Tíminn - 31.01.1988, Síða 3
Sunnudagur 31. janúar 1988
Tíminn 3
VIÐHORF
YIL ÁKYEÐA SJÁLF HYORT
ÉG FER ÚT EÐA ER HEIMA
Hún er tæplega 16 ára og talar af
hreinskilni um sín viðhorf. Hún
talar kinroðalaust um sjálfa sig og
segir frá því hvernig hlutirnir gangi
fyrir sig innan þess hóps sem hún
umgengst. Af tillitssemi við foreldra
hennar, vinina og ekki síst hana
sjalfa þá þykir rétt að nota ekki
hennar rétta nafn, heldur nefnum
hana í þessu viðtali Önnu.
Aðspurð um hvað hún geri um
helgar, svarar Anna:
„Það er misjafnt, en venjulega
förum við í bíó, partý og niður í bæ.
Oftast erum við með vín í partýum
og drekkum það þá áður en við
förum í bæinn,“ segir hún.
En hvar komast krakkar á hennar
aldri yfir áfengi?
Hún segir það ekki mikið mál,
það séu eldri félagar eða yngri
ættingjar sem kaupi fyrir þau. Sjálf
segist hún einu sinni hafa farið í
ríkið og fengið afgreiðslu. Hvort
ekki sé hægt að skemmta sér án þess
að hafa vín, svarar hún á þann veg
að víst sé það hægt, en það sé miklu
skemmtilegra, „maður er ekki eins
fúll og það er miklu meira fjör í
kringum mann,“ segir hún. Anna
segist vita að óhollt sé að drekka, en
þegar allir hinir eru með vín þá sé
erfitt að neita sopa.
Hún segir foreldra sína vaka eftir
sér og eigi hún að vera komin heim
um kl. 2, í síðasta lagi, um helgar.
Ekki fari hún eftir þeim fyrirmælum,
heldur komi hún heim þegar henni
þóknast eða því sem næst. En nagar
samviskan hana ekki, vitandi af
svefnlausum nóttum foreldranna?
Ekki neitar hún því, það sé bara svo
erfitt að fara eftir einhverjum reglum
og tekur sem dæmi að stundum séu
allir í ofsa stuði einmitt þegar tíminn
sé útrunninn. Ómögulegt sé að segja
nei við sjálfa sig og fara heim.
En hver eru viðbrögð foreldranna,
á hvaða hátt er þér refsað?
„Ég er bara skömmuð, þau hafa
gefist upp á öliu öðru. Þaö þýðir
ekkert fyrir þau að banna mér, ég
hlýði ekki, því ég þoli ekki að aðrir
ráði yfir mér. Eg vil ákveða sjálf
hvort ég fer út eða er heima," segir
hún. Aðspurð hvort hún telji að það
eigi ekki eftir að koma henni í koll
síðar, að fara ekki eftir leiðbeining-
um svarar hún á þann veg að hún sé
ekki farin að hugsa svo langt. Og þó,
hún geri sér grein fyrir að lífið sé
ekki bara skemmtun, en það sé
nægur tími til að hugsa um það
seinna.
Við snúum talinu að reykingun-
um, en Anna hefur reykt að staðaldri
í þrjú og hálft ár. Hún segir að sig
langi mikið til að hætta og hafi
nokkru sinnum reynt, en ekki tekist.
Hún reykir yfir pakka á dag og segist
láta skrifa sígaretturnar á reikning
foreldra sinna, þar sem þau versla.
Móðir hennar reykir, en faðir henn-
ar hætti fyrir nokkrum árum. Hún
segir þau vita af reykingunum, en
ekki að hún láti skrifa sígarettur
fyrir sig.
Þeir krakkar sem Anna er með
eru á aldrinum 14-17 ára og hafa þau
flest þekkst frá því þau byrjuðu í
skóla í hverfinu sem hún býr í. Þau
hafa haldið hópinn frá því í barna-
skóla og búa flest í nálægð við hvert
annað. Anna segir þau koma frá
mjög misjöfnum heimilum og telur
heimilin sem slík ekki hafa neitt að
segja. Það sem skipti máli sé félags-
skapurinn og áhrifin sem þau verði
fyrir hvort af öðru. „Ef ég ætla t.d.
að vera heima og nenni ekki út, þá
er alveg nóg að einhver úr hópnum
komi eða hringi og segi að það sé
partý einhversstaðar. „Þá hætti ég
við að vera heima og dett í það með
krökkunum“.
Hafið þið í þínum vinahóp prófað
einhverja aðra vímugjafa en áfengi?
„Nei aldrei, en mér hefur verið
boðið hass og neitað því,‘*segir hún.
Anna segir ástæðuna vera þá, að
hún óttist að verða háð öðrum
efnum ef hún byrji. Reynslan af
sígarettum og áfengi kenni henni að
það gæti verið henni hættulegt að
reyna eitthvað annað. Hún segir
ennfremur engan í vinahópnum hafa
reynt neitt annað. Þau hafi rætt það
og sé það ríkjandi viðhorf meðal
þeirra að láta allt slíkt eiga sig.
Kynlíf, hvaða viðhorf hefurðu til
þess?
„Mér finnst bara miklu skemmti-
legra að vera úti; hef gaman af að
skemmta mér og langar ekkert að
breyta því,“ segir hún. En þegar hún
er spurð hvort helgardrykkjan og
allt „útstáelsið" hafi ekki áhrif á
lærdóminn, neitar hún því ekki. „Ég
veit að ég má herða mig ef ég á að
ná góðum prófum í vor, því ég ætla
mér í menntaskóla. Ég geri mér líka
grein fyrir að ég drekk of mikið. Þær
eru pirrandi þessar eilífu pælingar
um hvar eigi að ná í vín fyrir hverja
helgi. Jú, jú, ég má svo sem fara að
hugsa minn gang. En það er líka
ofsalega erfitt að hætta að vera með
þessum krökkum og þó ég ætli að
vera heima kannski eina helgi, þá fæ
ég fiðring í mig og verð að komast
út. Mér finnst bara svo gaman að
skemmta mér og hugsa ekki um
annað en það; finnst ég sé að missa
af einhverju ef ég ekki fer út,“ segir
hún.
En það er augljóst að í undirtónin-
um má finna að Anna gerir sér grein
fyrir hvaða afleiðingar það getur
haft fyrir hana, ef hún ekki staldrar
við. En þá komum við að félags-
skapnum og áhrifunum sem einn
slíkur hópur getur haft. I hvaða átt
þeir unglingar sem Anna umgengst
eiga eftir að stefna, ræðst á næstu
mánuðum. Vonandi að það komi
ekki til með að verða of seint fyrir
Önnu að bregðast rétt við og vera
sjálfstæðari gagnvart hópnum.
Það er of seint að iðrast eftir á.
-BD
Fi
Góður matur og
þægilegt andrúmsloft
YRIR rúmri viku frumsýndi
Egg-lcikhúsið nýtt verk eftir
Valgcir Skagfjörð sem ber
nafnið, Á sama stað. Unt cr að
ræða svokallað hádcgisleikhús
scm hefur í gegnum árin notið
vinsælda erlendis og cr líklega
upprunnið í Brctlandi. Þetta
er í annað sinn sem íslenskum
áhorfendum er boðið upp á
lciksýningu í hádcginu og að
matast um leið.
Sýningar fara frant í veit-
ingahúsinu Mandarín við
Tryggvagötu, þar sent komið
hefur veriö fyrir upphækkuðu
sviði. Sýningar hefjast kl. 12 á
hádegi og eftir um það bil 20
mín. er gert hlé meðan borin
er fram fjórrétta kínversk
máltíð, síðan hefst seinni hlut-
inn scm tckur aðrar 20 mín.
Ekki verður fjallað um verk-
ið hér þar scm umfjöllun og
leikdómar hafa þegar birst í
flestunt blöðum. En blaðamað-
ur átti kost á að sjá leikritið og
snæða góðan mat á einni af
síðustu æfingum fyrir frumsýn-
ingu og varð sannarlcga ekki
fyrir vonbrigðum. Þetta l'ram-
tak EGG- leikhússins er
skemmtileg nýbreytni í
skammdeginu og ætti enginn
að vera svikinn af góðum mat
í þægilegu andrúmslofti og inn-
byrða smávegis af menningu
um leið.
Erla B. Skúladótti.r í hlutverki sínu í fyrri hluta verksins.
Timamynd Gunnar
.. að t iu órum ti&num sama konan með aðra ásýnd. Timamynd Gunnar
LAUSN Á JÓLAKROSSGÁTU TÍMANS
'fíMA janW/. «HGL IU 'inr úr rú. viit • • •• »\)K • " 1/ • -• H"tu Kl.AI.Í n/ítOÍ i/ri/M P|NP »4 * n l.»/U| MM/ r •
M 'O P j R 0 G > B fí R N líiU’ r ^ > / fl L.i U., . /
■C, Tff&sSv fa.'. IjflL >.L«an Æ K r/iLA N ú L. L P Á 50a K 0 T IU4ISI s' K E
FHM r >/Ui mni r n* K M y N D V. J b L fí hl N A ’ rn •K
] s T ð V *»*<)* 'fúk 1) T ■G Á J/VU/ )il\H ~ G f) M r\ N riT|u D R M6 V
nn'ii *•/ f. Aiint'Þ b V o 5 u'inn MJCíJ 'n N Rum 'ifiL'ÁÍ RIT i L L U H f oNN (ilMS s N £ R p.í v 1) L
* m n 'M'd'K B 1. T n s A R iUH K'> AUJ.4ID VLIIT fí N n nfíii r.vði{ Ns N b'jo n i/'/i 3 n T /V'f./t ICI J 1
"?A £ u L iÞf.llUJ Pl'inj. V | M | F n P r’ R 1 N N n /i R K /1 s K
\ú T b A G /i K n>6ú ■'oi’á K <■> l> T E L r>o S n L Mt»i Ki nc 0 K <r/i I. £ 1"
M*«r/ L ] i-im E R i<*r\N !>1 ló/r/l s N ] ’ L L 1 u rnimt jnnpj s K E K N I IV
L CfAJS ■fm /0 O o trniv n/vpni Æ K I P ‘I 1 1 M |,K ‘S1 T J n l\ H A N
r.vmr 11 n F K n K lun m snMi’r N K i 'JIP*/ vm IIÍ5T J 'o '4IS__ IKÍILI' T '/] 'itl.'i 1 r.7i’r K L
rv-K L X SKjn hmA n.iLA a L U G G n PoÞÍ /I 'í'f 'o L G l «-í r r,»n I iiRitt'h JÍ' I ,)
> r «r Þl M a S í 5 I itiU L A irrTA m 1 11 T N A R /417/» þííK V n /i». f!ð» » '0
scin R ó A 'JMN i/i ó í». "M M y K K S IAL4 n'lPJH 1 I 1 lll/4/J 7 af' /1 ,s
S/)«r.| £ )«■’ L llRUfcA u/t7'/l K M 0 s,v » — \'CT A 4 fl £ i L ó G h
ri'tt öR R J2 Ú P U R UXJ flVlf' Ú K Æ G 1 s s 1 r
iVfÁD LV.lPð t rt 0 K A ÍILUP. r/ISA^ K A R P ‘.’íuíL m M/’|4 Sli'i/1 fi P Jcl' rf P /»" r)
'IÍMíJA B K A S A Hof) x’<r r 6 II »1 sfl mm |s R N H.’.P »<Hl" f. a: If f)
■ iJ l\ Ð f/ÍLM om r\ S ./* T 'n L víi/oJ unKii ú lf'° L l hf.fl /M s A r 1,
ilS/» 'M./J R u H 0 ívjmrt c/v M A K s ’Æ ^ iU n.V/. «t/»o ump iLÍé'r L COMI 1” . Ú' K /] s
fl N R 1 KUN/t t-ivnT s A R A° ris* '.'flLti ri'CLi 'r n ii .ii>/>t uhi/ ‘iúr.«fi {ÍÍÍÍIÍK - % s K 'n Tib A N K
rnn ojun SK£_ID HINfí S ?tí r D N L/LLL F 'fl L pí r 1 N U UT'I 5 K S t •’fl l’l y
lf l»*V ■iin.: 0 K K u R T."A j itr.ji A M L 6 p n N A tlj.'S Ml A A A •tikT Clf “I Á i.
I'4/GL S V A N 'rf/a/ fi- 'j/'M Ý T A f-f in rrtti H i p/J Rlkl iru. I' 1 N N L A N/; D
rtlíp s í flOK Hí". (j H 1L> ]ð b $ WTl i \ Ul (í L 1 N I.UMS iwv.;-/* L S 1- 5 /u IU* G L U r A
ft K Ijlifu //rj M n N N 1 flU/U FiZ u G K r n TRt IM Hl’Mfl .IRf n.t/» V 1 7o«A 1 * i»f»r,AA F A l'MW |U'
r.up nnniiÁ F 7? o f\ n rh I.IDih ’ií’ A s M i í —>• mÁ íí f' J 'a J\ H Ú S 1
itlS fc Tntr t\\)\ r.ijjs S #' 0 N G & r i R S K A A L. 517/. 411/V /* 'A .S i#t 'dpriif. 5t » 1)
ÍPíLbil T L !V' G \jt\H (L /Ur iV'j;'"1' K V'K. ]*Wa r .\ w'p L,. J '0 L A S V E 1 N A N n
ns T Z N N U R /':V' J rJ »I' n Ln WVHA í) G Ll A kl»M' i II R
rn* 1- M.