Tíminn - 26.11.1988, Blaðsíða 19

Tíminn - 26.11.1988, Blaðsíða 19
Laugardagur 26. nóvember 1988 'Tíminn '19 Brynhildur Guðmundsdóttir Þann 19. nóvember síðastliðinn lést á sjúkrahúsinu á Akureyri Bryn- hildur Guðmundsdóttir til heimilis að Köldukinn II A-Hún. Brynhildur var fædd 20. ágúst 1933 og var því aðeins 55 ára þegar hún lést. Við þetta ótímabæra fráfall yndislegrar manneskju setur mann hljóðan. Skelfing vildi ég kunna einhver orð eða geta eitthvað gert fjölskyldu hennar elskulegu, frænd- fólki mínu, til huggunar. Brynhildur var alin upp í Nýpu- koti í Víðidal, dóttir hjónanna Guð- mundar Jósefssonar og Hrefnu Hinr- iksdóttur. Þau áttu fjórar dætur og var Brynhildur næst elst. 1954 giftist hún föðurbróður mínum Kristóferi Kristjánssyni í Köldukinn og bjuggu þau þar alla tíð. Þau eignuðust þrjú börn, Kristján giftan Margréti Hall- björnsdóttur og eiga þau þrjú börn, Hrefnu en hennar maður er Jakob Svavarsson og eiga þau tvær dætur og Guðrúnu sem gift er Ingþóri Krist- inssyni og eiga þau tvo syni. Þessi fjölskylda sér nú á bak einstakri manneskju sem vakti alltaf yfir vel- ferð hennar. Dúlla eins og við kölluðum hana alltaf var ákaflega vel gerð kona, sterk, kát og hlý. Hún var mjög frá Köldukinn dugleg og vel verki farin, það var nánast sama hvað hún gerði, allt lék í höndum hennar og hún kom ákaf- lega miklu í verk. Dúlla og Kiddi voru mjög samhent hjón og áttu fallegt heimili. Þau voru gestrisin og til þeirra var gaman að koma. Um árabil var heimili hennar félags- og menningarmiðstöð sveitarinnar. Þarna voru haldnar jólatrésskemmt- anir, spilakvöld, margvíslegir fundir og kórar æfðir og margt fleira sem of langt yrði að telja upp. Allt þetta stuðlaði að betra mannlífi í sveitinni en það var eitt af því sem DúIIu var mjög umhugað um, og einnig að vel áraði í búskapnum. í Köldukinn voru tvö mannmörg heimili, hjá Dúllu og Kidda dvöldust afi minn og amma og á hinum bænum vorum við stór fjölskylda. Alltaf áttum við systkinin góðu að mæta þegar við þustum í heimsókn yfir í hitt húsið enda notuðum við okkur það óspart. Tengdaforeldrum sínum var Dúlla góð og umhyggju- söm en þau dvöldu hjá þeim Kidda meðan þeim entist heilsa til. DúIIa starfaði í mörg ár í kvenfé- lagi hreppsins og hin síðari ár sungu þau hjónin í blönduðum kór. Af þessu hafði hún ákaflega gaman og eins að ferðast um landið með manni sínum. Sagði hún okkur margar skemmtilegar ferðasögur þegar við sáumst. Já vænt þykir mér um að hafa kynnst henni Dúllu og ég mæli fyrir okkur öll úr ytra húsinu þegar ég þakka fyrir gott nágrenni og vináttu um áratuga skeið. Við Halldór og börnin þökkum fyrir góðu stundirn- ar með henni og sendum fjölskyldu hennar okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Gunnþórunn Jónsdóttir. TIL SÖLU VOLKSWAGEN UULh U l AKUtHtJ öö. steingrar, 5 gira, LITAÐAR RÚÐUR, FJÓRIR HAUSPÚÐAR, GLÆSILEG BIFREIÐ VERÐ CA. 730.000,-. SKIPTI MÖGULEG. UPPLÝSINGAR í SÍMA 91-617620 (EGILL) —BAÐINNRÉTTINGAR - ALLAR STÆRÐIR—i STÍLHREIN Sjáirðu aðra betri þá kaupirðu hana!! TÍGULEG r^l SAMVINNU UrVJ TRYGGINGAR ARMÚLA 3 108 REYKJAVlK ■ SÍMI (91)681411 Útboð Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Skoda 130 Rapid . árgerð 1988 Mazda 323 1300 . árgerð 1987 Volvo 240 GL . árgerð 1987 Opel Omega GL . árgerð 1987 Ford Escort 1300 LX . árgerð 1986 Lada Samara . árgerð 1986 Mazda 323 GLX . árgerð 1986 Mazda 323 1500 . árgerð 1986 Suzuki Alto . árgerð 1983 Mazda 323 1300 . árgerð 1981 Chevrolet Caprice . árgerð 1981 Honda Accord . árgerð 1981 VWGolf . árgerð 1981 Peugeot 505 GR . árgerð 1981 Colt 1200 . árgerð 1981 Vörubílshús Volvo F12 .... . árgerð 1988 Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9, Reykjavík, mánudaginn 28. kl. 12-16. nóvember 1988, Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t. Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl. 12, þriðjudaginn 29. nóvember 1988. SAMVINNUTRYGGINGAR g.t. - Bifreiðadeild ' Til sölu VOLVO STATION 1987, dökkblár, 5gíra, rafmagn í rúðum og rafmagnslæsingar, útvarp, segulband og dráttarbeisli, sem nýr, ekinn 32.000,-. Skipti koma til greina á nýlegum bíl. Upplýsingar í síma 91-77035. t Þakka innilega samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns m íns Bjarna Markússonar, matsveins frá Rofabæ, Meðallandi, Laugarnesvegi 76. Sérstakarþakkirtil Blindrafélagsins og deildar 11E, Landspítalanum. Lilja Sigurðardóttir. AUGLÝSENDUR! r r POSTFAX TIMANS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.