Tíminn - 03.11.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn Fimmtudagur 3. nóvember 1988
llllllllllllllllllllllllllll DAGBÓK "i' llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
GÆJAR OG GLANSPÍUR
Basar
Kvenfélag Kópavogs - líknarsjóöur
Áslaugar Maack. Basar og kaffisala verð-
ur í Félagsheimili Kópavogs, sunnudag-
inn 6. nóv. n.k. Þar verður á boðstólum:
nýbakaðar kökur, prjónavörur, fatnaður
og ýmsir munir. Einnig verður selt kaffi
með rjómavöfflum. Vinnufundir félags-
kvenna eru á mánudögum frá kl. 5. Alltaf
heitt á könnunni. Basarnefndin
Kaffisala
Safnaðarfélags Ásprestakalls
Kaffisala Safnaðarfélags Ásprestakalls
verður sunnudaginn 6. nóvember eftir
messu, semhefst kl. 14:00. Allirvelkomn-
Heymar- og talmeinastöðin
I Borgarnesi
Móttaka verður á vegum Heyrnar- og
talmeinastöðvar íslands í Borgarnesi,
laugardaginn 12. nóv. n.k. Þar fer fram
greining heyrnar- og talmeina, og úthlut-
un heyrnartækja. Tekið er á móti viðtals-
beiðnum hjá viðkomandi heilsugæslum.
Félag eldri borgara
Opið hús er í Goðheimum, Sigtún 3 í
dag. Kl. 14:00 er frjáls spilamennska. Kl.
19:00 verður félagsvist og kl. 21:00 dans.
Óskað er eftir kökum á kökubasar,
sem haldinn verður í Tónabæ laugardag-
inn 5. nóvember kl. 15:00.
Frumsýning verður í BROADWAY
föstudaginn 4. nóvember á söng- og
danssýningunni GÆJAR OG GLANS-
PÍUR. Hátt á þriðja tug manna stendur
að sýningunni, þ.á m. átta manna dans-
flokkur og átta vaidir söngvarar, og þar á
meðal báðir „látúnsbarkarnir“.
Bílaleiga Akureyrar
býður upp á nýstárlegar ferðir frá 15. okt.
til 15. des. í vetur. Þar er um að ræða
„rjúpnaveiðipakka" frá Reykjavík til Ak-
ureyrar. Innifalið í pökkunum er: flugfar,
bíll, veiðileyfi og gisting með morgun-
verði. Gist verður að Grýtubakka í
Höfðahverfi og gilda veiðileyfin þar og
einnig á öðrum bæjum í nágrcnninu.
Þarna er kjarri vaxið rjúpnaland, þar sem
sunnlenskir veiðimenn geta kynnst alvöru
rjúpnaveiði.
Sóley Jóhannsdóttir sér um sviðssetn-
ingu, en dansahöfundur er Ástrós Gunn-
arsdóttir, leikmynd er eftir Jón Þórisson
og Ásgeir Tómasson gerði handrit.
Hljómsveitarstjóri er Grétar Örvarsson.
Kvöldverður er í boði og auðvitað
verður dansað eftir sýninguna.
Miðasala og borðapantanir í Broadway
í síma 77500. Upplýsingar veitir Baldur
Brjánsson í sama síma.
Kókubasar Kvenfélags
Óháða safnaðarins
Kvenfélag Óháða safnaðarins verður
með kökubasar laugardaginn 5. nóvem-
ber kl. 14:00 í safnaðarheimilinu Kirkju-
bæ. Þá verður einnig flóamarkaður og
skyndihappdrætti.
Þær sem vilja gefa kökur og basarmuni
komi þeim í Kirkjubæ á föstudag kl.
17:00-19:00 og laugardagsmorgun ki.
10:00-12:00.
Verkakvennafélagið Framsókn
Basar Verkakvennafélagsins Fram-
sóknar verður haldinn laugardaginn 12.
nóv., kl. 14.00, í húsakynnum félagsins
Skipholti 50a. Konur: Vinsamlegast kom-
ið munum sem fyrst á skrifst. félagsins.
Kökur vel þegnar.
Ath.: Allur ágóði rennur til jólaglaðn-
ings eldri félagskvenna.
Nefndin
19. ársfundur MFA
Starf MFA á liðnu starfsári og Evrópu-
bandalagið og staða íslands verða um-
ræðuefni á 19. ársfundi MFA, en hann
verður haldinn föstudaginn 4. nóvember
kl. 14:00. FundurinnverðuríBaðstofunni
Ingólfsbæ, Ingólfsstræti 5, sem er fundar-
salur Félags starfsfólks í veitingahúsum.
Helgi Guðmundsson, formaður MFA,
gerir grein fyrir starfi MFA, en Ásmundur
Stefánsson, forseti ASÍ og Kjartan Jó-
hannsson alþingismaður hafa framsögu
um mál Evrópubandalagsins og stöðu
fslands.
Ljósmyndasýning
í Norræna húsinu (í anddyri)
Nú stendur yfir í anddyri Norræna
hússins sýning á 18 Ijósmyndum eftir
sænska Ijósmyndarann Bruno Ehrs.
Myndirnar eru allar teknar í Stokkhólmi.
Sýningin heitir: Stokkhólmssvítan.
Bruno Ehrs hefur starfað sjálfstætt sem
Ijósmyndari frá 1979 og hefur haldið
einkasýningar i Stokkhólmi, Helsinki og
París.
Sýningin stendur til 6. nóvember n.k.
og er opið virka daga frá kl. 09-19 og á
sunnudögum kl. 12-19.
Basar Kvenfélags
Háteigssóknar
Kvenfélag Háteigssóknar heldur basar
í Tónabæ sunnudaginn 6. nóv. kl. 14:00.
Á boðstólum verða kökur, handavinna,
ullarvörur o.fl. Heitt kaffi og rjómavöffl-
ur.
Tekið verður á móti gjöfum á basarinn
í kirkjunni á föstudag kl. 17:00-19:00 og
í Tónabæ kl. 10:00 á sunnudagsmorgun.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opiö allan sólarhringinn
og aöstoö fyrir konur sem beittar hafa
veriö ofbeldi í heimahúsum eöa orðiö
fyrir nauögun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hringinn.
Lögfræðiaðstoð Orators
Orator, félag Iaganema, veitir ókeypis
lögfræðiaðstoð á fimmtudögum frá kl.
19.30-22.00, í síma 1 10 12.
Húnvetningafélagið
Kaffisala og hlutavelta Húnvetninga-
félagsins í Reykjavík verður í Húnabúð,
Skeifunni 17, laugardaginn 5. nóvember
kl. 14:30. Allir velkomnir.
Kosningavika í
Ameríska bókasafninu
Kosningavika verður í Menningar-
stofnun Bandaríkjanna dagana 4.-9. nóv-
ember í tengslum við forsetakosningarnar
í Bandaríkjunum þann 8. nóvember n.k.
Ameríska bókasafnið verður sérstak-
lega skreytt af því tilefni og verða mynd-
bönd sýnd af kappræðum forsetafram-
bjóðendanna Bush og Dukakis á opnun-
artímum safnsins.
Morguninn 9. nóvember verður safnið
opnað kl. 08:00 og verður á boðstólum
kaffi og vínarbrauð fyrir þá sem vilja líta
við til að kynna sér niðurstöðutölur
kosninganna, sem verða skráðar jafnóð-
um og þær berast bókasafninu.
Bókasafnið er opið alla virka daga kl.
11:30-17:30, nema fimmtudaga, en þá er
opið kl. 11:30-20:00.
Nánari upplýsingar um kosningaviku
veitir blaðafulltrúinn í síma 62 10 20.
- Pennavinur í Englandi
Maria Kaye, 21 árs ensk stúlka, hefur
áhuga á að komast í bréfasamband við
pennavin á íslandi, sem gæti skrifað á
ensku. Hún hefur áhuga á bókum, tónlist,
ljóðum og gömlum kvikmyndum.
Utanáskrift til hennar er:
Miss María Kaye,
25a, Herne Hill Road,
Herne Hill,
London,
S.E. 24 OAX
England
Pennavinur í Trinidad
Blaðinu hefur borist bréf frá Trinidad í
Karabíska hafinu (undan strönd Venesú-
ela). Bréfið er frá ungri konu, sem heitir
Sherry Porther. Áhugamál hennar eru
m.a.: lestur bóka, gönguferðir, mat-
reiðsla og garðyrkjustörf.
Hún vill gjarnan skrifast á við íslend-
inga, konur eða karla, helst á aldrinum
26-29 ára. Helst einhvern sem býr í sveit,
eða kennara, eða einhvem sem starfar í
sjóhernum (eða kannski við landhelgis-
gæsluna?). En helst þarf að skrifa á
ensku.
Utanáskriftin er:
Sherry Porther
4, Regcnt Dríve,
Blue Range,
Diego Martin,
Trinidad,
West Indies
Dagskrá aðalfundar fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna í Reykjavík
5. nóvember 1988
Setning
Formaður fulltrúaráðsins, Finnur Ingólfsson.
Kosning fundarstjóra og ritara.
Skýrslur
a) formanns
b) gjaldkera
c) húsbyggingasjóðs
Ávörp gesta
a) fulltrúi S.U.F.
b) fulltrúi L.F.K.
c) formaður Framsóknarflokksins, Steingrímur Her-
mannson, forsætisráðherra.
Hádegisverður
Kynning á áliti starfsnefnda
Húsnæðismál aldraðra
a) Ásgeir Jóhannesson
b) Alfreð Þorsteinsson
Umræður og fyrirspurnir
Kaffihlé
Setið fyrir svörum
a) Guðmundur G. Þórarinsson, alþingismaður
b) Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi
12. Kl. 16.45 Kosningar
13. Kl. 17.30 önnur mál.
1. KI. 10.00
2. Kl. 10.05
3. Kl. 10.10
4. Kl. 11.00
6. Kl. 12.30
7. Kl. 13.30
8. Kl. 14.15
9. Kl. 14.45
10. Kl. 15.30
11. KI. 16.00
Suðurlandskjördæmi
Kjördæmisþing verður haldið í Vestmannaeyjum 4. og 5. nóvember
n.k.
í-tngið hefst kl. 19.30 föstudaginn 4. nóv. Athugið breyttan tíma.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Spilafólk athugið
Hin árlegu spilakvöld Framsóknarfélags Rangæinga hefjast sunnu-
daginn 6. nóv. n.k.
Spilað verður í Hlíðarenda og hefst vistin kl. 9.00.
Stjórnandi verður Guðmundur Kr. Jónsson.
Stjórnin
Borgnesingar - nærsveitir
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 4. nóv.
kl. 20.30.
Góð verðlaun. Mætum vel.
Framsóknarfélag Borgarness
Vesturland
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Vesturlandi verður haldið á
Akranesi 5. nóvember n.k.
KSFV
Flokksþing
20. flokksþing framsóknarmanna verður haldið dagana 18.-20. nóv.
n.k. að Hótel Sögu. Þingið hefst föstudaginn 18. nóv. kl. 10. Dagskrá
auglýst síðar.
Framsóknarflokkurinn.
t
Eiginkona mín og móðir okkar
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir
Hraunbæ 22, Reykjavík
lést í Borgarspítalanum í Reykjavík aðfaranótt þriðjudagsins 1.
nóvember.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 10. nóvember kl.
13.30.
Sigvaldi Sigurðsson
Sigurður Sigvaldason
Gunnlaugur Sigvaldason
Aðaibjörg Sigvaldadóttir
Þorbjörn Sigvaldason
t
Systir okkar
Sigríður Guðbjörnsdóttir
frá Hólmavík,
Langholtsvegi 28, Reykjavík
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. nóvember kl. 15.
Anna Guðbjörnsdóttir
Kristbjörg Guðbjörnsdóttir
Elín Guðbjörnsdóttir
Guðrún Guðbjörnsdóttir
Þorsteinn Guðbjörnsson
Margrét Guðbjörnsdóttir
Torfi Guðbjörnsson
t
Móðir mín
Margrét Árnadóttir
frá Gunnarsstöðum
Hringbraut 91, Reykjavík
andaðist 2. nóvember 1988 í Toronto.
Minningarathöfn auglýst síðar.
Kristín Gísladóttir
t
Sigríður Þórðardóttir
frá Barðsnesi í Norðfirði
lést á sjúkrahúsinu í Neskaupstað laugardag-
inn 29. október.
Útförverðurfrá Norðfjarðarkirkju laugardaginn 5. nóvemberkl. 14.00.
Börn, tengdabörn og barnabörn