Tíminn - 07.02.1988, Síða 11
Wéé INTERNATIONAL
Steve hafði ekki gert ráð fyrir
slíku blóðbaði og varð skelfingu
lostinn, þegar hann sá að fötin
hans voru ötuð blóði. Hann gæti
ekki farið út svona til fara.
Þá fór hann upp og leitaði uppi
svefnherbergið. Þar mátaði hann
hverja flíkina á fætur annarri, en
ekkert hentaði honum, sem varla
var von, því Bond var hávaxin og
grannur, en Steve meðalhár og
þéttholda.
Hann átti þó engra kosta völ og
varð að gera það besta úr þessu.
Hann tróð eigin, blóðugu fötum í
plastpoka og yfirgaf húsið. Pok-
anum fleygði hann frá sér á óbyggðu
svæði, ieitaði síðan að síma og
hringdi á leigubíl.
Til að bílstjórinn tæki ekki allt af
vel eftir útganginum á honum,
settist hann fast úr í sætishomið og
gætti þess jafnframt að spjalla heil
ósköp um daginn og veginn, til að
vekja ekki grunsemdir.
Gleymdi peningum
Þegar bíliinn náigaðist Heanor,
leit Steve á gjaidmælinn og stakk
síðan hendinni f vasann, en fann
sér til skelfingar, að hann hafði
skilið 10 punda seðilinn eftir í
sínum eigin buxum, sem hann var
nú búinn að fleygja.
Nú voru góð ráð dýr. Leigubfl-
stjórinn var ekki sem blíðastur á
manninn, þegar Steve bað hann að
bíða á götuhomi, spottakom frá
heimili sínu, meðan hann færi að
sækja peninga. Bílstjórinn sagði,
að ef hann yrði ekki kominn aftur
eftir fimm mínútur, færi hann beint
til lögreglunnar.
Steve stökk út úr bílnum og
hljóp 200 metrana heim til sín
Nokkrum mínútum síðar kom
hann lafmóður aftur og greiddi
tvöfalt gjald fyrir aksturinn.
Leigubflstjórinn, Kevin Linton,
var hæstánægður með greiðsluna,
en fannst samt að eitthvað væri
grunsamlegt við farþegann. Þegar
Kevin frétti um morðið á Maurice
Bond, tveimur dögum seinna,
gerði hann lögreglunni viðvart.
Herman Rikard, rannsóknarlög-
reglumaður hlustaði af athygli og
spurði síðan, hvort náunginn hefði
verið með poka eða tösku, sem föt
hefðu getað verið í. Kevin hristi
höfuðið.
Rikard var þeirrar skoðunar, að
ef hér væri um morðingjann að
ræða, hefði hann rænt fötum af
fómarlambi sínu og fleygt sínum
eigin.
Netið herðir að
Kevin Linton útskýrði nákvæm-
lega hvar og hvenær hann hefði
tekið umræddan farþega og nokkr-
um klukkustundum síðar voru föt
morðingjans fundin. Af þeim mátti
marka að eigandinn væri um 175
sm á hæð og upp undir 100 kíló. Á
pokanum var líka alimikið af
fingrafömm.
Tíminn 11
!&
Jámhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Mest seldu dráttarvélar
á íslandi 1987
CASE-lnternational dráttarvélar eru
viöurkenndar fyrir gæði auk þess að
vera leiðandi merki í tækniþróun.
Frábær aðstaða fyrir stjórnanda, svo
sem demparasæti, slétt gólf, litað
gler, öflug þriggja hraða miðstöð,
útvarp, allir nauðsynlegir mælar, góð
staðsetning stjórntækja er aðeins
ein ástæða þess hve margir bændur
velja um CASE-lnternational.
Munið að bera saman búnað, verð og greiðslukjör.
Vinsamlegast gerið pantanir tímanlega fyrir vorið
Nokkrar vélar til af-
greiðslu strax á
verksmiðjuverði frá
síðastliðnu ári.
SÉRSTÖK
GREIÐSLUKJÖR
Á ÞESSUM VÉLUM
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Lýsing þessi kom vel heim við
farþegann, sem Kevin tók í grennd
við morðstaðinn. Þar sem ekki
hafði tekið nema fáeinar mínútur
að sækja peningana, hlaut hann að
búa skammt frá hominu, þar sem
hann bað Kevin að bíða.
Tæknimenn fundu einnig hvítt
duft á buxnaskálmunum, sem við
greiningu reyndist hveiti og þar
með hlaut náunginn að starfa í
brauðgerð. Þar sem aðeins ein slík
Maurice Bond hefði að líkind-
um ekki sagt upp viðskiptum
við brauðgerðina, hefði hann
vitað að það myndi kosta hann
lífið.
var í Heanor, fór lögreglan og
ræddi við Spiers, eiganda Wind-
mill-brauðgerðarinnar.
Allt kemst upp
Spiers varð forviða á að lögregl-
an skyldi vilja ræða við hann vegna
morðsins á Maurice Bond.
- Það eina sem ég hef haft saman
við hann að sælda, er að þar til
nýlega framleiddi ég brauð handa
stórverslun hans, útskýrði Spiers.
En þegar hann var spurður, hvers
vegna þeim viðskiptum hefði verið
hætt, sagði Spiers frá tölunni og
eldspýtunni, sem fundist höfðu í
brauðinu.
- Þið megið ekki fyrir nokkum
mun haida, að það standi í ein-
hverju sambandi við morðið, sagði
Spiers og bætti síðan við sögunni
um piltinn, sem hann hafði orðið
að segja upp störfum, einmitt
vegna þessa.
Þegar lögreglumenn börðu að
Steve Mahoney fékk lánuð föt
fórnarlambs síns og þau voru
sönnunargögnin, sem felldu
hann.
dymm hjá Steve Mahony og bám
upp á hann gmn sinn, þverneitaði
hann að hafa átt nokkurn þátt í
morðinu. Farið var með hann á
stöðina, þar sem fingraför hans
vom tekin. Þau komu heim og
saman við hin á plastpokanum og
því var Steve handtekinn og ákærð-
Ur fyrir morðið á Maurice Bond.
Hann sá að leikurinn var tapaður
og lýsti sig sekan. Han sat í gæslu-
varðhaldi, þar til málið var tekið
fyrir í byrjun september í fyrra.
Réttarhöldin stóðu aðeins í fjóra
daga og dómurinn hljóðaði upp á
lífstíðarfangelsi.