Tíminn - 26.11.1988, Blaðsíða 20

Tíminn - 26.11.1988, Blaðsíða 20
Laugardagur 26. Yiövember 1988 ÚTVARP/SJÓNVARP llllllllllllllll 20 Tíminn DAGBÓK Lausnir sendist til: Ríkisútvarpsins RÁS 2 Efstaleiti 1 150 Reykjavík Merkt Tónlistarkrossgátan Aðventusamkoma í Digranessöfnuði Digranessöfnuður efnir til aðventusam- komu í Kópavogskirkju sunnudagskvöld- ið 27. nóv. kl. 20.30. Par verður tónlist í hávegum höfð og ræðu flytur Kristján Guðmundsson bæjarstjóri. Matthías Johannesson, skáld, flytur eigin ljóð. Endað verður á helgistund með almenn- um söng. Aðventuhelgihald í Bústaðakirkju Bústaðakirkja var vígð fyrsta sunnudag í aðventu 1971, og er sá dagur því afmælisdagur Bústaðakirkju. Því er að- ventuhelgihald með sérstökum blæ hjá söfnuðinum. Dagskrárliðir eru þannig: Kl. 11:00 er barnaguðsþjónusta og fjölskyldusamvera. Guðrún Ébba Ólafs- dóttir stýrir samkomunni með aðstoð Braga Ingibergssonar guðfræðinema og við hljóðfærið er Guðni Þ. Guðmunds- son. Messa er kl. 14:00. Sr. Ólafur Skúlason prédikar. Eftir messu er hátíðarkaffi og sér Kvenfélag Bústaðsóknar um veiting- ar. Mikill hljóðfærasláttur og söngur í messugjörð og einnig við veisluborðið. Aðventusamkoma kl. 20:30 um kvöldið. Þá syngur kórinn og einsöngvar- ar eru Ingibjörg Marteinsdóttir, Eiríkur Hreinn Helgason, Sigurjón Guðmunds- son, Ingveldur Ólafsdóttir og Einar Örn Einarsson. Auk þess er almennur söngur og kertin tendruð. Ræðumaður þá er Vestur-fslendingurinn sr. Eric H. Sigmar, sem dvelst hér á landi í ár. Félag eldri borgara: Laugardagur: Opið hús í dag, laugard. 26. nóv. í Tónabæ kl. 13:30. Félagar frá Selfossi koma í heimsókn kl. 17:30. Skemmtiatr- iðiogdans. Veitingar til söluástaðnum. Athugið að danskennsla fellur niður í dag. Sunnudagur: Opið hús á morgun, sunnud. 27. nóv. í Goðheimum, Sigtúni 3 kl. 14:00. Frjálst spil og tafl. Kl. 20:00 verður dansað. Mánudagur: Opið hús á mánud. 28. nóv. kl. 13:.30 í Tónabæ frá kl. 13:30. Félagsvist spiluð kl. 14:00. Eldri bæjarbúar í Kópavogi Munið stofnfund Félags eldri borgara í félagsheimilinu laugardaginn 26. nóv. kl. 14. BILALEIGA meö utibú allt í kringum landiö, gera þér mögulegt aö leigja bíl á einum staö og skila honum á öörum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Bílaleiga Akureyrar Lionsklúbbur Hafnarf jarðar selur jólapappír Helgina 26. og 27. nóv heldur Lions- klúbbur Hafnarfjarðar sína árlegu sölu á jólapappír. Allur ágóði rennur óskiptur til líknar- mála í bænum en nú síðustu ár hefur sérstök deild fyrir þroskahefta á Víðivöll- um notið stuðnings við uppbygcineu oe endurnýjun tækja. Fyrirlestur erfðafræðings Nk. mánudagskvöld heldur dr. Jórunn , Erla Eyfjörð erfðafræðingur fyrirlestur um nýjar aðferðir og rannsóknir á mann- erfðafræði en Jórunn starfar á nýrri rannsóknastofu Krabbameinsfélags ís- lands í sameinda- og frumulíffræði. Fyrirlesturinn verður í stofu 101 í Odda og hefst kl. 20.30. Erindi um umhverfismál í H.í. Mánudaginn 28. nóvember kl. 17:15 mun Einar B. Pálsson, verkfræðingur flytja erindi í stofu 158 í húsi verkfræði- deildar, Hjarðarhaga 6. Erindið nefnir Einar: Matsatriði, m.a. náttúrufegurð. Þetta er 10. og síðasta erindið í erinda- flokki sem fluttur hefur verið í verkfræði- deild Háskóla íslands. Til þeirra var stofnað fyrir nemendur í deildinni, en aðgangur er öllum frjáls, eins þeim, sem ekki eru nemendur í háskólanum. Um- sjón hefur haft Einar B. Pálsson, prófess- or. Minningarkort Styrktarsjóðs bamadeildar Landakotsspítala Styrktarsjóður barnadeildar Landa- kotsspítala hefur látið hanna minninga- kort fyrir sjóðinn. Sigríður Björnsdóttir myndlistarmaður og kennari teiknaði fjögur mismunandi kort. Eftirtaldir staðir selja minningakortin: Apótek Seltjarnarness, Vesturbæjarapó- tek, Hafnarfjarðarapótek, Garðsapótek, Holtsapótek, Mosfellsapótek, Árbæjar- apótek, Lyfjabúð Breiðholts, Reykjavík- urapótek, Háaleitisapótek, Kópavogs- apótek, Lyfjabúðin Iðunn. Blómaversl- anirnar; Burkni, Borgarblóm, Melanóra Seltjarnarnesi og Blómaval Kringlunni. Einnig eru þau seld á skrifstofu og barnadeild Landakotsspítala. Kaffisala Kvenfélags Bústaðasóknar Kvenfélag Bústaðasóknar er með kaffi- sölu á morgun, sunnud. 27. nóv. að lokinni messu. Guðni Þ. Guðmundsson organisti kemur með gesti til að skemmta samkomufólki. Tekið verður á móti kök- um eftir kl. 10:00 á sunnudagsmorgun í safnaðarheimilinu. Fríkirkjan í Reykjavík Barnaguðsþjónusta kl. 11. Almenn guðsþjónusta kl. 2. Leikið verður á orgel kirkjunnar frá kl. 13.45. Orgelleikari Pavel Smid. Sr. Cecil Haraldsson Hafnarfjarðarkirkja Sunnudagaskóli kl. 10.30. Munið sunnudagaskólabílinn. Messa kl. 14, fyrsta sunnudag í aðventu. Eiríkur Örn Pálsson leikur einleik á trompet. Organ- isti: Helgi Bragason. Séra Þórhildur Ólafs. Aðventusamkoma í Hjallasókn Aðventusamkoma verður í messu- heimili Hjallasóknar 27. nóv. kl. 17. Tekið verður í notkun nýtt orgel. Dagskrá er fjölbreytt og heldur m.a. sr. Erik Sigmar aðalræðuna. Kristján Einar Þorvarðarson flytur lokaorð og bæn. Orgelleikari er Sólveig Einarsdóttir. Keflavíkurkirkja Sunnudagaskóli kl. 11. Muniðskólabíl- inn. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Fermingarbörn aðstoða, flytja leikþátt og smásögur. Vænst er þátttöku fermingar- barna og foreldra þeirra. Kór Keflavík- urkirkju syngur. Organisti: Örn Falkner. Sóknarprestur. Fríkirkjufólk Tvær guðsþjónustur í Háskólakapell- unni. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Almenn guðsþjónusta og altarisganga kl. 14. Kaffisopi eftir messu. Sr. Gunnar Björnsson. Aðventuhátíð í Langholtskirkju Fyrsti sunnudagur í aðventu, upphaf nýs kirkjuárs, sem nú ber upp á 27. nóvember, er jafnframt kirkjudagur Langholtssafnaðar. Verður dagurinn haldinn hátíðlegur með guðsþjónustum, tónleikum og sérstakri kvöldhátíð á fyrsta aðventukvöldi. Ræðumaður verður Hall- dór Ásgrímsson dóms- og kirkjumálaráð- herra. Hátíðin hefst kl. 11 með barnaguðs- þjónustu. Hátíðarguðsþjónusta verður kl. 2 sd. Lúðrasveitin Svanur heldur svo tónleika, sem hefjast kl. 5 síðdegis. Kvöldhátíðin hefst svo í kirkjunni kl. 20.30 um kvöldið og að henni lokinni geta gestir keypt kaffi í kirkjunni. SJÚKRAHÚSIÐ I HÚSAVÍK SF VELKOMIN I' HEIMSÓKN Sjúkrahúsið í Húsavík SF óskar eftir deildarstjóra á almenna sjúkradeild frá 1. febrúar 1989. Hvernig væri að skreppa í heimsókn og kanna aðstæður? Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96- 41333. Laugardagur 26. nóvember 6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Halldóra Þor- varðardóttir flytur. 7.00 Fréttir. 7.03„Góðan dag, góðir hlustendur“. Pétur Pétursson sér um þáttinn. Fréttir sagðar kl. 8.00, þá lesin dagskrá og veðurfregnir sagðar kl. 8.15. Að þeim loknum heldur Pétur Pétursson áfram að kynna morgunlögin. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. 9.05 Litli barnatíminn. „Vaskir vinir" eftir Jennu Jensdóttur og Hreiðar Stefánsson. Þórunn Hjartardóttir les (6). (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00). 9.20 Hlustendaþjónustan. Sigrún Björnsdóttir leitar svara við fyrirspurnum hlustenda um dagskrá Rikisútvarpsins. 9.30 Fréttir og þingmál. Innlent fréttayfirlit vik- unnar og þingmálaþáttur endurtekinn frá kvöld- inu áður. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Sígildirmorguntónar. H.OOTilkynningar. 11.05 í liðinni viku. Atburðir vikunnar á innlendum og erlendum vettvangi vegnir og metnir. Umsjón: Sigrún Stefánsdóttir. 12.00 Tilkynningar. Dagskrá. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Hér og nú. Fréttaþáttur í vikulokin. 14.00 Tilkynningar. 14.05 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál. Umsjón: Þorgeir Ólafsson. 15.00 Tónspegill. Þáttur um tónlist og tónmenntir á líðandi stund. Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 íslenskt mál. Gunnlaugur Ingólfsson flytur þáttinn. (Einnig útvarpað á mánudag kl. 15.45). 16.30 Laugardagsútkall. Þáttur í umsjá Arnar Inga sendur út beint frá Akureyri. 17.30 Hljóðbyltingin - Metsöluplötur. Fjórði og lokaþáttur frá breska ríkisútvarpinu (BBC) sem gerðir voru í tilefni af aldarafmæli plötuspilarans. Umsjón: Sigurður Einarsson. 18.00 Bókahomið. Sigrún Sigurðardóttir kynnir nýjar barna- og unglingabækur. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.33 „... Bestu kveðjur“. Bréf frá vini til vinar eftir Þórunni Magneu Magnúsdóttur sem flytur ásamt Róbert Arnfinnssyni. (Einnig útvarpað á mánudagsmorgun kl. 10.30). 20.00 Litli barnatíminn. (Endurtekinn frá morgni). 20.15 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Einar Guð- mundsson og Jóhann Sigurðsson. (Frá Akur- eyri) (Einnig útvarpað á miðvikudag kl. 15.03). 20.45 Gestastofan. Stefán Bragason ræðir við áhugatónlistarfólk á Héraði. (Frá Egilsstöðum) (Einnig útvarpað nk. þriöjudag kl. 15.03). 21.30 íslenskir einsöngvarar - Halldór Vil- helmsson og Rut L. Maqnússon. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Danslög. 23.00 Nær dregur miðnætti. Kvöldskemmtun Út- varpsins á laugardagskvöldi undir stjórn Hönnu G. Sigurðardóttur. 24.0C Fréttir. 00.10 Svolítið af og um tónlist undir svefninn. Búlgarski þjóðkórinn syngur þætti úr „Allrar náttar vöku" eftir Sergei Rakhmaninoff. Jón Örn Marinósson kynnir. 01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. 03.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi. Fréttir kl. 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. 8.10 Á nýjum degi. Þorbjörg Þórisdóttir gluggar í helgarblöðin og leikur bandaríska sveitatónlist. 10.05 Nú er lag. Gunnar Salvarsson leikur tónlist og kynnirdagskrá Útvarpsinsog Sjónvarpsins. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45Dagbók Þorsteins Joð. - Þorsteinn J. Vilhjálmsson. 15.00 Laugardagspósturinn. Skúli Helgason sér um þáttinn. 17.00 Fyrirmyndarfólk. Lísa Pálsdóttir tekur á móti gestum og bregður léttum lögum á fóninn. 19.00 Kvöldfréttir. 19.33 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi. 22.07 Út á lífið. Magnús Einarsson ber kveðjur milli hlustenda og leikur óskalög. 02.05 Syrpa. Magnúsar Einarssonar endurtekin frá fimmtudegi. 03.00 Vökulögln. Tónlist af ýmsu tagi i næturút- varpi til morguns. Fréttir kl. 4.00 og sagðarfréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. Fréttir kl. 2.00,4.00,7.00,8.00,9.00,10.00,12.20, 16.00,19.00, 22.00 og 24.00. SJÓNVARPIÐ Laugardagur 26. nóvember 12.30 Fræðsluvarp. Endursýnt Fræðsluvarp frá 21. og 23. nóv. sl. 1. Samastaður á jörðinni (45 mín) 2. Frönskukennsla (15 mín) 3. Brasilía (20 mín) 3. Kóngulær (18 mín) 5. Vökvakerfi (8 mín). 14.30 íþróttaþátturinn. Meðal annars bein út- sending frá leik Leverkusen og Hamburger SV í vestur-þýsku knattspyrnunni, sýnt frá leikjum úr ensku knattspyrnunni og fylgst með úrslitum þaðan, og þau birt á skjánum jafnóðum og þau berast. Um kl. 17.00 verður bein útsending frá b ikarkeppninni í sundi 1. deildar í Sundhöllinni. Umsjónarmaður Amar Bjömsson. 18.00 Mofli - síðasti pokabjörninn. (12). (Mofli - El Ultimo Koala) Spænskur teiknimyndaflokkur fyrir börn. Þýðandi Steinar V. Árnason. 18.25 Smellir. Umsjón Ragnar Halldórsson. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Fréttir og veður. 19.15 Evrópsku kvikmyndaverðlaunin (EBU Film Price) Hátíðadagskrá í beinni útsendingu frá „Theater Des Westens" í Berlín í tilefni af verðlaunaafhendingu evrópsku kvikmynda- verðlaunanna 1988. Til þessara verðlauna er stofnað af Evrópubandalagi útvarps- og sjón- varpsstöðva og eru þau nú veitt í fyrsta skipti. Meðal þeirra sem tilnefnd hafa verið til verð- launa eru Tinna Gunnlaugsdóttir og Helgi Skúlason. Sýnd verða atriði úr kvikmyndum og fjölmargir þekktir listamenn koma fram í skemmtiatriðum, þeirra á meðal Klaus-Maria Brandauer, Melina Mercouri, Ben Kingsley og Joan Collins. Formaður dómnefndar er Isabelle Huppert. Hljómsveitarstjóri er Gúnter Fischer. 21.30 Lottó. 21.40 ökuþór.JHome James). Annar þáttur. 22.10 Maður vikunnar. Órn Arnar læknir í Minne- sotafylki í Bandaríkjunum. Umsjón Sigrún Stef- ánsdóttir. 22.25 Lili Marleen (Lili Marleen) Þýsk bíómynd frá 1981 eftir Rainer Werner Fassbinder. Aðalhlut- verk Hanna Schygulla, Giancarlo Giannini og Mel Ferrer. Myndir gerist í Þýskalandi í upphafi seinni heimsstyrjaldar og segir frá revíusöng- konu sem slær í gegn með laginu Lili Marleen. Það á eftir að hafa mikil áhrif á líf hennar og þau ekki öll góð. Þýðandi Veturliði Guðnason. 00.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Laugardagur 26. nóvember 08.00 Kum, Kum. Teiknimynd. Þýðandi: Sigrún Þorvarðardóttir. Paramount. 08.20 Hetjur himingeimslns.He-man. Teikni- mynd. Þýðandi: Sigrún Þorvarðardóttir. 08.45 Kaspar. Casper the Friendly Ghost. Teikni- mynd. Þýðandi: Guðjón Guðmundsson. World- vision. 09.00 Með Afa. 10.30 Penelópa punturós. The Perils of Penelope Pitstop. Teiknimynd. Þýðandi: Alfreð S. Böðv- arsson. Worldvision. 10.50 Einfarinn. Lone Ranger. Teiknimynd. Þýð- andi: Hersteinn Pálsson. Filmation. 11.10 Ég get, ég get I Can Jump Puddles. Leikin framhaldsmynd í 9 hlutum um fatlaðan dreng sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. 7. hluti. Aðalhlutverk: Adam Garnett og Lewis Fitz-Gerald. Þýðandi: Birna Bemdsen. ABC Australia. 12.05 Laugardagsfár. Tónlistarþáttur. 13.15 Viðskiptaheimurinn. Wall Street Joumal Nýir þættir úr viðskipta- og efnahagslífinu sem framleiddir eru af Wall Street Journal og sýndir hér á Stöð 2 í sömu viku. Þýðandi: Björn Baldursson. 13.40 Þeir bestu. Top Gun. Hætta og spenna bíða ungu piltanna sem innritast í flugher Bandaríkj- anna og söguhetjan okkar er staðráðin í að verða best. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Kelly McGillis, Anthony Edwards og Tom Skerritt. Leikstjóri: Tony Scott. Framleiðendur: Don Simpson og Jerry Bruckheimer. Paramount 1986. Sýningartími 105 mín. 15.25 Ættarveldið. Dynasty. Bandarískur fram- haldsþáttur. Þýðandi: Guðni Kolbeinsson. 20th Century Fox. 16.15 Heimsmeistarakeppnin í flugukasti 1987. 16.40 Heil og sæl. Endurtekinn þáttur um tikm- efnaneyslu. Umsjón: Salvör Nordal. Handrit: Jón Óttar Ragnarsson. Dagskrárgerð: Sveinn SVeinsson. Framleiðandi: Plúsfilm. Stöð 2. 17.15 Ítalskí fótboltinn. 17.50 íþróttir á laugardegi. Meðal efnis í þættin- um eru fréttir af íþróttum helgarinnar, úrslit dagsins kynnt, Gillette-pakkinn o.m.fl. Umsjón: Heimir Karlsson. 19.1919.19 Fréttir og fréttatengt efni ásamt veður- og íþróttafréttum. 20.30 Laugardagur til lukku. Nýr getraunaleikur sem unninn er í samvinnu við björgunarsveitim- ar. í þættinum verðurdregið í lukkutríói björgun- arsveitanna en miðar, sérstaklega merktir Stöð 2, eru gjaldgengir í þessum leik og mega þeir heppnu eiga von á glæsilegum aðalvinningum. Dagskrárgerð: Gunnlaugur Jónasson. Stöð 2. 21.15 Kálfsvað. Chelmsford. Breskur gaman- myndaflokkur sem gerist á dögum Rómaveldis. Aðalhlutverk: Jimmy Mulville, Rory McGrath, Philip Pope. Leikstjóri: John Stroud. Þýðandi: Órnólfur Árnason. Channel 4,________________ 21.45 Hugrekki. Courage. Myndin er byggð á sannsögulegum atburði og greinir frá móður sem reynir ítrekað að frelsa son sinn úr viðjum eiturlyfjavanans. Fjölskyldulífið er í molum og sonurinn er illa haldinn af ofneyslu kókaíns og heróíns. Móðirin tekur að lokum afdrifaríka ákvörðun og teflir lífi sínu í tvísýnu þegar hún afræður að taka þátt í leynilegum aðgerðum. Með aðstoð drifmikils njósnara berst hún hat- rammri baráttu til að bjarga annarri fjölskyldu frá harmleiknum og stofnar lífi og limu í hættu til að fletta ofan af einum stærsta eiturlyfjahring sem um getur. Aðalhlutverk: Sophia Loren, Billy Dee Williams og Hector Elizondo. Leikstjóri: Jeremy Paul Kagan. Framleiðandi: Joel B. Michaels. New World 1986. Sýningartími 115. mín. 00.00 Fangelsisrottan. The River Rat. Myndin fjallar um mann sem hefur hlotið lífstíðardóm fyrir morð. Eftir þrettán ára fangelsisvist er honum veitt frelsi fyrir milligöngu eftiriitslæknis sem er ekki allur þar sem hann er séður. Staðráðinn í að hefja nýtt líf leitar hann til móður sinnar og dóttur og leggur drög að því að endurheimta féð sem hann kom undan áður en hann var handtekinn. Feðginin tvö hefjast handa við að koma gömlum bát, River Rat, á flot og setja stefnuna á Memphis. Þar bíður þeirra óvæntur gestur, eftirlitslæknirinn, sem hyggst nú láta fangann greiða sér frelsið dýrum dómi. Aðalhlutverk: Tommy Lee Jones, Brian Denn- ehy og Martha Plimpton. Leikstjóri: Tom Rickman. Framleiðandi: Bob Larson. Param- ount 1984. Sýningartími 90 mín. Aukasýning 7. jan. 01.30 Götulíf. Boulevard Nights. Ungur piltur af mexíkönskum ættum elst upp í fátækrahverfi í Los Angeles. Hann mætir miklum mótbyr þegar hann reynir að snúa baki við götulífinu og hefja nýtt líf. Aðalhlutverk: Danny De La Paz, Mareta Du Bois og James Victor. Leikstjóri: Michael Pressman. Framleiðandi: Bill Benson. Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir. Warner 1979. Sýningar- tími 100 mín. Ekki við hæfi bama. 03.10 Dagskrárlok. LV

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.