Tíminn - 27.05.1988, Page 20
STRUMPARNIR
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Okeypis þjónusta
Tíminn
Tíminn
Malarekstur ullarfyrirtækja í Bandaríkjunum:
Pólarprjón vinnur
milljóna málaferli
Alríkisdómur í Los Angeles hefur kveöið upp þann dóm að
innheimtukrafa Pólarprjóns hf. á Blönduósi gegn fyrirtækinu
Icelander Inc. og hjónunum Doriet og Árna Egilssyni skuli
viðurkennd að fullu. Dómurinn staðfesti sömuleiðis sanngirni
vaxtakröfu, sem mun óvenjulegt í Bandaríkjunum.
Krafa Pólarprjóns var vegna vöru-
sendingar að verðmæti um 200 þús.
dollarar sem fór úr landi árið 1984,
en fekkst aldrei greidd. Miðað við
núverandi gengi er höfuðstóll kröf-
unnar hátt í 9 millj. ísl. króna, sem
getur hækkað töluvert þegar vextir
bætast við. Málareksturinn hefur
Hópur þjófa að
störfum
Handtekin
sleppt og
handtekin
aftur
Hópur ungmenna á aldrinum 17-
20 ára var staðinn að verki aðfara-
nótt fimmtudagsins, þar sem þau
voru að stela hljómflutningstækjum
úr bílum. Lögreglan kom á staðinn
og handtók hópinn og flutti á stöð-
ina. Um klukkan fjögur var þeim
síðan sleppt þar sem málið upplýstist
að fullu.
Einni klukkustund síðar var hóp-
urinn svo handtekinn aftur, þar sem
hann var síður en svo tilbúinn til að
hætta iðju sinni og hafði haldið
uppteknum hætti. Að þessu sinni
var hópurinn á stöðinni í lengri tíma.
-SÓL
aftur á móti kostað verulega fjár-
muni, þannig að óljóst er hver nettó
niðurstaðan verður þegar allt hefur
verið gert upp.
Þetta innheimtumál Pólarprjóns
og annarra ullarvörufyrirtækja hér á
landi sem því tengdust og sxðan
viðbrögð stefndu þróaðist út í
margra ára málaferli, stefnur og
gagnstefnur fyrir dómstólum í Chi-
.cago og Los Angeles. Doriet Egils-
son gagnstefndi m.a. fjölda íslenskra
ullarvörufyrirtækja, m.a. Álafossi
hf., og setti fram milljóna dollara
skaðabótakröfur sem hún byggði á
því að um samsæri væri að ræða gegn
þeim hjónum í því skyni að gera þau
gjaldþrota. Þeim málum hefursmám
saman verið hnekkt með mikilli
vinnu, skjalagerð og vitnaleiðslum
upp á þúsundir blaðsíðna. Fjöldi
manns hefur m.a. farið héðan til að
bera vitni í Bandaríkjunum.
Lögmönnum deiluaðila tókst loks
að semja um að falla frá eða draga
til baka allar þær kröfur fyrir tiltölu-
lega skömmu síðan. Innheimtumál
Pólarprjóns fór þá eitt til dóms, sem
nú hefur verið felldur Pólarprjóni í
vil, sem fyrr greinir. Þótt eigendur
Icelander Inc. hafi óskað eftir gjald-
þrotaúrskurði, sem ekki hefur verið
tekinn fyrir, mun það ekki skipta
sköpum, þar sem þau ráku fyrirtækið
á eigin ábyrgð þegar krafan varð til
og eru því persónulega ábyrg. Mun
lægri kröfur sem mörg önnur ullar-
vörufyrirtæki áttu á Icelander Inc.
og/eða þau Egilssonhjón munu hins
vegar vera þeim fyrirtækjum glatað-
ar.
Heimir Hannesson hdl. hefur far-
ið með þessi mál bæði fyrir hönd
Álafoss og Pólarprjóns. Hann stað-
festi í samtali við Tímann að ofan-
greindur efnisdómur lægi fyrir, en
vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
málsatvik á þessu stigi. Heimir býst
við að úrskurðar um vextina sé að
vænta mjög fljótlega. - HEI
Hjólað fyrir fatlaða
Hjólreiðadagur í þágu fatlaðra Allir verða ræstir á sama tíma,
verður á sunnudag. Hver einasti
hjólreiðamaður sem þátt tekur í
dagskrá dagsins skilar 76 krónum
til fatlaðrá. Fyrirtæki í Kringlunni
hafa heitið 76 krónum á hvern
hjólreiðamann og mun allt fé sem
safnast renna til eflingar á íþrótta-
starfi fatlaðra. Hjólað verður frá
sjö stöðum í Reykjavík og Kópa-
vogi, í Kringluna. Staðimir sem
lagt verður upp frá eru: Árbæjar-,
Hólabrekku-, Selja-, Langholts-,
Mela- og Austurbæjarskóli. Sjö-
undi staðurinn er BYKO við Ný-
býlaveg í Kópavogi. Vilji einhverj-
ir hjóla styttri vegalengd er bara að
bætast í hópinn á miðri leið.
eða klukkan 14 og það verður
útvarpsstöðin Bylgjan sem gefur
rásmerkið. Þegar komið er í mark
verður þátttakendum boðið upp á
hressingu og allir fá barmmerki,
sem jafnframt er happdrættismiði.
Aðstandendur Hjólreiðadagsins
hvetja fólk á öllum aldrei til að
hjóla á sunnudag og þar með
leggja sitt af mörkum til fjáröflunar
íþróttastarfs fatlaðra.
Þá er rétt að drífa sig í að kanna
ástand hjólsins, svo allir komist nú
klakklaust á leiðarenda. Lögreglan
cr einmitt þessa dagana að kanna
ástand reiðhjóla í Reykjavík og
verður svo næstu daga.
:
Þessi unga stúlka getur óhikað tekið þátt í Hjóireiðadeginum á
sunnudag. Hennar hjól var í fínasta lagi og fékk hún viðurkenningu
fyrir það frá lögregiunni. (T(mlnn:P|atur)
G
ulltékki með mynd eykur öryggi þitt,
öryggi viðtakanda og öryggi bankans þíns.
Það fer ekki millí mála hver þú ert.
Sérprentun án aukakostnaðar!
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS