Tíminn - 27.05.1988, Síða 16
16 Tíminn
Föstudagur 27. maí 1988
DAGBÓK
Tónleikar samkórs
Trésmiðafélags Reykjavíkur
Á morgun laugardag 28. maí heldur
samkór Trésmiðafélags Reykjavíkur sína
árlegu tónleika í Breiðholtskirkju í
Mjódd. Sungin verða innlend og erlend
lög undir stjórn Guðjóns Böðvars Jóns-
sonar við undirleik Láru Rafnsdóttur.
Seinna í sumar mun kórinn halda til
Óðinsvéa og taka þar þátt í móti nor-
rænna verkalýðskóra og lúðrasveita og er
gert ráð fyrir um 7000 þátttakendum.
Nýir listamenn í
Gallerí Gangskör
Myndlistarmennirnir Anna Gunn-
laugsdóttir, Áslaug Höskuldsdóttir, Mar-
grét Jónsdóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir
og Sigrún Olsen hafa bæst í hóp Gang-
skörunga sem nú eru tólf og standa
listamennirnir alfarið að rekstri gallerís-
ins. Ýmissa breytinga er að vænta á
starfsemi gallerísins við þennan góða
liðsauka. Ákveðið hefur verið að standa
að samsýningu á Listahátíð nú í júní.
Frá upphafi hefur gallcrí Gangskör
haft opið alla daga vikunnar, en sú
Meðlimir Gallerí Gangskör efri röð
talið frá vinstri: Áslaug Höskuldsdótt-
ir, Lísa K. Guðjónsdóttir, Hafdís Ólafs-
dóttir, Jenný Guðmundsdóttir, Ragna
Ingimundardóttir, Margrét Jónsdóttir,
Anna Guðlaugsdóttir. Neðri röð:
Kristjana Samper, Lísbet Sveinsdóttir,
Sigrún Ólsen og Þórdís Alda Sigurðar-
dóttir, á myndina vantar Ragnhildi
Stefánsdóttur.
breyting hefur orðið á að nú er aðeins
opið frá þriðjudegi til föstudags frá 12-18.
Lokað er frá laugardegi til mánudags,
nema þegar sérsýningar eru í galleríinu.
Göngudagur
Ferðafélags Islands
Á sunnudag verður Ferðafélag Islands
með sérstakan göngudag 10. árið í röð.
Að venju er leitast við að velja gönguleið
sem er við allra hæfi og um leið forvitni-
leg.
Gangan hefst í brunanámum vestan við
Krýsuvíkurveginn. Við suðurenda nám-
unnar er gata sem hefur verið rudd í
gegnum Kapelluhraun fyrir ævalöngu og
kallast Hrauntungustígur. Hrauntungu-
stígur var áður einkum farinn af fótgang-
andi mönnum sem erindi áttu milli Krýsu-
víkur og Hafnarfjarðar. Gegnum úfið
Kapelluhraunip er gengið eftir þessum
stíg og eftir um það bil 10 mín. göngu er
komið út úr hrauninu og tekur þá al-
menningur við. Þegar þangað er komið
reynist gatan ekki eins greinileg og í
upphafi, enda um torfærulaust land að
fara. Fylgt er hrauntungu sem nær nokk-
uð suður á Almenning og stígurinn dregur
nafn sitt af. Við suðurenda hrauntung-
unnar er tekin vestlægari stefna og eftir
um það bil 20 mínútna göngu er komið að
Gjáseli sem er undir brún Háalmennings.
Smá túnkragi er í kringum tóftina sem
enn er það greinileg að vel sést húsaskip-
an.
Þarna var haft í seli frá Þorbjarnastöð-
um og segir í jarðabók Árna Magnússon-'
ar og Páls Vídalín 1703: „Selstöðu á
jörðin þar sem kallað er Gjásel. Þar eru
hagar góðir en vatn slæmt".
I Gjáseli verður gert hlé á göngunni og
tekið upp nesti áður en haldið er til baka.
Þetta er kjörin gönguferð fyrir alla
fjölskylduna og ákjósanleg leið til þess að
efla kynni hinna yngri við eigið land.
Brottför kl. 13.00 frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Fólk á eigin bílum er
velkomið með. Næg bílastæði. Það kostar
ekkert að taka þátt í 10. GÖNGUDEGI
Ferðafélags Islands.
Útivist
Sunnudagur 29. maí: Strandaganga í
landnámi Ingólfs 14. ferð a og b. kl. 10.30.
Hunangshella-Hafnir-Stóra Sandvík.
Gcngið með ósabotnum um Hafnir,
Hafnaberg og Skjótarstaði. Örnefnaríkt
land, verð kr. 800.
Kl. 13.00 Kalmanstjörn-Stóra Sandvík.
Staðfróðir menn mæta í gönguna. Missið
ekki af „Strandgöngunni" verð kr.800,
frítt fyrir börn með fullorðnum. Brottför
frá BSÍ bensínsölu,
Sunnudagur 29 maí kl. 10.30. Fugla-
skoðunarferð á Hafnarberg. Gengið
verður frá Kalmanstjörn í rólegheitum
um Hafnarberg. Fjölbreytt fuglalíf. Leið-
beinandi Árni Waag. Hafið sjónauka
meðferðis. Verð kr.800. Brottför frá BSÍ
bensínsölu.
Kvöldferð miðvikudaginn 1. júní kl.20 í
Lambafellsgjá.
Þorlákskirkja
opin ferðamönnum
Á síðasta sumri tók sóknarnefnd Þor-
lákskirkju upp það nýmæli að hafa kirkj-
una opna ferðamönnum um helgar og
hafa þar staðkunnugt fólk, sem veitt gæti
gestum haldgóðar upplýsingar um
kirkjuna og byggðina í Þorlákshöfn.
Þessi nýbreytni gafst mjög vel. Nú
hefur verið ákveðið að hafa sama háttinn
á í sumar og hafa kirkjuna opna á
laugardögum og sunnudögum í júní, júlí
og ágúst.
Kirkjan verður opin og leiðsögumenn
þar staddir kl. 15:00-19:00 báða dagana.
Ef þessi tími hentar ekki er hægt að
hringja í símanúmer sem er uppfest við
kirkjudyrnar, og fá annan tíma.
Ef hópar koma í miðri viku þarf að láta
vita um það með fyrirvara og hringja í
síma (99)3881 eða 3780 - til 10. júlí, en
eftir þann tíma í síma (99) 3638 eða 3990.
Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardaginn
28. maí. Lagt verður af stað frá Digra-
nesvegi 12 kl. 10:00.
„Fegursta litskrúð gefur nú að líta í
görðum bæjarins. Komið með í bæjarrölt-
ið. Samvera, súrefni, hreyfing. Nýlagað
molakaffi," segir í fréttatilkynningu frá
Hana nú í Kópavogi.
Jóhanna Bogadóttir í Borganesi
Á laugardag verður opnuð í Snorrabúð
í Borganesi sýning Jóhönnu Bogadóttur á
20 grafíkmyndum. Jóhanna hefur víða
sýnt í gegnum árin og prýða myndir
hennar veggi listasafna víða um veröld-
ina.
Sýning Jóhönnu stendur aðeins frá
laugardegi fram á mánudag.
Ragnar Lár sýnir í Þrastarskógi
Ragnar Lár opnaði fyrir skömmu sýningu
í Þrastalundi í Þrastaskógi. Þar sýnir
hann 14gvassogvatnslitamyndir. Sýning-
in verður opin alla daga næstu tvær
vikurnar.
Jóhann Eyfells sýnir í
Gallerí Svart á Hvítu
Á morgun laugardag 28. maí verður
opnuð í Gallerí Svart á hvítu Laufásvegi
17, sýning á verkum Jóhanns Eyfells.
Sýningin er hluti af dagskrá Listahátíðar
1988.
Jóhann Eyfells er fæddur 1923, og
hefur verið búsettur í Bandaríkjunum frá
árinu 1946, að undanskildum árunum
1965-1969 er hann kenndi við Myndlista-
og handíðaskóla fslands. Jóhann nam
arkitektúr og myndlist við háskóla í
Bandaríkjunum og hefur síðan 1969
gegnt prófessorstöðu við University of
Florida í Orlando.
Jóhann hefur aðeins haldið eina einka-
sýningu í Reykjavík, 1961, en 1964 og
1968 sýndi hann ásamt ciginkonu sinni
Kristínu Eyfells í Listamannaskálanum.
Þá var Jóhann einn 10 gestum Listahátíð-
ar á Kjarvalsstöðum 1984. Hann hefur
tekið þátt í samsýningum bæði austan
hafs og vestan og haldið einkasýningar.
Á sýningunni í Gallerí Svart á hvítu
verða verk unnin úr pappír og einn
skúlptúr. Pappírsverk sín kallar Jóhann
„Paper Collaptions" eða pappírssamfell-
Sýning Jóhanns Eyfells stendur til 15.
júní og er opin alla daga nema mánudaga
frá kl. 14-18.
Ljósmyndir á Mokka
Nú um helgina hefst á Mokkakaffi við
Skólavörðustíg sýning á u.þ.b. 30 ljós-
myndum eftir Davíð Þorsteinsson. Það er
myndunum sammerkt að vera allar teknar
inn á Mokka af gestum kaffihússins og
starfsliði. Myndirnar eru allar svart-hvítar
og eru flestar frá síðustu fimm árum.
Davíð hefur fengist við ljósmyndun í
allmörg ár sem áhugamaður og hefur
haldið eina einkasýningu áður, árið 1985
einnig á Mokka. Myndefni þeirrar sýning-
ar var götulífið í gamla miðbænum. Á
undanfömum fimm árum hefur Davíð
myndað óformlega og óforvarendis
marga gesti kaffihússins; ekki síst gáfu-
Iega menn og fagrar konur.
Ljósmyndunin hefur að mestu farið
fram í kyrrþey til að raska ekki ró manna
og rjúfa ekki grið og ævinlega án hjálpar-
lýsingar. Er það von Davíðs að menn taki
viljann fyrir verkið og láti sér ekki mislíka
þótt ef til vill hafi stundum ófimlega til
tekist.
Þjóðleikhúsið
Nú fer hver að verða síðastur að sjá
sýningu Þjóðleikhússins á Lygaranum
efir Goldoni, en síðasta sýning verksins
verður þann 29. maí. Þá eru aðeins örfáar
sýningar eftir á hinum geysivinsæla söng-
leik Vesalingunum, en það verður ekki á
tekið upp á nýju leikári.
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið verður með fé-
lagsvist á laugardag kl. 14 í félagsheimil-
inu Skeifunni 17. Um er að ræða para-
keppni og eru allir velkomnir.
lllllllll ÚTVARP/SJÓNVARP lllllllllllílllllllllllllllllllllllllll!lil!l||||l
Föstudagur
27. maí
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Gísli Jónasson
flytur.
7.00 Fróttir.
7.03 (morgunsárift meö Má Magnússyni. Frétta-
yfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna: „Stúart litli“ eftir
Elwin B. White. Anna Snorradóttir les þýðingu
sína (5). (Áðurflutt 1975).
9.30 Dagmál. Umsjón: Sigrún Björnsdóttir.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Gakktu með sjó. Þáttur í umsjá Ágústu
Björnsdóttur. (Frá Akureyri)
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. (Einnig útvarpað að loknum
fróttum á miðnætti).
12.00 Fréttayfirlit. Tónlist. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfróttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.35 Miðdegissagan: „Lyklar himnaríkis" eftir
A.J. Cronin. Gissur Ó. Erlingsson þýddi. Finn-
borg örnólfsdóttir les (9).
14.00 Fróttir. Tilkynningar.
14.05 Föstudagssyrpa. Umsjónarmaður: Magnús
Einarsson.
15.00 Fróttir.
15.15 Eitthvað þar... Þáttaröð um samtímabók-
menntir. Sjötti þáttur: Um breska leikritaskáldið
Caryl Churchill. Umsjón: Freyr Þormóðsson og
Kristín Ómarsdóttir. (Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Umsjón: Vemharður Linnet
og Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03Tónlist á síðdegi - Saint-Saéns, Crusell
og Liszt. a. Introduction og Rondo capriccioso
op. 28 eftir Camille Saint-Saéns. Arthur Grum-
iaux leikur á fiðlu með „Concerts Lamoureux“
hljómsveitinni; Manuel Rosenthal stjórnar. b.
Klarinettukonsert í f-moll op. 5 eftir Bernard
Crusell. Karl Leister leikur á klarinettu með
Sinfóníuhljómsveitinni í Lahti; Osmo Vánská
stjórnar. c. Ricordanza eftir Franz Liszt. Jorge
Bolet leikur á planó. d. Havanaise op. 83 eftir
Camille Saint-Saéns. Arthur Grumiaux leikur á
fiðlu með „Concerts Lamoureux" hljómsveitinni;
Manuel Rosenthal stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Hringtorgið. Sigurður Helgason og Óli H.
Þórðarson sjá um umferðarþátt.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Náttúruskoðun. Einar Egilsson flytur
þáttinn.
20.00 Tónlist eftir Richard Strauss. a. Fyrsti
þátturúrSónatínunr. 1 í F-dúr fyrir blásarasveit.
Hollenska blásarasveitin leikur; Edo de Waart
stjórnar. b. „Duett Concertino“ fyrir klarinettu,
fagott og strengjasveit. Manfred Weise leikur á
klarinettu og Wolfgang Liebscher á fagott með
Ríkishljómsveitinni í Dresden; Rudolf Kempe
stjórnar.
20.30 Kvöldvaka. a. Ljóð og saga Kvæði ort út af
íslenskum fornritum. Níundi þáttur: „Vikivaki“
eftir Guðmund Kamban. Gils Guðmundsson tók
saman. Lesari: Baldvin Halldórsson. b. Guð-
mundur Guöjónsson syngur lög eftir Sigfús
Halldórsson Höfundur leikur á píanó. c. Hrafns-
hjón Síðari hluti sögu eftir Líneyju Jóhannes-
dóttur. Margrét Ákadóttir les. d. Tryggvi
Tryggvason og félagar syngja Þórarinn Guð-
mundsson leikur á píanó. Kynnir: Helga Þ.
Stephensen.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Vísna- og þjóðlagatónlist.
23.00 Andvaka. Þáttur í umsjá Pálma Matthías-
sonar. (Frá Akureyri)
24.00 Fréttir.
24.10 Samhljómur. (Endurtekinn þáttur frá
morgni).
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fróttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið. Dasgurmálaútvarp með
fróttayfiriiti kl. 7.30 og 8.30 og fróttum kl. 8.00
og 9.00. Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblað-
anna að loknu fréttayfiriiti kl. 8.30. Rás 2 opnar
Jónsbók kl. 7.45. Margvíslegt annað efni:
Umferðin, færðin, veðrið, dagblöðin, landið,
miðin og útlönd sem dægurmálaútvarpið á rás
2 tekur fyrir þennan dag sem fyrri daga vikunnar.
- Leifur Hauksson, Egill Helgason og Sigurður
Þór Salvarsson.
10.05 Miðmorgunssyrpa. Umsjón: Kristín Björg
Þorsteinsdóttir.
12.00 Á hádegi. Dægurmálaútvarp á hádegi hefst
með yfirliti hádegisfrétta kl. 12.00. Stefán Jón
Hafstein flytur skýrslu um dægurmál og kynnir
hlustendaþjónustuna, þáttinn „Leitað svars“ og
vettvang fyrir hlustendur með „Orð í eyra“. Sími
hlustendaþjónustunnar er 693661.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón: Valgeir Skagfjörð.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarpiö skilar af sér
fyrir helgina. Illugi Jökulsson fjallar um fjölmiðla.
Ánnars eru stjórnmál, menning og ómenning í
víðum skilningi viðfangsefni dægurmálaút-
varpsins í síðasta þætti vikunnar í umsjá Ævars
Kjartanssonar, Guðrúnar Gunnarsdóttur og
Andreu Jónsdóttur.
19.00 Kvöldfróttir.
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Snúningur. Eva Albertsdóttir ber kveðjur
milli hlustenda og leikur óskalög.
02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fróttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum
kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.30-19.00 Svæðisútvarp Austurlands.
Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir.
SJÓNVARPIÐ
Föstudagur
27. maí
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir
19.00 Sindbað sæfari Þýskur teiknimyndaflokkur.
Leikraddir: Aðalsteinn Bergdal og Sigrún
Waage. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
19.25 Poppkorn. Umsjón Steingrímur Ólafsson.
Samsetning Ásgrímur Sverrisson.
19.50 Dagskrárkynning
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Staupasteinn Bandarískur gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.05 Derrick Þýskur sakamálamyndaflokkur með
Derrick lögregluforingja sem Horst Tappert
leikur. Þýðandi Veturliði Guðnason.
22.10 Morðingjarnir (The Killers) Bandarísk bíó-
mynd frá 1946 gerð eftir sögu Emest Heming-
ways. Leikstjóri Robert Siodmak. Aðalhlutverk
Burt Lancaster, Ava Gardner, Edmond O’Brien,
Albert Dekker og Sam Levene. Afbrotamaður í
eyðilegum smábæ sér sína sæng upp reidda er
tveimur leigumorðingjum er ætlað að koma
honum fyrir kattarnef. Þýðandi Gunnar Þor-
steinsson.
00.10 Útvarpsfréttir i dagskrárlok
Föstudagur
27. maí
16.25 Annað föðuriand. Another Country. Rússar
hafa löngum leitað njósnara í röðum nemenda
í breskum einkaskólum. Þessi mynd fjallar um
lífið innan veggja slíks skóla og hugarstríð
nemenda sem Rússar vilja fá til liðs við sig.
Aðalhlutverk: Rubert Evrett, Colin Firth, Michael
Jenn og Robert Addie. Leikstjóri: Marek Kaniev-
ska. Þýðandi: Ragnar Hólm Ragnarsson. Gold-
crest 1984. Sýningartími 90 mín.
17:55 Silfurhaukarnir Teiknimynd.
18.20 Föstudagsbitinn. Blandaður tónlistarþáttur
með viðtölum við hljómlistarfólk og ýmsum
uppákomum. Þýðandi: Ragnar Hólm Ragnars-
son.___________________________________________
19.19 19:19 Frétta- og fréttaskýringaþáttur ásamt
umfjöllun um þau málefni sem ofarlega eru á
baugi.
20.30 Alfred Hítchcock Þáttaröð með stuttum
myndum sem eru valdar, kynntar og þeim oft
stjómað af meistara hrollvekjunnar, Alfred
Hitchcock. Sýningartími 30 mín. Universal
1955-61. s/h.__________________________________
21.00 Ekkjurnar II Widows II. Spennandi fram-
haldsmyndaflokkur um eiginkonur látinna
glæpamanna sem Ijúka ætlunarverki eigin-
mannanna. 4. þáttur af 6. Aðalhlutverk: Ann
Mitchell, Maureen O'Farrell, Fiona Hendley og
David Calder. Leikstjóri: lan Toynton. Framleið-
andi: Linda Agran. Þýðandi: Yrr Bertelsdóttir.
Thames Television.
21.50 í Guðs nafni. Inn of the Sixth Happiness í
Guðs nafni fjaílar um enskan trúboða, Gladys
Awlward, sem fer til róstusvæða Kína í síðari
heimsstyrjöldinni til að boða kristna trú. Boð-
skapur hennar bar ótrúlegan árangur og hún
sneri mörgum heiðingjum til kristinnar trúar,
meðal annara kínverskum embættismanni.
Aðalhlutverk: Ingrid Bergman, Curt Júrgens og
Robert Donat. Leikstjóri: Buddy Adler. Framleið-
andi: Mark Robson. 20th Century Fox 1958.
Sýningartími 150 min.
23.20 Þú snýrð ekki aftur heim You can’t go
Home Again. I þessari bandarísku sjónvarps-
mynd öðlast sjálfsæfisöguleg bók Thomas
Wolfe nýtt líf. Myndin gerist um 1920 og segir
frá baráttu ungs rithöfundar, sem er staðráðinn
í því að vinna sér sess meðal hinna þekktu og
ríku. Aðalhlutverk: Lee Grant og Chris Sarand-
on. Leikstjóri: Ralph Nelson. Framleiðandi Bob
Markell. Þýðandi: Ólafur Jónsson. CBS 1979.
Sýningartími 100 mín.
02:00 Hættustund. Final Jeopardy. Mynd um ung
hjón sem ætla að gera sér glaðan dag í
stórborginni Detroit. Þau lenda í ógöngum og
dagur verður að nótt og nóttin að martröð.
Aðalhlutverk: Richard Thomas, Mary Crosby,
Jeff Corey. Leikstjóri: Michael Pressman. Þýð-
andi: Tryggvi Þórhallson. Lorimar 1985. Sýning-
artími 85mín.
03.30 Dagskrárlok.