Tíminn - 31.05.1988, Side 7
Þriðjudagur 31. maí 1988
Tíminn 7
íbúar viö Kleppsveginn í fýlu út í borgaryfirvöld
vegna fiskimjölsverksmiðjunnar á Kletti:
„Olyktin er okkur
íifandi að drepa
íbúar við Kleppsveginn eru í
mikilli fýlu út í borgaryfírvöld
þessa dagana, en vegna hægrar
noröanáttar leggur reyk úr físki-
mjölsverksmiðjunni á Kletti yfír
Sundahöfn og blokkirnar viö
Kleppsveginn. Peningalyktin sem
reyknum fylgir fer skiljanlega mjög
fyrir brjóstið á íbúunum og eru
dæmi þess að ofnæmissjúklingar
kasti upp vegna stybbunnar. Þrátt
fyrir kvartanir hafa borgaryfírvöld
ekki krafíð forráðamenn físki-
mjölsverksmiðjunnar um hreinsi-
búnað til að koma í veg fyrir
fískimjölsfýluna.
„Þessi ólykt er okkur lifandi að
drepa of við erum í mikilli fýlu út
í borgaryfirvöld fyrir að taka ekki
í taumana" sagði íbúi við Klepps-
veginn sem ekki vill láta nafns síns
getið, en hafði samband við Tím-
ann út af þessu máli. „Konan mín
sem er ofnæmissjúklingur hefur
hvað eftir annað kastað upp þegar
þessi ólykt leggst yfir blokkina og
smýgur inn um glugga, þó harð-
læstir séu. Ég veit fleiri dæmi um
að fólk hafi kastað upp vegna
lyktarinnar, síðast í gær þegar
stybban var fram úr hófi andstyggi-
leg."
Þessi tiltekni íbúi sagðist ekkert
skilja af hverju borgaryfirvöld lctu
það líðast að fiskimjölsverksmiöj-
an dældi frá sér þessum illa þefj-
andi reyk. „Það var allt vitlaust
vegna kaffilyktar sem barst frá
kaffibrennslu hér í bænum á sínum
tíma og það fyrirtæki var skikkað
til að setja upp dýran hreinsibúnað.
Má ég heldur biðja um ilmandi
góða kaffilyk en þessa bölvaða
óværu." -HM
„Það er mjög mismunandi hvað berst mikið inn hjá okkur. Það gerist þó nokkuð oft, það fer auðvitað eftir vindátt,
þetta getur verið mjög hvimleitt,“ sagði Soffía Oskarsdóttir íbúi við Kleppsveg. (Tímamynd Gunnar)
Friðrik Sigurðsson, formaður Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva:
Höf um í mesta lagi 1 /2 mánuð
Þriggja manna nefnd, skipuð á
fundi Landssambands fiskeldis- og
hafbeitarstöðva, gekk í vikunni á
fund Þorsteins Pálssonar, forsætis-
ráðherra, til að biðja ríkisstjórnina
um að flýta fjárfestingum í greininni,
vegna offramleiðslu á seiðum hér á
landi.
Friðrik Sigurðsson, formaður
sambandsins, sagði í samtali við
Tímann í gær, að Þorsteinn hefði
sagt að störfum starfshóps, sem
skipaður hefði verið til að kanna
málið, yrði flýtt. Þjóðhagsstofnun,
Veiðimálastofnun og Framkvæmda-
sjóður væru að athuga málið og
bjóst Friðrik við aö fundur yrði
haldinn í næstu viku.
„Þetta vinnst bara ekki hraðar í
íslenskastjórnkerfinu. En við höfum
hlotið jákvæðar undirtektir, m.a.
hjá Framkvæmdasjóði. En við höf-
um ekki nema viku, í mesta lagi
hálfan mánuð varðandi seiðin í haf-
beit. Það þýðir lítið fyrir menn að
vera að halda seiðunum í stöðvum,
ef þeir hafa svo enga möguleika á að
losna við þau þegar dregur fram á
sumarið, ef það er ekki til fjármagn
til að kaupa fleiri kvíar eða reisa
fleiri ker“ sagði Friðrik. -SÓL
„Bankarán“ í Landsbankanum:
Steig óvart
á banka-
ránshnapp
Lögreglan í Reykjavík fékk um
eittleytið í gær merki samkvæmt
boðkerfi um bankarán í Landsbank-
anum í Austurstræti.
Lögreglan brást að sjálfsögðu
snöggt við og þusti á vettvang með
vælandi sírenur og viðeigandi blikk-
Ijósum. Miðbærinn fylltist af lög-
regluþjónum sem skimuðu fránum
sjónum í miðbænum eftir banka-
ræningjanum eða ræningjunum.
Málið upplýstist hins vegar fljót-
lega, en þá kom í ljós að starfsmaður
í bankanum hafði óvart stigið á
viðvörunarhnappinn, enda hafði
ekkcrt rán átt sér stað. -SÓL
Einar Sigurðs-
son frá Bylgj-
unni til
Flugleiða
Einar Sigurðsson hefur veriö ráð-
inn fréttafulltrúi Flugleiða og kemur
til starfa hjá fyrirtækinu 15. júní.
Hann tckur við af Boga Ágústssyni,
sem hefur vcrið ráðinn fréttastjóri
sjónvarpsins.
Einar hcfur starfað við fjölmiðlun
í 12 ár, fyrst scm blaðamaður, síðan
dagskrárgerðarmaður og fréttamað-
ur í hljóðvarpi og sjónvarpi. Hann
réðst sem útvarpsstjóri til íslenska
útvarpsfclagsins hf. fyrir tveimur
árum og undirbjó þarog hratt afstað
starfsemi Bylgjunnar, fyrstu út-
varpsstöð í einkaeign hér á landi.
Einar lauk BA prófi í fjölmiðla-
fræði og síðan MSc prófi í stjórn-
málafélagsfræði frá The London
School of Economics 1983.
Einar er kvæntur dr. Kristínu
Ingólfsdóttur, lyfjafræðingi við Há-
skóla fslands. Þau eiga eina dóttur.
Nú getur þú látið það eftir þér að fá þér
nýjan leðurhornsófa í stofuna eða
sjónvarpsholið.
BERGEN hornsófinn er klæddur með
ekta nautaleðri á slitflötum en gervileðri á
utanverðri grind.
Stærð: 210 x265 cm.
Verð:
79.590.
húsgagna-höllin M
REYKJAVÍK