Tíminn - 03.11.1988, Blaðsíða 19

Tíminn - 03.11.1988, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 3. nóvember 1988 Tíminrr 19 SPEGILL Dóttirin líkist föðurnum Flestir feður myndu væntanlega viðhafa alla varasemi ef þeir ættu dóttur á borð við Jade Jagger. Þessi 16 ára stúlka virðist nefnilega bæði geta og vilja kveikja bál f hjörtum ungra manna. Miek pabba er það meira en ljóst. Hann sem eitt sinn var villtust og alræmdust allra rokkstjarna, hefur greinilega ákveðið að Jade feti ekki í þau fótspor. Hann gerir allt sem hann megnar til að halda henni frá spillingunni og minnir stundum á feður á viktoríutímabil- inu sem helst vildu hafa dætur sínar í skírlífisbelti. Mick las yfir Jade fyrir nokkrum mánuðum, þegar í ljós kom að hún hafði verið á næturklúbbi með glaumgosanum Josh Astor, 21 árs. Hann var nýlega ákærður fyrir fíkniefnamisferli. Jade tók skammirnar óstinnt upp og læddist út úr heimavistarskólan- um uni nætur til að hitta Josh, en það komst upp og henni var vísað úr skóla. Mick kom heim frá Frakklandi í ofboði og tilkynnti dótturinni að hún fengi ekki að fara ein út framvegis. Jade hélt uppteknum hætti, þar til hún komst að sannleikanum um Josh. Hún kom nefnilega að hon- unt með Seraphinu, 19 ára dóttur Charlie Watts, sem einnig er í Rolling Stones. Jade hljóp út og rétt á eftir kom fíkniefnalögreglan á staðinn. Vinir Jade segja hana indælis stúlku, bara ofdekraða. Hún sé vön að fá allt sem hún bendi á og slíkt sé öllum slæmt. Raunar á Jade bágt, þó hún sé bæði falleg og vellauðug. Hún getur aldrei verið viss um að piltar elski hana en ekki nafn hennar og peninga. Auk þess hefur líf hennar ekki verið dans á rósum. Foreldrar hennar hnakkríf- ast alltaf þegar þau tala saman. Jade gengur illa að skilja að faðir hennar sem var villtastur af öllu villtu á unga aldri, ætlist til að afkvæmi hans sé einstakt dyggða- blóð. Henni stendur til boða að búa hjá Mick og Jerry Hall, en þeim Jerry hefur aldrei komið sérlega vel saman. Kannski Mick hugsaði sig tvisvar um ef hann nennti að veita því athygli að flestir vinir dóttur hans nú eru ósköp áþekkir því sem hann var sjálfur, þegar Rolling Stones voru ungir og sprækir og dömurnar meira en fúsar. Jade Jagger er bæði falleg og kynþokkafull, þó hún sé aðeins 16 ára. Mick pabbi hefur þungar áhyggjur. Brúðkaupsflækjur hjá Borg í september sl. var haldið brúð- kaup í Monakó, en þó ekki alveg löglegt, því brúðurin er enn gift öðrum manni. Hún er Mariana Simionescu og sá sem hún er gift, er enginn annar en tennishetjan sænska, Björn Borg. Maðurinn sem hún giftist til málamynda er kappakstúrshetjan Jean-Louis Schlesser, 38 ára. bau vilja sýnast hjón í augum vina sinna svo þau geti farið að eignast fjölskyldu. Það er hins vegar ekki fyrr en í nóvember sem Mariana á von á skilnaðarskjölunum frá Rúmeníu. Þegar Björn hóf sambúð með Jann- ike Björling og eignaðist með henni son, kærði hann sig kollóttan um öll formsatriði, en loksins þegar hann er frjáls að kvænast aftur, verður það hin ítalska Loredana sem kemur í stað Jannike. Fjölskylda Mariönu í New York efast um að skjölin komi á tilsettum tíma, þvf rúmenska kerfið er eink- ar svifaseint og móðir Mariönu segist ekki yrði hissa þó enn liði heilt ár. Lífshættir Björns urðu Mariönu ofviða, því hún er sú kvengerð sem kýs að fórna sér fyrir eiginmann- inn. Hún gerði það þegar hún hætti að keppa í tennis til að styðja Björn. Hún sannaði þetta aftur með því að afsala sér næturklúbb sínum í Monte Carlo til að fylgja Jean-Lou- is í keppni um allan heim. Honum finnst það indælt, þó flestir kapp- akstursmenn kjósi að fjölskyldan haldi sig heima. Hjónin hyggjast búa til skiptis í Mónakó og Luxembourg og Mari- ana ætlar að halda áfram að fylgja manni sínum. í tómstundum er hann áhugamaður um flug, mótor- hjól og siglingar, svo þeim leiðist ekki á næstunni. Jean-Louis hefur líka verið kvæntur áður og á tvö börn í Frakklandi, sem heimsækja þau í leyfum. Mariana nýtur þess og vill endilega eignast barn sem fyrst. Þess vegna var málamyndabrúð- kaupið haldið. Borgaraleg vígsla fer síðan fram, þegar skilnaðar- skjölin koma. Nú vitum við af hverju Bjöm Borg kvæntist ekki Jannike, bamsmóður sinni. Hann er enn bundinn Mariönu. Við viljum eignast bam, þess vegna viljum við giftast sem fyrst, segja Mariana og Jean-Louis.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.