Tíminn - 31.05.1988, Side 19

Tíminn - 31.05.1988, Side 19
Ij I J ^ i ~ w« J II Þriðjudagur 31. maí 1988 Tíminn 19 SPEGILL Elizabeth Taylor heimsækir kóngafólk í Thailandi Svo margir biðla til Elizabethar Taylor þessa dagana að hún virðist eiga erfitt með að ákveða hvern þeirra hún vilji helst eiga. Hún hefur Iíka langa reynslu í eigin- mönnum og veit að hjónabandssæl- an getur verið skammvinn. Einn þessara tryggu aðdáenda Elizabeth er Malcolm Forbes og hefur hann þann óumdeilanlega kost framyfir marga keppinauta sína að hann veit ekki aura sinna tal. Og það kann Elizabeth að meta. Nýlega bauð hann Elizabeth í siglingu á snekkjunni sinni „High- lander IV“ og lá leiðin m.a. til Thailands. í Bangkok var þeim tekið með kostum og kynjum. Pau fóru í konungshöllina og forsætis- ráðherra landsins tók á móti þeim. Schulabhorn prinsessa, næstelsta dóttir konungshjónanna, heimsótti þau um borð í snekkjuna og dáðist að listaverkunum sem þar hanga á veggjum eftir Gainsborough, Dufy og Toulouse-Lautrec. Já, Malcolm Forbes er loðinn um lófana og er reyndar álitinn marghundraðfaldur milljónamær- ingur. Meðal eigna hans er Boeing 727, höll í Normandý og önnur í Tanger. Til að sýna Elizabeth ást sína á áþreifanlegan hátt skenkti hann henni Harley Davidson mót- orhjól í sama lit og ilmvatnið „Passion", sem Elizabeth hefur sjálf lagt nafn sitt við. Hann hefur líka gefið eina milljón dollara til sjóðs sem fæst við rannsóknir á eyðni en Elizabeth er stjórnarfor- maður sjóðsins. Og svo hefur hann að sjálfsögðu líka ausið yfir hana dýrmætum skartgripum. Samt á Elizabeth enn í mestu vandræðum með að ákveða hvort hún er tilbúin að giftast þessum örláta manni. Það var tckið vel á móti Elizabcth Taylor og Malcolm Forbes í Thailandi og sólin skein í heiði. En skyldi henni ekki vera heitt með alla þessa skartgripi? Varð Dallas bani Donnu? Donna Reed og maður hennar, Grover Asmus, voru fyllilega ánægð með lífið, áður en Donna fór að leika í Dallas, sem hann fullyrðir að hafi orðiö bani hennar. - Mestu mistök, sem ég hef gcrt á ævinni, voru að taka að mér hlutverk Ellie í Dallas, sagði leikkonan Donna Reed við mann sinn, herforingja á eftirlaunum að nafni Grover Asmus. Þegar Barbara Bel Geddes veiktist og bað um að fá að hætta í Dallas, var ekki auðvelt að finna einhverja sem gæti tekið við hlut- verkinu. Larry Hagman taldi að móðir hans, Mary Martin, væri fædd í hlutverkið, en framleiðend- um fannst hún of gömul. svo þeir buðu Donnu það. Hún var Icngi í vafa, en lét loks undan. Hlutverkið varð henni erfitt og einkum kom þeim Larry illa saman, enda var hann móðgaður yfir að móðir hans, fyrrum Broad- waystjarna, fékk ekki hlutverkið. - Sá eini, sem var almennilegur við mig, var Howard Keel, sem lék manninn minn, sagði Donna. Áhorfendur voru heldur ekki hrifnir, svo reynt var að telja Barböru á að koma aftur sem Ellic, hvað hún samþykkti eftir miklar umræður. - Mér var sagt gcgn um síma, að ég ætti að hætta, sagði Donna. Hún hafði vcrið slæm í maga, síðan hún hóf leik í Dallas, en nú varð það að blæðandi magasári. Donna var bitur. - Ég hef leikið í 40 ár, en svona hefur aldrei verið komið fram við mig áður, sagði hún. - Það versta er, að mig langaði alls ekki til að gera þetta, en lét tilleiðast til að bjarga framleiðendunum úr klípu. Donna var lögð inn á sjúkrahús og þar komust læknar að því að hún var með magakrabbamein á háu stigi. Hálfum mánuði fyrir 65 ára afmæli sitt, lést hún í svcfni á heimili sínu í Beverly Hills. - Það er Dallas að kenna, að ég missti Donnu, segir maður hennar. - Sjónvarpsvinnan fór alvcg nteð hana, svo hún var örvæntingarfull og niðurbrotin manneskja. Donna var alla tíð stálhraust, þangað til hún byrjaði í Dallas. Kannske voru hinir leikararnir öfundsjúkir, því Donna var fyrsti Óskarsverð- launahafinn, sem lék í sápuóperu. Þess má geta að Donna fékk Ósk- arinn fyrir leik sinn í „Héðan til eilífðar" á móti Frank Sinatra fyrir 35 árum eða svo. Jar nes Bond fly tur Ötrúlegt afrek Þessi níu ára gamli snáði, Tony Allengena, er yngsti flugmaður, sem nokkurntíma hefur flogið þvert yfir Bandaríkin, báðar leiðir. Hann lagði af stað frá Kaliforníu á lítilli Cessnu þann 30. mars og kom heim aftur á páskadag. Með í vélinni voru flugkennari hans og fulltrúi hins opinbera, til að ganga úr skugga um að allt færi löglega fram. Drengurinn var dálítið þreyttur eftir afrekið, en farþegar hans sögðu að hann hefði flogið kórrétt allan tímann. Jafnvel á lengstu leiðunum gat hann einbeitt sér fyllilega og allar lendingar heppn- uðust prýðilega, þó veður væri misjafnt. Kannske má taka fram, að faðir drengsins er flugmaður og hefur kennt honum síðan áður en hann fór að ganga. 007, öðru nafni James Bond, spæjarinn, sem á orðið bágt með að vera leynilegur, þar sem allur heimurinn þekkir hann, hefur nú látið niður í ferðatöskur. Með leyfi til að drepa, stefnir hann á Mexíkó. Ástæðan er sú, að kostnaður við upptökur á Bond-myndunum heima í Englandi er kominn upp úr öllu valdi. 125 ár hafa Bond-mynd- irnar verið teknar upp í Pinewood- verinu, en nú er því lokið. Fyrir- tækið gerir ráð fyrir að spara rúmar 210 milljónir á því að flytja sig yfir hafið. Hitt er svo annað mál, að undir- búningur er hafinn fyrir töku 16. James Bond-myndarinnar, sem sögð er verða sú langdýrasta þeirra allra. Upptökur á henni eiga nefni- lega að fara fram í Kína að miklu leyti og Kínamúrinn mikli verður í stóru hlutverki.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.