Tíminn - 27.05.1988, Side 13

Tíminn - 27.05.1988, Side 13
Föstudagur 27. maí 1988 Tíminn 13 MINNING . ■■ ■ . ■ ' ■ "" "■ Aðalheiður Sigríður Sigurðardóttir Fædd 3. ágúst 1903 Dáin 16. maí 1988 Fyrir hálfum öðrum áratug kynnt- ist ég ágætum hjónum hér í borg, nánast af tilviljun. Bjuggu þau á Kleppsvegi 118. Bæði Austfirðingar, fædd þar og uppalin. Nú er hann látinn fyrir ellefu árum, en hún skildi við hinn 16. þessa mánaðar, tæplega hálf níræð að aldri. Aðalheiður Sigríður var hún nefnd í skírninni. Foreldrar hennar bjuggu allan sinn búskap að Urðar- teigi í Berufirði, skammt frá Djúp- avogi, en þau voru Sigurður Berg- sveinsson og Sigríður Helgadóttir. Sigurður var annáluð skytta og önd- vegis sjómaður. Faðir hans hafði sömu eigindir til að bera. Þá voru synir Sigurðar, bræður Aðalheiðar, góðir sjósóknarar og skyttur. Á Urðarteigi er gróðurlendi mjög af skornum skammti. Varð því að reiða sig á sjóinn sér til lífsbjargar. Aðalheiður var þriðja barn for- eldra sinna, en alls fæddust þeim níu börn. Eru nú aðeins tvö á lífi, eftir að Aðalheiður er öll, en þau eru Hansína og Gunnar. Þau sem látin eru, auk Aðalheið- ar, voru: Helgi, bóndi á Krossi á Berufjarðarströnd, Ragnar, verka- maður í Keflavík, Skúli, bóndi á Urðarteigi, Guðrún, dó ung, Guð- laug húsfreyja á Djúpavogi, og Unnur, húsfreyja á Litla-Hólmi í Leiru. Og lífið heldur áfram. Hinn 29. maí 1926 giftist Aðalheiður, þá rúm- lega tvítug, Kristjáni Þorsteinssyni frá Löndum í Stöðvarfirði. Varhann sonur bóndans þar á einu býlinu (þríbýli er á Löndum), Þorsteins Kristjánssonar og Guðlaugar Gutt- ormsdóttur prests í Stöð Vigfússonar konu hans. Hófu þau þegar búskap á Löndum. Kristján stundaði raunar sjó svo til eingöngu. Var hann dug- legur og aflasæll sjósóknari. Aflann verkaði hann með aðstoð fjölskyldu sinnar. Þá var saltfiskurinn þurrkað- ur, áður en hann gat talist söluhæf vara. Góð skilyrði voru til fiskþurrk- unar á Löndum, þar sem grófgerð möl er rétt við flæðarmálið. Eftir að frystihús var reist á Stöðvarfirði, lagði Kristján inn fisk sinn þar. Tveir synir Kristjáns réru með föður sínum strax og aldur leyfði. En mikið erfiði þola menn ekki þegar aldur fer að færast yfir. Upp úr fimmtugu voru kraftar Kristjáns teknir að bila, og Aðalheiður ekki heilsusterk þá. Varð þá að ráði að flytjast burt af jörðinni og setjast að í höfuðstaðnum. Kristján fékk vinnu hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkis- ins. Vann hann þar þar til sjötugs- aldri var náð. Ekki lifði hann lengi eftir það, tók banvænan sjúkdóm og leið miklar þjáningar áður en dauð- inn batt enda á þær. Hann andaðist 19. apríl 1977, en fæddur var hann 19. febrúar 1905. . Átti þetta ekki að vera minningar- grein helguð henni Aðalheiði? Jú, vissulega, en þar sem Kristján var lífsförunautur hennar um hálfa öld, gat ekki hjá því farið að hans væri einnig getið í þessum minningarorð- um. Heimili þeirra á Kleppsvegi 118 var hlýlegt. Kristján var bókamaður og las mikið. Hún var iðin við handavinnu, prjónaði á alla fjöl- skyldumeðlimina til hins síðasta meðan heilsa og þróttur leyfði. Sem betur fór, var Aðalheiður ekki las- burða lengi, áður en dauðinn barði að dyrum. Um ársbil. Við hjón litum inn til Aðalheiðar einstöku sinnum eftir að hún var orðin ein í snotru íbúðinni sinni. Hún var svo glöð og hress, að öllum hlaut að líða vel í návist hennar. Hún naut þess að lifa. Og hún var ánægð með hið liðna. Hún eignaðist ágætan eiginmann og efnileg börn, sem reyndust henni vel. Þegar Kristján var allur skrifaði ég stutta minningargrein um hann í blöðin. Þá var Aðalheiður enn hin hressasta til heilsu. Og alltaf var hún lagleg kona. Aldurinn breytti henni undra lítið. Og ég held, að hin létta lund hennar hafi átt þar ríkan þátt. Börn Aðalheiðar og Kristjáns eru öll búsett á Reykjavíkursvæðinu. Þau eru Þorsteinn, Guðrún, Sigurð- ur og Brynhildur. f huga mínum geymi ég bjarta mynd af henni Aðalheiði frá Urðar- teigi, eða á kannski að telja hana frá Löndum? Það skiptir ekki miklu máli. Nú er hún komin heim eftir langa og farsæla ferð. Lífið var henni gjöfult, hún skilur eftir sig mæta niðja, og það sem mest er um vert: þakklæti í hugum þeirra sem henni kynntust. Við hjónin sendum aðstandend- um hinnar látnu sómakonu innilegar samúðarkveðjur. Fari hún í friði, friður Guðs hana blessi. Auðunn Bragi Sveinsson f dag fylgjum við tengdamóður minni Aðalheiði Sigríði Sigurðar- dóttur til hinstu hvíldar. Margt kem- ur í hugann á slíkum stundum. Efst er þakklætið fyrir að fá að eiga hana að. Hún fæddist á Urðarteigi í Beru- firði 3. ágúst 1903. Bærinn stendur í einu hrikalegasta bæjarstæði sem sést. í fljótu bragði virðist það aðeins vera stórgrýtisurð. En hann stendur undir einu tignarlegasta fjalli landsins, Búlandstindi. Trúlega hefur Aðalheiður lært að meta feg- urð landsins þar. 29. maí 1926 giftist hún Kristjáni Þorsteinssyni og bjuggu þau í Löndum, Stöðvarfirði til ársins 1957, er þau fluttust til Reykjavíkur. Þau eignuðust 4 börn, sem öll eru á lífi. Afkomendur þeirra eru nú 32. Kristján lést árið 1977. Aðalheiður hafði unun af að ferð- ast um landið og mátti þá helst ekki missa af neinu. Að öllu varð að dást. A.m.k. tvisvar fór hún sjóleiðina kringum landið með manni sínum. Mér finnst ég enn heyra hana segja: „Oh, fjöllin voru svo falleg". Gengi maður með henni úti í náttúrunni, varð hvert blóm og gras að aðdá- unarefni og hún vissi nöfn á flestu. Að ég nú ekki tali um áhuga hennar á fallegum steinum. Hún átti talsvert safn, sem prýddi heimili hennar. Hún las mikið og þá helst eitthvað fróðlegt, enda vel heima um menn og málefni. Þó hún nyti ekki mikillar menntunar, ntiðað við það, sem nú gerist, var hún menntaðri bæði í háttum og tali en margur langskóla- genginn. Aldrei varð henni t.d. á stafsetningarvilla. Slík var tilfinning hennar fyrir málinu. Yfir heimili hennar hvíldi friður og gleði og öll barnabörnin löðuðust að henni. Hún var þeim ómetanleg amma. Hennar ánægja var að gleðja þau og aðra. Sárlasin útbjó hún að vanda handa þeim og okkur öllum jólapakka s.l. jól. Mest var það mjög smekkleg handavinna hennar sjálfrar. Hún var falleg kona og vakti athygli uppábúin í íslenska búningn- um sínum og möttlinum. Að leikslokum stendur eftir í hugum okkar yndisleg kona, sem stóð á bak við fjölskyldu sína alltaf glaðleg, blíð og full af umhyggju fyrirokkuröllum. Fyrir það þökkum við í dag. Hvíli hún í friði. Jónína Eiríksdóttir Kveðjuorð að austan Einn af minnstu Austfjörðunum er Stöðvarfjörður. Yst við fjörðinn að austan til eru bæirnir í Löndum. Þeir standa undir allháum kletta- brúnum, sem liggja í sveig fyrir ofan bæina. í brekkunum neðan við klett- ana vaxa á sumrum margar fallegar blómjurtir eins og bláklukka og blágresi. Landatangi skerst út í fjörðinn til suðurs. Þar út og suður af eru rastir, en í hléi við tangann inni á Landabótinni er mjög gott bátalægi og uppsátur í fjöru. Þaðan voru oft margir bátar gerðir út fyrr á árum. Þegar ég var strákur að alast upp í þessu áhrifamikla umhverfi bjuggu bróðir minn Kristján, Aðalheiður kona hans og börn þeirra, Þorsteinn, Guðrún, Sigurður og Brynhildur í Mið-Löndum. Samskipti mín við þau voru dagleg. Ég átti margar ferðirnar yfir túnið út í Hús ýmissa erinda, svo sem til að spjalla saman, fá lánaðar bækur, hlusta á útvarp, eða jafnvel til að leika leikrit með frændsystkinum mínum, sem við settum á svið í stofunni hjá þeirn bróður mínum og mágkonu. Ég man svo vel, að Aðalheiður hvatti okkur varðandi þetta og sagði að lokinni sýningu: „Þið stóðuð ykkur vel krakkar mínir“. Þannig var Aðal- heiður skilningsrík við alla og ekki síst við unglingana, sem í návist hennar voru. Nú cr hún lögð upp í ferðina miklu, á Drottins fund. Þar siglir hún sæinn með manni sínum Kristjáni í gamla bátnum hans, Framfara, eins og hún gerði stundum er þau bjuggu í Löndum. Reyndar var það fremur hennar mikilvæga hlutverk, eins og svo margra annarra íslenskra kvenna að sjá um hlutina í landi, þegar eigin- maðurinn var á sjó. í því efni var Aðalheiður eins og klettur úr hafinu. Hún bjó fólki sínu mjög svo notalegt heimili, eiginmanni, börnum og sjómönnum, sem voru á bátnum með Kristjáni. Aðalheiður hafði frá barnæsku kynnst lífinu við sjóinn, því hún var fædd og uppalin í Urðarteigi við Berufjörð. Það var notalegt fyrir sjómennina á Landa- bátnum Framfara, sem oft stigu krappan dans við öldur ægis við hin austustu nes, að eiga í vændum hlýjar móttökur húsfreyjunnar í Mið-Löndum. En slíkt var Aðal- heiði eðlilegt, því hún var myndar- húsmóðir í matseld og saumaskap, og prýddi heimilið með blómum, sumum úr Landabrekkunum. Hún vildi að allir hlutir væru í sem bestu lagi, eftir því sem efni og aðstæður leyfðu. Mér er óhætt að segja, að hún kunni þá list að gera mikið úr stundum litlum efnum. Þó að bróðir minn og hún væru aldrei sérstaklega fátæk, eins og sumt fólk var á íslandi, sem hóf búskap á kreppuár- unum, fyrir síðustu heimsstyrjöld. Vissulega voru þau ekki rík af ver- aldar gæðum, en þeini mun ríkari af þeirri hjartahlýju, sem þarf til að laða að sér ungviði og aðra þá, sem hennar þurfa að njóta. En árin líða og kynslóðir koma og fara, fólkinu í Löndum hefur fækkað eins og svo víða á landsbyggðinni. Nú eru ekki lengur bátar í fjöru í Löndum eins og var í tíð Kristjáns og föður míns og afa. Þau Aðalheið- ur og Kristján fluttu frá Löndum haustið 1958ogfórutil Reykjavíkur. Þar eignuðust þau hlýlegt og nota- legt heimili, fyrst í Njörvasundi og síðar á Kleppsveginum. Þau að- löguðust fljótt nýjum og breyttum staðháttum, en oft leitaði hugur þeirra austur á bóginn, þar sem þau höfðu tekist á við öðruvísi lífsbaráttu en höfuðborgarlífið er. Sitthvað var sem minnti á gantlar slóðir undir klettunum við hið ysta haf. Á vegg í íbúðinni var málverk af Löndum og á skrifborði var mynd af gamla bátnum Framfara á Landabótinni, þar sem Kristján stóð sjógallaður við stýri. Þetta yfirbragð og alúð þeirra hjóna laðaði að. Oft átti ég og fjölskylda mín leið til þeirra á Kleppsveginn og nú síðustu árin til Aðalheiðar. Alltaf var okkur vel tekið eins og í gamla daga, þá er ég hljóp yfir túnið út á Hús. Ávallt var Aðalheiður veitandinn, jákvæð og bjartsýn. í hennar fari sannaðist að sælla er að gefa en þiggja. Góð- mennskan geislaði af henni. Fyrir þetta allt þökkum við þér kæra mágkona nú við þessi leiðar- lok. Það er trúa mín, að Kristján sé viðbúinn mcð gamla bátinn sinn, svo að þið getið siglt saman á eilífðar- sænum. Ég bið Drottin að beina fari ykkar hjónanna framhjá röstunum inn á öruggan sjó hinnar miklu sköpunar og eilífa lífsins, þar sem Drottinn sjálfur stendur við stjórn- völinn á lífsfarinu mikla frá upphafi til lokatakmarksins. Einar Þ. Þorsteinsson Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minningar- greinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tvcim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að vera vélritaðar. The Smithereens - Green Thoughts: Stjórnmálin og málalengingar Stjörnugjöf frá einni til fimm = ★★★ Á dögunum fékk ég í hendurnar nýjustu afurð kókþambarana í The Smithereens. Eftir þeirra síðustu plötu + tónleika + orðspors + annarra afurða þeirra, varðégfyrir vonbrigðum. Ég hafði nefnilega gert mér nokkuð háar vonir um þessa plötu. Green Thoughts, sem ég hef leyft mér að nefna „Pólitísku plötu- na“, hefur að geyma 11 lög, 10 þeirra eftir höfuðpaurinn Pat Di- Nizio og það 11. eftir DiNizio og Jim Babjak, gítarleikarann góð- kunna. Ég hef, eins og áður sagði nefnt plötuna „Pólitísku plötuna", því heiti laganna minnir mann auð- veldlega á stjórnmál. Fyrsta lagið, Only A Memory, getur t.d. auð- veldlega átt við fylgi Borgara- flokksins. Það næsta, House We Used to Live In, gæti minnt á hugsanir Bandalags jafnaðar- manna þegar þeir horfa á Alþingis- húsið. Something New getur pass- að við splunkunýtt fylgi Kvenna- listans. The World We Know, gæti átt við deilur innan Alþýðubanda- lagsins. Especially For You, gæti átt við stefnuskrá Framsóknar- flokksins. Drown In My Own Tears, Deep Black, Elaine og Spellbound getur átt við Flokk mannsins og Grænfriðungana. If The Sun Doesn’t Shine getur átt við Alþýðuflokkinn ef húsnæðis- málabreytingarnar ganga ekki í gegn. Og loks getur Green Thoughts aftur átt við Framsókn- arflokkinn. En einhvern veginn er ég sann- færður um að DiNizio hafði ís- lensku stjórnmálaflokkanna ekki í huga þegar hann samdi lögin. Nóg um það, í bili að minnsta kosti. Platan sjálf er ósköp venjuleg. Hún er kringlótt, svört, með gati í miðjunni og kringlóttan límmiða í kring. (Ástæðan fyrir málalenging- unum er einfaldlega sú að ég á erfitt með að skrifa leiðinlega um hljómsveit sem ég hefi venjulega gaman af). Ég dembi mér samt í veðurbar- inn sannleikann. Ég varð fyrir vonbrigðum. Ég bjóst við plötunni miklu betri. Þetta er alls ekki slæm plata, en * hún er heldur alls ekki mjög góð. Svekkelsi á svekkelsi ofan, er það sem ég segi og skrifa. Platan er ekki áhugavekjandi og verðskuldar í raun ekki meira pláss íTímanum. -SÓL

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.