Tíminn - 31.05.1988, Qupperneq 15
Laugardagur 28. maí 1988
Tímínn 15
' ÁRNAÐ HEILLA illlllllll|!P!!!lllllilillll!fl ..■ '::ll:l!l!iiiii|!''i' ;■:'■"
70 ára:
Jóhann Magnusson
Jóhann!
Það er skrýtið að heimurinn virðist
vera inní sjálfum sér og við virðumst
vera inní heiminum. Og þó, þetta er
kannski ekkert skrýtið: fiskurinn er
í sjónum, fuglarnir í loftinu og
börnin inní móður sinni.
Er þá nokkuð skrýtið til í þessum
heimi, sem er inní sjálfum sér og
miðdepillinn er naflinn á okkur
sjálfum?
Jú, það er til dæmis afskaplega
skrýtið að þú, Jói á Breiðavaði, þessi
bráðungi unglingur, skulir vera orð-
inn sjötugur.
Venjulega eru menn orðnir ofur-
lítið eldri þegar þeir verða sjötugir
en þeir voru t.d. fimmtugir, en mér
finnst þú, Jóhann á Breiðavaði, vera
nákvæmlega jafn ungur núna eins og
þú varst í stórkostlegri, sögulegri og
reisnarmikilli fimmtugshátíð þinni.
Sennilega verður þú, Jóhann
bóndi á Breiðavaði, alltaf jafn
ungur.
Þetta er kannski ekkert skrýtið,
því menn eins og þú, Jóhann, sem
eru ungir inní sjálfum sér, verða
ávallt í ungum umbúðum og eru og
verða miðpunktar í umhverfi sínu.
Fyrir þrjátíu árum reyndar kom
ég fyrst inn í umhverfi þitt, Jóhann,
til að aðstoða læriföður minn, ná-
tengdan Breiðavaði, við að leggja
raflagnir í Breiðavaðsbæinn gamla.
Það var gaman. Pá varst þú bara
fertugur.
Síðan hafa mörg vötn til sjávar
runnið og brotið úr bökkum Breiða-
vaðsins í Lagarfljóti.
En þú, Jóhann bóndi, og fjöl-
, skylda þín, hafið brotið blað í sögu
Breiðavaðs og búskapar þar á svo
myndarlegan hátt að eftir er tekið.
Ekki bara þetta, þið hjón hafið
yngt upp úr sjálfum ykkur mann-
dómsfólk frá Breiðavaði.
bóndi á Breiðavaði
Þið hafið verið lánsöm, hjónin á
Breiðavaði, með elju ykkar, krafti
og greind, en þó fyrst og fremst með
bros á vör og þolinmæði búandans,
hafið þið sigrað það andstreymi sem
bóndinn á íslandi - já og í allri
vesturálfu - hefur fengið í kjölfar
tæknivæðingar landbúnaðar og ráð-
leysi peningapúkasjónarmiða vest-
rænnar menningar.
Já, bölvuð tæknin - hún hefur öllu
breytt, eða hvað? Kannski hefðum
við Jón Guðmundsson aldrei átt að
leggja rafmagn í gamla Breiðavaðs-
bæinn. Kannski hefðirþú, Jói, aldrei
átt að byggja nýja húsið, nýja fjósið
og stóra turninn. Þá hefðu kannski
Dagblaðsritstjórinn, ýmsir stórkrat-
ar, já og allir þessir hagspekingar í
steinsteyptu höllunum í Reykjavík,
sem spruttu víst upp af sjálfum sér
af útsæði verslunargróðans, ekki
haft svona margar andvökur sem
raun ber vitni. Þá hefði forystan
hugulsama í Reykjavík nægan tíma
til að vinna að dægurmálum sínum,
s.s. Borgarleikhúsi, Tónleikahöll,
Ráðhúsi, Veitingahúsi á Öskjuhlíð,
verslunarhöllum, íþróttamannvirkj-
um og bankamusterum, sem verða
til af „lág“vöxtum framleiðslunnar í
landinu; frið fyrir okkur þessum
jarðálfum dreifbýlisins sem í fásinnu
okkar trúum þvf enn að við verðum
að framleiða einhverjar efnisbundn-
ar vörur í þessu landi til að fram-
fleyta okkur sjálfum og kosta menn-
ingarleiki í höfuðborginni.
Þá væru forystumenn Álversins,
Eimskips og S.l.S. sem búa í stóru
höllunum í Laugarási ekki með and-
vökur yfir offjárfestingum í frysti-
húsum, fiskiskipum, í iðnaði og
landbúnaði á landsbyggðinni. Þá
gætu þeir haldið áfram að nota
gróðann til að reyna að metta stein-
steypuhugsjónina í Reykjavík og
vera þessir undarlegu miðpunktar í
sjálfum sér.
Nei og aftur nei. Svarið við þessu
öllu liggur hvað best til reiðu hjá
Einari Benediktssyni, þegar hann
segir í síðasta versi Kveðju Skírnis:
Sé forystan ónýt til boðs eða banns
skal byggja á sjálfsdáð hins einstaka manns.
Efafveg er stýrt fram til yztu þramar,
ef allsherjar skipun bælir og lamar,
á héraðið vald, milli heiðar og sands.
Sé almúginn sínum foringjum framar,
er festa hans vígsins síðasti hamar.
Vaknaðu, reistuþig, lýðurmínslands.“
Já, Jóhann bóndi á Breiðavaði, þú
hefur verið og ert þínum foringjum
framar. Þín festa er trúin á landið og
uppskeru þess.
Heill þér sjötugum, þú ungi
maður, og megir þú eiga framundan
mörg fögur ár á býli þínu, bóndi.
Með síðbúinni kveðju
Erling Garðar Jónasson
■II
MINNING
Valgeir Gunnarsson
Fæddur 12. nóvember 1958
Dáinn 4. aprfl 1988
Þeir sem guðirnir elska deyja
ungir.
Þessi setning flaug í gegnum huga
okkar þegar okkur var tilkynnt and-
lát Valla eins og hann var kallaður
af flestum sem þekktu hann. Er
kallið kom var Valli að vinna á
skíðasvæði KR í Skálafelli eins og
hann hafði gert um helgar undan-
farna vetur. Fullhraustur fór hann
að sofa að kvöldi páskadags, en
enginn ræður sínum næturstað, því
þá um nóttina varð hann bráðkvadd-
ur. Við sem eftir lifum spyrjum í
vanmætti okkar hver sé tilgangurinn
með því kalla burtu svo skyndilega
ungan og hraustan, son, bróður,
eiginmann og föður. Honum hlýtur
að vera ætlað eitthvað æðra
hlutverk, en við mennirnir þekkjum
og það mun hann rækja af sömu
trúmennsku og dugnaði og þau störf
sem honum voru falin í okkar heimi.
Valgeir var fæddur á fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Neskaupstað þann
12. nóvember 1958 og var því tæp-
lega þrítugur þegar hann lést. Hann
var sonur hjónanna Gunnars Lars-
sonar og Ólafar Ólafsdóttur, sem
bjuggu á Sigmundarhúsum í Helgu-
staðahreppi mestan sinn búskap, en
Gunnar lést fyrir nokkrum árum.
Valgeir ólst upp á Sigmundarhúsum
í stórum systkinahóp, en hann var
áttunda barn foreldra okkar af ellefu
og það fyrsta sem fellur frá.
Valgeir kynntist eftirlifandi konu
sinni Ástu Sigrúnu Gylfadóttur 1980
og eiga þau saman eina dóttur Elsu
*
Sænýju og væntu annars barns á
komandi sumri. Valli og Ásta byrj-
uðu sinn búskap á Neskaupstað en
þar er Ásta fædd og uppalin. Þau
fluttu síðan til Reykjavíkur og hófu
þar bæði nám og hefði Valli lokið
sínu trésmíðanámi nú innan nokk-
urra mánaða. Fyrir tæplega tveimur
árum keyptu þau Nudd- og gufubað-
stofuna á Hótel Sögu og hefur Ásta
séð um rekstur hennar síðan.
Valla var annt um sína heima-
byggð og kom í sveitina sína eins oft
og tími og aðstæður leyfðu, enda var
hann mikið náttúrubarn og hafði
unun af útiveru og ferðalögum.
Hann fór í margar fjallaferðir með
bræðrum sínum og vinum og naut
hann sín þá ekki hvað síst á vetrum
í misjöfnum veðrum, en honum
þótti veðrið aldrei vont, bara mis-
jafnlega gott. Valli var flestum
mönnum hraustari og naut sín alltaf
vel þegar takast þurfti á við veður og
náttúru. Valli var í eðli sínu glaðvær
og hafði gaman af því að vera með
fólki og gleðjast í góðum hóp. Hann
var lítið fyrir að láta hampa sér og
var vinnusamur, hjálpsamur og sér-
staklega viljugur að rétta öðrum
hjálparhönd. Hann hafði ákveðnar
skoðanir og var ófeiminn að láta þær
í Ijós.
Hans er nú sárt saknað af þeim
sem hann þekktu, en minningin um
lífsglaðan og góðan dreng mun lifa
og vera okkur sem sólargeisli í
sorginni og þannig verður minning
hans okkur vinum hans öllum styrk-
ur í lífsbaráttunni.
Elsku Ásta, Elsa Sæný og
mamraa. Algóður Guð styrki ykkur
og styðji á þessum erfiðleikatímum.
Guð blessi minningu Valgeirs Gunn-
arssonar.
Systkini.
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á
afmælis- og eða minningar-
greinum í blaðinu, er bent
á, að þær þurfa að berast
a.m.k. tveim dögum fyrir
birtingardag. Þær þurfa að
vera vélritaðar.
fn Innritun
'ir í framhaldsskóla
í Reykjavík
Tekið verður á móti umsóknum um námsvist í
framhaldsskóla í Reykjavík dagana 1. og 2. júní
næstkomandi í Miðbæjarskólanum í Reykjavík,
Fríkirkjuvegi 1, kl. 9.00-18.00 báða dagana.
Umsókn skal fylgja Ijósrit eða staðfest afrit af
prófskírteini.
í Miðbæjarskólanum verða jafnframt veittar upp-
lýsingar um þá framhaldsskóla, sem sækja á um
þar, en þeir eru:
Ármúlaskóli
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Iðnskólinn í Reykjavík
Kvennaskólinn í Reykjavík
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Menntaskólinn í Reykjavík
Menntaskólinn við Sund
Réttarholtsskóli (fornám)
Verslunarskóli íslands
Þeir sem ætla að sækja um námsvist í ofangreinda
framhaldsskóla eru því hvattir til að leggja inn
umsókn sína í Miðbæjarskólann 1. og 2. júní
næstkomandi.
Orðsending til
viðskiptavina
Globus h/f
Nú stendur yfir flutningur á öllum varahlutalager
fyrirtækisins að Lágmúla 7 (bakhúsið).
Meðan á þessum flutningum stendur má gera ráð
fyrir ýmsum óþægindum og afgreiðslutöfum á
varahlutum í allar þær vélar og bíla sem Globus
flytur inn. Okkar vaska fólk mun þó reyna að
annast afgreiðslu varahluta eins fljótt og unnt er
og varahlutadeildin mun hafa opið allan tímann.
Vonumst til að hlutir verði komnir í lag eftir 2-3
vikur og biðjum viðskiptavini okkar afsökunar á
óþægindum.
G/obus/
Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555
Fjórðungsmót
Vesturlands
Eigendur kappreiðahrossa, skráið hross ykkar á
Fjórðungsmótið á Kaldármelum, 30. júní - 3. júlí
hjá: Ólöfu í Nýjabæ í síma 93-51233 eða hjá Ernu
áStakkhamri í síma93-56667 í síðastalagi 6. júní.
Keppnisgreinar:
150 m skeið 1.vl. 17.000 2.vl.11.000 3.vl. 8.000
250 m skeið 1 .vl.26.000 2.vl.16.000 3.vl.12.000
250m unghr.hl 1.vl. 14.000 2.vl. 9.000 3.vl. 7.000
350 m stökk 1.vl. 14.000 2.vl. 9.000 3.vl. 7.000
800 m stökk 1.vl.17.000 2.vl.11.000 3.vl. 8.000
300 m stökk 1.vl.14.000 2.vl. 9.000 3.vl. 7.000
Skráningargjald er kr. 1.000,-
Framkvæmdanefndin.
Sveitavinna óskast
Ungur maður óskar eftir sveitavinnu, er vanur.
Upplýsingar í síma 12903.