Tíminn - 27.05.1988, Qupperneq 9

Tíminn - 27.05.1988, Qupperneq 9
Föstudagur 27. maí 1988 Tíminn 9 VETTVANGUR Bjarni Hannesson: „Myrkraverk“ Tíminn 19/5 1988 birtir „umsögn og eða ritdóm“ um rit mitt, Byggðaþróun og verðmætasköpun 1972 til 1987 og fullyrt er þar í umsögninni orðrétt: „Þar vekur m.a. athygli tafla þar sem Bjarni setur fram áætlun um framtíðarþróun í framleiðslu kindakjöts. Áætl- unina byggir hann annarsvegar á tölum um bústærðir í sýslum landsins árið 1984 (á aðeins 1.540 býlum voru þá yfír 200 kindur) og hver breyting hafí orðið frá árinu 1979. Og hins vegar niðurstöðum nefndar sem starfaði á vegum forsætisráðuneytisins og fjallaði um aðlögun að sauðfjár - framleiðslu að innanlandsmarkaði, þar sem miðað er við um 448 þús. tjár og 9.500 tonna ársframleiðslu af kjöti.“ Þessa túlkun í umsögn tel ég alranga og bendi á að taflan er einungis framreikningur á töflum nefndarinnar en ekki eigin „áætl- un“. Það sem ég segi um töflur þessar er eftirgreint, orðrétt: „Komið hefur fyrir mitt auglit biaðagrein um væntanlega þróun í sauðfjárframleiðslu Tíminn 6/6 1987 þar sem unnið er úr heimild- um frá einhverri nefnd á vegum forsætisráðuneytisins og þar eru birtar töflur um hugsanlega þróun og þótti mér þær athyglisverðar og birti ég þær því hér. Með tilvísun til töflu 4, sem er unnin upp úr töflum 1 og 2 er ekki annað hægt að sjá, ef af þessari þróun verður, annað en framtíð 800 til 900 sauðfjárbænda sé ráðin og þeir verði því að hætta búskap sökum samdráttar í greininni. Þetta mun valda því, að líkum, að samsvarandi fjöldi jarða fer í eyði og verða verðlausar en byggja þarf húsnæði fyrir 1,5 til 2,5 milljarða króna annars staðar á landinu (700 íbúðir á ca. 2,5 til 3,5 milljón hverja). Beinn vaxtakostnaður því um 450 m. kr. pr. ár. Þessi orð gefa ekki tilefni til að fullyrða að ég hafi gert áætlun um samdrátt í kinda- kjötsframleiðslu eða millifyrir- sagnar þeirrar sem birt er í um- sögninni undir titlinum „Hverra sauðir verða skornir?" og fordæmi ég þessa millifyrirsögn og með- fylgj andi rangtúlkun í einu og öllu. Með töflu 4 er ég einungis að reyna að sjá fyrir hverjar svæðis- bundnar afleiðingar yrðu ef þróun yrði sú sem framtíðaráætlunin gerir ráð fyrir þannig að bregðast mætti við slíku ástandi af fyrirhyggju. Því framkvæmd á slíku á fáum árum þýðir mikla búseturöskun og gífur- lega eignarýrnun þeirra manna sem fyrir þessum samdrætti verða ásamt ýmsum óæskilegum hliðar- verkunum. Bókun 1 1 síðasta samningi milli bænda og ríkis eru ákvæði sem titluð eru sem bókun 1 og er eftirgreint. „Aðilar munu beita sér fyrir því að sá umþóttunartími sem land- búnaðurinn fær með samningi þessum til búháttabreytinga og hagræðingar framleiðslu og vinnslu mjólkur og kindakjöts, nýtist sem best og að í því skyni verði m.a. lokið sem fyrst úttekt á búrekstrar- aðstöðu á öllum jörðuin í landinu og áætlun um endurskipulagningu vinnslu og dreifingarstöðva.“ Ég tel að til þess að eitthvert vit geti orðið í landbúnaðarstefnunni þurfi þessi úttekt á búrekstrarað- stöðu að fara fram sem sem fyrst. Flestar upplýsingar eru þegar til hjá hinum ýmsu stofnunum og það er í raun einungis ákvörðun um samskráningu upplýsinga um hvert lögbýli sem vanti og mun „leyndin" um framleiðsluréttinn sennilega vera helsti þröskuldurinn. Þessi leynd er með öllu óhæf og býður heim grun ýmissa aðila um ýmiskonar „myrkraverk“ í sam- bandi við úthlutun framleiðslurétt- ar og telja margir í bændastétt sig hafa orðið fyrir slíku og úttekt á búrekstraraðstöðu jarða, án þess að upplýsingar um framleiðslurétt hvers lögbýlis fylgi, er næsta þýð- ingarlaus framkvæmd. Hvað ber að gera? 1. Fram- leiðslurétturinn verði gerður opin- ber, líkt og útsvars- og tekjuskatt- skrár, þ.e. að þeir sem vilja kynna sér þau málefni eigi aðgang að þeim hjá búnaðarsamböndum eða ráðunautum. 2. Úttekt á búrekstr- araðstöðu lögbýla verði lokið sem fyrst. 3. Að þessu framkvæmdu verði gerðar áætlanir um heildar- þróun búvöruframleiðslunnar til 10 til 15 ára er verði yfirfarnar og endurskoðaðar á a.m.k. 5 ára fresti. 4. Síðan verði farið í svæðis- bundna áætlanagerð svipaða þeirri sem fyrrgreindar töflur túlka. 5. Úthlutun framleiðsluréttar verði breytt þannig að hinum ýmsu svæð- um verði úthlutað heildarfram- leiðslurétti en heimamenn á hverju svæði fyrir sig fái að úthluta stærri hluta framleiðsluréttar en hingað til hefur verið. 6. Bændur fái aðgang að skrám um framleiðslu- réttarheimiidir hvers svæðis fyrir sig, eigin svæða og annarra ef þeir óska. Þetta tel ég vera frumskilyrði þess að hægt verði að starfrækja skynsamlega landbúnaðarfram- leiðslu og stefnu miðað við núver- andi ástand og líklegar framtíðar- horfur. Stefna stjórnvalda! Vandamál eru víðar og stærri í krónum talið, en í landbúnaðinum og bendi ég á meðfylgjandi línurit til skýringar. Línurit 1 sýnir viðskiptahalla sem engin þjóð sem ætlar að halda sjálfstæði sínu getur leyft sér að láta þróast frá ári til árs, að meðal- tali um 2,8% pr. ár og að upphæð árin 1987-88, að líkum um 17 milljarðar. Línurit 2 sýnir óhóflega aukna eyðslu frá 1986-88 í bílakaup og erlend ferðalög að líkum um 28 milljarðar á 3 árum. Línurit 3 sýnir þróun í hækkun erlendra langtímalána er hafa hækkað 1986-88 að líkum um 23 til 26 milljarðar kr. (á föstu verð- lagi 87-88). Línurit 4 sýnir áætlaða „féflett- ingu“ á framleiðslufyrirtækjum á landsbyggðinni sem eru í útflutn- ingi. Þetta mat byggist á því að ég tel að stjórnvöld hafi framkvæmt svokallaða hágengisstefnu síðustu ár og sönnun fyrir þeirri fully rðingu tel ég vera viðskiptahallann, því að gengi á að vera stjórntæki til að 15 10 - 5 0 -5 - -10 - -15 -20 Viðskiptahalli : 1 ■2.1 ■1.3 -0.8 -2.1 -4.4 -8.5 -2.1 «i. % af Þjóðarframleiöslu -4 +0.3 -3.1 Spá MilljarÖar króna Verölag 1987-88 15 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 Erlendur kostnaður við innflutning á bílum og erlend ferðalög —g—~ Milljaröar króna 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 Erlendar langtímasskuldir 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 Aætlað mánaðarlegt tap útflutningsframleiðslu fyrirtækja 1987-88. "Heildartap 5.874 mill". 1987 Maí Júni Júlí Agú Sept Okt Nóv Des 1988 Feb Mars Aprfl Maí Framlög til Byggðastofnunar á fjárlögum 800 600 " 400 - 200 Milljónir króna Verðlag 1987-88 5 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 stýra og viðhalda eðlilegu við- skiptajafnvægi. Línurit 5 sýnir framlög á fjárlög- um til Byggðastofnunar og sést hvaða áherslur eru í reynd hjá stjórnvöldum gagnvart lands- byggðarmönnum. Féfletting á landsbyggðarmönnum! Samkvæmt mínum útreikning- um hafa útflutningsfyrirtæki á landsbyggðinni verið féflett um 5,8 milljarða króna síðustu 14 mánuði. Forsendur eru þær að nokkuð var augljóst snemma árs 1987, að stefna myndi í mikinn viðskipta- halla og þá hefði átt að fella gengið eða gera aðrar haldbærar ráðstaf- anir til að vinna gegn sívaxandi viðskiptahalla. Það var ekki gert og þá fór allt í öngþveiti. Mitt mat er það að fyrsta verk ríkisstjórnar- innar hefði átt að vera að fella gengið um 4-6%, setja jafn háan skatt á „ferðamannagjaldeyri" og gert var á matvörur og hækka tolla á óþarfa innflutningi sem ábyrgðar- lausir kaupahéðnar troða inn á landslýð með margra milljarða auglýsingaherkostnaði og bygg- ingu á kauphöllum og viðskipta- setrum upp á fleiri milljarða ár hvert (síðustu 2 ár ca 5-10 milljarð- ar). Þetta ásamt ýmsu öðru „glap- ræði“ stjórnvalda mun valda, að líkum, allsherjaröngþveiti í efna- hagsmálum og stjórnmálum hér á landi sem „kosta“ mun þjóðina í krónum talið að líkum um 30 milljarða frá og með 1986 til og með 1989. Ritað 21/5 1988. Bjarni Hannesson Undirfelli BÓKMENNTIR !!!l!í! llllllllli BORGIN EILÍFA Christopher Hibbert: Rome. The biography of a city. Penguin Books 1987. 387 bls. Þrátt fyrir nafnið, getur þessi bók varla talist eiginlegt sagnfræðirit, og hún er ekki heldur saga Rómaborg- ar, enda næsta erfitt að segja hana til nokkurrar hlítar á einni bók, jafnvel ekki svo stórri sem þessari. Hér er á ferðinni rit, sem er allt í senn, kynning, eins konar inn- gangur að sögu Rómaborgar, um- fjöllun um borgina, íbúa hennar og líf þeirra í aldanna rás, og loks leiðsögurit fyrir þá, sem kynnast vilja helstu sögu- og merkisstöðum í borginni eilífu. Höfundur skiptir ritinu í þrjá aðalkafla, sem aftur skiptast í marga undirkafla. Hinn fyrsti hefst á um- fjöllun um Etrúska, síðan víkur sögunni að Rómaveldi, þá að mið- öldum og fyrsta hlutanum lýkur á fyrri hluta 16. aldar, þar tekur annar hlutinn við, en í honum er saga borgarinnar rakin allt fram á daga Mússólínis. Þriðji og síðasti hlutinn er svo eins konar „tópógrafía“, þar sem lýst er helstu sögu- og merkis- stöðum borgarinnar. Sá kafli er að sönnu fróðlegur og skemmtilegur, en stærð bókarinnar gerir það að verkum að fáir munu leggja í að bera hana með sér á skoðunarferðum og verður því að lesa hana heima, áður en lagt er upp. Höfundur þessarar bókar, Christ- opher Hibbert, er í hópi vinsælustu höfunda, sem rita um söguleg efni á enska tungu um þessar mundir og hefur samið fjölmörg rit. Þessi bók hans er stórskemmtileg aflestrar, en frásögn sína af Rómaborg, íbúum hennar og lífi þeirra byggir hann upp með því að segja frá einstökum persónum og atburðum og styðst víða við frásagnir ferðalanga, ekki síst engilsaxneskra. Allar eru lýsing- ar hans læsilegar og skýrar og margar þeirra kostulegar, því Hibbert er gæddur góðri kímnigáfu. Og þó fer því fjarri að bókin geti talist skemmtilestur frá upphafi til enda. Margt ódæðis verkið hefur verið framið í Rómaborg á þeim 3000 árum, sem bókin nær yfir, og margra góðra manna og kvenna hafa beðið grimmileg örlög. Frá slíkum hlutum segir, ekki síður en hinum skemmti- legu, og um þá fjallar höfundur af hispursleysi. Fjölmargar myndir prýða bókina, hún hefur að geyma kort af Róm og í bókarlok eru heimilda og nafna- skrár. Jón Þ. Þór Súrrealismi Jón Gnarr: Börn ævintýranna, Rvk. 1988. Það er 21 ljóð í þessari bók, það fyrsta heitir fíðlarinn á þakinu og dauðinn, og það hefst þannig: þegar túnfiskurinn galar fer smávaxni flautuleikarinn útí kirkjugarð að Ieiði hins óþekkta og hellir rauðvíni yfir gröf sína þá vaxa leðurblökur í moldinni ogfljúga útum munn gamallar konu sem býr í grafhvelfingunni á meðan hún veltist um sjálfa sig og æpir og grætur Hér dylst engum, sem fylgst hefur með ljóðabókum síðustu ára, að á ferðinni er fyrirbæri sem komin er hefð á að kenna við súrrealisma. Þar er hlaupið frá einni hugmynd til annarrar, dengt saman þeim sem síst skyldi ætla að ættu saman og öllu gefið yfirbragð skipulagðrar ringul- reiðar. Gjarnan eru yrkisefnin líka sett fram með svipmóti sem minnir á martraðir eða vondar draumfarir. Geta menn þá hvort heldur vill hrifist eða hneykslast, allt eftir geðs- lagi og viðhorfum hvers og eins. Á höfundi eru ekki sögð deili í bókinni, en í frétt sem fylgdi með henni til blaða segir að hann hafi áður birt ljóð í dagblöðum og lesið í útvarp. Á síðasta ári segir einnig að hann hafi unnið fyrstu og önnur verðlaun í ljóðasamkeppni Þjóðvilj- ans og verið kosinn skáld vikunnar á Bylgjunni. Nafn forlagsins er Væni- brjál sf., og mun hægt að panta bókina í síma 688701, sem sjálfsagt er að koma á framfæri. Það er list að yrkja súrrealísk ljóð svo að vel sé. Þar þarf bæði hugsana- snerpu og fimi í því að tengja saman ólík hugtök með þeim hætti að þeim sé gefið nýtt svipmót eða ný dýpt. Jón Gnarr virðist hafa ýmislegt til að bera í þessa áttina, og í bókinni er viss ferskleiki sem rná lofa góðu. Þó á hann greinilega enn eftir að rækta töluvert með sér getuna til að tengja súrrealísk yrkisefni við raunveru- leikann utan þeirra, en slíkt má læra. Þessi fyrsta bók hans er máski full smá í sniðum til að eftir henni megi álykta um skáldgáfu hans. En hún vekur þó ýmsar vonir. -esig

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.