Tíminn - 05.01.1988, Side 7
Þriðjudagur 5. janúar 1988
Tíminn 7
r Orðuritari:
Atján sæmdir
fálkaorðunni
Forseti íslands hefur sæmt eftirtalda
íslendinga heiðursmerki hinnar ís-
lensku fálkaorðu:
Aðalstein Jónsson, útgerðarmann,
Eskifirði, riddarakrossi fyrir störf að
atvinnumálum.
Frímann Sigurðsson, yfirfangavörð,
Stokkseyri, riddarakrossi fyrir störf
að félags- og fangelsismálum.
Gísla Ólafsson, bakarameistara,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
að málefnum iðnaðarins.
Gissur Pálsson, rafvirkjameistara,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
að bindindismálum.
Gissur Símonarson, formann Iðnað-
armannafélagsins í Reykjavík, ridd-
arákrossi fyrir störf í þágu iðnaðar-
manna.
Grétar Símonarson, fv. mjólkurbú-
stjóra Selfossi, riddarakrossi fyrir
störf að atvinnumálum bænda.
Frú Guðlaugu Eddu Guðmunds-
dóttur, utanríkisráðherrafrú,
Garðabæ, riddarakrossi fyrir störf í
opinbera þágu.
Gunnar J. Möller, hæstaréttarlög-
mann, Reykjavík, riddarakrossi fyr-
ir störf að félags- og sjúkratrygginga-
málum.
Frú Ingibjörgu R. Magnúsdóttur,
deildarstjóra, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf að heilbrigðis-,
félags- og sveitarstjórnarmálum.
Jón Tryggvason, fv. oddvita, Ártún-
um, Bólstaðarhlíðarhreppi, Húna-
vatnssýslu, riddarakrossi fyrir störf
að félagsmálum bænda.
Kristján Júlíusson, fv. bátasmið,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
að líknarmálum.
Frú Louisu Matthíasdóttur, listmál-
ara, New York, riddarakrossi fyrir
málaralist.
Ólaf Guðmundsson, framkvæmda-
stjóra, Grimsby, riddarakrossi fyrir
störf að markaðsmálum sjávarút-
vegsins.
Óla Vestmann Einarsson, fv. yfir-
kennara, Reykjavík, riddarakrossi
fyrir starfsmenntun í bókagerð.
Frú Sigríði Sumarliðadóttur, upp-
eldisráðgjafa, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf að líknar- og félags-
málum.
Séra Sigurð Guðmundsson, vígslu-
biskup, Hólum, stórriddarakrossi
fyrir störf að kirkjumálum.
Sigurð Krístinsson, málarameistara,
Hafnarfirði, riddarakrossi fyrir störf
að félagsmálum iðnaðarmanna.
Þórarin Guðnason, lækni, Reykja-
vík, riddarakrossi fyrir störf að heil-
brigðismálum.
Fjórhjól og snjósleöar lækka ekki:
Innflutningsgjöld
á móti tollalækkun
Tíminn greindi frá því fyrir
skömmu að búast mætti við gífur-
legri verðlækkun á fjórhjólum og
snjósleðum í kjölfar þess að ný
tollalög taka gildi og tollur af þessum
tækjum lækkaði úr 90% niður í
10%. Ekki mun þó verða af því að
þessi tæki lækki þar sem lagt verður
á þau innflutningsgjald sem vegur
upp tollalækkunina og verðið mun
því haldast óbreytt. Að sögn Karls
Th. Birgissonar upplýsingafulltrúa í
fjármálaráðuneytinu mun innflutn-
ingsgjaldið verða lagt á með reglu-
gerð strax eftir að tollafrumvarpið
verður að lögum á Alþingi. - BG
Fundur deildarstjóra SS:
Mótmælir skerðingu
á fullvirðisrétti
Á fundi deildarstjóra Sláturfélags
Suðurlands, sem haldinn var á Hvol-
svelli 16. desember sl., voru sam-
þykkt mótmæli vegna mismunandi
skerðingar á fullvirðisrétti sauðfjár-
bænda verðlagsárið 1988-89, og á
það bent að hallað væri á mikilvæg
sauðfjárræktarsvæði á starfssvæði
félagsins. Tekið er fram að með
þessum aðgerðum se verið að vinna
að því að leggja niður sauðfjárrækt
á Suðurlandi og í engu tekið tillit til
þess að á svæðinu hafi margir bænd-
ur eingöngu sauðfé, enda hafi þeir
engra annarra kosta völ.
Fundur deildarstjóranna bendir á
að mikið og gott starf hafi verið
unnið við uppbyggingu vinnslu-
stöðva á svæði Sláturfélagsins og nú
sé svo komið að öll sláturhús þess á
Suðurlandi séu löggilt af heilbrigðis-
yfirvöldum. Það kemur einnig fram
að markaðsstaða félagsins sé traust
og álykta megi að neytendur vilji
sunnlenskt kindakjöt öðru fremur.
Bæjarstjóm Seyðisfjarðar:
Mótmælir harðlega
háu raforkuverði
A fundi í bæjarstjórn Seyðisfjarð-
ar 14. desember s.l. var samþykkt
„að mótmæla harðlega endurtekn-
um hækkunum á raforkuverði, sem
auk kostnaðarhækkunar fyrir neyt-
endur, hlýtur að hafa keðjuverkandi
áhrif á kaupgjald og verðlag í land-
inu“. í samþykkt bæjarstjórnar er
þess síðan getið að á árinu 1987 hafi
stjórnvöld samþykkt þrjár hækkanir
á raforkuverði. Hin fyrsta hafi verið
I. janúar, 10% hækkun á húshitun
og 7% hækkun almennrar notkunar,
önnur hækkunin þann 1. ágúst,
II, 4% hækkun húshitunar og 10%
hækkun á almennri notkun og þriðja
og síðasta hækkunin hafi verið 1.
desember, 18,0% hækkun á húshit-
un og 16% hækkun á almennri
notkun.
1 samþykkt bæjarstjórnar er sagt
að þessar hækkanir séu umtalsvert
meiri en á höfuðborgarsvæðinu, en
slíkt sé „allsendis út í hött og raunar
óafsakanlegt". Í lok samþykktarinn-
ar er tekið fram að nefndar hækkanir
á raforku leiði til hækkandi verbólgu
„og þarmeð enn versnandi lífskjara
úti um land, auk þess sem slíkur
aðstöðumunur hvetji til fólksflótta
og aukinnar byggðarröskunar og er
síst á slíkt bætandi frá því sem er um
þessar mundir". óþh
Viltu breyta til
með hækkandi sól?
Viltu læra um
Ferðaþjónustu • Fiskeldi • Loðdýrarækt • Skógrækt
Kanínurækt eða gömlu góðu hefðbundnu kvikfjárræktina?
Tækifærið gefst núna, því bændaskólinn á Hvanneyri tekur við
nemendum á vorönn að þessu sinni!
Bændaskólinn á Hvanneyri er nútíma skóli, þar sem færustu
búvísindamenn fylgjast með öllum nýjungum í landbúnaði
og miðla þeim til nemenda, sem vilja takast á við heillandi
verkefhi. Þar er frábær aðstaða á heimavist.
Auk hefðbundinnar búnaðarfræðslu eru 12 valfóg:
Alifugla-ogsvínarækt • Ferðaþjónusta • Fiskeldi
Hrossarækt • Kartöílu- og grænmetisrækt • Loðdýrarækt
Nautgriparækt • Rekstrarhagfræði • Sauðljárrækt
Skógrækt • Vélfræði • Vinnuvélar og verktækni.
Búfræðinám tekur 2 ár (4 annir) en fólk með stúdentspróf
eða hliðstæða menntun getur lokið því á einu ári.
Helstu inntökuskilyrði eru að umsækjendur hafi lokið almennu
grunnskólaprófi með lágmarkseinkunn til inngöngu í framhalds-
skóla, og að þeir hafi öðlast nokkra reynslu í landbúnaðarstörfum.
Skrifleg beiðni um inngöngu ásamt prófskírteinum þarf að berast
skólanum eigi síðar en 15. janúar.
Nánari upplýsingar í síma 93-70000 og 93-71500.
BÆNDASKÓLINN
HVANNEYRI
Viltu taka þátt í nýsköpun
íslensks landbúnaðar?
n.
h