Tíminn - 31.05.1988, Page 5
Þriðjudagur 31. maí 1988
Tíminn 5
Yfirlæknir á meöferðarstöð í Kaupmannahöfn þungorður í garð Von Veritas
Segir sjúklinga flýja á
náttfötum í skjóli nætur
Urklippur úr dönsku blöðunum sl. fimmtudag og laugardag um Von Veritas-málið. Á innfelldu úrklippunni er
dæmi um auglýsingu frá Von Veritas. Þessi auglýsing birtist í Ekstrabladet sl. fimmtudag. f yfirskrifl
auglýsingarinnar segir: Afengisvandamál eða of mikið pilluát. Um þessa auglýsingu segir Gunnar Þorsteinsson,
forstöðumaður Von Veritas: „Einhvernveginn urðum við að láta vita af okkur. Annaðhvort var að hrinda af stað
slíkri auglýsingaherfcrð eða loka stöðinni.“
Von Veritas, íslensk/danska
áfengismeðferðarstöðin á Láglandi
í Danmörku, er heldur betur í
kastljósi danskra fjölmiðla þessa
dagana. Tilefnið eru ummæli Egils
Jensen, yfirlæknis nteðferðar-
stöðvar á Forchammervej í Kaup-
mannahöfn, á áfengisvarnarráð-
stefnu í Vingsted Centret við
Vejle, um Von Veritas meðferðar-
stöðina. Egill lét þar þung orð falla
um starfsemi Von Veritas og sagð-
ist m.a. vita þess mörg dæmi að
sjúklingar hafi flúið stöðina á fyrstu
dögum meðferðarinnar í skjóli
nætur á náttfötunum einum fata,
en fengið síðan bakreikninga upp
á allt að 40 þúsund danskar krónur
(nálægt 270 þúsund krónur íslensk-
ar) fyrir fullra fimm vikna meðferð.
Egill sagði að þarna væri um að
ræða sjúklinga sem ekki hefðu
getað staðið af sér „sálfræðilegan
heilaþvott Von Veritas," eins og
hann orðaði það.
Egill sagði það mjög ámælisvert
hvernig Von Veritas meðferðar-
stöðin gengi á eftir skuldum sjúk-
linga sinna með lögtaksaðgerðum.
Einnig gagnrýndi Egill það sem
hann kallaði óeðlilega auglýsinga-
mennsku stöðvarinnar við að lokka
til sín áfengissjúklinga.
Von Veritas í
kastljósi fjölmiðlanna
Þessi sjónarmið yfirlæknisins
hafa verið rækilega tíunduð í
dönskum fjölmiðlum á síðustu
dögum. Danska ríkissjónvarpið
gerði grein fyrir þeim í fréttatíma
sl. miðvikudagskvöld og dagblöð-
in, Ekstrabladet og Jyllandspost-
en, fylgdu málinu síðan eftir sl.
fimmtudag. En þar með er ekki
nema hálf sagan sögð því að út-
skrifaðir sjúklingar á meðferðar-
stöð Von Veritas hafa hver á fætur
öðrum stigið á stokk og andmælt
þessum orðum yfirlæknis í ræðu og
riti síðustu dægur. Danska ríkisút-
varpið og -sjónvarpið voru t.d. í
gær með viðtöl við nokkra útskrif-
aða sjúklinga Von Veritas-stöðvar-
innar sem mótmæltu harðlega þess-
um ummælum Jensens og í Ekstra-
blaðinu s.l. laugardag var mjög
harðorð grein eftir fyrrverandi
sjúkling á Von Veritas, þar sem
hann ver stöðina með kjafti og
klóm og segir orð Jensens byggð á
misskilningi og vankunnáttu.
Er ekki að gagnrýna
Minnesota-aðferðina
„Það sem ég er að gagnrýna fyrst
og fremst eru þær aðferðir sem
forsvarsmenn Von Veritas beita til
þess að fá sjúklinga inn á meðferð-
arstöðina, þ.e. með allskyns vafa-
samri auglýsingamennsku, og síð-
an hitt hvernig þessir sömu menn
meðhöndla þá einstaklinga sem
erfitt eiga að standa skil á útgjöld-
um vegna meðferðarinnar,“ sagði
Egill Jensen í samtali við Tímann
í gær. Egill sagðist aðspurður ekki
vera að gagnrýna í sjálfu sér þá
meðferð sem Von Veritas beitti,
þ.e. hina svokölluðu Minnesota-
aðferð, enda þekkti hann hana
ekki af eigin raun. „Ég þykist vita
að Minnesota-aðferðin hafi gagn-
ast mörgum áfengissjúklingum vel.
Raunar vitnar ágætur árangur af
henni t.d. á íslandi og Færeyjum
um það. En ég held samt að sú
aðferð sem birtist í meðferð Von
Veritas sé, ef nota má það orð, of
harðneskjuleg," sagði Egill
Jensen.
Úr lausu lofti gripið
Gunnar Þorsteinsson, forstöðu-
maður Von Veritas meðferðar-
stöðvarinnar, segist ekki gera sér
grein fyrir hvað vaki fyrir Jensen
með ummælum hans á áður-
greindri ráðstefnu. „Við höfum
alls ekki farið í neinar harðar
lögtaksaðgerðir með fyrrverandi
sjúklinga og því eru þau ummæli
Jensens algjörlega úr lausu lofti
gripin. Það rétta er að við höfum
lagt inn eina stefnu um innheimtu
vegna meðferðar," segir Gunnar.
„Þetta er ekki annað en ótti við
það að við sýnum hér fram á
mikinn árangur. Málið er það að
menn hafa reynt að finna þessari
stöð allt til foráttu, einkum þeir
sem hafa lífsviðurværi sitt af því að
vinna við alkóhólisma," bætti hann
við.
Lóðrétt lygi
Gunnar segir það fjarri sanni að
fólk þurfi að læðast burtu í skjóli
nætur, til þess að sleppa burtu frá
stöðinni. „Þetta er gjörsamlega út
í hött. Fólk fær auðvitað að fara ef
það vill ekki taka þátt í meðferð-
inni.“
Varðandi þau ummæli Jensens
að fólk þurfi að borga fyrir fulla
meðferð, þótt það sé ekki út allan
tímann (þ.e. fimm vikur), sagði
Gunnar að þau séu hreint ekki
svaraverð. „Þetta er hreint lóðrétt
lygi. Niðurstaða mín er sú að
maðurinn viti ekkert um meðferð-
ina,“ sagði Gunnar.
Snarpir vindar
Meðferðarstöð Von Veritas hef-
ur verið starfandi frá því í septem-
ber 1986. Þær aðferðir sem stöðin
beitir á áfengissjúklingana eru
mjög í takt við þær aðferðir sem
beitt er á Vogi, sjúkrastöð SÁA.
Það hafa ýmsir snarpir vindar
blásið um hana frá byrjun, m.a.
var sett á hana greiðslustöðvun
vegna gífurlegra fjárhagserfiðleika
á tímabili. En hún komst þó á legg
á nýjan leik og hefur nú á sínum
snærum urn 30 starfsmenn, ýmist
fast- eða lausráðna, þar af eru 18
íslendingar.
Gunnar segir að því sé ekki að
leyna að reksturinn sé og hafi verið
erfiður, en þess beri þó að geta að
daglegur rekstur sé réttum megin
við núllið, en hinsvegar sé gamall
skuldahali erfiður viðureignar.
Hann segir aðsókn að stöðinni hafi
verið mjög vaxandi að undanförnu
og nú séu um 50 sjúklingar þar.
Gunnar sagðist tvímælalaust telja
að Von Veritas væri komin til að
vera og kvaðst bjartsýnn á fram-
haldið.
Du har ikke hjulpet mig
en skid, hr. overlæge
f Ekstrablaðinu sl. laugardag er
vægast sagt mjög harðorð varnar-
grein fyrir Von Veritas, rituð af
blaðamanninum og áfengissjúkl-
ingnum, Morten Haslund, í tilefni
ummæla Egils Jensen yfirlæknis á
áfengisráðstefnunni. Morten segir
farir sínar ekki sléttar af meðferð
þeirri sem hann naut í tvígang hjá
nefndum Agli Jensen yfirlækni, og
segir að sú „pillumeðferð" scm
hann sé þekktur fyrir sé vita gagns-
laus og honum til minnkunar.
Morten segist ekki hafa bragðað
áfengi í hartnær eitt og hálft ár, eða
síðan hann gckk í gegnum meðferð
Von Veritas. Morten tekur fram af
gcfnu tilefni að hann hafi ekki enn
getað greitt fyrir dvöl sína hjá Von
Veritas, og stofnunin hafi síður en
svo gengið á eftir greiðslu. óþh
Lögreglan gerði íslenska fánann upptækan vegna brots á fánalögum:
Islenski fáninn lá í
göturæsi Bylgjunnar
Lögreglan í Reykjavík gerði ís-
lcnska þjóðfánann, ásamt þeim
breska. upptækan aðfaranótt laug-
ardagsins eftir að útvarpsstöðin
Bylgjan hafði brotið fánalögin.
Þannig var fáninn uppi mun lengur
en fánalög segjatil um, ogauk þcss
sem fánarnir lágu í göturæsi út-
varpsstöðvarinnar.
Lögreglan kom á staðinn klukk-
an fimmtán minútur fyrir eitt,
aðfaranótt laugardagsins, en um
daginn hafði Bylgjan verið með
kynningu í portinu, auk þess sem
þar var að hefjast rallkeppni. Með-
al keppanda var breskur ökumaður
og því var breski fáninn á staðnum.
„Jú, þeir fuku um koll fánarnir,
sem er gróft brot á fánalögum.
Lögreglan tók á þessu af mikilli
ábyrgð og mikilli festu. En í stað
þess að leiðbeina okkur hvernig á
að fara að lögum, þá tóku þeir það
til ráðs að gcra þá upptæka og
hótuðu að brenna fánann," sagði
Páll Þorsteinsson, útvarpsstjóri
Bylgjunnar í samtali við Tímann.
í fánalögum stendur að ekki
megi hafa fánann uppi eftir klukk-
an 8 síðdegis, og gæta þess jafnan.
þegar fáni er dreginn að húni að
hann snerti ekki jörð. Þá stendur
einmg:
„Óheimilt er að draga fána á
stöng sem er upplitaður, óhreinn,
trosnaður eða skemmdur að öðru
leyti, og ber jafnan að lagfæra
hann strax, að öðrum kosti skal
hann ónýttur, með því aö brenna
hann. Lögrcglan skal hafa eftirlit
með því að ofangreindu sé
framfylgt, og má gcra slíka fána
upptæka, séu þeir á almannafæri
utan eða innan húss.“
Fánarnir eru cnnþá í vörslu lög-
rcglunnar, þar seni Bylgjumenn
hafa enn ekki séð ástæðu til að
sækja fánana aftur.-SÓL
Þjónustuíbúðir Sjómannadagsráðs:
Annar áfangi
við Naustahlein
Pétur Sigurðsson, formaður Sjó-
mannadagsráðs, tók í gær fyrstu
skóflustungu að 2. áfanga verndaðra
þjónustuíbúða aldraðra að Nausta-
hleini í Garðabæ, en Sjómanna-
dagsráð hefur unnið ötullega að
málefnum aldraðra. Áætlað er að
framkvæmdir hefjist í júní og að
þeim verði lokið í nóvember á næsta
ári.
Byggðar verða 28 söluíbúðir, í
mismunandi stærð, í raðhúsformi.
Ibúðirnar verða seldar á kostnaðar-
verði og stefnt er að því að halda
kostnaði í lágmarki, þannig að verð
þessara íbúöa verði töluvert undir
gangverði slíkra íbúða á almennum
markaði. í 2. áfanga verndaðra þjón-
ustuíbúða sem lokið var við í janúar
1985 reyndist kostnaður um 20%
lægri en á almennum markaði.
Þjónusta við íbúðirnar verður
veitt frá Hrafnistu í Hafnarfirði sem
er eitt best búna heimili sinnar
tegundar á Norðurlöndum. JIH
/