Tíminn - 26.11.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 26.11.1988, Blaðsíða 3
Laugardagur 26, nóvemþer-t1,9,8,9.: Tíhiiríri" £ Frumvörp viöskiptaráöherra um fjármálaviðskipti tekin í gegn áfundi Lögfraeðingafélagsins af Birni Lfndal: Oryggisreglum kastað og eftirlit fellt nidur Björn Líndal, lögfræðingur og aðstoðarmaður bankastjórnar Landsbankans, gagnrýndi mjög á síðasta fundi Lögfræðingafélagsins þau frumvörp sem viðskiptaráðherra hefur nú lagt fram varðandi verð- bréfaviðsipti og aðra skylda fjár- málastarfsemi í landinu. í viðtali við Tímann telur Björn að í tveimur tilvikum væri ákvæði frumvarpanna þess eðlis að vart væri um annað að ræða en handvömm. Annars vegar virtist að lögfesting þeirra myndi leiða til þess að núverandi eftirlit Bankaeftirlitsins með verðbréfavið- skiptum félli að verulegu leyti niður. Hins vegar væri sú breyting sem lögð væri til á lögum um viðskiptabanka og sparisjóði og aðild þessara stofn- ana að verðbréfafyrirtækjum með þeim hætti að öryggisreglum núgild- andi bankalaga væri kastað fyrir róða. Auk þessa sagði Björn að ákvæði frumvarps um eignaleigu sem gerðu ráð fyrir að þessi fyrirtæki gætu talið víkjandi lán með eigin fé, fælu í sér mismunun gagnvart bankastofnun- um sem ekki hafa slíka heimild. Bendir hann á að í frumvarpinu sé reiknað með að bankaeftirlit verði skert hvað varðar miðlun verðbréfa- sjóða frá því sem núgildandi lög gera ráð fyrir. Eftirlit, sem þó er fyrir hendi, verði því fellt niður, nema hvað varðar eftirlit með verðbréfa- sjóðum. í stað þessa eftirlits verði þó tekið upp eftirlit með eignaleigum í samnefndu frumvarpi. „Petta ereins og hálf duttlungafullt kráarrölt," segir Björn. Hann efast um að verðbréfaviðskipti geti þróast í rétta átt á íslandi ef frumvarp þetta verður samþykkt án talsverðra lagfæringa. Björn er heldur ekki of ánægður með frumvarpið til laga um eigna- leigur. Hann bendir á að eignaleigur eigi með frumvarpi þessu að njóta þeirra forréttinda að víkjandi lán megi reikna með til eigin fjár, en það er ekki heimilt í almennum reglum. „Þetta yrði nýjung í gerð reiknings- skila hér á landi,“ sagði Björn. Slíkar breytingar væru ekkert óeðli- legar út af fyrir sig en ef slík breyting á að ná fram að ganga gagnvart eignaleigum, verður að veita við- skiptabönkum og sparisjóðum hlið- stæð réttindi. Önnur vansmíð, sem Bjöm Línd- al bendir á, er að nokkuð skortir á að skýrar reglur verði settar um að kaupandi verðbréfa eigi rétt á ítar- legum upplýsingum um útgefanda viðkomandi bréfa, fjárhagsstöðu hans og framtíðarhorfur. Þannig lægi raunverulegt verðgildi bréfanna betur fyrir. Þetta mun helst eiga við um skuldabréfaflokka af ýmsu tagi. Því er eingöngu fylgt eftir með því að í frumvarpinu að lögum um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði er getið um heimild Seðlabankans til að setja sérstakar reglur. „Ég held Loðnuveiöar: Dræm veiði Fremur dræm veiði hefur verið á loðnumiðunum í vikunni og eru loðnuskipin dreifð frá Rifsbanka vestur fyrir Kolbeinsey við loðnuleit. Tveir bátar tilkynntu um afla á fimmtudag, Bergur tilkynnti um 240 tonn og Grindvíkingur 750 tonn. í gærmorgun tilkynnti Guðmundur Ólafur um 200 tonn, Huginn 220 tonn og Höfrungur 320 tonn. Það sem af er vertíðinni er búið að tilkynna um tæplega 137 þúsund tonna afla. - ABÓ að frumvarpið gangi allt of skammt að þessu leyti og ekki sé tryggt með því að við stefnum í rétta átt og að verðbréfaviðskipti geti þróast með heilbrigðum hætti,“ sagði hann. Þriðja atriðið, sent Björn bendir á, varðar frumvarpið að lagabreyt- ingu við lögin um viðskiptabanka og sparisjóði. Þar segir Björn að erfitt sé að skilja hvað vaki fyrir frum- varpssmiðum, þegar þeir leggja til afnám takmarkana við stofnun verð- bréfafyrirtækja. í gildandi lögum er viðskiptabönkum heimilt að stofna verðbréfasjóð með þeim tak- Björn Líndal. mörkunum að ekki megi renna til hans meira fé en nemur einum fimmta af eigin fé bankans. Er þá meðtalið hlutafé það sem bankinn leggur fram og lánsfé sem hann fær frá bankanum. Þessar takmarkanir eru afnumdar í frumvarpinu. KB,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.