Tíminn - 24.11.1988, Qupperneq 7
Fimmtudagur 24. nóvember 1988
Tíminn 7
Franz Blankart ráðuneytisstjóri utanríkisviðskiptaráðuneytis Sviss flutti
fyrirlestur við Háskóla íslands í gær um einangrun eða þátttöku í málefnum Evrópu:
HRYNJIGATT RAÐA
FRUMSKOGARLOGMAL
Franz Blankart, ráðuneytisstjóri
utanríkisviðskiptaráðuneytis Sviss,
er staddur hér á landi og hélt hann
fyrirlestur í gær á vegum viðskipta
og hagfræðideildar Háskóla íslands.
Par fjallaði hann um stefnu Sviss-
lendinga í málum varðandi einangr-
un eða þátttöku í málum Evrópu.
Franz Blankart nam heimspeki,
hagfræði og lögfræði við háskólana í
Basel, París, Exeter og Bern og lauk
doktorsprófi árið 1964. Hann hefur
gegnt fjölmörgum störfum fyrir
svissnesku utanríkisþjónustuna,
m.a. stýrt sendinefndum Sviss hjá
EFTA, GATT, UNCTAD og UN
Economic Commission for Europe.
Hann hefur stjórnað viðskiptavið-
ræðum Sviss við önnur ríki og hjá
GATT og var um skeið yfirmaður
Interamerican Development Bank.
Árið 1986 var hann skipaður ráðu-
neytisstjóri utanríkisviðskipta Sviss.
Hann er prófessor við University
Institute for European Studies í
Genf.
Utanríkisviðskiptastefna
komi ekki í stað utanríkisstefnu
í stöðu sinni sem ráðuneytisstjóri
utanríkisviðskipta Sviss, en það
ráðuneyti er ábyrgt fyrir því „að
halda vörð um efnahagslega hags-
muni Svisslendinga gagnvart öðrum
þjóðum, bæði tví- og fjölhliða"
gegnir Franz Blankart mikilvægu
starfi á tímum aukinna viðskipta
með varning og þjónustu, vaxandi
samkeppni og þegar þjóðir verða
sífellt háðari hver annarri.
Hann er þó fjarri því að líta á
utanríkisviðskiptastefnu sem upphaf
og endi allrar utanríkisstefnu og
segir í því sambandi að hann finni
hvorki þörf né löngun til að koma
einhverjum breytingum á í utanrík-
isráðuneytinu. Hans skoðun sé sú að
hefðbundin utanríkissamskipti hafi
síður en svo glatað gildi sínu, hvorki
varðandi það að koma á eða við-
halda góðu samkomulagi við aðrar
þjóðir, né á mannúðarsviðinu.
Ágúst Birgisson Ágústssonar en
ekki Ásgeir Birgisson Ásgeirssonar
Veislan í
Venezuela
Þau leiðu mistök áttu sér stað í
Tímanum í gær að nöfn feðganna
Ágústs og Birgis Ágústssonar brengl-
uðust í frétt um væntanlegt brúð-
kaup Ágústs. Þar var hann kallaður
Ásgeir og Birgir faðir hans var rangt
feðraður, var sagður Ásgeirsson.
Þarna átti semsé að standa Ágúst en
ekki Ásgeir og er hér með beðist
velvirðingar á þessum mistökum.
Vill ekki ríkisstyrki
til viðskiptalífsins
Franz Blankart er ekki heldur
stuðningsmaður ríkisstyrks í stórum
stíl til viðskiptalífsins. Hann bendir
á að Svisslendingar veiti ekki útflutn-
ingsstyrk til iðnaðarins og ábyrgðar-
kerfi vegna áhættu í útflutningi sé
vanþróaðra en með mörgum öðrum
þjóðum. „Þjóðarbú getur aðeins eytt
því sem það hefur yfir að ráða og
það væri ekkert annað en að dreifa
tekjum á annan hátt, ef við legðum
á hærri skatta til að framkvæma verk
sem viðskiptalífið er hvort sem er
betur í stakk búið til að fást við,“
segir hann. Hann leggur áherslu á að
mikilvægast sé fyrir svissneskt við-
skiptalíf að það sé alltaf samkeppnis-
fært.
Efnahagslíf sem standi styrkum
fótum fremur en ríkisstuðnirigur -
eða hvað varðar árið 1992 að eiga
von á góðvild frá Evrópubandalag-
inu - er það sem skiptir sköpum.
Hrynji GATT ráða frumskógar-
lögmál I viðskiptum landa
En ekki má líta fram hjá alls kyns
utanaðkomandi áhrifum, sem gætu
Frmnz Btankart ráftnneytisstjórí
utanríkisviftskipta Sviss.
skyndilega bundið enda á heilbrigð-
an útflutningsefnahag og þar með
líflegan heimamarkað. Og þessi
áhrif segir Blankart öll tengjast -
stefna Ev.rópubandalagsins, þróun í
GATT, alþjóðlegir skuldabaggar,
vandamál í utanríkisviðskiptum,
hráefnisverð, vandamál varðandi
þróunarlöndin og ótalmörg önnur
atriði.
í þessu sambandi bindur hann
miklar vonir við hinar svokölluðu
Uruguay umræður innan GATT.
Þar sé um kapphlaup við tímann að
ræða og ef samningaviðræður komist
ekki fljótlega á það stig að jákvæður
árangur sé í augsýn gæti G ATT-kerf-
ið hrunið til grunna vegna hinnar
alþjóðlegu skuldabyrði og annars
ójafnvægis í efnahagsmálum heims-
ins, sem leiddi til að sterkari aðilinn
hefði yfirhöndina þar sem tvær sætu
að samningum. Við tækju lögmál
frumskógarins. Slíkt ástand hefði
hörmungar í för með sér fyrir meðal-
stóra þjóð sem stundar viðskipti um
víðan heim, eins og Svisslendingar,
þegar litið er til þess að þeir hafi ekki
sinn viðskiptagróða af viðskiptum
við Vestur-Evrópu, heldur lönd um
alla heimsbyggðina.
Það er því skoðun Blankarts að
Svisslendingar verði að stefna að því
að „styrjcja, aðlaga og útbreiða"
fjölhliða viðskiptakerfi sem næði til
alls heimsins og ábyrgðist að allar
þær þjóðir sem eru aðilar að GATT
sitji við sama borð.
Samdrátturinn í
þjóöfélaginu bitnar
á fiskmörkuðunum:
Minni sala
en í fyrra
Samkvæmt frétt í nýjasta tölu-
blaði Fiskifrétta hefur mikill sám-
dráttur átt sér stað á fiskmörkuð-
um hérlendis, ef miðað er við
sama tíma í fyrra. Til dæmis mun
salan hafa verið um helmingi
minni á Fiskmarkaðnum hf. í
Hafnarfirði, í september og októ-
ber, í ár en í fyrra. Þessa sam-
dráttar virðist hafa gætt víðar til
dæmis í Reykjavík og á Suður-
nesjum auk þess sem fiskmarkað-
ir í Vestmannaeyjum sem og á
Akureyri hafa lagt upp laupana.
Heldur mun þó útlitið vera skárra
í þessum mánuði að því er haft er
eftir Einari S.M. Sveinssyni for-
stjóra Fiskmarkaðarins hf í Hafn-
arfirði, því salan hefur tekið mik-
inn kipp það sem af er mánuðin-
um og hefði það reyndar komið
nokkuð á óvart.
í samtali við Fiskifréttir segir
Bjarni Thors forstjóri Faxamark-
aðar að menn hafi ekki átt von á
mikilli sölu frá því í nóvember og
allt fram í janúar því reynslan
sýni að mikið sé um að siglt sé
með aflann á erlendar hafnir auk
þess sem verið sé að fiska ýmis
konar skrapfisk. Bjarni tekur
hinsvegar undir það að fram að
þessu hafi það komið á óvart
hversu vel salan hafi gengið í
nóvember. - áma
Góð orð '
duga skammt.
Gott fordæmi
V —skiptir mestu
yUMFERDAR
RÁD
máli
SIGILDUR SAFNGRIPUR
JÓLASKEIÐIN 1988
I 40 ár höfum við smíðað hinar sígildu og vinsælu jólaskeiðar. Með árunum hafa þær orðið
safngripir og aukið verðgildi sitt. Nú er jólaskeiðin 1988 komin. Hún er fagurlega skreytt með
mynd af Viðey á skaftinu, en gyllt á skeiðarblaði.
GUÐLAUGUR A. MAGNÚSSON
LAUGAVEGI 22a
S. 15272
AUGLYSENDUR!
PÓSTFAX TÍMANS