Tíminn - 31.05.1988, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 31. maí 1988
16 Tíminn
DAGBÓK
llllllllllll
Skólaslit Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ
Fjölbrautaskólanum í Garöabæ var
slitið 21. maí s.l. meö brautskráningu 24
stúdenta og þriggja nemcnda af 2ja ára
brautum. Bestum námsárangri á stúd-
entsprófi náöu Ólafur Torfason á félags-
fra;ðibraut og Marta María Skúladóttir á
eölisfræði- og náttúrufræðibraut. Marta
lauk samtals 193 einingum.
Við skólaslitin söng skólakórinn undir
stjórn Guðlaugs Viktorssonar og Sigrún
Þorgeirsdóttir söng einsöng við undirleik
Láru Rafnsdóttur. Við skólann stunduðu
um 400 ncmendur nám í vetur.
Vinningsnúmer
Dregið hcfur verið í Vorhappdrætti
Tónlistarsambands alþýðu 1988.
Eftirfarandi númer komu upp:
1-2. Flugferð fyrir einn til Luxemburgar
með Flugleiðum nr. 438 og 210.
3-6. Geislaplötuspilari frá Ncsco nr. 1148,
610, 1426, 372.
Vinninga ber að vitja sem fyrst að
Hjallabraut 39, 1. hæð til vinstri, Hafnar-
firði (Torfi). Allarnánari upplýsingar eru
veittar í síma 51801.
Vornámskeið um
misþroska barna
Þriðja vornámskeið Greiningar- og ráð-
gjafarstöðvar ríkisins verður haldið í
Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni), 1. og
2. júní n.k.
Að þessu sinni fjallar námskeiðið um
misþroska, greiningu og meðferð og eru
þátttakendur úr flestum þeim faghópum
scm vinna með fötluð börn.
Misþroski (á ensku oft nefnt MBD eða
Minimal Brain Disfunction) er hugtak
sem notað er til að lýsa ástandi er nokkur
hluti barna býr við og vcldur þcim ýmsum
erfiðleikum við félagslcga aðlögun og við
skólanám þrátt fyrir cðlilega greind.
Vornámskeið Greiningarstöðvarinnar
hafa þann tilgang að veita þeim stóra hóp,
sem starfar við þjálfun, meðferö og
uppeldi barna og unglinga innsýn i þau
ýmsu þroskafrávik er cinatt gera vart við
sig. Stöðugt bætist við ný þekking á þessu
sviði, bæði varöandi greiningu og með-
fcrð sem brýnt er að koma á framfæri.
Fyrri námskciö hafa verið fullsetin, og
er ljóst að svo verður einnig í ár.
Stórsveit Tónlistarskólans
á Akureyri með tónleika
Stórsveit Tónlistarskólans á Akureyri
heldur sína árlcgu tónleika í samkomu-
húsinu á Akureyri (leikhúsi bæjarins),
miðvikudaginn 1. júní kl. 20.00. Hljóm-
sveitin hefur starfað í 6 ár, og stjórnandi
lengst af vcrið Edward Fredriksen, en
undanfarin tvö ár hafa þeir Finnur Eydal
og Norman H. Dcnnis veriðstjórnendur.
Aðal-sólóistar verða Finnur Eydal, Jón
Elvar Hafsteinsson og Eiríkur Rósbcrg.
Aðgöngumiðasala verður við inngang-
inn.
RRI
'rutboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. skóla-
skrifstofu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í gerð
hitakerfis í Hagaskóla í Reykjavík.
Verkið felst í því að leggja nýjar hitalagnir sem eru
ofnakerfi og aftengja geislahitunarkerfið sem fyrir
er í húsinu.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 15.000 skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
9. júní kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Heimsókn John Stott
ávegum KFUMogKFUK
Miðvikudaginn 1. júní n.k. vcrður
haldin almcnn samkoma í Neskirkju kl.
20.30 á vegum Landssambands KFUM
og KFUK, Sambands íslenskra kristni-
boðsfélaga og Kristilegra skólasamtaka.
Ræðumaður verður John Stott.
John Stott er enskur prestur og einn
allra þekktasti leiðtogi evangelískra krist-
inna manna í heiminum í dag. Hann var
lengi sóknarprestur við All Souls kirkjuna
í Lundúnum og hefur ferðast víða um
heim til fyrirlestrahalds. Hann er einn af
höfuðleiðtogum Lausanne-hreyfingar-
innar, sem eru samtök cvangeliskra krist-
inna manna, auk þess sem hann er einn
af leiðtogum kristilegu stúdentahreyfing-
arinnar IFES. Loks má geta þess að Stott
hefur ritað fjölmargar bækur um kristileg
efni. Tvær þcirra hafa verið þýddar á
íslensku; Sannleikurinn um Krist og
Kristindómur í jafnvægi.
Stott er heimsfrægur fuglaskoðari og
ein helsta tómstundaiðja lians er að taka
myndir af fuglum. Tilgangur hans með
heimsókninni til íslands er m.a. að skoða
varpstöðvar íslenskra fugla og taka hér
myndir.
Samkoman í Neskirkju verður eina
samkoman sem hann talar á í þessari
heimsókn. Hérerþví einstakt tækifæri að
heyra einn fremsta prédikara kristinnar
kirkju tala á íslandi.
Friðsamlegar lausnir
Stuðningshóp um friöaruppeldi og
Rauöakrossi (slands hefur borist erindi
frá WAO sem eru samtök er vinna að
veiferð munaðarlausra og yfirgefinna
barna um allan heim, þess efnis að hér á
landi scm og í öllum löndum heims vcrði
stofnuð landsnefnd um friðarfræðslu og
friðaruppcldi.
Forsaga þessa máls er að samtökin
WAO leggja áherslu á alþjóðlega sam-
vinnu til að koma í veg fyrir megin orsakir
þess að börn verði munaðarlaus og yfir-
gefin. Þar sem stríð og ofbeldi eru þarefst
á blaði hafa samtökin ákveðið að reyna
að fá börn til að afneita stríði og ofbeldi
til lausnar vandamálum og leggja í þess
stað áherslu á samvinnu og friðsamlegar
lausnir.
í bréfinu segir: Þar sem tvær megin
hindranir að þessu marki eru leikfanga-
vopn og ofbeldi í fjölmiðlum, höfum við
ákveðið að undirstrika þessa þætti með
tveggja vikna aögerðum sem hcfjast þann
7. sept. 1988 með degi helguðum eyðingu
leikfangavopna. Sá dagur verði upphafið
að friðarleikfangaviku. 1 kjölfar hennar
komi síðan friðarfjölmiðlavika fyrir börn.
Þessum aðgerðum Ijúki með alþjóðlegum
friðardegi barna þann 20. september.
Þegar hafa verið stofnaðar landsncfndir
í yfir 70 löndum. Samtökin leggja á það
áherslu aö liver landsnefnd hafi mjög
breiða þátttöku og í henni eigi fulltrúa
samtök, hreyfingar. félög, og stofnanir
sem á einhvcrn hátt geta haft áhrif á
velferð barna.
Ýmsar tillögur hafa borist um fram-
kvæmd þessara aðgcrða sem og um
áframhaldandi starf. Á þessu stigi málsins
er ekki unnt að gera grein fyrir þeim, en
við undirrituð væntum þess að viðkom-
andi samtök, hrcyfing, félag, stofnun eða
fyrirtæki skilji mikilvægi þessa erindis og
tilnefni einn fulltrúa hvert fyrir sig til að
vinna að aðgerðum í haust og að áfram-
haldandi starfi. Fulltrúunum verður síðan
gerð grein fyrir áðurnefndum tillögum.
Svar óskast sent í pósthólf 279-1221
Reykjavík, fyrir 11. júní ásamt nafni og
heimilisfangi tengiliðs éða fulltrúa. Síðan
verður boðaður stofnfundur landsnefndar
um þetta málefni.
Með friðarkveðju.
Hrund Sigurhansdóttir, Gréta Matthías-
dóttir, Anna Rósa Sigurjónsdóttir, Ól.
Oddsson, Freyja Þorsteinsdóttir, Ragn-
hildur Eggcrtsdóttir, Ásta L. Kristjáns-
dóttir, Steinunn Harðardóttir og Guð-
björg Kristjánsdóttir.
Félag eldri borgara
Opið hús Goðheimum Sigtúni 3 þriðju-
dag kl. 14.00 félagsvist og kl. 17.00
söngæfing.
Kynningarfundur Náttúru*
lækningafélaganna 1988
Náttúrulækningafélag fslands, ásamt
bandalagsfélögunum á Akureyri og í
Reykjavík, halda kynningarfund á Hótel
Loftleiðum ráðstefnusal, miðvikudaginn
1. júní kl. 20.30-23.00
Á dagskrá kynningarfundarins er fjöl-
breytt kynning á starfsemi Náttúrulækn-
ingafélaganna, sagt frá hugmyndum um
nýjungar í starfi og horft til framtíðar um
mikla grósku stefnunnar.
Á síðasta ári átti Náttúrulækningafélag
Islands 50 ára afmæli og hélt upp á það á
ýmsa vegu. í tilefni af því var ákveðið að
gera sjónvarpsmynd um félögin og verður
frumgerð hennar sýnd á þessum fundi.
Einnig var ákveðið að endurreisa tímarit
félagsins, Heilsuvernd, en fyrsta tölublað
eftir þær breytingar kemur út í byrjun
júní.
Á fundinum gefst áhugamönnum kost-
ur á að spyrja um stefnu félaganna og
ræða málin. Auk kynningar á Heilsuhæli
NLFÍ í Hveragerði og Náttúrulækninga-
félagi íslands, verða tvö stærstu banda-
lagsfélögin kynnt og sagt frá framtíðar-
áætlunum Náttúrulækningafélags Akur-
eyrar um byggingu heilsuhælisins í
Kjarnaskógi. Allir áhugamenn eru vel-
komnir.
ÚTVARP/SJÓNVARP
■1
Þriöjudagur
31. maí
6.45 Veðuríregnir. Bæn, séra Gísli Jónasson
flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið með Ragnheiði Ástu Péturs-
dóttur. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurf regnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna: „Stúart litli“ eftir
Elwin B. White. Anna Snorradóttir les þýðingu
sína (6).
9.30 Dagmál Umsjón: Sigrún Björnsdóttir.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson.
(Einnig útvarpað að loknum fréttum á miðnætti).
12.00 Fréttayfirlit. Tónlist. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.05 í dagsins önn - Hvað segir læknirinn?
Umsjón: Lilja Guðmundsdftir.
13.35 Miðdegissagan: „Lyklar himnaríkis" eftir
A.J. Cronin. Gissur Ó. Erlingsson þýddi. Finn-
borg örnólfsdóttir les (11).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Djassþáttur. Umsjón: Jón Múli Árnason.
(Endurtekinn þáttur frá miðvikudagskvóldi).
15.00 Fréttir. Tónlist.
15.20 Landpósturinn - Frá Suðurlandi. Umsjón:
Þoriákur Helgason.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Sæverud og Svendsen
a. Forleikur Appassionata op. 2 eftir Harald
Sæverud. Hljómsveit tónlistarfélagsins „Harm-
onien“ leikur; Karsten Andersen stjórnar. b.
Sinfónía nr. 1 í D-dúr op. 4 eftir Johan
Svendsen. Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar
leikur; Neeme Jáarvi stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Torgið. Umsjón: Jón Gunnar Grjetarsson.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Glugginn - Leikhús. Umsjón Þorgeir Ólafs-
son.
20.00 Kirkjutónlist. Flutt verk eftir pólsku tónskáld-
in Krzysztof Penderecki og Karol Szymanowski
við textann „Sabat mater". Trausti Þór Sverris-
son kynnir.
20.40 Börn og umhverfi (Endurtekinn lokaþáttur
Ásdísar Skúladóttur frá fimmtudegi).
21.10 Norræn dægurlög.
21.30 Útvarpssagan: „Sonurinn" eftir Sigbjörn
Hölmebakk. Sigurður Gunnarsson þýddi. Jón
Júlíusson les (17).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Leikrit: „Þrjár konur“ eftir Sylvíu Plath.
Þýðandi: Hallberg Hallmundsson. Leikstjóri:
Árni Blandon. Leikendur: Þórunn Magnea
Magnúsdóttir, Guðrún Gisladóttir og Sigrún
Edda Björnsdóttir. (Áður flutt í október sl.)
22.55 Tónlist eftir Györgi Ligeti. a. „Lontano"
fyrir stóra hljómsveit eftir György Ligeti. Sinfón-
íuhljómsveit útvarpsins í Baden-Baden; Ernest
Bour stjórnar. b. Tríó fyrir fiðlu, horn og píanó.
Saschko Gawriloff leikur á fiðlu, Hermann
Baumann á horn og Eckart Besch á píanó. c.
Tvöfaldur konsert fyrir flautu, óbó og hljómsveit.
Gunilla von Bahr leikur á flautu, Torleif Lánner-
holm á óbó og Sinfóníuhljómsveit sænska
útvarpsins; Elgar Howarth stjórnar.
24.00 Fréttir.
24.10 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson.
(Endurtekinn þáttur frá morgni).
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi i næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með
fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00.
Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
10.05 Miðmorgunssyrpa Kristínar Bjargar Þor-
steinsdóttur.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milli mála. - Rósa Guðný Þórsdóttir.
16.03 Dagskrá.
18.00 Kvöldskattur. Umsjón: GunnarSalvarsson.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Bláar nótur. Djass og blús.
23.00 Af fingrum fram.
24.10 Vökudraumar.
01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00
verður endurtekinn frá föstudegi þátturinn „Ljúfl-
ingslög" í umsjá Svanhildar Jakobsdóttur. Frétt-
ir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð
og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veður-
fregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
SJÓNVARPIÐ
Þriðjudagur
31. maí
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Bangsi besta skinn 20. þáttur (The Adven-
tures of Teddy Ruxpin) Breskur teiknimynda-
flokkur um Bangsa og vini hans. Leikraddir: örn
Árnason. Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
19.25 Poppkorn. Endursýndur þáttur frá 27. maí.
Umsjón: Steingrímur Ólafsson. Samsetning:
Ásgrímur Sverrisson.
19.50 Landið þitt ísland Endursýndur þáttur frá
21. maí.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Keltar (The Celts) - Þriðji þáttur: Heiðin
þrenning. Breskur heimildamyndaflokkur í sex
þáttum. Þýðandi og þulur Þorsteinn Helgason.
21.30 Rif úr mannsins síðu. (Rikets kultur) Um
mannsins tvíkynja eðli. Umræðuþáttur um forn-
ar arfsagnir um tvíkynja uppruna mannsins.
Leitast er við að sjá hvernig það endurspeglast
í listsköpun manna fyrr og síðar. Þýðandi:
Sigurgeir Steingrímsson. (Nordvision Sænska
sjónvarpið).
22.05 Taggart (Taggart - Murder in Season) -
Annar þáttur - Skoskur myndaflokkur í þremur
þáttum. Aðalhlutverk Mark McManus og Neil
Duncan. Þýðandi Gauti Kristmannsson.
23.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Þriðjudagur
31. maí
16.40 Leynifundir. Briel Encounter. Mynd þessi er
byggö á leik'riti eftir Noel Coward. Anna Jesson
er hamingjusamlega gift kona meö tvö böm.
Þegar hún af tilviljun hittir mann, sem hún hrífst
af, gerir hún heiðarlega tilraun til þess aö
standast freistinguna. Aðalhlutverk: Sophia Lor-
en og Richard Burton. Leikstjóri: Alan Bridges.
Framleiöendur: Carlo Ponti og Cecil Clarke.
Þýöandi: Björn Baldursson. ITC1975. Sýningar-
tími 100 mín.
18.20 Denni dæmalausi. Teiknimynd. Þýöandi:
Bergdís Ellertsdóttir.
18.45 Buffalo Bili. Skemmtiþáttur meö Dabney
Coleman og Joanna Cassidy í aöalhlutverkum.
Bill Bittinger tekur á móti gestum í sjónvarpssal.
Þýðandi: Halldóra Filippusdóttir. Lorimar.
19.1919:19. Fréttir og fréttaumfjöllun, íþróttir og
veður ásamt fréttatengdum innslögum.
20.30 Aftur til Guileyjar Return to Treasure Island.
Framhaldsmynd fyrir alla fjölskylduna. 9. þáttur
af 10. Aðalhlutverk: Brian Blessed og
Christopher Guard. Leikstjóri: Piers Haggard.
Framleiöandi: Alan Clayton. Þýðandi: Eiríkur
Brynjólfsson. HTV.
21.25 Iþróttir á þriöjudegi. Blandaður iþróttaþátt-
ur með efni úr ýmsum áttum. Umsjónarmaður
er Heimir Karlsson.
22.25 Friöa og dýriö. Beauty and the Beast.
Spennuþáttaröð meö rómantísku ívafi. Þýð-
andi: Daviö Þór Jónsson. Aðalhlutverk: Linda
Hamilton og Ron Perlman. Republic 1987.
23.10 Saga á síðkvöldi ArmchairThrillers. Moröin
i Chelsea The Chelsea Murders. Framhalds-
mynd um dularfull morö sem framin eru í
Chelsea í London. 5. hluti af 6. Aðalhlutverk:
Dave King, Anthony Carrick og Christopher
Bramwell. Leikstjóri: Derek Bennett. Framleið-
andi: Joan Rodker. Þýðandi:ÁgústaAxelsdóttir.
Thames Television.
23.35 Leikfléttur. Games Mother Never Taught
You. Ung kona hyggur á frama hjá stóru
fyrirtæki. Hún kemst þó fljótt aö því aö konur eru
ekki vel séðar og eftir þvi sem hún kemst ofar i
metorðastiganum eykst andstaöan. Aðalhlut-
verk: Loretta Swit og Sam Waterstone. Leik-
stjóri: Lieb Phillips. Framleiðandi: Tristine Rain-
er. Þýðandi: Tryggvi Þórhallsson. CBS 1984.
Sýningartími 90 mín.
01.10 Dagskrárlok.