Tíminn - 25.03.1988, Blaðsíða 3
Föstudagur 25. mars 1988
Tíminn 3
Grunnskólanemar vilja Iengri skemmtanir.
höndum,“ sagði einn yfirkennari í
samtali við Tímann í gær.
Yfirkennarinn í skólanum sem
hélt árshátíðina í gær, sagði í
samtali við Tímann, að þeir væru
illa í sveit settir með að stöðva
athæfi sem þetta. Þeir væru varnar-
lausir og honum hrysi hugur við
þróuninni.
„En þetta er hneykslanlegt og
verður að stöðva," sagði hann.
-SÓL
Mikið vill meira í grunnskólum:
Viija veislu
alla nóttina
Það nýjasta hjá grunnskóla-
nemendum er að halda veislur
nóttina eftir árshátíðina og
skemmta sér fram undir sólarupp-
rás.
Þetta nýjasta „æði“ grunnskóla-
nemenda, hófst í Breiðholtinu, en
þar tókst einum grunnskólanna að
leigja sér húsnæði eftir árshátíðina
og skemmtu nemendur sér við
dynjandi tónlist og glasalyftingar
til kl. fimm um morguninn. Full-
trúar nemenda fóru fram á það við
skólastjórann að hann skrifaði upp
á leyfi til slíks, en hann þvertók
fyrir það. Krakkarnir bentu á að
fjölbrautaskóli einn hefði fengið
leyfi til slíkrar skemmtunar, en að
sjálfsögðu er erfitt að bera saman
skemmtanir 17-21 árs gamalla ung-
menna, eða 13-15 ára.
Árshátíðin var síðan haldin í
skólanum sjálfum og stóð til 01.30
um nóttina, en þá höfðu krakkarnir
útvegað sal til áframhaldandi
skemmtana.
„Æðið“ breiddist síðan út meðal
skólanna í Breiðholti, og gerðu
fleiri skólar tilraunir til að halda
slíkar framhaldsskemmtanir.
Flestar voru þær þó stoppaðar af í
tæka tíð.
Nú er „æðið“ komið í skóla utan
Breiðholtsins og í gær var haldin
árshátíð í einum þeirra. Þar var
haldin árshátíð í skólanum sem
stóð til klukkan 01.
Fyrr í vikunni heyrðu skólayfir-
völd að til stæði að halda „partý"
eftir árshátíðina, „eins og þeir í
Breiðholti voru með“ og höfðu
krakkarnir tekið unglingaskemmti-
staðinn Top 10 til leigu eftir kl.01.
Skólastjóri og yfirkennari höfðu
þá samband við forstöðumenn
staðarins, bentu þeim á að athæfið
væri ólöglegt, og var þá leyfið til
skemmtanahaldsins dregið til
baka. Krakkarnir dóu þó ekki
ráðalausir, og leigðu sér skemmti-
staðinn Lennon. Enn fóru skóla-
stjóri og yfirkennari af stað og
höfðu samband við forstöðumenn
skemmtistaðarins og fengu leyfið
dregið til baka. Krakkarnir voru
þó svo ákveðnir í veisluhöldunum,
að þeir leigðu sér þriðja staðinn,
að þessu sinni Ártún. Og enn fóru
skólastjóri og yfirkennari af stað,
og enn tókst að koma í veg fyrir
leyfið.
Árshátíðin var svo, eins og áður
sagði, haldin í gærkveldi, en þegar
síðast fréttist, var ekki vitað hvort
að krakkarnir höfðu leigt sér fjórða
staðinn.
Skólastjóri og yfirkennari höfðu
haft samband við foreldra nokk-
urra einstaklinga í skólanum og
bent þeim á hvað væri að gerast,
enda búnir að gera það sem í þeirra
valdi stóð.
„Þetta er út í hött. Þetta bara
getur ekki verið löglegt og ég á
erfitt með að trúa því að einhver
fullorðinn hjálpi þeim til þess arna.
En þetta hefur tekist og það án
afskipta lögreglu. Við höfum þó
látið rétt yfirvöld, þ.e. lögreglu
vita af þessu. Boltinn er því í þeirra
íslensk Ijóð í Bretaveldi:
Matthías les upp í
Barbican Center
Eftir Matthías Johannessen skáld
er nú að koma út ljóðabók í Bretl-
andi. Nefnist hún The Naked
Machine, er úrval úr ljóðum Matt-
híasar og kemur út hjá forlaginu
Forest Books samkvæmt samningi
við Almenna bókafélagið. Bókin
flytur 27 ljóð sem Marshall Brement,
fyrrum sendiherra Bandaríkjanna á
Islandi, hefur þýtt á ensku, og ritar
hann einnig ýtarlegan formála. Bók-
in kemur út í London 28. mars og
verður kynnt á alþjóðlegu bókasýn-
ingunni, „London Intemational
Bookfair“, dagana 28.-31. mars.
í tengslum við þessa sýningu
gengst forlagið Forest. Books fyrir
dagskrá í menningarmiðstöðinni í
Barbican Center sunnudagskvöldið
27. mars. Þar mun Matthías lesa upp
nokkur ljóð sín, og einnig spænska
skáldið Justo Jorge Padrón, en hann
er eitt helsta ljóðskáld Spánverja í
dag. Einnig verður þar kynning á
úrvali búlgarskra ljóða. Með
skáldunum lesa Allan Brownjohn,
Louis Boume, Brenda Walker og
Wendy Wright. Einnig mun selló-
leikarinn Sigurður Halldórsson leika
undir upplestri tveggja ljóða Matt-
híasar og Sigríður Ella Magnúsdóttir
syngur nokkur lög.
Forlagið Forest Books, sem hefur
aðsetur í London og Boston, hefur
sérhæft sig í útgáfu þýddra bók-
menntaverka og þó einkum ljóða.
Af nýlegum útgáfum þess má nefna
verk eftir Búlgarann Lyubonir
Levchev, rúmensku skáldin Marin
Sorescu og Mircea Dinescu, og eftir
Spánverjann Justo Jorge Padrón.
Aðspurður um tilfinningar sínar
gagnvart þessu hvorutveggju sagðist
Matthías staldra við það að sér-
fræðingar forlagsins hafi verið á
þriðja mánuð að fara nákvæmlega
yfir handritið, og þeir hefðu unnið
verk sitt af alvöru og alúð. Að því
loknu hefðu þeir síðan ákveðið með
forlaginu að gefa bókina út. „Þetta
þykir mér,“ sagði Matthías, „mikil
trygging og vona að það sé merki um
það að þýðingarnar séu þannig að
þær dugi á ensku."
„Ég geri mér ljóst," sagði Matthí-
as einnig, „að svona útflutningur á
íslensku andrúmi þykir oft sérkenni-
legur, og menn kunna því vel að
kynna sér hann. En ég er aftur á
móti þeirrar skoðunar að enginn
verði skáld nema í sínu eigin föður -
landi. Ég yrki á íslensku og ljóð mín
eru vaxin úr íslensku umhverfi, ís-
lenskri samtíð og íslenskum menn-
ingararfi, og ég hef gaman af ef
menn hafa áhuga á því í stórborgum
eins og London og Boston. En hinn
íslenski rithöfundur veit að sjálf-
sögðu hvar hann á heima og hver er
hin eðlilega umgjörð verka hans,
samfélag hans sjálfs og f þessu tilfelli
ísland. Ég lít því á svona hluti eins
og mjög skemmtilega uppákomu,
sem ég hef ekkert á móti því að taka
þátt í, og það gleður mig mikið
þegar ég sé íslensk ritverk meðal
merkilegra erlendra bókmennta-
verka.
Mér þykir líka vænt um að ís-
lenska ljóðið er á leiðinni inn í nýtt
umhverfi, og ég vona að það ferðalag
fái góðan endi og að fleiri íslensk
ljóðskáld eigi eftir að koma í kjölfar-
ið,“ sagði Matthías Johannessen að
lokum. -esio
Nefnd um blý-
laust bensín
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, hefur skipað nefnd í sam-
ræmi við ályktun Alþingis 3. mars
sl., til að meta hvort taka eigi í
notkun blýlaust bensfn hér á landi
og hvaða aðgerða sé þörf til að svo
geti orðið.
Formaður nefndarinnar er Sól-
veig Pétursdóttir lögfræðingur, en
aðrir nefndarmenn eru Jónas
Bjarnason framkvæmdastjóri FÍB,
Bjarni Snæbjörn Jónsson hagfræð-
ingur, Jón Bragi Bjarnason próf-
essor og Margrét Frímannsdóttir
aiþingismaður.
Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki
störfum eigi síðar en fyrir árslok
1988.
Nauðgunarkæra á hendur frönskum sjómönnum:
Dregin
til baka
Stúlka sú sem kærði fjóra franska
sjómenn fyrir nauðgun dró kæru
sína til baka í fyrrinótt. Ekki hefur
Tímanum tekist að grafast fyrir um
ástæður ákvörðunar stúlkunnar.
Frakkarnir fjórir af frystitogaranum
Finlande frá Bordeaux voru allir
látnir lausir eftir yfirheyrslur lögregl-
unnar.
Skipstjóri franska frystitogarans
kom í heimsókn á ritstjórn Tímans í
gærdag við þriðja mann. Sagðist
hann vilja lýsa furðu sinni á frétt
Tímans að um nauðgun hefði verið
að ræða. f frásögn Tímans af málinu
í gær kom fram að sjómennirnir
neituðu þeim ásökunum er stúlkan
bar þá.
Togarinn heldur úr höfn í dag og
virðist málið þar með vera úr söe-
unni.
-ES
Ríkið
borgar
30. mars
Fjármálaráðherra hefur ákveð-
ið að launagreiðslur ríkisstarfs-
manna vegna marsmánaðar, svo
og fyrirframgreidd laun vegna
aprílmánaðar, verði að þessu
sinni greidd út 30. mars n.k. í
stað 1. apríl. Jafnframt verða
lífeyrisgreiðslur frá Lífeyrissjóði
starfsmanna ríkisins greiddar út
þann sama dag.