Tíminn - 27.05.1988, Page 10
10 Tíminn
Föstudagur 27. maí 1988
iiilllillíli
AÐ UTAN
__ Áhyggjur í Englandi vegna ungra drykkjumanna:
Takmarkanir á áfengis-
Það er víðar en á íslandi sem hafðar eru áhyggjur vegna
ungra drykkjumanna. Nú er svo komið að reglur verða
innan tíðar settar um að takmarka frelsi um auglýsingar á
áfengi í ljósvakamiðlum í Bretlandi. í reglunum felst að
ekki megi gefa áfengisauglýsingum skemmtanagildi né
gera áfengisdrykkju aðlaðandi um of.
Hér segir frá ungum enskum pilti sem hefur stundað
drykkju síðastliðin þrjú ár og afleiðingarnar eru þegar
farnar að segja til sín, þó að hann sé ekki nema 15 ára
gamall.
í annan,“ segir hann. Stundum fer
hann á diskótek með vinum sínum.
„Ég verð að mýkja mig upp fyrst.
Annars er ég svo spenntur. Ég hef
svo miklar áhyggjur af því að
kannski sé ég óvinsæll. Ef fötin mín
eru ekki í lagi uppnefna strákarnir
mig. Allt er svo miklu auðveldara
þegar maður er búinn að fá sér
aðeins neðan í því. En mér finnst
andstyggilegt að verða fullur, þegar
herbergið fer að snúast, er það
kemur til alls drekkur pabbi hans.“
Pabbi Adams hefur reyndar þegar
verið tekinn tvisvar drukkinn undir
stýri. „Pegar ég sagði honum að
Adam væri farinn að drekka í laumi,
hló hann bara. Af hverju finnst
karlmönnum drykkjuskapur bera
vott um karlmennsku? Hvað er
svona karlmannlegt við að vera
hjálparvana vegna drykkju?"
ungling sem drekkur? Mér fannst ég
ekki hafa neinn til að leita ráða hjá.
Ef ég hefði talað við yfirvöld í
skólanum er ég viss um að hann
hefði verið rekinn úr skóla," segir
hún. Og það hefur reyndar komið á
daginn að skólastjórinn hefur nú
þegar gefið í skyn að kannski liði
Adam betur einhvers staðar annars
staðar, þar sem hann þyrfti ekki að
stunda eins mikið bókaramennt.
Susan hefur stungið upp á því við
Fimmtungur 13 ára
krakka hefur þegar haft
kynni af timburmönnum
Adam drekkur. U.þ.b. þrjá
morgna í viku vaknar hann altekinn
skelfingu af því að horfast í augu við
komandi dag. Svo að hann laumast
inn í bókaherbergið og opnar vín-
skáp föður síns. Þar fær hann sér
slurk af því víni sem hann finnur
hverju sinni. Síðan burstar hann
tennurnar og heldur í skólann.
Adam er 15 ára. Hann er búinn að
drekka síðustu þrjú árin.
Um þessar mundir er verið að
gefa út í Englandi reglur, sem setja
hömlur á auglýsingar á víni. Það er
nefnd sem hefur eftirlit með rekstri
óháðra útvarpsstöðva sem gefur
þessar reglur út. Ástæðan er áhyggj-
ur af auknum fjölda ungra drykkju-
manna í Englandi, eins og Adam er
dæmi um.
Þessar hertu reglur eru settar um
sama leyti og ein könnunin enn
leiðir í Ijós almenna drykkju meðal
unglinga á táningaaldri í Bretlandi.
Samkvæmt könnuninni, sem gerð
var á vegum Edinborgarháskóla,
hefur fimmtungur 13 ára krakka í
Englandi, Wales og Skotlandi nú
þegar haft kynni af timburmönnum.
Fyrst var það heimabrugg
Reyndar hefur engum hugkvæmst
að spyrja krakkana að þvf hvort þeir
hafi ánetjast flöskunni sérstaklega
vegna þess að þeir hafi verið að
horfa á skemmtilegar auglýsingar á
áfengi í sjónvarpinu. Adam fékk
sína fyrstu timburmenn þegar hann
var 12 ára gamall eftir svallveislu á
heimabrugguðum bjór sem enn var
í gerjun. „Félagi minn keypti brugg-
unarefni. En hann hafði sett bruggið
á flöskur of snemma eða sett vitlaust
magn af sykri saman við eða eitthvað
slíkt. A.m.k. var bruggið reglulega
vont. En við félagarnir fylltumst
metingi um hver gæti komið niður
sem mestu af óþverranum. Ég held
að það hafi verið ég sem vann.
Reyndar man ég ekki mikið eftir því
sem gerðist. Ég lyppaðist niður á
gólfið í herberginu hans og þegar ég
vaknaði um morguninn voru ælu-
pollar um allt, já herbergið hans var
einn allsherjar æludammur. Mamma
hans fékk algert æðiskast.“
Síðan var það
bjórinn í ísskápnum
Þá var Adam feginn því að móðir
vinar hans sagði foreldrum hans
ekki frá þessu. Núna hefur hann
sínar efasemdir um hvort það hafi
verið heppilegt. „Kannski hefði ekki
farið svona fyrir mér ef einhver hefði
tekið mig rækilega í gegn þarna um
árið. Mamma mín leyfir mér aldrei
að drekka áfengi, ekki einu sinni eitt
vínglas á jólunum eða þegar við
förum í fjölskylduboð. Pabba þykir
nefnilega gott að fá sér neðan í því.
Þegar ég var búinn að drekka
óþverrann hjá vini mínum fór ég að
hugsa um hvernig þetta ætti eigin-
lega að bragðast. Pabbi átti fullt af
bjór í ísskápnum. Mér þótti bjórinn
hans góður og pabbi drekkur sjálfur
svo mikið að hann varð aldrei var við
hvað ég var duglegur að hjálpa
honum að tæma ísskápinn. Ég vandi
mig bara á að drekka tvær eða þrjár
dósir á hverju kvöldi, stundum
eitthvað meira og í önnur skipti
minna. Enginn virtist vita af þessu.
Ég hef alltaf verið mikið út af fyrir
mig. Pabbi og mamma horfa á
sjónvarp öllum stundum, nema þeg-
ar þau eru að leika golf.“
„Allt er svo miklu
auðveldara þegar maður
er búinn að fá sér einn“
Oftast drakk Adam einsamall. í
þau fáu skipti sem hann drakk með
öðrum strákum var hann undrandi
að sjá hvað þeir gátu látið einn sjúss
endast sér lengi. „Þegar ég er búinn
að fá mér einn dauðlangar mig strax
verulega óþægilegt. En það er svo
skrítið að ég hugsa ekkert um það
þegar mig langar í drykk. Það gerist
bara allt í einu.“
Skólanámið líður
fyrir drykkjuna
Adam hætti að gera heimavinnu
fyrir skólann en um stundarsakir gat
hann keypt heimavinnuna af strák í
bekknum sínum í einkaskóla fyrir
pilta í Manchester. Það gekk ekki til
lengdar og með tímanum var Adam
látinn sitja eftir svo gott sem á
hverjum degi. Hann hafði aldrei
verið neinn sérstakur námsmaður
svo að það vakti ekkert óskaplegt
uppistand heima fyrir þegar eink-
unnimar hans fóru niður fyrir meðal-
lag.
Adam hafði drukkið í 18 mánuði
þegar mamma hans komst að því.
Hann hafði tekið ginflösku úr vín-
skáp föður síns meðan hann var á
viðskiptaferðalagi. Susan, móðir
Adams segir: „Allt í einu vissi ég
það. Þarna var skýringin fengin á
sinnuleysinu. Ég fann hann liggjandi
glaseygðan á rúminu sínu. Ég er full
sektarkenndar fyrir að hafa ekki
fylgst betur með honum. Þegar allt
Meiri hætta á drykkju
unglinga á þeim heimilum
þar sem víns er neytt
Þeir sem reyna að hamla gegn
auknum drykkjuskap í Englandi
segja að oft megi rekja drykkju
unglinga til föðurhúsa, einfaldlega
vegna þess að meiri líkur eru til að
frjálslega sé farið með áfengi á þeim
heimilum þar sem foreldrarnir neyta
víns. Þeir benda á að erfitt geti verið
fyrir foreldra að hafa hemil á
drykkju barna sinna ef þeir sjálfir
hafa vín um hönd. „Það er svona
álíka og að segja: Vertu ekki með
þetta helvítis bölv!“ segja þeir.
Susan móðir Adams reyndi árang-
urslaust að fá manninn sinn til að
geyma áfengið sitt í læstum hirslum.
„Adam hefði ekki haft peninga til að
kaupa áfengi, jafnvel þó að hann
hefði getað logið til um aldur," segir
hún. Hún vissi að fenginni reynslu
manns síns, að ef hún segði heimilis-
lækninum að Adam væri farinn að
drekka, yrði það skráð í skýrslur um
hann alla tíð uppfrá því. „Segjum
sem svo að Adam þurfi að framvísa
læknisskýrslu þegar hann sækir um
vinnu. Þá stæði þetta þar og hver
væri reiðubúinn til að ráða í vinnu
Adam að hann færi að stunda AA-
fundi en hann vill ekki hlusta á það.
„Hann er ekki dauðadrukkinn.
Hann er bara rallhálfur á hverju
, kvöldi og getur ekki ímyndað sér að
ástandið geti átt eftir að versna,"
segir hún.
En hvaða áhrif hafa
vínauglýsingar á drykkju
ungmenna?
Ef velmeint ákvörðun nefndarinn-
ar sem hefur eftirlit með óháðum
útvarpsstöðvum í Bretlandi um að
draga úr aðdráttarafli áfengis í aug-
lýsingum hefði þegar verið í gildi
áður en Adam fór að drekka, hefði
það breytt einhverju um afstöðu
hans? Móðir hans segir að þó að hún
hefði ekkert á móti því að finna
blóraböggul, efist hún um að auglýs-
ingarnar hefðu breytt nokkru þar
um. „Sjónvarpið hefur ekki veitt
honum svo mikinn félagsskap. Það
má miklu frekar kenna pabba hans
um hvernig komið er. En ég, sem á
þó að kallast móðir hans, hefði átt
að fylgjast betur með honum og
hvað var að gerast,“ segir Susan,
móðir Adams.