Tíminn - 16.07.1988, Blaðsíða 11

Tíminn - 16.07.1988, Blaðsíða 11
Laugardagur 16. júlí 1988 HELGIN 11 hitt Kennedy, sem sat á spjalli við aðra hótelgesti hinn rólegasti, og gerði sér grein fyrir að Kennedy hefði ekkert gert í inálinu, hefði hann fyrst orðið alvarlega reiður. Gargan, Markham og Kennedy fóru inn á hótelherbergi Kennedys. „Hvað gerðist?“ spurði Markham. „Ég tilkynnti ekki um atburðinn,“ svaraði Kennedy. „Ég ætla að segja að Mary Jo hafi keyrt“ Öldungadeildarþingmaðurinn sagði nú félögum sínum frá því að hann hefði synt yfir sundið, læðst inn á hótelið, haft fataskipti og gefið til kynna nærveru sína á hótelinu með því að spyrja dyra- vörð hvað klukkan væri. Kennedy sagði að hann hefði reiknað með Það er ekki víst að Edward Kennedy verði svona glaðlegur á næstunni eftir að nýjar upplýsingar hafa komið fram um kringumstæð- urnar við dauða... að Gargan tilkynnti um slysið. Þá upphófst mikið rifrildi og Gargan segir núna að Kennedy hefði sagt: „Ég ætla að segja að Mary Jo hafi keyrt“. En Markham og Gargan lögðu fast að honum að tilkynna slysið. Svo fór að öldungadeildarþing- maðurinn fór í símaklefa til að hringja á lögregluna. Aðkoman að bílnum En því er lýst í bók Damores að nú væri það orðið alltof seint, tveir veiðimenn höfðu fundið bílinn og Mary Jo hér um bil þrem klst. fyrr um morguninn. Á sama tíma og Kennedy var í símanum var John Farrar, kafari í slökkviliði Massa- chusetts, að ná líki Mary Jo út úr Oldsmobilnum. Kafarinn lýsir því hvernig höfuð hennar var reigt aftur og andlitið fast við gólfið undir mælaborðinu. Þetta var ekki stelling manneskju sem missir meðvitund við högg, heldur þeirrar sem brýst um á hæl og hnakka að leita uppi eitthvert loft inni í bílnum. Það er augljóst hvað er verið að gefa í skyn í bókinni, þ.e. að það hefði verið á valdi Kennedys að bjarga lífi Mary Jo Kopechne, en í staðinn valdi hann þann kostinn að bjarga sjálfum sér og koma sér undan því að tilkynna um slysið í allt að því 10 klst. Mánuði síðar játaði Kennedy á sig þá sök að hafa yfirgefið slysstað- inn og hiaut tveggja mánaða skil- orðsbundinn dóm fyrir. I G-PEYTIRJÓMI! - dulbúin ferðaveisla VEISLA í jeppa á íjalli eða í sumarhúsinu. Ekkert mál ef þú hefur G-þeytirjómann meðferðis. Skál og gaffall duga til að þeyt’ann. Hvort þú snarar svo fram heilli rjómatertu eða írsku kaffi fer eftir tilefninu. ' r SStí.V;' geymsluþolinn þeytiripmi BLIKKFORM ______Smiðjuvegi 52 - Sími 71234_ Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið- gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla bíla, (ryðfrítt stál), og einnig nælonhúðaðir í öllum litum. Póstsendum um allt land (Ekið niður með Landvélum). Viljirðu bragðgott kaffi, velur þú Hefur þú smakkað 1111 úatiW okkar Kaffibrennsla Akureyrar hf

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.