Tíminn - 19.05.1988, Page 4

Tíminn - 19.05.1988, Page 4
4 Tíminn Fimmtudagur 19. maí 1988 rjOlbrautaskóunn BREIOHOL11 Frá Fjöl- brautaskól- anum í Breiðholti Skólaslit veröa í Fella- og Hólakirkju, Hólabergi 88, föstudaginn 20. maí n.k. og hefjast þau kl. 13.30. Allir nemendur dagskóla og kvöldskóla, er lokið hafa prófum á þriggja og fjögurra ára brautum, eiga að koma þá og taka á móti prófskírteinum. Um er að ræða nemendur, er lokið hafa áföngum sjúkraliða, snyrtifræðinga, matartækna, sveins- prófs svo og sérhæfðu verslunarprófi og stúdents- prófi. Nemendur, er lokið hafa eins og tveggja ára brautum, fá skírteini sín afhent í Fella- og Hólakirkju eftir skólaslitin (um kl. 15.00) og síðan á skrifstofu skólans. Foreldrar, aðrir ættingjar svo og velunnarar skól- ans eru velkomnir á skólaslitin. Skólameistari Útboð - Rafmagnstöflur Samband íslenskra samvinnufélaga, Sölvhóls- götu 4, 101 Reykjavík, óskar eftir tilboði í smíði á alls 17 rafmagnstöflum fyrir væntanlegt skrifstofu- hús að Kirkjusandi í Reykjavík. Um er að ræða dreifitöflur og greinatöflur fyrir allt húsið. Verkið skal hefjast strax og skal því lokið 30. september 1988. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sigurð- ar Thoroddsen hf., Ármúla 4, Reykjavík, gegn 5.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila til VST hf., Ármúla 4, 108 Reykjavík, fyrir kl. 11.00 föstudaginn 3. júní 1988 en þá verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf ÁRMÚLI 4 REYKJAVlK SlMI 84499 Útboð - Raflagnaefni Samband íslenskra samvinnufélaga, Sölvhóls- götu 4, 101 Reykjavík, óskar eftir tilboði í kapal- bakka og tenglarennur fyrir væntanlegt skrifstofu- hús að Kirkjusandi í Reykjavík. Um er að ræða eftirfarandi magn: - kapalbakka, um 1.700 m. - tenglarennur, um 700 m. Bjóðandi skal gefa upp afhendingartíma og stað. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sigurð- ar Thoroddsen hf., Ármúla 4, Reykjavík, gegn 5.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila til VST hf., Ármúla 4, 108 Reykjavík, fyrir kl. 11.30 föstudaginn 3. júní 1988 en þá verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf ÁRMÚLI 4 REYKJAVÍK SlMI 84499 Dráttarvél óskast Vantar notaða dráttarvél, 40-70 hestafla, með drifi á öllum hjólum, þarf að vera vel gangfær. Upplýsingar í símum: 667475, 667576 (Björn) og 672322 (Hermann). Aðalfundur Kaupfélags Norður-Þingeyinga: Kreppulánasjóður verði stofnaður Tímanum hefur borist svohljóð- andi ályktun aðalfundar Kaupfélags Norður-Pingeyinga, sem samþykkt var einu hljóði: „Aðalfundur Kaupfélags Norður- Þingeyinga skorar á stjórnvöld að bregðast nú þegar við hinu alvarlega ástandi atvinnufyrirtækja á lands- byggðinni. í hinum dreifðu byggðum eru framleiðslufyrirtæki uppistaðan í atvinnulífinu og eru þessi fyrirtæki að mestu rekin fyrir lánsfé, þar sem aðstæður hafa ekki leyft að þessi fyrirtæki mynduðu eigið fé á síðustu árum. 1. Vextir verði Iækkaðir tafarlaust. 2. Byggðastofnun verði veitt stór- aukið fjármagn til að Iána fram- leiðslufyrirtækjum sem standa höll- um fæti og þeim verði gert kleift að endurskipuleggja sinn rekstur. Að öðrum kosti verði komið á fót kreppulánasjóði sem hafi það að markmiði að útvega hagkvæmt láns- fjármagn til þeirra framleiðslufyrir- tækja sem búa við erfiðust rekstrar- skilyrði. 3. Gripið verðir tafarlaust til ráða sem duga til þess að draga úr hömlu- lausum innflutningi og eyðslu á gjaldeyri. 4. Gera þarf innlendum iðnaði kleift að standast samkeppni við innfluttar vörur.“ þj Páll Ólafsson situr hér við smásjána. Tímamynd:Gunnar Ný rafeindasmásjá í húsakynnum Iðntæknistofnunar: Stækkar 300 þúsundfalt Iðntæknistofnun Islands, Há- skóli íslands og Rannsóknarstofn- un byggingariðnaðarins hafa fést kaup á rafeindasmásjá sem getur stækkað hlut upp í allt að 300.000 falda stærð þess sem verið er að skoða, óháð því hversu slétt yfir- borðið er, en fram að þessu hefur stofnunin notað venjulega ljós- smásjá sem getur stækkað allt að 1000 sinnum, á mjög sléttu yfir- borði. Til að glöggva sig betur á mögulegri stækkun með nýju raf- eindasmásjánni, þá jafngildir þetta að 1 millimetri verðu 300 metrar. Páll Ólafsson eðlisverkfræðing- ur, sem hefur umsjón með nýju smásjánni sagði í samtali við Tím- ann að auk þessara auknu stækkun- armöguleika þá er með þessum tækjabúnaði hægt að framkvæma efnagreiningar á litlum punkti og sjá hvaða frumefni eru til staðar í hlutnum og í hvaða hlutföllum þau eru, upp að vissu marki. „Hana má nota á öllum sviðum rannsókna, í líffræði, læknisfræði, við lögreglu- rannsóknir, við efnagreiningar og við bara hvað sem er, bara að nefna það,“ sagði Páll. Innan Iðntæknistofnunar verður smásjáin einkum notuð til svokall- aðra efnisfræðarannsókna, á plasti, málmum og keramik svo dæmi séu tekin, en einnig verður hún notuð þar til tjónagreininga, þ.e. skoða hluti eins og vélarhluti sem hafa brotnað eða skemmst af einhverj- um orsökum og finna hvað það var sem gaf sig. Eitt af fyrstu verkefn- um sem smásjáin verður notuð til er að finna hvað gaf sig þegar hjólahlerinn brotnaði af Flugleiða- vél á dögunum. - ABÓ Vigdís tekur við doktorsnafnbót Aöalfundur Kaupfélags Noröur-Þingeyinga: Óþolandi að ríkisstjórn skorist undan „Aðalfundur Kaupfélags Norður- Þingeyinga ... skorar á ríkisstjórn og Alþingi að standa við gefin fyrir- heit varðandi framkvæmd búvöru- samninga. Ljóst er að verulega vant- ar á að fjármagn sé nægilegt á fjárlögum til að standa við verð- ábyrgð ríkisins samkvæmt áður- nefndum samningi. Alveg er óþolandi að ríkissjóður velti vandanum yfir á sláturleyfis- hafa, sem eru nú að sligast undan þeim byrðum. Þarna er verið að koma aftan að bændum, þar sem greiðsluerfiðleikar sláturleyfishafa bitna fyrst og fremst á þeim.“ Enn berast bréf frá aðilum SÍNE: Átta lýstu vantrausti, ekki þrír Fyrrverandi trúnaðarmaður New York deiidar SÍNE, Sólveig Hreið- arsdóttir, vísar því á bug, að einungis þrír námsmenn hafi lýst yfir van- trausti á formann og framkvæmda- stjóra SÍNE, Kristján Ara Arason, án þess að hafa fyrir því heimild á vorfundi deildarinnar, en það kom fram í frétt Tímans, sem byggð var á tilkynningu frá meirihluta stjórnar SÍNE og bréfi frá fimmtán náms- mönnum í New York. „Meirihluti stjórnar SÍNE býsnast yfir því að einungis átta manns hafi mætt á vorfund New York deildar- innar af 70 félagsmönnum, en á það má benda að á sumarráðstefnu SINE 1987 mættu 20 manns af 2500 félags- mönnum," ritar Sólveig. Hún segir að til vorfundar deildar- innar hafi verið löglega boðað, þótt ekki hafi fleiri en átta námsmenn séð sér fært að mæta. Auk þess hafi verið einróma samþykkt á fundinum að leggja til við formanninn að hann segði af sér. Stjórnarmönnunum þremur hafi verið falið að koma því til skila við fjölmiðla á íslandi, en rangt sé að eigna þeim einum álykt- un vorfundarins. þj Forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, fer til Bandaríkjanna 18. þ.m. í þeim erindagjörðum að veita viðtöku heiðursdoktorsnafnbót við Smith College í Northampton í Massachusetts. Forseti mun einnig vera viðstödd íslandskynningu Útflutningsráðs ís- lands og margra fyrirtækja í Boston, mánudaginn 23. maí. Forseti mun og taka þátt í fundi íslensk-ameríska verslunarráðsins í New York og hitta að máli íslendinga búsetta þar og í Washington D.C. f fylgd með forseta verður forseta- ritari Kornelíus Sigmundsson. óþh

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.