Tíminn - 03.11.1988, Blaðsíða 10

Tíminn - 03.11.1988, Blaðsíða 10
Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Aarhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla fimmtudaga Gautaborg: Alla föstudaga Varberg: Annan hvern miðvikudag Moss: Annan hvern laugardag Larvik: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Hvassafell........12/11 Gloucester: Jökulfell......... 4/11 Skip...............25/11 New York: Jökulfell......... 6/11 Skip..............27/11 Portsmouth: Jökulfell......... 6/11 Skip...............27/11 -- — -— 'f&kSAMBANB&NS ■LINDAPGOTu'öA/TCH'REYKjAVfk L • -SÍMI 698100 • L 1 A* A 1 k 1 1 TÁKIV TR.AUSTRA FLÚTNINIGA Kortnr.: □□□□□□□□□□□□□□□□ Gildir út: Undirritaður óskar þess að áskriftargjald Tímans verði mánaðarlega skuldfært á VISA-greiðslukort mitt UNDIRSKRIFT. ÁSKRIFANDI:.............................................. HEIMILI:................................................ PÓSTNR - STAÐUR:................... SÍMI:............... SENDIST AFGREIÐSLU BLAÐSINS LYNGHÁLSI 9. 130 REYKJAVÍK 10 Tíminn _______________________________________________________________________________________________________________________________________Fimmtudagur 3. nóvember 1988 Fimmtudagur 3. nóvember 1988 Tíminn 11 lllllllllllllllllllll IÞROTTIR IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIM IþrOttir lil;l:IM1lllllllllllllil,i;rtl!llllllllllllii:lillllllllllllll;!llllllllllllili:;^ .......................III..........íllll........Illlll........Illll..................55 Tímiim □ ER ÁSKRIFANDI □ NÝR ÁSKRIFANDI Dags.: BEIDNI UM MILLIFÆRSLU ÁSKRIFTARGJALDS HAMAGANGUR Á HLÍDARENDA Sigurður Sveinsson er kominn í klæðin rauð og brýsf hér í gegn í leik Vals ogUBK. Leik ÍBV og Gróttu sem fara átti fram 1 Pje‘>*r Það vantaði ekki lætin og hama- ganginn á Hlíðarenda þegar bikar- og íslandsmeistarar Vals fengu Breiðablik í heimsókn í fyrsta leik 1. deildar íslandsmótsins í vetur. Þótt risið á handboltanum hafí ekki verið hátt í þessum baráttuleik, þá mátti sjá takta hjá einstökum leikmönnum sem glöddu augað og lofa góðu fyrir veturinn. Fyrstu mínútur leiksins var jafn- ræði með liðunum allt þar til staðan var 4 mörk gegn fjórum. Þá tóku Valsmenn að síga framúr og í hálf- leik var staðan 15-7 Valsmönnum í vil. Þó Valsmenn hafi náð þetta mikl- um mun var það ekki góðum hand- knattleik að þakka, heldur frekar slakri vörn Breiðabliks sem tók þann kostinn að taka tvo menn úr umferð, þá Júlíus og Sigurð Sveinsson sem lék sinn fyrsta 1. deildarleik á íslandi í fjölda ára. Hann sýndi forsmekkinn að því sem áhorfendur mega eiga vona á, en línusendingar hans á Geir Sveinsson voru stórkostlegar og er greinilegt að þeir félagarnir ná mjög vel saman. Breiðabliksmenn léku frekar vandræðalega þó greinilegt að vilj- inn var fyrir hendi, en leikkerfi þeirra gengu alls ekki upp eins og markatalan sýnir. Það var allur annar gállinn á Breiðabliksmönnum í síðari hálfleik þegar þeir mættu ákveðnir til leiks. Sveinn Bragason byrjaði með tveirn- ur stórkostlegum mörkum og gaf tóninn því með mikilli baráttu náðu Blikarnir að minnka muninn jafnt og þétt þannig að aðeins eitt ntark skyldi er þrettán mínútur voru til leiksloka. Á þessu tímabili var allt í þati hjá Valsmönnum og misstu þeir menn út af fyrir klaufaleg brot og rangar innáskiptingar. Voru þeir aðeins fjórir í vörninni á tímabili. Það var því allt á suðupunkti þegar Blikinn Þórður Davíðsson missti knöttinn í hraðaupphlaupi þegar staðan var 20-19 Valsmönnum í vil. Eftir það misstu Blikar einbeitingun, Vals- menn gengu á lagið að nýju og sigruðu í leiknum með 27 mörkum gegn 23. Mörk Vals: Valdimar 10/2, Jakob 5, Jón 5, Sigurður Sv. 3. Geir 3, Júlíus 1. Mörk UBK: Jón Þ. 8, Hans 6, Þórður 4, Sveinn 3, Kristján 1, Pétur 1 -HM Handknattleikur: Formsatriði hjá KR Öflugt lið KR átti ekki í nokkrum erfiðleikum með að sigra Framara í 1. deildinni í handknattleik í Laugardalshöll- inni í gærkvöld, 30-18, eftir að staðan í hálfleik var 15-7. Það var aðeins rétt í byrjun leiksins sem Framarar sýndu mótspyrnu. Alfreð Gísla- son skoraði fyrsta mark leiksins, en Egill Jóhannesson jafnaði fyrir Fram. Síðan var jafnt 2-2 og 3-3, en þá skildu leiðir. KR-ingar gerðu 3 mörk í röð og Framarar áttu sér ekki viðreisnar von eftir það. Þriggja marka munur var 9-6, en þá kom annar sprettur hjá KR og 4 mörk í röð litu dagsins ljós. Það voru þeir Páll Ólafsson og Sigurður Sveinsson, þó ekki sá örvhenti, fyrrum félagi Páls úr Þrótti. Staðan í hálfleik var síðan eins og áður segir 15-7 fyrir KR. í síðari hálfleik fór Alfreð Gíslason heldur betur í gang og gerði 6 mörk. Hann náði sér ekki á strik í fyrri hálfleiknum, gerði þá aðeins 2 mörk og Júlíus Gunnars- son hélt honum álveg niðri. Þá fór Konráð Olavson líka í gang og þrátt fyrir góða markvörslu Guðmundar A. Jónssonar kom hún ekki í veg fyrir stórsigur KR, 30-18. í KR-liðinu var Alfreð stórhættulegur, sérstaklega í síðari hálfleik ásamt Konráð, eins og áður er sagt og Páll Ólafsson átti einnig góðan leik, en var hvíldur nokkuð í síðari hálfleik. Lið KR er heilsteypt og verður ekki auðunnið í vetur. Hjá Fram stóð ekki steinn yfir steini á köflum, en leikur liðsins var nokkuð gloppóttur. Góðir kaflar inná milli, en þess á milli gekk allt á afturfótunum. Guð- mundur var góður í markinu, svo og hinn markvörðurinn, Þór Björnsson, sem varði vel í byrjun og Júlíus Gunnarsson var góður í fyrri hálfleik. Mörkin: KR: Alfreð 8/2, Páll 6, Konráð 4, Stefán 4, Sigurður 3, Þorsteinn 3 og Guðmundur Albertsson 1. Fram: Birgir 4, Egill 4/2, Júlíus 4, Ólafur2,Tryggvi l,SigurðurRún. 1 ogJason 1. BL Austurríki vann Tyrki í gærvöld voru nokkrir leik í undan- keppni HK í knattspymu, þar á meðal leikur í 3. riðli, sem íslendingar leika í. Austurríkismenn unnu Tyrki, 3-2. Þá gerðu Danir og Búlgarir 1-1 jafn- tefli, Rúmenar unnu Grikki 3-0 og Norðmenn unnu Kýpur 3-0. BL til afgreiðslu strax KVERNELAND 24 diska herfi kr. 105.000.- KVERNELAND 28 diska herfi kr. 118.500.— HOWARD jarðtætara 60" kr. 188.500.- m/ssk. 70" kr. 194.900.- "J4sk. 80 kr. 210.300.- " ssk. JOSVE hnífaherfi vinnslubr. 3 m kr. 84.200.- Við erum sveigjanlegir í greiðsiukjörum. T.d. 1/3 út og eftirstöðvar í allt að 12 mánuði. Hafið samband við sölumenn okkareða umboðsmenn. G/obus/ Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555 Halldór Ásgrímsson dómsmálaráðherra og Jón Ármann Héðinsson stjómarformaður íslenskra getrauna spá í úrslitaröðina í fyrstu getraunavikunni, en á seðlinum era leikir sem leiknir verða á laugardaginn kemur. Tímamynd Gunnar | boðið Geilf. Knattspyrnusamband Evr ópu hafnaði á sunnudaginn beiðni ítalska liðsins Roma, um að liðinu yrði dæmdur 3-0 sigur í Evrópuleik gegn Partizan Belgrad, en leikur- inn fór fram í síðustu viku í Júgóslavíu. Partizan vann 4-2 sigur í leiknum, en leikmenn Roma voru grýttir í leiknum og eldur braúst út á vellinum. UEFA ákvað að dæma Partizan í 10 þúsund franka sekt, sem er um 6600 dalir og liðið verður að leika sinn næsta heima- leik í að minnsta kosti 300 km fjarlægð frá heimavelli sínum. London. Colin Suggett hefur nú endanlega verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Newcastle, en hann tók við liðinu eftir að Willie Mc- Faul var rekinn í síðasta mánuði. Suggett var áður þjálfari liðsins. Sigur eftir framlengingu - og 5. sæti C-keppninnar staöreynd ísland vann Sviss í úrslitulcik um inni gerði ísland jafntefli gegn 5. sætið í C-keppninni í handknatt- Portúgal, stúlkumar náðu að jafna lcik, en mótið var haldið í Frakk- leikinn á síðustu stundu, 19-19, cn landi. leikurinn var mjög slakur og ís- íslensku stúlkumar sigruðu lenska liðið langt frá sínu bcsta. svissncska liðið í framlengdum leik Tap gegn Spáni og jafntefli gegn 19-17, en eftir venjulegan leiktima Portúgal em úrslit sem valda mikl- var staðun 16-16. Þær Guðríður um vonbrígðum, þar sem þcssar Guðjónsdóttir og Margrét Theo- þjóðir urðu að lúta í lægra haldi dórsdóttir gerðu 6 mörk hvor fyrir gegn okkar liði á móti hér heima íslenska liðið. ' fyrirstuttu.IngaLáragerðiSmörk í síðasta leik sínum í riðlakeppn- gegn Portúgal og Guðríður 4. BL TÆTARAR OG HERFI Getum Handknattleikur: Handknattleikur: Handknattleikur: FH marði Stjörnuna Urslitin í leik FH og Stjörnunnar réðust ekki fyrr en á lokasekúndun- París. Michel Platini hefur tek- ið við sem þjálfari franska lands- liðsins í knattspyrnu af Henri Michel. Ástæða þessara breytinga hjá Frökkum er slælegur árangur að undanförnu, en 1-1 jafnteflið gegn Kýpur á dögunum mun hafa fyllt mælinn. Þá mun gamla brýnið Jean Tigana aftur fara að leika með liðinu, sem fyrirliði, en hann hefur leikið vel fyrir Bordeaux uppá síðkastið. Gerard Houllier fyrrum þjálfari París SG, mun verða aðstoðarmaður Platini. Þá mun forseti Bordeaux, Claude Bez, taka við formennsku í lands- liðsnefnd. Platini mun stjórna franska landsliðinu í fyrsta sinn í HM leik Frakka í Belgrad í Júgó- slavíu þann 19. þessa mánaðar. Michel, fráfarandi þjálfari, hefur stjórnað liðinu frá því 1984 að liðið varð Evrópumeistari og liðið hefur ekki tapað leik á þessu ári, unnið 4 leiki og gert 4 jafntefli. Mission, Kansas. Há- skólalið Kansas í körfuknattleik sem sigraði í háskólakeppninni á síðasta keppnistímabili, fær ekki að verja titil sinn og er liðið það fyrsta í sögunni sem ekki fær tækifæri til þess. Ástæðan er sú að skólinn hefur verið dæmdur úr leik •og settur á þriggja ára reynslutíma, fyrir að bjóða leikmanni sem hugs- anlega ætlaði að fara í skólann, fatnað og flugmiða að verðmæti yfir 1200 dali. Þar að auki var 1 skólastyrkur tekinn af háskólanum og skólinn fær ekki að borga fyrir ferðir hugsanlegra nemenda, sem koma í skólann til að kynna sér aðstæður. Mjög hart er tekið á ef bandarískir háskólar bjóða nemum sem útskrifast hafa úr menntaskól- um hlunnindi, komi þeir í viðkom- andi skóla. Þetta er gert til þess að fjársterkir skólar geti ekki keypt til sín bestu leikmenn menntaskól- anna. London. Tottenham gerði markalaust jafntefli gegn Black- burn í 3. umferð ensku bikar- keppninnar í knattspyrnu í fyrra- kvöíd. Derby County tapaði stórt fyrir West Ham, 0-5, á útivelli, Bristol City vann Crystal Palace 4-1, Ipswich vann Leyton Orient 2-0 og Tranmere vann Blackpool 1-0. í Skotlandi vann Rangers Hearts 3-0 á heimavelli og St. Mirren vann Motherwell 2-1 á útivelli. Þessir leikir voru báðir í úrvaisdeildinni. um en þá var það leikrcynsla FH- inga sem reið baggamuninn og þeir náðu að knýja fram sigur. Jafnræði varmeð liðunum íbyrjun en Stjörnumenn voru þó öllu frískari þegar á leið og náðu um miðjan fyrri hálfleik 4 marka forskoti 8-4. Gylfi Birgisson skoraði grimmt í byrjun og einnig lék Hafsteinn Bragason vel í hægra horninu óg fiskaði víta- köst. Eftir að Magnús Árnason kom inn á í mark FH-inga vænkaðist hagur þeirra og hann varði meðal annars tvö vítaköst í fyrri hálfleik og FH-ingar minnkuðu muninn jafnt og þétt. í hálfleik var síðan jafnt 12-12. Seinni hálfleikur var geysi- skemmtilegur og jafnt var á öllum tölum upp í 20-20. Brynjar Kvaran vaknaði til lífsins eftir heldur daufan fyrri hálfleik og varði 10 skot. Sig- urður Bjarnason lék líka mun betur í seinni hálfleik en í þeim fyrri en KA-menn sigruðu Víkinga ótrú- lega auðvcldlega í fyrsta leik íslands- mótsins í handknattleik á Akureyri. Það var aðeins í byrjun sem Vík- ingar höfðu eitthvað í KA-menn að gera, en jafnt var uppí 4-4, en þá skildu leiðir. Norðanmenn voru 4 mörkum yfir í leikhléi 12-8 og bilið breikkaði enn meira í síðari hálfleik. Lokatölur urðu 30 mörk gegn 20. KA-menn eru til alls líklegir í vetur, en breidd liðsins er mikil og fengu ' allir leikmenn að spreyta sig. Sóknin Á mánudaginn var tóku íslenskar getraunir í notkun nýtt tölvukerfi sem gerið það að verkum að fram- vegis vcrður getraunakerfið með svipuðu sniði og Lottóið. Þ.e.a.s. getraunaseðlarnir verða framvegis seldir á sömu útsölustöðum og Lottó seðlarnir og síðan settir í tölvukass- ann eins og Lottóið. Halldór Ásgrímsson dómsmála- FH-ingar héldu sínu striki og voru leikmenn jafnir sem fyrr. Þeir náðu síðan að knýja fram sigur eftir að Stjörnumenn höfðu gert klaufaleg mistök í lokin m.a. misst knöttinn í upplögðu hraðaupphlaupi. Lokatöl- ur: 24-22. Bestu menn FH-inga voru þeir Óskar Ármannsson, Guðjón Árna- son og einnig áttu Héðinn og Þorgils Óttar góða spretti. Brynjar Kvaran stóð fyrir sínu í marki Stjörnunnar og varði þrettán skot. Hafsteinn Bragason lék vel og fiskaði m.a 4. vítaköst. Valdimar Kristófersson lék á köflum mjög vel í vörn Stjörnunn- ar. Mörk FH: Óskar Ármannsson 8, Guðjón Árnason 6, Þorgils Óttar 5, Héðinn Gilsson 4, Gunnar Bein- teinsson 1. Mörk Stjörnunnar: Gylfi Birgisson 6, Sigurður Bjarnason 5, Hafsteinn Bragason 4, Skúli Gunn- steinsson 4 og Valdimar Kristófers- son 2. J.S. var mjög kröftug, en veilur voru í varnarleiknum. Allir leikmenn liðs- ins léku vel og ekki hægt að gera upp á milli þeirra. Víkingar söknuðu Guðmundar Guðmundssonar, en tæplega hefði hann þó breytt gangi mála mikið. Þeirra skástir voru Árni Friðleifsson og Eiríkur Benónýsson. Troðfullt var í íþróttahöllinni og stemmning mikil og góð. Mörkin: KA: Sigurpáll 9/6, Erlingur 5/1, Friðjón 4, Jakob 4, Pétur 4. Guð- mundur 3, Svanur 1/1. Víkingur: Árni 7/2, Eiríkur4, Bjarki 3, Sigurður2, Karl2, Siggeir 1 ogJóhann 1. JB/BL ráðherra vígði nýja tölvubúnaðinn og lét tölvuna velja fyrir sig tvær raðir. Ráðherrann tví- og þrítryggði nokkra leiki, en spá hans fer hér á eftir: lx,2,l, 2,2,1, x2,2,x, x,lx,x, og x2,1x2,2, x,12,12, 2,x,l, lx,x2,lx. Nánar verður sagt frá fyrstu get- raunavikunni í blaðinu á morgun og þá birt fjölmiðlaspáin. BL Handknattleikur: Víkingar flengdir Frá Jóhanncsi Bjarnasyni fréttamanni Tímans: íslenskar getraunir: Halldór vígði getraunakassann

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.