Tíminn - 21.02.1988, Blaðsíða 5

Tíminn - 21.02.1988, Blaðsíða 5
Sunnudagur 21. febrúar 1988 Tíminn 5 Flestir gera skyssur sínar, svo lítið beri á. Allt sem minni fjölskyldu verður á, kemur í blöðunum. ofan af fyrir sér sjálfir. Þá talaði fólk milli kynslóða og allir voru margfróðari en nú. Nú finnst mér þekking fólks allt of takmörkuð við viss svið. -Ég held að sjónvarp- ið sé ágætt að mörgu leyti, bætir hún við. - En það verður að vera vakandi fyrir hinu, að það veldur því líka, að fólk hættir ýmsu í staðinn. Til dæmis ræða börn og foreldrar ekki saman lengur eins og gert var áður. Frú Thatcher er greinilega hrærð, þegar hún minnist á föður sinn, en samband þeirra var mjög innilegt. Hún segir hann hafa kennt sér þá lífsreglu, sem hún hafi reynt að fara eftir síðan: Gerðu aldrei neitt, bara af því aðrir gera það. -Faðir minn hlaut ekki mikla menntun, þó hann væri afburða- greindur maður. Einmitt þess vegna var honum svo umhugað um að við læsum, rökræddum og lærð- um að mynda okkur eigin skoðan- ir. Spurð, hvort sérstakir tímar eða aðstæður hafi átt sterkan þátt í mótun hennar, svarar frú Thatcher að sennilega hafi það verið stríðs- árin í búðinni hjá föður hennar, Alfred Roberts. Annars hefur hún ótal sinnum sagt að hættir foreldr- anna eigi langmestan þátt í mótun barnanna. Hún horftir í arineldinn og gefur sér tíma til að rifja meira upp: -Við pabbi fórum oft í langar gönguferðir saman, einkum þegar próf voru framundan hjá mér. f>á töluðum við um allt milli himins og jarðar. Ég var barn á stríðsárunum og þá hafði maður kannske betur á tilfinningunni, hvílíkar fórnir voru færðar. Við vorum í landshluta, þar sem sprengjuflugvélar höfðu bækistöðvar og þess vegna ræddum við oft um það. Við höfðum lfka á tilfinningunni að vera hluti af ein- hverju mun stærra og að Bretland gegndi mjög mikilvægu hlutverki. Þegar forsætisráðherrann giftist og eignaðist börn, voru slík náin fjölskyldutengsl henni afskaplega mikilvæg-jafnvel svo, að metnað- ur hennar var látinn víkja. -Ég hef verið heppin að eiga heima og hafa kjördæmi mitt í London, segir hún. -Líklega hefði ég aldrei orðið þingmaður, ef ég hefði búið annars staðar. Þá hefði ég þurft að yfirgefa fjölskylduna langtfmum saman. Það hefði ég aldrei getað, því ég hefði stöðugt haft á tilfinningunni, að ég gerði ekki skyldu mína gagnvart börnunum, auk saknað- arins auðvitað. Gæti Denis ekki hafa axlað meiri ábyrgð? Frú Thatcher svarar því: -Hann er alveg stórkostlegur faðir og við höfum alltaf verið mjög náin. Þetta hefði ég aldrei megnað án hans. Ef til vill er það vegna minninga frá eigin æsku, að forsætisráðherr- ann hlakkar afskaplega til að verða amma. -Auðvitað vil ég eignast barnabörn - það yrði indælt að hafa ung börn á heimilinu. Þess má geta að Mark er nýkvæntur og býr um þessar mundir í Texas. Frú Thatcher lætur í það skína, að hún gæti hugsað sér að gæta barnabarnanna á kvöldin stöku sinnum. -Ég hef að vísu ekki mikinn tíma, en ung hjón vilja gjarnan skreppa út og þá gæti ég verið við hendina. Það er svolítið undarleg tilhugsun, en notáleg að hafa forsætisráðherrann fyrir barnfóstru, meðan farið er í bíó. Önnur óvænt hlið kemur í ljós, þegar hún talar um sprengjutilræð- ið á hótelinu í Brighton um árið, en síðan var hún lengi myrkfælin. -Það sem ég hugsaði fyrst og fremst um, var að ekki slokknuðu öll ljósin. Um tíma upp frá því, gekk ég alltaf með vasaljós í vesk- inu. Hvað hefði gerst, ef við hefð- um verið þarna í kolamyrkri og ekki ratað út? Óvænt má líka teljast, að frú Thatcher er afdráttarlaust þeirrar skoðunar, að konur séu þrautseig- ari en karlar. Hún ætti kannske að vita það, eftir að hafa unnið ótrú- lega erfitt starf í átta ár. Spurð hvað sé það merkilegasta, sem hún hafi látið af sér leiða í embættinu, svarar hún eftir langa umhugsun: -Ég held að við höfum breytt hugsunarhættinum töluvert. Þetta var orðið þannig hérna, að fólk sagði hreinlega sem svo: Ef ég er í vanda, á ríkið að leysa hann. Hún leggur áherslu á, að þegar hún kom til valda, hafi hún þurft að bæta fyrir ýmislegt úr tíð fyrri stjómar. Það síðasta sem hún gefur sér tíma til að segja, áður en viðtalstíminn rennur út, er: -Ég vil að þegnarnir séu fólk, sem hugsar sjálfstætt og að stjórnin styðji áhugamál þeirra, en reyni ekki að hafa áhrif á þau. farið á þing M • M • • 1 ijarn tjol- skyldunni Margaret Thatcher er lágvaxin kona á háum hælum, en þegar hún kemur inn, er eins og hvíta her- bergið í Downingstræti lOsé undir- lagt af fellibyl. Tveir aðstoðarmenn sigla í kjölfarið, til þjónustu reiðu- búnir. Frúin er þegar sest, búin að hagræðadökkbláa pilsinuog bank- ar létt á borðplötuna með fingrun- um. - Jæja, komum okkur að verki, það er annadagur framund- an. Hún veit alveg hvað hún er að gera, enda búin að gegna starfi sínu í meira en átta ár. Gárungarn- ir segja, að verði hún miklu lengur, fari hún að verða þjóðartákn. Hún hefur sigrast á andstæðingum sínum, allt frá verðbólgunni til Arthurs Scargill, talsmanns kola- námumanna. Bananahýði og smá- vegis óþægindi. á borð við Suður- Afríku, hafa aldrei orðið henni að hrasi. Viðtal við blað er aðeins lítill þáttur í starfinu á annasömum degi. Aðeins einu sinni eða tvisvar örlaði á óþolinmæði í fari frú Thatcher. f annað skiptið, þegar hún var spurð, hvort henni fyndist gaman að sjónvarpsþættinum, „Spéspegli", þar sem forsætisráð- herrann er gjarnan sýndur sem strengjabrúða í nálaröndóttum fötum, reykjandi vindil. Hún svar- ar fyrst: - Ég horfi ekki á Spéspegil, en spyr sfðan: „Er hann skemmti- legur? Síðar í viðtalinu var hún spurð, hvernig henni fyndist, þegar frétta- menn lýstu henni sem kyntákni. Þá virtist hún rísa upp í fulla hæð sína, sem er afrek, sitjandi á stól, áður en hún svaraði: - Það er fráleitt. Ég er forsætisráðherra, rétt eins og aðrir slíkir. Ég vildi óska að svona lagað væri ekki sagt. Fyrir síðustu kosningar skorti ekki lýsingar á forsætisráðherr- anum, einkum frá andstæðingum hennar. Denis Healy, talsmaður Verkamannaflokksins sagði til dæmis að hún „sýndi hrollvekjandi kaldlyndi gagnvart mannlegum þjáningum". Hún neitar jafn afdráttarlaust í hvíta herberginu og í þinginu, þegar því er að skipta. Sumt fólk lagði verulega að sér til að draga upp svona mynd af mér, segir hún. - En umhyggja er bara ekki falin í að ausa sífellt út peningum, það hefur mér lærst fyrir löngu. Ég segi þó ekki að svona gaddar stingi ekki. Hins vegar getur maður ekki verið stjórnmálamaður, ef maður lætur slíkt á sig fá, útskýrir hún. - Ef ég sé eitthvað um mig í blöðunum, les ég það einfaldlega ekki, því ég veit, að það getur sært mig. En lítur Margaret Thatcher á sig sem umhyggjusama manneskju? - Já, ég held það og vil trúa því, svarar hún alvarleg og nefnir síðan nokkur dæmi. Unglingar og fatlað- ir koma gjarnan í heimsókn í Downingstræti, hún var að enda við að afhenda barnaspítala fjár- upphæð - að vísu myndu gagnrýn- endur tekja slíkt áróðursbragð. Engu að síður er satt, þó það hafi ekki birst í fjölmiðlum, að þegar fötluð börn komu í heimsókn, eyddi forsætisráðherrann heilum 20 mínútum af dýrmætum tíma Thatcher-hjónin í Downingstræti með tvíburunum Carol og Mark. Ég vil að þau læri að nýta sér tækifærin, segir móðir þeirra. sínum í að leika við lítinn dreng, sem var eitthvað niðurdreginn. Hún hrekkur eilítið við, þegar minnst er á þetta. - Já, segir hún svo og brosir. - Hann var hræddur, litla skinnið, við allt þetta ókunn- uga. Ég tók bara í hönd hans og leiddi hann um húsið. Margaret Thatcher hefur verið nefnd ýmsum nöfnum, en Járnfrú- in mun vera þeirra þekktast. Þó er hún næm kona, sem finnur ótta eins barns í hópi og veit, hvernig best er að sefa hann. Vissulega er hún líka móðir. Hefur það haft áhrif á frama henn- ar í stjórnmálum? Hún kveður það eflaust hafa gert sig hagsýnni og raunsærri. - Maður hugsar alltaf fram á við, ef maður á fjölskyldu, segir hún. - Hvernig verður líf barnanna eftir 10 eða 20 ár? Þetta er ein af ástæðunum til þess að konur hugsa í lengri tímabilum. Hvernig verður heimurinn, sem börnin mín lifa í? Hvaða vonir bindur hún við börn sín í framtíðinni? - Að þau læri að nota sér tækifærin, segir frú Thatcher fastmælt. - Maður getur alls ekki lifað lífi þeirra fyrir þau. Tvíburarnir Mark og Carol hafa bæði starfað erlendis öðru hvoru um tíma, ef til vill til að sleppa úr kastljósinu, sem óhjákvæmilega beinist alltaf að móður þeirra. - Þetta er erfitt fyrir þau, viður- kennir hún fúslega. - Ég finn ákaflega mikið til þess. Flest okkar gera skyssur sínar svo lítið ber á, en því miður er ekki hægt að segja það um þau. Allt sem þeim verður á, fer í blöðin og ég segi stundum, að það séu þung örlög að vera skyldur mér. í þau fáu skipti, sem Margaret Thatcher hefur tárfellt opinber- lega, hefur það verið vegna fjöl- skyldumála. Til dæmis þegar Mark sonur hennar týndist í eyðurmerk- urferðalagi á bíl. Hún mýkist öll, þegar hún talar um börn sín og henni hlýtur að þykja mjög vænt um þau. - Ég gæti ekki á heilli mér tekið, ef mér fyndist ég ekki sinna þörfum þeirra, segir hún blátt áfram. - Auðvitað verður maður stundum að vera fastur fyrir, því það gerir engum gott að allt sé látið eftir honum. Eitthvað í þessa veruna yrði líka lýsingin á stjórn hennar á landinu. Frú Thatcher hefur iðulega lagt áherslu á mikilvægi fjölskyldunnar og þrátt fyrir strangt útlit yfirborðs- ins, lætur hún sér mjög annt um sína eigin. í viðtalinu lét hún þess getið, að hún hefði ekki trú á að gott væri að aðeins ein kynslóð byggi saman. - Amma mín bjó hjá okkur og hún fræddi okkur mikið um liðna tíma, sem voru athyglis- verðir. Hún talar um æsku sína í Lin- colnshire, þegar kvöldin fóru í að spila Matador og rabba saman. -Það voru aðrir tímar, segir hún með áherslu. -Það verður að minn- ast þess, að þá voru hlutirnir ein- faldlega öðruvísi en nú. Ekkert sjónvarp, svo allir urðu að hafa - segir Margaret Thatcher. Hún verið sögð kaldlynd ( sýna skort á umhyggji en sjálf kveðst hún venjuleg kona, sem elski börnin sín og langi í barnabörn. - ; mínu starfi á að vera kona, þær eru þrautseigari og framsýnni bætir hún við. Hefði aldrei

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.