldi.
Fólksbifreið, sem hún var far-
þegi í á leið norður, skreið þvert
á akbrautina í hálkunni og skall
framan á pallbíl á leið suður.
Börn hennar tvö og eiginmann,
sem einnig voru í bílnum, sakaði
lítið og ökumann pallbtlsins ekki.
Konan var flutt á sjúkrahús, en
var látin áður en þangað var
komið.
Hún hét Erna Guðlaug Óiafs-
dóttir, hjúkrunarfræðingur, til
heimilis að Langholtsvegi 100 í
Reykjavík. Hún var 33ja ára
gömul. þj