Tíminn - 24.11.1988, Síða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 24. nóvember 1988
Lögfræðingur
Umsóknarfrestur um stöðu lögfræðings hjá Fang-
elsismálastofnun ríkisins er framlengdur til 2.
desember 1988.
Umsóknir sendist dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
22. nóvember 1988.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Að Fósturskóla íslands vantar stundakennara í
næringarfræði til að kenna 6 tíma á viku og í
framsögn 12 tíma á viku.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist skólastjóra Fósturskóla íslands v/
Laugalæk, 105 Reykjavík, fyrir 5. desember n.k.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir októbermánuð 1988,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. desember.
Fjármálaráðuneytið.
Umboðsmenn Tímans:
Kaupsta&ur: Nafn umboðsmanns Heímili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Kópavogur LindaJónsdóttir Holtagerði 28 45228
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Keflavik GuðrfðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Margrét Magnúsdóttir Hjallagötu 4 92-37771
Njarðvik Kristinn ingimundarson Faxabraut4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík LindaÓlafsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Heilissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut 3 93-41447
fsafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvfk Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu 20 94-1503
Bfldudalur HelgaGísladóttir Tjamarbraut 10 94-2122
Þingeyri KaritasJónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavik ElísabetPálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi FriðbjörnNíelsson Fífusundi12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíö13 95-5311
Slglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Ólafur Geir Magnússon Hjarðarhóli 2 96-41729
Ólafsfjörður HelgaJónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308
Raufarhöfn Ófeigurl.Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467
Neskaupstaður KristínÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnssorl Heiðarvegi12 97-41167
Eskifjörður Þórey Óladóttir Svínaskálahlíð19 97-61367
Fáskrúðsfjörður ÓlafurN. Eiríksson Hlíðargötu8 97-51239
Stöðvarfjörður SvavaG. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur ÓskarGuðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 98-34389
Þorlákshöfn Þórdís Hannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu28 98-31198
Stokkseyri Friðrik Einarsson Iragerðiö 98-31211
Laugarvatn Halldór Benjam ínsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jón ína og Árný Jóna Króktún 17 98-78335
Vík VíðirGylfason Austurveg 27 98-71216
Vestmannaeyjar MartaJónsdóttir Helgafellsbraut29 98-12192
Frá flokksþingi Framsóknarmanna á Hótel Sðgu.
Tfmamynd Pjetur
Frá 20. flokksþingi Framsóknarflokksins:
Ályktað um félagsmál
Jafnréttismál
Framsóknarflokkurinn telur að
forsenda jafnréttis sé fjárhagslegt
sjálfstæði einstaklingsins. Ennfrem-
ur verður hver einstaklingur að
hafa jafn mikil áhrif á hvernig
fjármagn og aðrir framleiðsluþætt-
ir eru nýttir.
Málefni fatlaðra
Frá því að lög um málefni fatl-
aðra tóku gildi í byrjun árs 1984
hafa framlög til þess málaflokks
stórlega aukist. Fylgt hefur verið
þeirri stefnu að byggja upp svæðis-
bundna þjónustu fyrir fatlaða í
öilum kjördæmum landsins.
Flokksþingið leggur því áherslu
á eftirfarandi:
• Að fatlaðir lifi og starfi meðal
annarra í þjóðfélaginu.
• Að sjálfsákvörðunarréttur fatl-
aðra sé virtur.
• Aðfatlaðireigitiljafnsviðaðra
aðgang að þjónustu almennings-
farartækja, leigubifreiða og
hópferðabifreiða.
• Að öflugri heimaþjónustu verði
komið á í öllum sveitarfélögum
iandsins og að dagvist mikið
fatlaðra verði stóraukin.
• Aðkjörstuðningsfjölskyldnaog
tilsjónarfólks verði verulega
bætt.
• Að vinnustaðirséuþannighann-
aðir að þeir séu aðgengilegir
öllum fötluðum.
• Að lög verði sett sem tryggi að
við innkaup á skrifstofubúnaði
sé þess gætt að hægt sé að aðlaga
hann þörfum fatlaðra.
• Að tengsl verndaðra vinnustaða
við atvinnulífið verði aukin,
starfsþjálfun fatlaðra efld og
þeim veittur stuðningur á hinum
almenna vinnumarkaði.
• Að fatlaðir hafi jafnan rétt og
aðrir íbúar' þessa lands til að
tryggja sér öruggt húsnæði.
• Að öryrkjar séu aðstoðaðir við
að eignast og reka eigin bifreið.
• Að byggingarreglugerð verði
endurskoðuð með sérstöku tilliti
til aðgengi fatlaðra. Lögð verði
ríkari áhersla á ábyrgð hönn-
uða, byggingarnefnda og bygg-
ingarfulltrúa á að slíkum ákvæð-
um verði framfylgt.
• Að gerð verði úttekt á öllum
opinberum byggingum hvað
varðar aðgengi fatlaðra og gerð
5 ára áætlun um að breyta þeim,
þannig að aðgengiskröfum verði
fullnægt.
• Að hagsmunasamtök fatlaðra
fái sambærilega stöðu í þjóðfé-
laginu og samtök launafólks.
Jafnrétti kynjanna.
Flokksþingið hvetur til að jafn-
réttislögunum verði framfylgt.
Jafnrétti kynjanna næst þá fyrst,
þegar laun kvenna og karla eru
jöfn.
Flokksþingið leggur áherslu á
eftirfarandi:
• Að tekið verði tillit til barneigna
kvenna í langskólanámi þar sem
tímamörk eru ströng, í allt að
eitt ár.
• Aðallthjalumjafnréttierhjóm
eitt, á meðan ekki er séð fyrir
möguleikum til dagvistunar fyrir
öll börn á forskólaaldri (0-6) ára
og lengdum, samfelldum
skóladegi.
• Að hraðað skuli gerð nýs
kennsluefnis, þannig að ekki
þurfi að nota kennslugögn, sem
greinilega eru mörkuð af karla-
veldi vorra tíma og fyrri.
• Að heimiiisfræðsla í grunnskól-
um verði efld og komið skuiu
upp aðstöðu til verkiegrar þjálf-
unar í faginu í öllum skólum.
Einnig skuli kennsla í þessum
greinum aukin í Kennarahá-
skólanum, m.a. með því að
bæta þeim í kjarna.
• Að í samvinnu aðila vinnumark-
aðarins og rfkisvaldsins verði
laun iáglaunastéttannaþ.e. „hin
hefðbundnu kvennastörf“
hækkuð umfram önnur laun á
næstu þremur árum.
• Að unnið verði markvisst að
framkvæmd laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla
sem sett voru í ráðherratíð Al-
exanders Stefánssonar.
• Að styðj a núverandi félagsmála-
ráðherra Jóhönnu Sigurðardótt-
ur í tímabundnum aðgerðum
hennar til að ná fram jafnri
stöðu kynjanna m.a. á vinnu-
markaði sbr. 3. grein jafnréttis-
laganna.
Fjölskyldan
Flokksþingið leggur áherslu á að
fjölskyldan er sú grunneining þjóð-
félagsins sem ber að hlúa að. Því
aðeins verður hægt að tala um
fjölskyldulíf að fólki verði gert
kleift að iifa af tekjum 8 st. vinnu-
dags og þar með gengið á milli bols
og höfuðs á þeirri vinnuþrælkun
sem nú tíðkast. Heilbrigt og menn-
ingarlegt líf skiptir meira máli en
hin ýmsu lífsþægindi sem keypt eru
fyrir peninga.
Flokksþingið leggur því áherslu
á eftirfarandi:
• Stefnt verði að því að fæðingar-
orlof verði lengt og foreldar hafi
heimild til að skipta því á milli
sín.
• Að efld verði fræðsla fyrir ungt
fólk sem er að stofna heimili.
• Að fjölskyldan eigi kost á fjöl-
breyttari aðstöðu til íþrótta og
útivistar og sameiginlegum þátt-
um í félagslífi.
• Að Þjóðkirkjan verði styrkt til
að sinna sínu mikilvæga hlut-
verki.
• Að ríki og sveitarfélög greiði
því fólki laun sem leggur niður
launuð störf til þess að annast
aldraða, sjúka og fatlaða fjöl-
skyldumeðlimi á eigin heimili.
• Að sett verði samræmd löggjöf
um félagslegt öryggi sem allra
fyrst.
• Að öryggi og vellíðan bama
verði tryggt meðan foreldrar
vinna úti.
Menningarmál
Flokksþing framsóknarmanna
telur fjölbreytt menningariíf styrk-
ustu vörn þjóðarinnar í heimi sí-
vaxandi framandi áhrifa, bæði á
sviði menningar- og efnahagslífs.
Með tækni og vaxandi umsvifum
fjölþjóðafyrirtækja á fjölmiðia-
markaði er íslenskri tungu og þjóð-
menningu viss hætta búin. Gegn
þessari þróun verður ekki snúist
með einangrunarstefnu eða inni-
haldslausum þjóðrembingi heldur
með sókn á öllum sviðum
menntunar, menningar og vísinda.
Flokksþingið leggur því áherslu
á eftirfarandi:
• Að sett verði heildarlöggjöf um
fjölmiðla.
• Að varðveisla tungunnar hafi
forgang, bæði innan skóla og í
öllum fjölmiðlum.
• Að Ríkisútvarpið verði áfram
einn af hornsteinum íslenskrar
menningar og þýðingarmikið
vígi í varnarbaráttu þjóðarinn-
ar.
• Að Ríkisútvarpinu verði gert
fjárhagslega kleift að auka og
bæta innlenda dagskrárgerð að
miklum mun.
• Að Ríkisútvarpinu verði tryggð-
ir þeir tekjustofnar samkvæmt
útvarpslögum, sem eru forsenda
þess að dagskrá þess nái til
landsmanna allra, jafnt á landi
sem á miðum umhverfis það.
• Að rekið sé blómlegt menning-
arstarf í landinu öllu því það er
forsenda þess að íslendingar
verði áfram sjálfstæð þjóð.
• Að ríkisvaldið styðji skapandi
starf í listum og bókmenntum,
því það er aðalsmerki hverrar
menningarþjóðar að unnið verði
markvisst að því að helstu lista-
stofnanir þjóni betur öllum
landsmönnum.