Tíminn - 24.11.1988, Síða 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 24. nóvember 1988
FRETTAYFIRLIT
ÚTLÖND
Ólga ríkir enn í Kákasuslýðveldum Sovétríkjanna:
BUDAPEST - Ungverski ■
kommúnistaflokkurinn hefur
útnefnt Milos Nemeth sem í
forsætisráherraefni sitt, en |
ungverska þingið mun velja |
forsætisráðherra landsins í
stað Karoly Grosz í næstu
viku. Nemeth er 40 ára hag-
fræðingur og á sæti í stjórnar-
nefnd flokksins.
LISSABON - Angólska
skæruliðahreyfingin UNITA
hét því að halda áfram skæru-
hernaði sínum gegn stjórnar-
hernum í Angóla þrátt fyrir
friðaráætlun þá er Suður-Afr-
íkustjórn, Angólastjórn og
Kúbustjórn hafa samþykkt.
Friðaráætlunin gerir ráð fyrir
að hermenn Kúbumanna haldi
á brott frá Angóla, Suður-Afr-
íkumenn haldi frá Namibíu og
að Namibía fái sjálfstæði sem
friðargæslusveitir Sameinuðu j
þjóðanna tryggi. UNITA sagði:
enga lausn vera á borgara-
styrjöldinni í Angóla án þess,
að hreyfingin yrði með í ráðum.
BEIRUT - Háttsettir mús- i
límaklerkar í Líbanon virtust,
hafa náð að koma á vopnahléi
milli stríðandi sveita Shíta;
múslíma sem barist hafa af;
mikilli hörku í suðurhluta Beir-1
útborgar undanfarna daga.
Bardagarnir hafa verið hinir'
hörðustu milli mismunandi!
sveita Shíta síðustu sex mán-,
uði.
VÍN - Sovéski útlaginn og
mannréttindasinninn Júrí Orl-
ov hvatti Vesturlönd til að snið-
ganga ráðstefnu þá er Sovét-
menn hafa boðað til og fjalla á
um mannréttindi, nema Sovét-
menn taki sig verulega á í
mannréttindamálum. Amnesty
International tilkynnti I gær að
172 pólitískir fangar væru nú í
haldi í Sovétríkjunum, en Sov-
étmenn segja þá vera 52.
HERMENN FALLAI
KYNÞÁTTAÓEIRÐUM
Kynþáttaólgan er síst í rén-
un í Kákasushéruðum Sovét-
ríkjanna og eru andstæðir
kynþættir nú farnir að drepa
hermenn sem reyna að ganga
á milli stríðandi fylkinga. Á
þriðjudaginn voru þrír sov-
éskir hermenn drepnir í átök-
um Azera og Armena í Azer-
baijan, en hermennirnir áttu
að koma í veg fyrir átök
kynþáttanna. Á annað
hundrað manns slösuðust í
átökunum, en ekki hafa frétt-
ir borist af fleiri dauðsföllum.
Hermennirnir þrír voru ásamt fé-
lögum sínum kallaðir á vettvang í
bænum Kirovobad og þorpum í
Nakhichevanhéraði til að skakka
þar leikinn, en átök milli þjóðarbrot-
anna voru komin úr öllum böndum.
Ýtarlegri fréttir hafa ekki borist
frá þessm síðustu átökm sem verða
á milli Armena og Azera vegna
kröfu Armena um að Nagorno-
Karabakh hérað verði sameinað
Armeníu, en Armenar eru í miklum
meirihluta í héraðinu sem nú tilheyr-
ir Azerbaijan.
Um 400 þúsund Azerar tóku þátt
í mótmælafundum í miðborg Baku,
höfuðborgar Azerbaijan, í gær.
Starfsemi lá niðri í fíestum verk-
smiðjum í borginni vegna mótmæl-
anna og hefur svo verið frá því
mótmælaaðerðir hófust á ný í Sovét-
lýðveldinu í síðustu viku.
Samkvæmt heimildum frá Armen-
íu sýni sjónvarpið í Azerbaijan
myndir af fundarhöldum í Baku þar
sem mátti sjá fólk veifa trúarlegum
fánum og lýsa yfir stuðningi við
ungann Azera sem á dögunum var
dæmdur til dauða vegna hlutdeildar
sinnar í átökum við Armena. Á einu
flagginu stóð „Frelsi til handa hetj-
unum frá Sumgait".
Ungmennið, Akhmed Akhme-
dov, var einn þriggja Azera er
ákærður hefur verið fyrir að bera
ábyrgð á morðum sjö Armena í
Sumgait í febrúarmánuði. í kyn-
þáttaofsóknum sem gekk yfir borg-
ina þá létust þrjátíu og tveir menn
flestir Armenar.
Sovéskir hermenn voru sendir á vettvang til að skakka leikinn milli Armena
og Azera í Azerbaijan. Það fór ekki betur en svo að tveir hermenn féllu.
Allir Astralir
í eyðniprófun?
Svo kann að fara að öll ástralska
þjóðin verði tekin í eyðnipróf, en
áætlun þessa efnis liggur nú fyrir
ríkisstjórn Ástralíu og mun stjórnin
bráðlega taka ákvörðun um hvort
leggja eigi tillögurnar fyrir þingið.
Með þessu er talið að draga megi úr
útbreiðslu eyðni í Ástralíu, en hing-
að til hafa 540 manns látist úr
þessum óhugnanlega sjúkdómi frá
því hans var fyrst vart í Ástralíu fyrir
fimm árum.
Græna skjalið, en svo er áætlunin
almennt kölluð, var lagt fyrir ríkis-
stjórn Ástralíu af Neal Blewett heil-
brigðisráðherra landsins. Gerirhann
ráð fyrir að eyðniprófið muni kosta
rúmlega milljarð ástralskra dollara,
en alls þarf að eyðniprófa 16 milljón
Ástrali.
Talið er að minnsta kosti 10 þús-
und Ástralir séu smitaðir eyðniveir-
unni og að jafnvel 40 þúsund kynnu
að vera smitaðir.
Verðbólga
að drepa
Kanann
Verðbólgan í Bandaríkjunum er nú komin í 4.6% á
ársgrundvelli og hefur ekki verið hærri í sjö ár. Verðbólgan
náði 8.9% árið 1981 en hefur ekki faríð yfir 4.5% síðan. I
fyrra var hún 4.4% á ársgrundvelli. Þetta kemur fram í
nýjustu skýrslum Atvinnumálaráðuneytis Bandaríkjanna.
Ekki eru Iíkur á að úr verðbólgu
dragi því hagfræðingar telja að
verðbólga muni enn aukast á næst-
unni. Þá eru líkur á vaxtahækkun
vegna mikils fjárlagahalla Banda-
ríkjanna. Þá er viðskiptajöfnuður
óhagstæður mcð eindæmum svo
ekki virðist bjart framundan fyrir
Georgc Bush er hann tekur við
forsetaembættinu. sérsaklega í
Ijósi þess að hann segist ekki ætla
að hækka skatta tii að loka fjárlaga-
gatinu.
Eftir síðustu verðhækkanir þá
kostar matarkarfa sú er greiða
þurfti 100 dollara fyrir á árunum
1982 til 1984 nú 120 dollara og 20
cent. Það þykir f Bandaríkjunum
rosaleg verðhækkun, þó fslending-
ar myndu ekki kippa sér upp við
vcrðhækkanir sem þessar.
ISLAMABAD - Benazir
Bhutto tilkynnti að enn hafi
útnefningu hennar sem for-
sætisráðherra verið frestað og
sagði að andstæðingar hennar
hygðust nota tímann til að ná
samkomulagi við óháða þina-
menn svo hægt sé að snið-
ganga hana.
Aðskilnaðarsinnaöir Baskar láta til skarar skríða í Madríd:
Drengur lést í sprengjutilræði
Ungur drengur og miöaldra maður létust þegar öflug
sprengja sprakk utan við höfuðstöðvar þjóðvarðliða í Madríd
í fyrrakvöld. Fjörutíu og fimm manns særðust, margir hverjir
mjög alvarlega. Er talið að Aðskilnaðarhreyfíng Baska hafí
staðið fyrir ódæðinu.
ANKARA-Byssumaðurinn j
sem ætlaði að skjóta Turgut
Ozal forsætisráðherra Tyrk-
lands var dæmdur í 20 ára j
fangelsi fyrir vikið. j
COLOMBO - Forsetafram-
bjóðandi stjórnarandstöðunn- ;
ar á Sri Lanka Sirima Banda-
ranaike hefur krafist þess að
alþjóðleg nefnd stjórni kosn-
ingunum sem fram fara í
næsta mánuði.
Sprengjan sem var mjög öflug
sprakk rétt fyrir miðnætti. Starfs-
maður ríkisútvarpsins í Madríd lést
samstundis, en hann átti leið hjá í
bifreið sinni. Drengurinn sem var
aðeins tveggja og hálfs árs gamall
var á ferð með foreldrum sínum
nálægt höfuðstöðvunum er sprengj-
an sprakk. Hann særðist alvarlega
og lést á sjúkrahúsi undir morgun.
Sprengjutilræðið í fyrrakvöld er
það fyrsta í höfuðborg Spánar í
sautján mánuði, en ETA, aðskilnað-
arhreyfing Baska hefur þó staðið
fyrir fjölda sprengjutilræða undan-
farna mánuði og hafa fimmtán
manns látið lífið í hermdarverkum
Baska á þessu ári.
Innanríkisráðherra Spánar Jose
Luis Corcuera sagði á blaðamanna-
fundi í gærmorgun greinilegt að
skæruliðar hefðu ætlað að valda sem
mestum usla og manntjóni með
sprengjunni.
Lögreglan lokaði öllum undan-
komuleiðum frá sprengjustaðnum í
gær og fundu bifreið skæruliðanna
sem skráð var í Baskalandi. Lögregl-
an sprengdi bifreiðina í loft upp af
ótta við að sprengju hefði verið
komið fyrir í henni.
Sprengjan sprakk aðeins fáum
klukkustundum áður en forsætisráð-
herra Spánar Felipe Gonzalez átti
fund með Francois Mitterrand for-
seta Frakklands. Var talið að þeir
ætli að ræða áframhaldandi samstarf
lögreglunnar á Spáni og Frakklandi
í baráttunni gegn skæruliðum að-
skilnaðarsinnaðra Baska.