Tíminn - 07.04.1988, Side 2

Tíminn - 07.04.1988, Side 2
2 Tíminn Fimmtudagur 7. apríl 1988 Hringskyrfi á fjórum bæjum undir Eyjafjöllum: Yfir fjörutíu hrossum Undir Eyjafjöllum geisar nú skæður sveppasmitsjukdomur, hringskyrfi, sem leggst á fé, gripi og jafnvel menn, og hefur sjúkdómurinn nú fundist á fjórum bæjum. Bóndinn á Miðgrund, Vestur-Eyjafjöllum, Lárus Hjaltested, þurfti vegna þessa að lóga 44 hrossum og tryppum í öryggisskyni, en hrossin höfðu verið í snertingu við kálfa sem sjúkdómurinn er í. Hringskyrfi getur lifað í staurum, jörðu og fötum, svo dæmi séu nefnd og hafa verið reyndar margar leiðir til að lækna hann, t.d. joðburður og böðun, en það hefur gengið misjafn- lega. Til er bóluefni, en það er mjög vandmeðfarið, enda lifandi og þarf ekki að missa nema eitt glas, til að allt fari í voða og smit breiðist út í stað þess að varna því. Lárus fékk fyrirmæli um slátrun- ina frá dýralæknum, en hann fær að öllum líkindum skaðann bættan úr bjargráðasjóði. Á öðrum bæ hefur nautgripum og fé verið slátrað og hefur verið samið um bætur fyrir féð. Ekki hefur verið ákveðið hvort gripið verður til slátrunar á hinum tveimur bæjunum. Bændurnir fjórir hafa fengið fyrir- mæli þess efnis að einangra skepn- urnar, umgangast þær mcð mikilli varúð og vinna í hreinum fötum. Fólk getur einnig smitast af sjúk- dómnum og er almennt hreinlæti því mjög nauðsynlegt. „Hrossalógunin varfyrstogfremst öryggisráðstöfun. Ef svo illa færi að sjúkdómurinn kæmist í sauðfé, þá væri erfitt að koma í vcg fyrir hann,“ sagði Aðalsteinn Sveinsson, héraðs- dýralæknir á Skógum í samtali við Tímann í gær. Fyrirhugað er að girða til að einangra gripina frá öðrum búfén- aði. Hringskyrfi er sveppasjúkdómur sem fer í húðina og veldur þar nokkurs konar skellum. Hann getur farið í flestar tegundir búfjár og einnig í menn. Sjúkdómurinn er einungis á þessum fjórum bæjum og er fullsannað að hann hafi borist til landsins með sænskri stúlku sem vann á einum bænum síðasta sumar. Hringskyrfi er algengur víða erlendis og leggst aðallega á ungviði, en til að byrja með fer sjúkdómurinn í alla aídursflokka. Á mönnum fer sjúk- dómurinn á staði þar sem mikill núningur á sér stað, eins og úlnliði, mitti og skeggrót. Komist sjúkdómurinn á mjög hátt stig, getur hann leitt til dauða, en ekki er vitað til að slíkt hafi gerst hér á landi, þar sem nijög vel er fylgst með skepnunum. Sýni voru rannsökuð á Rannsókn- arstöðinni á Keldum og var staðfest þar að um hringskyrfi væri að ræða. Þá var í fyrsta skipti sent sýni til Noregs og var niðurstaðan sú sama. Sjúkdómurinn hefur ekki komið upp hérlendis síðan 1964, þcgar hann kom upp á Grund í Eyjafirði. -SÓL 44 hrossum var lógað í öryggisskyni, því stóðið hafði komist í snertingu VÍð sýkta kálfa. Tíminn Pjctur lógað í öryggisskyni Bæjarstjórn Garðabæjar: Mótmælir skerðingu til jöfnunarsjóðs Reyklaus þingflokkur í dag er reyklausi dagurinn og þeim tilmælum beint til reykinga- manna að þeir setji vindlinga, vindla og pípur sínar ofan í skúffu, a.m.k. í dag, ef ekki lengur. Nú er í gangi áróður fyrir reyklausum skólabekkjum, vinnustöðum og heimilum og þingflokkur Framsóknarflokks- ins lætur ekki sitt eftir liggja, en hann cr vafalaust eini reyklausi þingflokkurinn. Þessa mynd tók Pjetur á þingflokksfundi í gær og mættu reykingamenn taka þing- flokkinn sér til fyrirmyndar og leggja tóbakinu fyrir fullt og allt. Tímamynd: Pjetur Á fundi bæjarstjórnar Garðabæj- ar 24. mars sl. var m.a. rætt um skerðingu Alþingis og ríkisstjórnar á framlagi til jöfnunarsjóðs sveitar- félaga. Er þessu mótmælt með eftir- farandi bókun: „Bæjarstjórn Garðabæjar mót- mælir harðlega þeirri ráðstöfun ríkisstjórnar og Alþingis, að skerða enn frekar og enn á ný framlag tj^, jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þvert ofan í gefin fyrirheit og ótvíræð lagaákvæði um tekjur sjóðsins. Efnahagsaðgerðir stjórnvalda á kostnað sveitarfélaga er þeim mun bagalegri nú um stundir, þar sem mikil óvissa ríkir um áhrif stað- greiðslu opinberra gjalda á tekjuöfl- un sveitarfélaga á árinu 1988, og eru þær fyrst og fremst til þess fallnar að ala á tortryggni og grafa undan eðlilegum samskiptum handhafa framkvæmdavaldsins, rfkis og sveit- arfélaga. Bæjarstjórn Garðabæjar harmar, að slíka afstöðu til sveitar- félaganna skuli að finna í löggjafar- þingi þjóðarinnar." gs Jón Oddsson, hrl, nefnir SÍS íslensk samvinnufélög Sambandsins: Eigendur eigna eigenda sinna? „... þakklætisvert er, aö stjórn SÍS skuli nú sýna þá réttlætis- kennd, aö viðurkenna ábyrgð SÍS á skuldum bænda og félagsmanna í Kaupfélagi Svalbarðseyrar, er gerðir hafa verið ábyrgir vegna skulda og vanefnda samvinnuhreyfingarinnar í landinu og þar með hefur stjórn SÍS orðið við kröfum mínum, að því er varðar umræddar ábyrgðarkröfur og fagna ég því.“ Svo segir í fréttatilkynningu Jóns Oddssonar, hrl., lögmanns Jóns Laxdal, bónda, varðandi gjaldþrot Kaupfélags Svalbarðseyrar. Síðar kveður við annan tón. Hann segir að ekki virðist nást samkomulag um aðra þætti krafna sinna á hendur yfirstjórn SÍS og því sé þörf frekari meðferð málsins fyrir dómstólum. Jón Oddsson segir álitsgerð Jóns Finnssonar, lögmanns Sambandsins, um eignaréttindi kaupfélaganna í eignum SÍS unna samkvæmt pöntun “forstjóraveldis SÍS með markmiði fyrirframgefna niðurstöðu og tilgang.“ Jón Oddsson segir um að ræða „mótsagnakenndar röksemd- arfærslur meira í anda skrums en lögfræði, þar sem vitnað er til úreltra ákvæða laga um samvinnufélög frá 1937, sem andstæð eru grundvallar- reglum íslenskra laga um eignarétt- indi, viðskiptaöryggi og réttar- vörslu.“ Álit J^is Finnssonar, lögmanns SÍS, er, að kaupfélag geti einungis krafist eignar sinnar í stofnsjóði Sambandsins við gjaldþrot. Sam- bandið verði ekki tekið til skipta nema ákveðið verði að slíta því með atkvæðum þriggja fjórðu hluta full- trúa á tveimur fulltrúafundum í röð og samhliða yrðu öll kaupfélögin að ræða málið á sínum fundum. Jón Oddsson telur m.a. að 67. grein stjórnarskrárinnar, þar sem kveðið er á um, að óheimilt sé að svipta nokkurn eignum hans án fullra skaðabóta, hnekki áliti lög- manns SÍS. „Ef fallist yrði á það, að eignir Kaupfélags Svalbarðseyrar lúti eignarumráðum yfirstjórnar SÍS, er slíkt framsal eigna óheimilt gagn- vart umræddu þrotabúi nema frá SÍS komi fullar fébætur inn í þrotabúið skv. 67. grein stjórnarskrárinnar,“ ritar hann. Hann segir í tilkynn- ingu sinni, að úrskurð sýslumanns Þingeyjarsýslu um gjaldþrot Kaup- félags Svalbarðseyrar verði að endurskoða í þessu ljósi. Hann segir og að SÍS og Samvinnubanki hafi, með því að halda téðum eignum kaupfélagsins, orðið eigendur eigna eigenda sinna. Því sé ranghermi að kalla SÍS Samband íslenskra sam- vinnufélaga. Nær væri að nefna það ÍSS, þ.e. íslensk samvinnufélög Sambandsins. þj

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.