Tíminn - 03.11.1988, Blaðsíða 4

Tíminn - 03.11.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn 886!’ 'wtaiövöo 3 liír.^ti’jrrnt!^ Fimmtudagur 3. nóvember 1988 Tímamyndir: Pjelur Líst inn Ellert Eiðsson: engan veg- á ástandið Meitillinn í Þorláksöfn, en þar eru blikur á lofti vegna rekstrarstöðvunar. Uppsagnir Meitilsins í Þorlákshöfn tóku gildi í gærmorgun: Áttatíu manns atvinnulausir „Fólkið úr Meitlinum hefur ver- _ ið að skrá sig á atvinnuleysisskrá í morgun og ég á von á að á henni verði rúmlega áttatíu manns þegar skráningu lýkur", sagði Þórður Ólafsson formaður Verkalýðsfé- lags Ölfushrepps. Meitillinn í Þorlákshöfn sagði öllu starfsfólki sína við fiskvinnslu upp störfum fyrir nokkru og tóku uppsagnirnar gildi í gærmorgun, þann 1. nóvember. Meitillinn hefur verið um langt skeið stærsti vinnuveitandi í Þor- lákshöfn og sagði Þórður Ólafsson að í raun hefði staðurinn byggst upp beinlínis vegna starfsemi fyrir- tækisins. Þórður Ólafsson sagði að stöðv- un fiskvinnslunnar hjá Meitlinum væri mjög alvarlegt mál fyrir Þor- lákshöfn ekki síður en aðrar byggð- ir hringinn í kring um landið sem allt sitt eiga undir útgerð og fisk- vinnslu sem berst í bökkum. Þórður sagði að rekstrargrund- völlur undirstöðuatvinnugrein- anna yrði að vera tryggur en hann hcfði að undanförnu verið í svað- inu. Þórður sagði að reynt yrði að koma fiskvinnslu Meitilsins aftur í gang eftir áramótin en það væri skuggaleg tilhugsun ef af þvf gæti ekki orðið. Meitillinn ásamt Glettingi eru lang stærstu atvinnurekendur í Þorlákshöfn en smærri fyrirtæki í fiskvinnslu starfa á staðnum og hefur rekstur þeirra margra verið til fyrirmyndar og nefndi Þórður þar til sögu Hafnarnes og Auð- björgu, en fastgengisstefnuna sagði Þórður vera fiskvinnslunni þunga í skauti bæði smáum og stórum fyrir- tækjum. „Það er búið að brenna upp landsbyggðina með fastgengis- stefnunni en hún stenst ekki nema að allt annað sé fast líka. „Ég er að skrá fólk á atvinnu- leysisskrá núna,“ sagði starfsmað- ur á skrifstofu Ölfushrepps. Starfs- maðurinn sagði að tveir hefðu verið fyrir á skránni þegar skráning fólksins úr fiskvinnslu Meitilsins hófst í morgun. Þeir tveir sem fyrir voru á skránni voru konur er störfuðu hjá Tipp Topp hvor um sig í hálfu starfi. Tipp Topp var í eigu íslensk-portúgalska sem lýst var gjaldþrota fyrir skömmu. „Við erum að vona að fiskvinnsl- an komist aftur í gang um miðjan janúar þegar togararnir okkar tveir hafa byrjað veiðar eftir áramótin“, sagði framkvæmdastjóri Meitils- ins, Páll Jónsson. „Við vonumst til að þá verði búið að gera ráðstafanir þannig að rekstrargrundvöllur verði til staðar,“ sagði Páll ennfremur. Hverjar þær ráðstafanir yrðú að vera sagði hann erfitt að segja í stuttu máli, en Ijóst væri að auka þyrfti tekjurnar og minnka kostn- aðinn en hvort að gera þyrfti það með gengisfellingu vildi hann ekki segja en sagði þó Ijóst að rekstrar- grundvöllur frystingar væri nú ekki til staðar. „Ég held því fram að verðbóta- þættir hjá fyrirtæki, sem hefur allar sínar tekjur í erlendum gjaldeyri þegar fastgengisstefna ríkir, virki sem fjármagnskostnaður og á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs var fjármagnskostnaðurinn jafn hár öllum vinnulaunum hjá fyrir- tækinu til sjós og lands. Undir slíkum æfingum getur enginn rekstur staðið. Það er algert grundvallaratriði að fyrirtækjum séu sköpuð rekstr- arskilyrði til að geta staðið undir sér og skilað hagnaði," sagði Páll Jónsson framkvæmdastjóri Meit- ilsins að lokum. -sá Hér eru hjólin hætt að snúast - í bili. Ellert Eiðsson hefur starfað í tæp átta ár hjá Meitlinum, og finnst mjög slæmt að missa vinn- una. Tíminn rakst á hann á skrif- stofu Ölfushrepps, en þar fer fram skráning atvinnulausra. Það sem tekur við hjá Ellert, er sennilega starf í „Löndunarflokkn- um“, eins og hann kallaði það. Þar er um að ræða tveggja daga starf í viku hverri, við að landa úr togur- um. Hvernig líst þér á það? „Mér líst bara engan veginn á það, það er langt frá því að vera nóg vinna fyrir mig.“ Ellert sagði takmarkaða vinnu að fá á staðnum og að hljóðið í fólkinu væri ekki gott. Auglýst hefði verið eftir fólki í störf og það hefði dugað tveimur eða þremur. Hann er giftur og tveggja barna faðir. Hefur hann von um starfið sitt aftur? „Já, okkur var lofað að þetta yrði komið í gang aftur í janúar, en ef það bregst þá verður maður bara að leita eitthvað annað. Svona ástand hefur komið upp áður og fólk harkaði af sér þá, en ég veit ekki hvað það kemur til með að gera núna.“ elk. Ellert Eiðsson: „Fólk harkaði af sér þá, en ég veit ekki hvað það gerir - núna.“ Lovísa Heiðarsdóttir: Vona að þeir opni aftur Lovísa Heiðarsdóttir er 29 ára, gift og 3ja barna móðir. Hún starfaði hálfan daginn hjá Meitlin- um í Þorlákshöfn, og er ein af þeim sem sagt var upp störfum hjá fyrirtækinu. Lovísa var spurð hvernig þetta hefði gengið fyrir sig. „Okkur var sagt upp störfum fyrir einum mánuði og nú erum við hætt“. Hvernig líst henni á ástandið í atvinnumálunum í Þorlákshöfn? „Það er auðvitað alveg rosalegt, en ég vonast til að þeir opni aftur svo að við fáum vinnuna." Eiginmaður Lovísu ersjómaður, svo það kemur mest í hennar hlut að sjá um heimilið og börnin. Meitillinn hefur séð börnum starfs- fólks fyrir gæslu, en nú er ekki um það að ræða lengur. Hvað tekur nú við hjá Lovísu? „Eiginlega treystir maður því, að þeir opni aftur. Ég veit um fólk sem hefur leitað fyrir sér með önnur störf, en svarið er alls staðar: „Nei, því miður, það er enga vinnu að fá.“ Lovísa var nýbúin að láta skrá sig á atvinnuleysisbætur. Mörgum hefur reynst erfitt að lifa af þeim bótum, en Lovísa telur sig heppna. „Ég á þó mann“, sagði hún, „og má teljast heppin. Ég öfunda ekki t.d. einstæðar mæður og þá sem hafa engan til að sjá fyrir sér.“ elk. Lovísa Heiðarsdóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.