Tíminn - 21.02.1988, Page 14
14 Tíminn
TÍMANS RÁS
Geimálfur, Lucy
Ball og Jón Ótti
Steingrímur
Sævar
Ólafsson
Það þykir svo sem ekki í frásögur
færandi að einhver fái sér afrugl-
ara. Mér þykir það hins vegar
nokkuð merkilegt, að ég fékk mér
afruglara á dögunum. Ég keypti
hann að vísu ekki, heldur tók
þessu kostatilboði Heimilistækja
og Stöðvar 2, að fá afruglara lánað-
an í 10 daga, endurgjaldslaust,
með heimild til að skila honum
innan áðurnefnds tímafrests, ef
mér líkaði ekki dagskráin. Það var
ekki það að mig langaði nokkuð í
afruglara, heldur var Linda rúm-
liggjandi, og eitthvað þurfti hún að
geta dundað sér við þegar ég var í
vinnunni. Þar að auki varð maður
að geta sagt við fólk að ég hefði séð
rugluðu útsendinguna í gærkvöldi,
án þess að þurfa að Ijúga og segjast
ekki hafa haft tíma til þess, og svo
er ég orðinn hrútleiður á að biðja
mömmu og pabba og tengdu og
tengda að taka upp þessa og þessa
bíómynd, eða Sjaka Súlu, eða
Sherlock Holmes, eða hvað það
var sem ég sá spennandi.
Glaður og reifur tók ég hann
heim með mér á föstudegi fyrir
viku. Teiknimyndir á laugardags-
og sunnudagsmorgun, beinar út-
sendingar frá ensku um þrjú leytið
á laugardögum, poppvideó allan
sunnudaginn, frábærir skemmti-
þættir á kvöldin, góðar bíómyndir
fram eftir öllum nóttum og svo
framvegisogframvegis. Þettaflaug
í gegnum hugann þegar ég baslað-
ist við að tengja afruglarann í
gegnum videóið, mcð handónýtri
snúru, því að Nonni bróðir stal
heilu snúrunni þegar hann fékk sér
vidcó.
Þetta fyrsta föstudagskvöld byrj-
aði ekki vel. Ríkissjónvarpið bauð
upp á mun betri dagskrá, en ég
neitaði staðfastlega að víkja af
hinni beinu og breiðu afruglara-
braut og horfði á dagskrá Stöðvar
2 allt til loka kvöldsins, og hund-
leiddist.
Ég svaf yfir mig á laugardags-
morgun, og missti af öllum teikni-
myndunum nemaeinni. Svekkelsi.
En ég huggaði mig við það að það
væri bein útsending frá ensku rétt
fyrir þrjú. Annað svekkelsi. Þeir
sýna einhverja franska Hírósíma-
elskanmín Fjalakattarmynd. Ég
hef aldrei haft gaman af svoleiðis
myndum og þessi mynd breytti
ekki skoðunum mínum eitt hætis-
hót. Á meðan var Bjarni að sýna
frá ensku í sjónvarpinu, og þegar
öll von virtist úti, skipti ég vonsvik-
in yfir á Bjarna. Til hvers er maður
að fá sér afruglara, ef maður cr svo
bara að horfa á Ríkissjónvarpið?
Eftir Hírósímanu tók ekki betra
við; DYNASTY!! Síðan kórónaði
Stöðin líf mitt með því að sýna Jón
Ótta í Nærmynd. Ég var kominn í
andlega rúst. Laugardagurinn var
ónýtur.
Sunnudagur. Ég vaknaði rétt
fyrir 12, og ákvað að nú skyldi
gæfuhjólið snúast mér í hag, því nú
væri komið að mér að hlæja að
Geimálfinum sem allir voru að tala
um. „Áhorfendur athugið! Geim-
álfinum hefur verið frestað, en
þess í stað sýnum við þátt með
Lucy Ball“ stóð á skjánum. Ég
slökkti. Hendurnarámérnötruðu,
svitinn lak niður krumpað ennið á
mér og ég var kominn með óráð.
Svona hefur þetta gengið í rúma
viku og tímabilið rennur út á
mánudag.
Og hvað er svo hægt að læra af
þessum pistli? Akkúrat ekkert. Ég
var einfaldlega óheppinn með
mína tíu daga. Vinur minn sem tók
sama kostaboði tíu dögum á undan
mér, var líka óheppinn með sína
daga. Ef ég þekki einhvern sem fær
sér afruglara eftir að mínu tíu daga
tímabili lýkur, þá verður hann líka
óheppinn með sína tíu daga.
Kannski þetta fylgi þessum sér-
staka afruglara? En ég ætla að skila
mínum á mánudaginn, og aldrei
aftur að taka einu eða neinu kosta-
tilboði á afruglara. Ég ætla að
horfa á videó, þá er ég líka „minn
eigin sjónvarpsstjóri" og þarf ekki
að horfa á Lucy Ball í stað Geim-
álfsins. Auk þess þarf ég ekki að
hafa áhyggjur af því að vera að
horfa á RUV meðan ég borga
stórfé fyrir að afrugla eitthvert
drasl! -SÓL
Sunnudagur 21. febrúar 1988
Gettu nú
Myndin í blaðinu
hjá okkur síðast var
frá unaðsreit þeirra
Austfirðinga, Atlavík
í Hallormsstaðar-
skógi, sem margur á
Cóðar minningar
undnar við.
En nú birtum við
mynd úr litlu þorpi
norðanlands, sem
margir ættu að
kannst við. Til
glöqgvunar getum
við pess að að nafnið
er tengt ramm-
íslenskum gróðri.
KROSSGÁTA