Tíminn - 03.11.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.11.1988, Blaðsíða 3
;"Pimmtl/crág'k/r á nóvémtóéV‘1988 'i't'i i:T Tíminn Óli Kr. Sigurðsson vísar á bug staðhæfing- um um rekstrarerfiðleika Olís: Mín bréf ekki föl „Það var talað um fyrir tveimur árum að kaup mín á Olís hefðu verið kaup aldarinnar. Ég verð að fá að byggja þau upp," sagði Óli Kr. Sigurðsson á fundi með fréttamönn- um, sem hann boðaði til í gær til að kveða niður þrálátan orðróm um að Olís ætti í alvarlegum rekstrarerfið- leikum. ( Fundurinn var nokkuð hávær á köflum og að talsverðum hluta tveggja ntanna tal Óla Kr. og Halls Hallssonar fréttamanns Sjónvarps, þó einkum Óla, en hann skammaði Hall Hallson geypilega og var svo heitt í hamsi að við lá að röddin brysti. Óli Kr. sagði meðal annars á fundinum að eftir að fréttaflutningur hófst hefði verið stöðugur straumur manna til sín að bjóða í hlutabréf í félaginu og hækkuðu boðin stöðugt. „Thank you very much," sagði Oli Kr. við Hall Hallsson fréttamann Sjónvarpsins. Það varð þó honum til huggunar að einn starfsmanna kom aðvífandi og og las stuðningsyfirlýsingu frá starfsmönnum Olís. Óli Kr. kallaði fréttir, einkum Sjónvarpsins og Tímans af erfiðleik- um Olís, róg og vísaði flestu á bug sent þar hefði.komið fram. Rangt væri t.d. hjá Tímanum að nokkur tankbílanna hefði rúllað milljón kílómetra. Sá mest ekni hefði farið 600 þúsund kílómetra og dygði hann vonandi lengi enn. Hann sagði að Olíuverslun íslands skuldaði Landsbankanum nú 840 milljónir. Verslunin skuldaði 125 milljónir í erlendum lánum sem tekin voru vegna kaupa á olíuskipinu Kyndli og vegna byggingar birgða- stöðvar í Keflavík. Auk þessa ábyrgðist Landsbank- inn olíukaup félagsins fyrir 400 millj- ónir en lager félagsins væri nú virði 600 milljóna. Hann sagði að Olís væri í vanskil- um vegna þess að nokkur útgerðar- fyrirtæki væru í vanskilum við Olís og næmu þessi vanskil um 130 millj- ónum. Olís ætti útistandandi um 1.050 milljónir króna og hagnaður hefði verið af fyrirtækinu undan- farna mánuði. Á fundinum voru lögð fram ýmis gögn, svo sem afrit af bréfi frá bankastjórum Landsbankans, þeim Sverri Hermannssyni og Helga Bergs til Þórðar S. Gunnarssonar stjórnarformanns Olís þar sem vísað var til santkomulags sem Þórður og Landsbankinn gerðu í júní sl. í bréfinu sem dagsett er 21. októ- ber sl. segir að það sent þetta samkomulag hafi ekki verið haldið af hálfu Olís muni bankinn ekki ganga í ábyrgð fyrir félagið eða útvega erlend lán. ■ ÓIi Kr. neitaði því á fundinum að í þessu samkomuíagi sem vitnað er til í bréfi bankastjóranna hafi falist að Óli Kr. seldi sinn hlut í félaginu og/eða yrði gerður áhrifalaus um stjórnun þess. Hann sagðist ekki hafa séð þetta bréf né vitað um tilvist þess fyrr en í gær og aðspurður um hvernig á því stæði að stjórnarformaður en ekki forstjóri fyrirtækisins fengi bréf sem með jafn ótvíræðum hætti varðaði stjórnun þess, svaraði ÓIi Kr.: „Ég veit ekkert um hvenær hann fær þetta bréf í hendur. Ég veit ekkert um þetta bréf fyrr en í gærkvöldi." Þá var lagt fram skeyti frá fyrrver- andi stjórnarformanni, Þórði S. Gunnarssyni og Símoni A. Gunnars- syni þar sem þeir segja sig úr stjórn Olís. Óli Kr. sagði sér vera óskiljan- lega úrsögn þeirra og biði hann skýringa tvímenninganna á henni. Hann marg endurtók á fundinum í gær að samkomulag hefði alla tíð, frá því hann eignaðist Olís, verið með ágætum og fullkomin eindrægni ríkt innan stjórnarinnar. Nokkrir stjórnarmenn voru á fundinum og staðfestu þeir þessi ummæli Óla. Hins vegar sagðist Óli Kr. ekki geta skýrt hvernig á því stæði að tveir menn segja sig úr þessari einhuga stjórn, né heldur hvernig stæði á því að bréf berst stjórnarformanninum með jafn al- varlegu innihaldi án þess að forstjóri fyrirtækisins og eigandi 94,3% hlutabréfa að eigin sögn, verði þess var. Heyrst hefur að Óli Kr. hafi falið fasteignasölu nokkurri að leita til- boða í hlutabréf í Olís en því þverneitaði hann á fundinum. Maður gagnkunnugur íslensku ■ ÓIi Kr. Sigurðsson vísar þungur á brún á bug getgátum um erfíða rekstrarstöðu Olís, Tímamynd: Pjelur. bankakerfi og viðskiptalífi sagði Tímanum seint í gærkvöldi að OIís hefði um langt skeið verið hálfgert vandræðabarn í bankakerfinu og hefði það síst batnað eftir að Óli Kr. Sigurðsson eignaðist það. Bréf Landsbankastjóranna væri aðeins vottur um að þolinmæði bankans væri á þrotum. -sá Talið er að framtíð Þorlákshafnar geti oltið á sameiningu Glettings og Meitilsins: Oformlegar umræður um sameiningu fyrirtækjanná Óformlegar viðræður hafa átt sér stað á milli eigenda Glettings og Meitilsins í Þorlákshöfn um sameiginlegt eitt stórt fiskvinnslu- fyrirtæki á staðnunt sem við sam- runa myndi verða eitt stærsta fyrir- tæki sinnar tegundar á landinu. Eins og kunnugt er hefur Meitillinn lokað vegna fjárhagserfiðleika, en Glettingur er sterkt fyrirtæki. Samkvæmt upplýsingum sem er að finna í ritinu Útvegur sem Fiskifélag íslands gefur út varð verðmæti innvegins afla Glettings hf., 286.861 milljón kr. árið 1987 og var fyrirtækið þá í 7. sæti yfir landið hvað þetta varðar. Staða Meitilsins var aftur á móti öllu bagalegri enda lenti hann í 16. sæti það sama ár. Björgvin Jónsson framkvæmda- stjóri Glettings sagði í samtali við Tímann í gær að þessi samruni myndi verða mikil lyftistöng fyrir byggðarlagið. Hann sagði einnig að ef af þessu ætti að verða þyrftu báðir aðilar að fórna miklu, enda tækist sameiningin ekki nema af- skrifaðar yrðu skuldir hjá báðum aðilum. Bæði fyrirtækin myndu ganga inn í samrunann með einú og öllu að því undanskildu að halda yrði utan við sameininguna þremur frystibátum Glettings sem um þessar mundir veiða flatfisk. -áma Jón aðstoðarmaður forsætisráðherra Jón Sveinsson lögfræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Stein- gríms Hermannssonar forsætisráð- herra. Jón Sveinsson er fæddur 7. júlí 1950, lauk lögfræðiprófi frá Háskóla íslands 1976. Hann starfaði síðan sem dómarafulltrúi við embætti bæjarfógetans á Akranesi til 1980, en hefur eftir það rekið þar lögfræði- stofu. Hann varð héraðsdómslög- ntaður 1979. Jón hefur átt sæti í bæjarstjórn og bæjarráði Akraness, auk ýntissa nefnda og stjórna á vegum kaupstað- arins. Hann hefur gegnt ýntsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknar- flokkinn, átt sæti í framkvæmda- stjórn og miðstjórn flokksins. Þá var hann varaþingmaður flokksins í Vesturlandskjördæmi á árunum 1979-1987. Eiginkona Jóns er Guðrún Magn- úsdóttir kennari og eiga þau fjögur börn. -ABÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.