Tíminn - 05.01.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 5. janúar 1988
|U Félagsmalastofnun
Reykjavíkurborgar
Leiðbeinandi f. sambýli.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar auglýsir eftir
leiðbeinanda í sambýli fólks með geðræn vandamál.
Starfið felst í félagslegum stuðningi við íbúa og aðstoð
við heimilishald og er unnið í samvinnu við Félags-
málastofnun og félagsráðgjafa og iðjuþjálfa á geðdeild
Landspítalans. Um hlutastarf er að ræða (ca.40-50 st.
á mán.) Starfið er laust f.o.m. jan. '88. Nánari
upplýsingar hjá eftirtöldum aðilum:
Rannveig Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi, geðdeild
Landspítalans, sími: 29000/651.
Ingibjörg Flygenring, félagsráðgjafi, Félagsmálastofn-
un Reykjavíkur, sími: 74544.
Umsóknareyðublöð fást hjá Starfsmannahaldi Reykja-
víkurborgar í Pósthússtræti 9 og skal umsóknum
skilað þangað fyrir 10. jan. ’88.
Happdrætti Styrktar-
félags vangefinna
Vinningsnúmer:
1. Vinningur Audi 100CC nr. 29380
2. Vinningur:
Bifreið að eigin vali fyrir kr. 600.000,- þúsund nr.
53063
3. til 10. vinningur:
Bifreiðar að eigin vali, hver að upphæð kr.
325.000,- þúsund.
Nr. 12157
Nr. 31241
Nr. 39229
Nr. 45083
Nr. 56718
Nr. 81279
Nr. 95490
Nr. 96180
Styrktarfélag vangefinna.
SVÆÐÍSSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYICJAVÍK
Laus staða félagsráðgjafa
Auglýst er til umsóknar staða félagsráðgjafa hjá
Svæðisstjórn. Starfssvið hans er auk ráðgjafar-
starfa, móttaka umsókna um aðstoð skv. lögum nr.
41/1983 um málefni fatlaðra, öflun og úrvinnsla
upplýsinga.
Ráðningartími hefst þ. 1. feb. n.k. Laun skv.
kjörum opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt
upplýsingum um fyrri störf sendist fyrir 15. jan. n.k.
Nánari upplýsingar í síma 62 13 88.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
Hátúni 10-105 Reykjavík.
Reykjavíkurborg
starfsmannahald
íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur
Starfsfólk óskast á eftirtaldar Félagsmiðstöðvar.
Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og eða
reynslu af uppeldisstarfi.
Bústaðir
Fellahellir
Tónabær
Þróttheimar
Upplýsingar gefur Æskulýðsfulltrúi, að Fríkirkju-
vegi 11 eða í síma 622215.
Sigrún Magnúsdótir borgarfulltrúi:
Hvar er stefnumörkun
í verslunarmálunum?
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins
hefur í borgarráði óskað eftir ítarlegum upplýsingum um
hvernig Reykjavíkurborg ætli að ná þeim markmiðum í
verslunarmáium sem sett eru fram í nýju aðalskipulagi sem
lagt verður fyrir borgarstjórn í vikunni. Helstu markmiðin eru
að í nýjum hverfum verði ekki meira en 400 m frá þorra
heimila í næstu matvöruverslun, spornað verði við fækkun
matvöruverslana í grónum hverfum og að jafnvægi skuli nást
milli stórmarkaða og minni matvöruverslana.
„Ég er sammála þeim markmiöum
í verslunarmálum sem koma fram í
aðalskipulaginu, en ég sé ekkert frá
Reykjavíkurborg hvernig þessum
markmiðum skal náð. Ég vil fá skýra
stefnumótun og áætlun um hvernig
markmiðunum verður náð, en ckki
loðin falleg orð á prenti," sagði
Sigrún Magnúsdóttir þegar Tíminn
innti hana eftir ástæðum þessara
fyrirspurna.
Sigrún sagði að ekki lægi neitt
fyrir um heildarstefnumörkun í
verslunarmálum í Reykjavík. Hún
benti á að í skýrslu Borgarskipulags
„Verslunarkönnun í Reykjavík
1981“ hafi verið margsinnis bent á
nauðsyn þess að borgaryfirvöld
marki stefnu í verslunarmálum. Það
hafi enn ekki verð gert. Sem dæmi
liggur ekki fyrir nein skilgreining á
því hvað sé stórmarkaður né hvað sé
eðlilegur fjöldi stórmarkaða.
Tíminn hafði samband við Davíð
Oddsson borgarstjóra og spurði
hann hvort Reykjavíkurborg hyggð-
ist gera áætlun til að ná markmiðum
aðalskipulagsins í verslunarmálum.
Borgarstjóri sagði Reykjavíkurborg
fara eftir þeim plöggum sem hún
setti sér. Ekki verði gerð nein starf-
ræn áætlun sem farið verður eftir frá
skrefi til skrefs til að ná þeim
markmiðum sem fram koma í aðal-
skipulaginu. Hann sagði að sérstök
framkvæmdaáætlun fylgdi ekki aðal-
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins.
skipulagi, enda væri slíkt erfitt þar
sem aðalskipulag er endurskoðað á
fimm ára fresti en borgarstjórn geri
sínar áætlanir til eins árs í senn.
-HM
Verðmæti sjávarfangs
aldrei meira en 1987
Verðmæti íslensks sjávarfangs
hefur aldrei verið meira en á árinu
1987 ef marka má áætlun Fiskifélags
fslands. Þá var árið 1987 fiórða árið
í röð, þar sem sjávarafli Islendinga
er meiri en 1.5 milljón tonn. Endan-
legar tölur liggja ekki fyrir en Fiski-
félagið spáir að heildaraflinn verði
1600 þúsund tonn, en árið 1986 var
aflinn 1651 þúsund tonn.
Heildarafli botnfisks verður sam-
kvæmt spá, 659 þúsund tonn á móti
632 þúsund tonnum 1986. Þetta er
rúmlega 4% aukning. Þorskurinn
verður 381 þúsund tonn sem er 15
þúsuna tonnum meira en var árið
1986 þegar aflinn var 366 þúsund
tonn. Ýsuaflinn verður 8 þúsund
tonnum minni í ár en í fyrra, 39
þúsund tonn í stað 47 þúsund tonn.
Karfaaflinn minnkar um 4 þúsund
tonn og verður 82 þúsund tonn.
Hinsvegar eykst grálúðuaflinn um
13 þúsund tonn og verður 44 þúsund
tonn. Humaraflinn 1987 verður
heldur meiri en árið 1986 þó ekki
muni miklu. Rækjuafli eykst enn, þó
aukningin árið 1987 væri minni en
undangengin ár. Samkvæmt spá
Fiskifélagsins nær rækjuaflinn um 39
þúsund tonnum. Hörpudisksafli
minnkar nokkuð eða um 3000 tonn.
Ráöhúsiö viö Tjörnina
Alvöri jframkvæmdir
hefj ast í febrúar
Framkvæmdir við byggingu ráð-
hússins við Tjörnina munu hefjast
fyrir alvöru um miðjan febrúar.
Skiptir þá engu hvort félagsmálaráð-
herra hefur staðfest Kvosarskipulag-
ið eður ei. Þetta kom fram hjá Davíð
Oddssyni borgarstjóra þegarTíminn
innti hann eftir framkvæmdum við
ráðhúsið, en húsið við Tjarnargötu
11 þar sem ráðhúsið mun rísa verður
flutt út í Skerjafjörð í þessari viku.
„Það er ekkert því til fyrirstöðu að
grafa fyrir ráðhúsinu og gera fleiri
slíka hluti þó staðfesting ráðherra á
Kvosarskipulaginu liggi ekki fyrir.
Sem dæmi er nú verið að byggja
stórt hús á horni Vesturgötu og
Garðastrætis. Þar er ekkert skipulag
til staðar, hvorki deiliskipulag né
annað,“ sagði Davíð Oddsson borg-
arstjóri.
Aðspurður sagðist borgarstjóri
ekki eiga von á öðru en félagsmála-
ráðherra staðfesti Kvosarskipulagið,
enda væri það lireint formsatriði
eftir að sveitarstjórn og skipulags-
nefnd ríkisins hafi samþykkt skipu-
lagið.
Ellimáladeild félagsmálastofnun-
ar hefur verið til húsa í Tjarnargötu
11 og mun ellimáladeildin flytjast að
Tjarnargötu 20 þar sem fræðsluskrif-
stofa Reykjavíkurumdæmis hefur
haft aðsetur sitt. Fræðsluskrifstofan
mun að líkindum fá inni í Austur-
stræti 14, en líkur eru á að þeir
flutningar verði ekki fyrr en um
miðjan janúar.
Nýlega var stofnaður sjóður til
styrktar endurhæfingu krabbameins-
sjúklinga. Stofnfé var 200 þúsund
krónur, 100 þúsund frá Óskari Kjart-
anssyni gullsmið og 100 þúsund
krónur frá Sól hf.
Borgarstjóri sagði að ellimál-
adeildinni yrði komið fyrir einhvers-
staðar í húsnæði borgarinnar þar til
fræðsluskrifstofan rýmdi húsið
Tjarnargötu 20, svo engin hætta væri
á því að ellimáladeildin yrði á göt-
unni þó flutningar drægjust ein-
hverja daga. -HM
Nú hefur borist 25 þúsund króna
gjöf frá konu sem er ellilífeyrisþegi
og ekki vill láta nafns síns getið.
Hefur Krabbameinsfélagið fært kon-
unni bestu þakkir fyrir þetta mynd-
arlega framlag til þessarar starfsemi.
Styrktarsjóður fyrir
krabbameinssjúklinga