Tíminn - 19.05.1988, Síða 7
Fimmtudagur 19. maí 1988
Tíminn 7
Utanríkisráðherra Búlgaríu:
í opinbera
heimsókn
Utanríkisráðherra Búlgaríu Peter
Toshev Mladenov kemur í opinbera
heimsókn til íslands í lok maí, í boði
Steingríms Hermannssonar utanrík-
isráðherra. Þetta er í annað sinn
síðan 1968, sem utanríkisráðherra
frá Búlgaríu, kemur í opinbera
heimsókn til landsins.
Tilgangur ferðarinnar er að ræða
gagnkvæm samskipti þjóðanna í
milli á víðtæku sviði, en viðskipti
þjóðanna hafa farið vaxandi síðan
samkomulag um gagnkvæm við-
skipti voru gerð árið 1963.
Mladenov, sem er fæddur 1936,
hefur verið utanríkisráðherra Búlg-
aríu síðan 1971 og frá sama tíma
hefur hann verið meðlimur í for-
Utanríkisráðherra Búlgaríu, Peter
Toshev Mladenov.
sætisnefnd miðstjórnar búlgarska
kommúnistaflokksins. -ABÓ
Sigurjón Sighvatsson til Cannes:
Blue Iguana í sérkeppni
Kvikmynd Sigurjóns Sighvatsson-
ar og Steve Colin, The Blue Iguana,
hefur verið valin til keppni á kvik-
myndahátíðinni í Cannes, sem nú
stendur yfir.
Myndin var valin af hópi franskra
leikstjóra til að keppa í sérkeppn-
inni, Directors Forthnight, en þar fá
ungir og efnilegir leikstjórar að
spreyta sig. Hinir tveir hlutar keppn-
innar, sjálf aðalkeppnin og Ensortan
regard, fara fram á sama tíma.
Sigurjón vinnur, eins og kunnugt
er, í Los Angeles, og rekur þar
fyrirtækið Propaganda Films og sér
bandaríska stórfyrirtækið Polygram
Movies um dreifingu myndarinnar.
Leikstjóri er John Lafia, en aðal-
hlutverkið í myndinni, sem er vestri,
leikur Dylan McDermott, sem lék
aðahlutverkið í Hamburger Hill.
-SÓL
Fjáröflun
Sólheima í
Grímsnesi
Reynir Pétur Ingvarsson gróð-
ursetur hér lúpínu, en um hvíta-
sunnuhelgina hefur vistheimilið
Sólheimar í Grímsnesi átak til
uppgræðslu með sölu á lúpínurót-
um til útplöntunar.
Rótunum er safnað og pakkað
af heimilisfólki á Sólheimum,
sem er visthcimili fyrir þroska-
hefta. Þar ganga allir til daglegra
starfa á vinnustofum heimilisins
eða við ræktun. Heimilið er
sjálfseignarstofnun og hefur að
undanförnu unnið að uppbygg-
ingu á starfsaðstöðu og íbúðarað-
stöðu yfir heimilismenn.
„Litla landgræðslusettið" er
poki með tíu lúpínum sem vafðar
eru í móband og kostar 500
krónur. í pokanum er einnig
tréspaði til útplöntunar.
Salan fer fram á mörgum
stöðum, m.a. í Kringlunni,
BYKO, Húsasmiðjunni og
Þrastalundi, en þar munu heimil-
ismenn að Sólheimum sjálfir sjá
um söluna.
Alaskalúpína er af belgjurtaætt
og hentar vel til uppgræðslu hér
á landi. Hún er fljótsprottin, sáir
sér ört og bætir jarðveg með
myndun köfnunarefnis. Hún
breytir melum og auðnum í
blómahaf á fáeinum árum. Eftir
að hún hefur numið land og bætt
jarðveg víkur hún fyrir öðrum
gróðri. þj
MYNDBÖND
Aka á kaf í haugana
Reykvíkingur, sem var að losa
rusl á haugunuin, varð furðu lost-
inn þegar hann sá hvar bfll ók á
fljúgandi ferð inn í einn ruslahaug-
inn, stakk Iryninu þar á kaf, og
bflstjórinn gekk út án þess að hirða
um að drepa á bflnum eða að loka
bíldyrunum á eftir sér. Útvarpið
var stillt á hæsta og ómuðu dægur-
tónar í takt við skræki máfanna, en
bflstjórínn lötraði i rólegheitum á
brott.
Reykvíkingurinn tók þá aftur til
við að afferma kerru sína og hafði
ekki lokið því verki þegar hann
heyrði hvar bíll kom aðvífandi á
ógnarhraða. Við dynjandi takt
tónlistarínnar, sem enn hljómaði
frá bíltækjunum í ruslahaugnum
skammt frá, skrensaði enn annar
bíll inn á haugana og á kaf í
ruslahaug.
Bflstjórinn steig úr bflnum, en
drap ekki á honum, og gekk róleg-
ur á burt.
Ekki Johnsen
„Ekki Johnsen," segir Mórí,
andlegur frændi Dropa, í Þjóðólfi,
blaði framsóknarmanaa i Suður-
landskjördæmi, um blaðamann á
Mogganum, sem heitir Ámi
Johnscn. Öllum er í fersku minni,
að „hátíðarhald“ HSK um síðustu
verslunarmannahelgi mistókst
hrapallega „svo Gaukurínn varð
varla gauksungi". Gcfum Móra
orðið:
„Fyrir snarræði Árna Johnsen
og annarra athafnamanna var fjár-
hagnum bjargað með menningar-
uppákomu í Kerinu. Nú segja gár-
ungarnir að önnur slík hátíð sé
fyrirhuguð næsta sumar í stað
Gauksins sálaða og muni kallast
Úlfurinn. í framhaldi af því mun
Árni taka sér ættarnafnið Kerúlf.'*
Tvær óskir
Geir Haarde er ötull talsmaður
bjórs á íslandi og hefur fengið nóg
af tevatni. Sagan segir, að hann
um hjálpandi hönd og bjarga úr
háskanum.
- Ég óska mér, sagði Geir án
umhugsunar, stóra könnu með
volgum bjór, sem fyllist jafnóðum
og hún er tæmd.
Eins og hendi væri veifað birtist
kannan, full af frcyðandi bjór.
Geir tæmdi kolluna í einum teyg
og undir cins fylltist hún á ný.
- Nei sko, æpti Geir frá sér
numinn af glcði, - ég ætla að fá
aðra!
Dropateljari telur þó þcssa sögu
ekki þá trúverðugstu, sem hann
hcfur heyrt upp á síðkastið.
Spiliö lög sem
þjóðin þekkir
Um allt húsnæði útvarpsstöðvar-
innar Bylgjunnar hafa veríð hengd-
ar tilkynningar til þáttagerðar-
manna um að vanda lagavalið sér-
staklcga þessa dagana. Brýnt sé að
vinsælustu lögin hljómi á By Igjunni
og að hún kappkosti að höfða til
meiríhluta útvarpshlustenda.
„Leikið skemmtilega tónlist“,
„Bara lög sem fólkið kann“ og
„Spilið vinsælustu lögin“ er letrað
á miðana, sem hanga á vegg.
Og vegna hvers?
„Það cr hlustendakönnun í
næstu viku. Bylgjan ætlar að koma
sterk út úr henni.“
Tímamynd Pjetur
Borgarnes nafli heims
Vegfarendur að norðan til höf-
uðstaðaríns verða að treysta á
eigið hyggjuvit og ratvísi, því að
örfáir vegvisar benda til Reykja-
víkur. Aftur á móti virðast allar
götur liggja til Borgarness, eins
rækilega og sá byggðarkjarni er
merktur fram með þjóðvegum
landsins. Þetta rennir stoðum und-
ir þá fullyrðingu borgarstjórans,
að þingmenn Reykjavikurkjör-
dæmis sjái ekki þörf hjá sér að
mæla fyrír málefnum síns kjör-
dæmis á þingi. Eins gefur þetta
hraustlega til kynna, að Borgar-
fjörður hefur alið samgönguráð-
herra með ramma taug til föður-
túna.
hafí komið þar að, sem Ijósálfur
hafði fallið í djúpan pytt og gat sér
enga björg veitt. Hann sagðist
uppfylla tvær óskir Geirs, ef hann
vildi vera svo vænn, að rétta hon-
Met borgarstjóra slegið
Snarræði Davíðs Oddssonar,
borgarstjóra, þegar hann öllum að
óvörum tók fyrstu skóflustunguna
að ráðhúsi í Reykjavík, hefur fallið
út skömmu cftir keppnina: „Um
siðustu helgi unnu Húsvíkingar sér
enn eitt til ágætis nokkuð, sem
Akurey ringar hafa ekki eftir leikið.
Fulllrúi Húsvíkinga stóð sem sé á
Euróvisjónsviðinu um síðustu
helgi, en þar hafa Akureyringar
enn ekki átt fulltrúa og meiri líkur
á að Skagflrðingar eignist þar full-
trúa á næstu árum cn Akureyring-
ar.
Húsvíkingurinn á sviðinu í Dubl-
in var auðvitað Kristján Viðar
Haraldsson, Greifl af Húsavík".
Fiskur á þingi
Áður en upptökur hófust á þingi
voru starfandi þingskrifarar. I rit-
gcrð um Tækniþróun á Alþingi
eftir Magnús Jóhannsson er kafli
hafður eftir Jóni Sigurðssyni frá
Kaldaðarnesi, skrifstofustjóra á
Alþingi, sem sagði að þá vildi
ýmislegt skolast til í þingtíðinduin.
Hann nefnir dæmi:
„Ræðumaður gat þess að tiltekið
flskmagn hefði vcríð scnt til ílaliu
í clearing. Skrifarinn sem hvorki
var leikinn í hraðritun né heinia í
viðskiptaháttum skrífaði, að flsk-
urínn hefði verið sendur til Ítalíu i
klínik."
Utanríkisþjónustan
gerö að fjölmiðli?
Það verður ekki annað séð en að
nú sé að skapast grundvöllur fyrir
öflugri fréttastofu upp i utanríkis-
ráöuneyti, sem gæti örugglega
blandað sér í óvægna baráttu á
fjolmiðlamarkaðnum. Á siðustu
misserum hafa a.m.k. fjórir frétta-
menn gripið dauðahaldi. i „ráðu-
ncytisspenann". Þeir eru sjón-
varpsfréttamennimir Stefán L.
Stefánsson, Sturla Sigurjónsson og
mi síðast Guðni Bragason. Fjórði
fréttamaður fréttastofu utanríkis-
ráðuneytisins er síðan fyrrverandi
Tímamaðurínn Þórður Ægir Ósk-
arsson.
Að sjálfsögðu gerir grænleitur
dropateljarinn það að sinni tillögu
að Stcingrímur Hermannsson verði
sjálfkrafa gerður að fréttastjóra og
Þórður okkar Ægir að varafrétta-
stjóra.
Hinn nýi Ijölmiðill er hérmeð
boðinn velkominn á markaðinn...
Ingimundi Sigurpálssyni, bæjar-
stjóra í Garðabæ, vel í geð. Hann
vildi leika afrek Duvíðs eftir, þegar
fyrsta skóflustungan var tekin að
Skóflustungan fræga.' Tfmamjnd Gunnar.
íþróttamiöstöð í Garðabæ fyrír
skömmu.
Seint á fímmtudagskvöldi var
boðað til skyndifundar bæjar-
stjómar daginn eftir kl. 16:0«, þar
sem samþykkja átli samning um
hyggingu hússins. Skóflustungan
var tekin samdægurs kl. 17:00. Það
eru ekki allir jafn auðsveipir og
sjálfstæðismenn og því áttu fnll-
trúar minnihlutans erfltt með að
mæta til þessarar miklu stundar,
sem sannarlega var tilcfni til hátíð-
arhalds. En mættu þó utan einn.
Boðað var til skóflustungunnar
með slíkum asa, að menntamálar-
áðherra, sem ætlað var fyrstum að
grafa fýrír grunninum, sá sér ekki
fært að koma og hljóp því formaö-
ur bygginganefndar í skarðið.
Vikuna eftir skóflustunguna
vom viðkomandi Garðbæingum að
bcrast fundarboðið, sem bæjar-
stjórí í ofurtrú á póstþjónustunni,
sct'i i póstkassann þá hinn sama
morgun.
Kátir með Evróvísjón
Húsvikingum er alveg sama um
hvemig íslendingum vegnaði í Evr-
ópusöngvakeppni sjónvarpsstöðv-
anna. Þeir unnu sinn sigur yfir
Akureyríngum og í samanburði
við það er allt annað hjóm eitt.
Svo segir í Vikurblaði, sem kom