Tíminn - 25.03.1988, Side 16
16 Tíminn
Föstudagur 25. mars 1988
Frá lýðháskólanum í Sund í Þrændalögum i Noregi.
Anna Guðrún Torfadóttir.
Menor og
Alþýðubankinn Akureyri:
Listkynning - Anna Guð-
rún Torfadóttir
Menningarsamtök Norðlendinga
MENOR og Alþýðubankinn á Akureyri
kynna að þessu sinni ungan listamann,
önnu Guðrúnu Torfadóttur.
Anna Guðrún er fædd í Stykkishólmi
1954. Hún var við nám í Myndlista- og
handíðaskóla Islands í Reykjavík 1971-
1975 í vefnaðarkennaradeild. I nokkur ár
Listasafn ASf: Guðbjartur
Gunnarsson sýnir
FÓTÓGRAFIK
Guðbjartur Gunnarsson opnar sýningu
á myndum unnum í blandaðri tækni
(fótógrafík) í Listasafni ASÍ, Grensásvegi
16, á morgun, laugardaginn 26. mars kl.
14:00.
Guðbjartur lauk kennaraprófi 1950 og
síðar myndmenntakennaraprófi í Banda-
ríkjunum. Hanri stundaði kennslu um
árabil og kynnti sér sjónvarps- og kvik-
myndatækni í Bretlandi og Bandaríkjun-
um, þar sem hann lauk háskólaprófi í
fjölmiðlafræðum.
hvarf Anna Guðrún frá námi, en 1981 var
hún við nám við Myndlistarskólanum í
Reykjavík. Hún starfaði við Myndlistar-
skólann á Akureyri skólaárið 1982-’83 en
settist síðan aftur í Myndlista- og hand-
íðaskóla Islands í grafíkdeild og lauk
prófi 1987. Það haust réðist AnnaGuðrún
á ný að Myndlistarskólanum á Akureyri,
en jafnframt starfar hún við Auglýsinga-
stofuna Auglit á Akureyri.
Anna Guðrún hefur tekið þátt í nokkr-
um samsýningum hér á landi. Hún sýnir
nú fimm æting-akvatintuverk á kynning-
unni, en sýningunni lýkur29. apríl.
Hann hóf störf sem dagskrárgerðar-
maður hjá Sjónvarpinu þegar það tók til
starfa og stjórnaði þar upptökum á ýmsu
fræðsluefni. Guðbjartur starfaði í Kanada
um fjögurra ára skeið að svipuðum verk-
efnum.
Myndirnar sem hér eru til sýnis eru
byggðar upp á ljósmyndum, þrykktar á
mismunandi litan pappír og handlitaðar
með pastellitum.
Sýningin verður opin virka daga ki.
16:00-20:00, en laugardaga og sunnudaga
kl. 14:00-20:00, svo og skírdag og annan
í páskum. Föstudaginn langa ogpáskadag
verður opið kl. 15:00-20:00. Sýningunni
lýkur 10. apríl.
FRAMTÍÐARSÝN HÚMANISTA
Á morgun, laugard. 26. mars kl. 13:30
heldur Flokkur mannsins ráðstefnu að
Hótel Holiday Inn undir yfirskriftinni
„Framtíðarsýn húmanista". Á ráðstefn-
unni verður fjallað um hvernig þjóðfélag-
ið í dag einkennist af skorti á húmanisma.
Flutt verða stutt ávörp og formaður
flokksins, PéturGuðjónsson, mun ávarpa
ráðstefnugesti.
Aðgangur er ókeypis og ráðstefnan
opin flokksfélögum og öllum þeim er
styðja mannagildishugmyndir húmanista.
Málþing sálfræðinema H.í.
Málþing sálfræðinema Háskóla lslands
verður haldið á Hótel Borg laugard. 26.
mars kl. 13:30. Fjallað verður um stöðu
sálfræðinnar í íslensku þjóðfélagi.
Sérfræðingar flytja framsöguerindi um
margvíslegt efni, svo sem um fjölskyldu-
og skólamál, um meðferð á geðsjúkling-
um og hagnýta sálfræði, en alls verða sex
framsöguerindi en á eftir pallborðsum-
ræður og fyrirspurnir.
Málþingið er öllum opið og aðgangur
er ókeypis.
KYRRDARDAGAR
SKÁLHOLTSSKÓLA
Kyrrðardagar Skálholtsskóla verða
haldnir í Skálholti um bænadagana, frá
miðvikudagskvöldi 30. mars til laugar-
dags fyrir páska, 2. apríl. Leiðbeinandi
verður sem fyrr dr. Sigurbjörn Einarsson
biskup.
I tvo sólarhringa mun þögn ríkja-utan
guðsþjónustu, tfðagerða, tónlistar og
hugleiðinga með leiðbeinanda.
Kyrrðardagar eru öllum opnir og fer
skráning fram á Biskupsstofu í Reykja-
vík.
Samnorrænt námskeið ffyrir
aldraða 1.-14. ágúst í Noregi
- Ferð ffarin á vegum
Hallgrímskirkju
Lýðháskólinn í Sund í Þrændalögum
býður upp á samnorræna sumardvöl dag-
ana 1.-14. ágúst í sumar. Ferðin verður
skipulögð á vegum starfs aldraðra í Hall-
grímskirkju í Reykjavík.
Brottför er áformuð 27. júlí, en heim-
koma 16.-18. ágúst. Dagarnir fyrir og
eftir námskeiðið verða nýttir til dvalar í
Osló og/eða skoðunarferða eftir því sem
unnt er. Flug og dvalarkostnaður í Sund
verður samkvæmt síðustu upplýsingum
rúml. 37 þúsund krónur, - og eru þá
innifaldar allar kynnisferðir frá skólan-
um. Við þetta bætist svo ferðakostnaður
milli Osló og Þrándheims ásamt gistingu
í Osló.
Allt að 25 geta komist með í þessa ferð.
Innritun þarf að gerast sem allra fyrst og
Ijúkafyrir páska. Hana annast Dómhildur
Jónsdóttir í Hallgrímskirkju, og veitir
hún allar nánari upplýsingar.
Aldursmarkið er um 60 ára og eldri og
við ferðafæra heilsu.
Aðalfundur Samtaka
gegn astma og ofnæmi
Aðalfundur Samtaka gegn astma og
, ofnæmi verður haldinn að Norðurbrún 1
í Reykjavík á morgun, laugardaginn 26.
mars 1988 kl. 14:00.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf,
kaffiveitingar.
Stjómin
Neskirkja-
Félagsstarf aldraðra
Samverustund á morgun, laugardaginn
26. mars, kl. 15:00 í safnaðarheimili
kirkjunnar. Ingólfur Guðmundsson talar
og sýnir litskyggnur. Friðbjörn G. Jóns-
son syngur einsöng og barnakór kemur í
heimsókn.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugard. 26.
mars. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl.
10:00.
I fréttatilkynningu frá Hana nú segir:
„Við göngum á móti vorinu. Samvera,
súrefni, hreyfing. Allir eru velkomnir í
bæjarröltið. Nýlagað molakaffi.”
Aðalfundur
Styrktarfélags vangefinna
Aðalfundur Styrktarfélags vangefinna
verður haldinn í Bjarkarási laugardaginn
26. mars kl. 14:00.
Venjuleg aðalfundarstörf og önnur
mál.
Minningar frá fyrstu árum félagsins:
Sigríður Ingimarsdóttir.
Kaffiveitingar.
Stjórnin
Ferðastyrkir
Kvenfélags Kópavogs
Kvenfélag Kópavogs ætlar að veita
félagskonum tvo ferðastyrki til Oslóar á
NORDISK FORUM. Einnig einn styrk á
orlofsviku Norræna húsmæðrasambands-
ins á Laugum. Félagskonur leiti nánari
upplýsinga um styrkina hjá stjórninni, en
umsóknarfrestur er til 10. apríl.
Stjórnin
Skákþing íslands 1988
- áskorenda- og opinn flokkur
Stjórn Skáksambands Islands hefur
ákveðið að halda keppni í áskorenda- og
opnum flokki á Skákþingi Islands dagana
26. mars-4. apríl n.k.
Opni flokkurinn er opinn öllum, en
áskorendaflokkur er fyrir skákmeistara
og skákmenn sem uppfylla viss skilyrði.
Mótsstaður er Skákheimili T.R. við
Grensásveg 44-46.
Skráning til keppni hefst á mótsstað
klukkustund áður en 1. umferð hefst.
Hraðskákmót íslands 1988
verður haldið sunnudaginn 10. apríl kl.
14:00 að Grensásvegi 44-46 í Revkjavík.
OLL VINNSLA
PRENTVERKEFNA
Við í Prentsmiðjunni Eddu tökum að
okkur hönnun og vinnslu á stórum og
smáum prentverkefnum.
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000.
IWIIIIIIIIlill ÚTVARP/SJÓNVARP ■ .Jy',
Föstudagur
25. mars
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Pórfiallur Höskulds-
son flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 I morgunsárlé með Má Magnussyni. Frétta-
yfirtit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr fonrstugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfiriiti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00. Finnur N. Karlsson talar um daglegt mál
laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund bamanna: „Gúró“ eftfr Ann
Cath.-Vestly. Margrét Úmólfsdóttir lýkur lestri
þýðingar sinnar (15).
9.30 Dagmál Umsjón: Sigrún Bjómsdóttir.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Mér eru fomu mlnnln kær Umsjón: Einar
Kristjánsson frá Hermundarfelli og Steinunn S.
Sigurðardóttir. (Frá Akureyri)
11.00 Fréttlr. Tilkynnlngar.
11.05Samhl|ómur Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir.
(Einnigútvarpað að loknum fréttum á miðnætti).
12.00 Fróttayfirlit. Tónlist. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.35 Mlðdegissagan: „Fagurt mannlff, úr ævl-
sðgu Arna prófasts Þórarlnssonar. Þórberg-
ur Þórðarson skráðl. Pétur Pétursson les (3).
14.00 Fréttir. Tlkynningar.
14.05 Ljúflingslög Svanhildur Jakobsdóttir kynnir.
(Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags að
loknum fréttum kl. 2.00).
15.00 Fróttir.
15.03 Þingfréttir
15.15 Eru flskmarkaðlr tímaskekkja? M.a. rætt
við Sigurð P. Sigmundsson framkvæmdastjóra
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar og Fiskmarkaðs
Norðurlands og Hilmar Danfelsson sem rekur
Fiskmiðlun Norðurlands. Stjómandi: Gestur
Einar Jónasson. (Frá Akureyri) (Endurtekinn
þáttur frá mánudagskvðldi).
16.00 Fróttir.
16.03 Dagbókln. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 BarnaUtvarplð. Kemur mér þetta við? I
tilefni af fræðsluviku um eyðni, „Láttu ekki
gáleysið granda þér", skoðar Barnaútvarpið
vandann frá sjónarhóli barnsins. Umsjón: Vern-
harður Linnet, Kristfn Helgadóttir og Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
17.00 Fróttir.
17.03 Tónllst S sfðdegi. Leikin verða þjóðlög og
dansar frá ýmsum löndum.
18.00 Fréttir.
18.03 Hrlngtorglð Sígurður Helgason og Óli H.
Þórðarson sjá um umferðarþátt.
Tónlist. Tlkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttlr
19.30Tllkynnlngar.
19.35 Daglegt mál Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Finnur N. Karlsson flytur.
19.40 ÞlngmSI Umsjón: Atli Rúnar Halldórsson.
20.00 Lúðraþytur Skarphéðinn H. Einarsson
kynnir lúðrasveitartónlist.
20.30 Kvöldvaka a. Stefán Islandi syngur íslensk
lög, Fritz Weisshappel leikur á píanó, b. Úr
Mfmisbrunni. Þáttur islenskunema við Háskóla
Islands: Frá túngarði til kaffihúsa, um fyrstu
smásögur Halldórs Laxness. Umsjón: Snæ-
björg Sigurgeirsdóttir. Lesari: Björgvin E. Björg-
vinsson. c. Karlakór Reykjavlkur syngur lög eftir
Sigfús Einarsson, Guðrún A. Kristinsdóttir leikur
á planó; Páll P. Pálsson stjómar. d. Á Sauða-
nesi við Siglufjörð. Erlingur Daviðsson flytur
frumsaminn minningaþátt. Fyni hluti. e. Fjórir
söngvar eftir Pál P. Pálsson við Ijóð Nínu
Bjarkar Árnadóttur. f. Hagyrðingur á Egllsstöð-
um. Auðunn Bragi Sveinsson fer með stökur
eftir Rögnvald Eriingsson frá Vfðivöllum. Kynnir:
Helga Þ. Steþhensen.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvðkfsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar.
23.00 Andvaka Þáttur i umsjá Pálma Matthiasson-
ar. (Frá Akureyri).
24.00 Fréttir.
24.10 Samhljómur Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir.
(Endurtekinn þáttur frá morgni).
01,00 Veðurfregnir. Næturúrvarp á samtengdum
rásum til morguns.
01.00 Vökulögln. Tónlist af ýmsu tagi í næturót-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðursfofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarplð Dægurmálaútvarp með
fréttayfirfiti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00
og 9.00. Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblað-
anna að loknu fréttayfiriiti kl. 8.30. Rás 2 opnar
Jónsbók kl. 7.45. Margvíslegt annað efni:
Umferðin, færðin, veðrið, dagblöðin, landið,
miðin og útlönd sem dægurmálaútvarpið á rás
2 tekur fyrir þennan dag sem fyrri daga vikunnar.
- Leifur Hauksson, Egill Helgason og Sigurður
Þór Salvarsson.
10.05 Miðmorgunssyrpa Umsjón: Kristln Björg
Þorsteinsdóttir.
12.00 Fréttayflrllt. Auglýsingar.
12.10 Á hédegi. Dagskrá Dægurmáladeildar og
hlustendaþjónusta kynnt.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milll méla Umsjón: Rósa Guðný Þórsdótt-
ir.
16.03 Dagskrá Dægurmálaútvarpið skilar af sér
fyrir helgina: lllugi Jökulsson fjallar um fjölmiðla.
Annars ern stjórnmál, menning og ómenning I
vfðum skilningi viöfangsefni dægurmálaút-
varpsii is I slðasta þætti vikunnar f umsjá Ævars
Kjartanssonar, Guðrúnar Gunnarsdóttur, An-
dreu Jónsdóttur og Stefáns Jóns Hafsteins.
19.00 Kvöldlróttir
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 SnUnlngur. SkUli Helgason ber kveðjur milli
hlustenda og leikur óskalög.
02.00 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi i næturút-
varpi til morguns. Fróttir kl. 2.00 og 4.00 og sagt
frá veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og
6.00. Veðuriregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttlr kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 SvæðlsUtvarp Norðurlands
18.03-19.00 SvæðlsUtvarp Norðurlands
18.30-19.00 SvæðlsUtvarp Austurlands Umsjón:
Inga Rósa Þórðardóttir.
Föstudagur
25. mars
17.50 Ritmálsfréttir.
18.00 Sindbað sæfari. (Sindbad's Adventures)
- Þriðji þóttur - Þýskur teiknimyndaflokkur.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
18.25 Rauði hatturinn. (Den röde hatten) Norsk
mynd fyrir börn. Martin er tíu ára gamall. Hann
á stól sem honum er mjög kær. Foreldrar hans
vilja endurnýja húsgögnin og dag einn losa þau
sig við allt sem gamalt er og þar á meðal stólinn
góða. (Nordvision - Norska sjónvarpið)
18.50 Fréttaógrip og táknmálsfréttir.
19.00 Steinaldarmennirnir Bandarísk teiknimynd.
Þýðandi Ólafur B. Guðnason.
19.30 Staupasteinn Bandarískur gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
20.00 Fróttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskró.
20.35 Þingsjó Umsjónarmaður Helgi E. Helgason.
20.55 Annir og appelsínur Nemendur Mennta-
skólans á Isafirði. Umsjónarmaður Eiríkur
Guðmundsson.
21.25 Derrick Þýskur sakamálamyndaflokkur með
Derrick lögregluforingja sem Horst Tappert
leikur. Þýðandi Veturliði Guðnason.
22.25 Sjón er sögu ríkari (Strangerthan Paradise)
Bandarísk bíómynd frá 1984 sem sýnd var á
kvikmyndahátíð Listahátíðar 1985. Leikstjóri
Jim Jarmusch. Aðalhlutverk John Lurie, Eszter
Balint og Richard Edson. Ungverji nokkur hefur
búið í New York í tíu ár er sextán ára gömul
frænka hans kemur til landsins. Hún hyggst búa
hjá ættingjum í öðru ríki en dvelur hjá honum í
nokkra daga og kynnist einnig vini hans og
spilafélaga. Að ári liðnu heimsækja þeir stúlk-
una sem er heldur óhress t vistinni og halda þau
öll þrjú til Florida þar sem þau hyggjast freista
gæfunnar. Þýðandi Þorsteinn Þórhallsson.
23.50 Útvarpsfréttir i dagskrárlok.